Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 42
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Þuríður þykir frábær í mannlegum
samskiptum og segir að þessa dag-
ana sé hún að æfa sig í að hlusta á
annað fólk.
Hún er einkaþjálfari og er heilluð
af fyrirtækjarekstri.
„Þegar ég fór svo að velja mér há-
skólanám þá heillaðist ég sér-
staklega af námi sem tengdist fyrir-
tækjarekstri. Ég skoðaði því bæði
viðskiptafræði, hagfræði og rekstr-
arverkfræði en valdi rekstrarverk-
fræði þar sem ég taldi námið bjóða
upp á möguleika bæði varðandi
framhaldsnám og atvinnu.
Í náminu lærði ég fyrst og fremst
þverfaglega hugsun og að vera
lausnamiðuð í þeim verkefnum sem
maður mætir í leik og starfi.
Ég fór svo í markþjálfunarnám
hjá Háskólanum í Reykjavík en ég
valdi það til að styrkja mig í virkri
hlustun og spurningatækni sem hef-
ur nýst mér mjög vel.“
Hvernig lýsir þú vinnu þinni fyrir
Nova?
„Ég er heppin að vera í vinnu sem
ég hlakka til að mæta í á hverjum
degi. Verkefnin eru fjölbreytt,
krefjandi en svakalega skemmtileg.
Þetta snýst í raun allt um að búa til
besta liðið; lið sem langar að ná ár-
angri og við vinnum saman að því
alla daga.“
Hvað heillar þig við vinnustaðinn?
„Gleðin klárlega!
Hjá Nova starfar kraftmikill hóp-
ur sem leggur sig fram alla daga við
að bæta þjónustu við viðskiptavini
og stækka dansgólfið okkar. Það er
ekki sjálfgefið að fyrirtækið mótist
af gleði, samheldni og vilja til að ná
árangri.“
Lærði vinnusemi af foreldrunum
Nú hef ég heyrt að þú sért góð í
samskiptum. Hvað getur þú sagt mér
um það?
„Ég tel að góð og vönduð samskipti
séu lykilatriði til að líða vel og ná ár-
angri. Þetta er ekki alltaf auðvelt en
ég hef vandað mig við að tileinka mér
að vera heiðarleg og opin. Það skiptir
afar miklu máli að geta rætt saman,
sagt sínar skoðanir og tala ekki undir
rós.
Þetta hef ég lært í starfi mínu hjá
Nova og hjálpar mér klárlega á öðr-
um vígstöðvum einnig.
Mér finnst líka mikilvægt að eyða
ekki tíma og orku í að tala um aðra,
það sem ég hef að segja vil ég geta
sagt beint við fólk.
En annars er ég sjálf að æfa mig í
að hlusta meira og tala minna, en ég á
það til að tala of mikið.“
Hvaðan færðu vinnueðli þitt?
„Ég er alin upp af duglegum for-
eldrum sem hafa alltaf lagt mikla
áherslu á að maður þurfi að leggja sig
fram í því sem maður tekur sér fyrir
hendur. Það er ekkert gefins og mað-
ur þarf að vera tilbúinn að leggja hart
að sér.
Ég hef líka haft frábærar fyrir-
myndir innan Nova og dáðst að krafti,
seiglu og útsjónarsemi hjá þeim frá
upphafi. Árangursmenning innan
Nova er drifkrafturinn í að vilja gera
betur í dag en í gær, það er líka mik-
ilvægt að læra af mistökum og halda
áfram.“
Hamingjan mikilvæg
Hver eru áhugmál þín?
„Ég er algjör dellukerling og fæ
æði sem endast mislengi. Ég er mikil
keppnismanneskja og fer fljótt í að
breyta áhugamálum í keppni þannig
að það má segja að það sé ákveðið
áhugamál hjá mér.
En yfir sumartímann þá erum við
fjölskyldan mjög dugleg að ferðast
um landið, við elskum útilegur á fal-
lega landinu okkar. Nú þegar börnin
eru að stækka þá er auðveldara að
taka þau með í göngur og ævintýri.
Þau eru líka öll komin á snjóbretti
en ég er sjálf að prófa mig áfram í því
sporti en þyki ekki sérstaklega fær.
Annars er fjölskylda mín mikið hesta-
fólk og sinnti ég því vel áður en ég
eignaðist börnin, nú langar mig að
taka það upp á nýjan leik og þá með
börnin mín með í för.“
Hver eru framtíðarplön þín?
„Númer eitt tvö og þrjú eru plönin
mín að hugsa vel um mig, að mér líði
vel og ég sé að gera það sem mér
finnst skemmtilegt á hverjum tíma!
Ég er rosalega ánægð með það sem
ég er að gera núna, nýt mín í botn
bæði hjá Nova og í stjórnarsetu
Lyfju.
Framtíðarplönin mín eru að halda
áfram læra, þroskast og sækja tæki-
færi.
Ég tel að til að vera hamingju-
samur í starfi verði maður að vera
hamingjusamur í lífinu almennt.“
Besta ráðið að vera hún sjálf
Hvað er besta ráð sem þú hefur
fengið?
„Besta ráð sem ég hef fengið er frá
mömmu minni en hún hefur lagt
áherslu á að vera ég sjálf og treysta
mér, skoðunum mínum og standa með
mér. Það er þó mikilvægt að hafa í
huga að ef fíflunum er farið að fjölga í
kringum þig þarftu líklega að skoða
eitthvað hjá sjálfum þér. Mér finnst
þetta gott jafnvægi.“
En það versta?
„Þegar ég var unglingur þá var
manni sagt að álit annarra skipti öllu
máli og maður lagði sig fram við að
láta fólki líka við sig, breytti jafnvel
hegðun og skoðunum til að falla í hóp-
inn.
Í dag er ég þakklát að vera ekki í
vinsældakeppni. Ég vil frekar eiga fáa
góða vini en marga sem ég get ekki
treyst.“
Ljósmynd/PORTRA ehf
„Kraftmikið fólk
heldur manni á tánum“
Þuríður Björg Guðnadóttir hóf fyrst störf hjá Nova 18 ára gömul en þar starfar hún
enn, nú sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustu. Hún situr í stjórn Lyfju og segir að
vinnueðlið komi frá foreldrunum, sem eru harðduglegt fólk og miklar fyrirmyndir.
Kraftmikil Þuríður Björg
hóf stöf hjá Nova einung-
is átján ára að aldri.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Sumar og sól
Vorum að taka upp nýja sendingu af RayBan sólgleraugum
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af umgjörðum á góðu
verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin!
Atvinna