Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 65

Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 65
Íslendingar hafa beðið eftirJúróvisjón-mynd Wills Ferrelmeð mikilli eftirvæntingu.Myndin var að miklu leyti tekin upp hér á landi og í henni eru fjölmargir íslenskir leikarar. Sjálf- sagt hefðu landsmenn samt verið mjög spenntir yfir henni burtséð frá því hvort hún hefði einhverja teng- ingu við Ísland, því íslenska þjóðin er vitaskuld einn stór Júró- visjón-aðdáendaklúbbur. Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga fjallar um Hús- víkingana Lars Eiríkson og Sigrit Eiríksdóttur. Þau eru ekki skyld þrátt fyrir sama eftirnafnið, eða það halda þau í það minnsta ekki. Lars og Sigrit eru í hljómsveitinni Fire Saga og eiga sér þann draum helst- an að keppa í og vinna Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Lars brennur reyndar enn heitar fyrir þessum draumi en Sigrit, því hann telur að þetta sé eina leiðin til að vinna sér inn virðingu föður síns. Fyrir hálfgerða tilviljun komast þau inn í íslensku forkeppnina en enginn hefur trú á því að atriðið þeirra fái brautargengi, þar sem öllum þykir ljóst að atriði Katiönu nokkurrar sé besta atriðið í keppninni. Þegar hræðilegt slys setur strik í reikning- inn enda meðlimir Fire Saga engu að síður á því að fara í keppnina fyrir Íslands hönd. Í keppninni kynnast Lars og Sig- rit mörgum skrautlegum persónum en þar fer rússneski keppandinn Al- exander Lemtov fremstur í flokki. Júróförin er þó ekki eintómt glimm- er og glamúr og því miður gengur ekki allt eins og í sögu hjá Fire Saga. Grunnhugmyndin er ágæt, plottið er alls ekki afleitt þótt það sé ekki ýkja frumlegt. Sagan fylgir svipaðri formúlu og aðrar keppnismyndir Ferrels, eins og Blades of Glory og Talladega Nights, og hann leikur svipaða persónu og áður, hæfileika- lítinn lúða uppfullan af allt of stórum draumum. Þá minna föður- komplexar Lars og leit hans að „splorg-nótunni“ nokkuð á fyrirsæt- una Derek Zoolander úr samnefndri mynd frá 2001, en Zoolander glímdi einnig við pabbavandamál og var stöðugt í leit að hinni fullkomnu pósu sem kallaðist „bláa stálið“. Myndin hefur nú þegar hlotið nokkuð blendnar viðtökur sem kem- ur ekki á óvart, því myndin er gölluð að mörgu leyti. Klippingin í mynd- inni er til dæmis arfaslök og vinnur algerlega gegn kómíkinni og spenn- unni í sögunni. Það er eins og það sé engin stefna að baki klippingunni og fyrir vikið er myndin mjög mikið úti um allt. Þá er hljóðvinnslan utan tónlistaratriðanna ekki mjög góð og litgreiningin alveg stórundarleg. Myndin er íburðarmikil á vissum sviðum, líklega er þetta svona meðalstór framleiðsla á Holly- woodskalanum, en á öðrum sviðum lítur hún út eins og „low-budget“ mynd. Þetta misræmi gefur henni mjög furðulega áferð. Líkt og gefur að skilja er tónlist í þungamiðju myndarinnar og þarna birtast margir frumsamdir júró- smellir, sem eru bara nokkuð sann- færandi. Besta lagið er lag rúss- neska keppandans Alexanders Lemtov, „Lion of Love“, það er ógeðslega fyndið og hittir alveg í mark sem júró-paródía, ég kútveltist af hlátri í sófanum alltaf þegar það var spilað. „Lion of Love“, ásamt sveitaballaslagaranum „Jæja, ding, dong“ eru líka eiginlega einu lögin sem fara alla leið í að vera grínlög, hin lögin eru bara eins og alvöru júrólög og eru fyndin á þeim grund- velli að júrólög eru fyndin. Dan Ste- vens sem leikur Lemtov á bestu frammistöðuna í myndinni, þessi rússneski George Michael furðu- sjarmör er langeftirminnilegasti karakterinn. Rachel McAdams er fín líka og persóna hennar nær að þróast aðeins umfram það að vera bara skrautfjöður í hatti Lars. Þarna birtast að sjálfsögðu mörg andlit sem eru Íslendingum kunnug- leg, leikarar eins og Ólafur Darri, Björn Stefánsson og Jóhannes Haukur Jóhannesson eru þarna í aukahlutverkum. Hannes Óli Ágústsson fer svo alveg á kostum sem fýlulegur Húsvíkingur sem heimtar alltaf að lagið „Jæja, ding, dong“ sé spilað á dansleikjum og þessi persóna er nú þegar orðin net- grín (e. meme). Ferrell verður tíðrætt um það í viðtölum að hann hafi kynnst Júró- visjón í gegnum konuna sína, sem er sænsk. Maður fær á tilfinninguna að myndin í heild sé einskonar einka- brandari sem hafi orðið til þeirra á milli og Will Ferrel er maður sem hefur völd og fjármagn til að hrinda svona brandara í framkvæmd. Þótt myndin sé frekar mikið miðjumoð þýðir það ekki að hún sé ekki for- vitnilegt áhorf og engin hætta á að Júróvisjón-aðdáendum muni leiðast. Brokkgeng „Þótt myndin sé frekar mikið miðjumoð þýðir það ekki að hún sé ekki forvitnilegt áhorf og engin hætta á að Júróvisjón-aðdáendum muni leiðast,“ segir rýnir um mynd Wills Ferrell sem arkar hér í hrauni með McAdams. Netflix Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga bbmnn Leikstjórn: David Dobkin. Handrit: Will Ferrel og Andrew Steele. Kvikmynda- taka: Danny Cohen. Klipping: Greg Hay- den. Aðalhlutverk: Will Ferrel, Rachel McAdams, Dan Stevens, Pierce Brosn- an. 123 mín. Bandaríkin, 2020. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Eldskírn Fire Saga MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Aðrar Christopher Nolan myndir: The Dark Knight, The Dark Knight Rises Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson, sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. EXTENDED EDITION Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI 30 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFAN SÝND Í NOKKRA DAGA.Sýnd með íslensku tali Sveinssafn í Sveinshúsi í Krýsuvík, sem helgað er list hafnfirska mál- arans Sveins Björnssonar, verður opnað á ný eftir veturinn sunnu- daginn 5. júlí kl. 13. Gerð verður til- raun með lengri opnunartíma þar í sumar, sem felur í sér að opið verð- ur alla sunnudaga fram í október, milli 13 og 18. Þar verður boðið upp á veitingar og leiðsögn. Sýningin CANARÍ er yfirstand- andi í Sveinssafni og dregur hún nafn sitt af Gran Canaria. Allar myndirnar eru úr skissubók sem Sveinn hafði með sér til Kanaríeyja árið 1988 og kom óvænt í leitirnar fyrir þremur árum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Myndlistarmaður Skissubók Sveins Björnssonar kom nýlega í leitirnar. Kanaríeyjar í Sveinshúsi Erla Rut Kára- dóttir, organisti Grindavíkur- kirkju, leikur á öðrum tónleikum Orgelsumars 2020 í Hallgríms- kirkju fimmtu- daginn 2. júlí. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30. Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Felix Mendelssohn Bartholdy, Johann Sebastian Bach og Jehan Alain. Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir Orgelsumrinu, sem er hádegistónleikaröð þar sem ólíkir íslenskir organistar, víðs vegar af landinu, koma fram alla fimmtu- daga frá 25. júní til 20. ágúst. Orgelleikur í Hallgrímskirkju Eva Rut Káradóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.