Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 63

Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 63
ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 Einhvern tíma lýsti ung og efnileg íslensk knattspyrnukona því yfir, snemma á ferlinum, að hún ætlaði sér alla leið á toppinn. Eftir mikla sigurgöngu með liðum sínum í Svíþjóð og Þýskalandi síð- ustu tíu árin hefur Sara Björk Gunnarsdóttir staðið við stóru orðin. Hún samdi í gær við besta fé- lagslið heims, Lyon í Frakklandi, og það má færa rök fyrir því að þar með hafi Sara stigið skrefi lengra en nokkur íslenskur íþróttamaður í flokkaíþrótt hefur áður gert. Sara er að fara í enn hærra skrifað lið en fótboltalið Barcelona og Bayern München voru þegar Eiður Smári og Ásgeir Sigur- vinsson komu þangað, körfu- boltalið Lakers þegar Pétur Guð- mundsson kom þangað og handboltalið Kiel, Barcelona og PSG sem hafa verið með Aron Pálmarsson og Guðjón Val Sig- urðsson innanborðs. Lengra er einfaldlega ekki hægt að komast. Lið Lyon er hálf- gert heimsúrval, skipað mörgum af bestu knattspyrnukonum sam- tímans. Þar er rjómi leikmanna úr landsliðum Frakklands, Þýska- lands, Englands, Japan, Noregs og Kanada. Lyon hefur orðið franskur meistari fjórtán ár í röð og hefur síðustu fjögur árin unnið Meist- aradeild Evrópu. Á því fékk Sara m.a. að kenna í úrslitaleik með Wolfsburg fyrir tveimur árum. Wolfsburg hefur verið talið næstbesta lið heims síðustu ár en þar hefur Sara jafnan átt fast sæti og verið í lykilhlutverki öll árin sem hún lék í Þýskalandi. Skrefið sem hún tekur nú er því í sjálfu sér ekki risastórt en það verður vægast sagt for- vitnilegt að sjá hvernig Söru vegn- ar í Lyon. Hún fær bestu heilla- óskir héðan. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Körfuknatt- leikslið Grinda- víkur hefur fengið til liðs við sig banda- rískan fram- herja, Brandon Conley að nafni. Hann er 26 ára gamall, 2,01 m á hæð, og var á síðasta tímabili í röðum Karlsruhe Lions í þýsku B-deildinni en áður með BC Vienna í Austurríki, Korihait í Finnlandi og Zilina í Slóvakíu. Upphaflega kom hann frá Oral Roberts-háskólanum í Bandaríkj- unum. Síðasta vetur skoraði hann 9,6 stig og tók 4,2 fráköst að meðaltali í leik með Karlsruhe Lions. Framherji til Grindavíkur Brandon Conley FRAKKLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Sara Björk Gunnarsdóttir, lands- liðsfyrirliði í knattspyrnu, skrifaði í gær undir tveggja ára samning við franska stórveldið Lyon. Hefur Lyon verið besta félagslið heims undanfarin ár og Evrópumeistari síðustu fjögurra ára. Þá er liðið með gríðarlega yfirburði í Frakklandi og var franski meistaratitillinn í vor sá fjórtándi í röð. Sara kemur til Lyon frá Wolfsburg, þar sem hún vann sjö titla á fjórum árum og fór í úrslit Meistaradeildarinnar fyrir tveimur árum. Þar tapaði Wolfsburg einmitt fyrir Lyon. „Mér fannst vera kominn tími til að yfirgefa Wolfsburg eftir fjögur ár. Ég vildi fara að gera eitthvað annað en samt halda mig á hæsta stigi fótboltans. Lyon hafði heyrt í mér síðustu tvö ár og sýndi mér enn áhuga, svo að mér fannst þetta kjör- ið tækifæri til að halda áfram að bæta mig og vera áfram að spila með þeim allra bestu,“ sagði Sara í samtali við Morgunblaðið eftir að fé- lagsskiptin voru kynnt. Landsliðsfyrirliðinn fullyrðir að hún sé að ganga til liðs við besta fé- lagslið heims og að árangur síðustu ára tali sínu máli. „Við getum alveg fullyrt það miðað við alla titlana sem liðið hefur unnið. Lyon hefur unnið Meistaradeildina síðustu fjögur ár, og oftast allra, og svo deildina síð- ustu fjórtán ár og það er hægt að fullyrða að þetta sé skref fram á við. Væntingarnar eru miklar enda liðið búið að halda sér á toppnum þetta lengi. Hér vilja allir alla þá titla sem eru í boði og það var líka þannig hjá Wolfsburg. Lyon vill fylgja eftir því sem félagið hefur unnið síðustu ár og þá eru miklar væntingar.“ Ótrúlega sterkur hópur Leikmannahópur Lyon er ótrú- lega sterkur og ljóst að Sara verður með heimsklassa samherja í hverri stöðu hjá franska liðinu. Englend- ingurinn Lucy Bronze, sem var val- in besta knattspyrnukona Evrópu á síðasta ári, leikur með liðinu, eins og norski markahrókurinn Ada Heger- berg sem var í öðru sæti í valinu. Amandine Henry, fyrirliði franska landsliðsins, varð í þriðja sæti í val- inu og leikur hún sömuleiðis með lið- inu. Þrír bestu leikmenn Evrópu á síðasta ári verða því allir liðsfélagar Söru hjá Lyon. Þá er Sarah Bou- haddi, aðalmarkvörður franska landsliðsins, í markinu. Sara er sér- staklega spennt að spila með þýsku landsliðskonunni Dzenifer Marozs- án og hini frönsku Eugénie Le Sommer. „Það eru heimsklassa leik- menn í hverri stöðu og á miðjunni eru t.d. Dzenifer Marozsán og Eugénie Le Sommer. Það er hægt að telja upp allt liðið en þetta eru tveir leikmenn sem ég er mjög spennt að fá að spila með,“ sagði Sara. Dreymir um Evróputitil Sara hefur lengi ætlað sér að verða Evrópumeistari, en eins og áður hefur komið fram fór hún í úr- slit Meistaradeildarinnar með Wolfsburg árið 2018. Lyon hafði þá betur eftir framlengingu á Dynamo- vellinum í Kænugarði, 4:1. Sara var í byrjunarliði Wolfsburg en fór meidd af velli snemma í seinni hálf- leik. Þá hefur Lyon slegið Wolfs- burg úr leik í keppninni öll árin sem Sara lék með Þýskalandsmeist- urunum. Nú er hún sjálf orðin leik- maður Lyon og ætlar sér loks að landa Evrópumeistaratitlinum. „Það er búið að vera markmið mitt síðan ég var að spila með Rosengård og ég hef alltaf ætlað mér að ná því. Það er enn draumurinn að ná því markmiði. Ég hefði auðvitað viljað það á síðustu fjórum árum með Wolfsburg og það hefði toppað góð- an tíma þar. Það er vonandi næst á dagskrá hjá mér að vinna þá keppni.“ Meistaradeildin verður leikin í ágúst á Spáni og mætir Sara kunnuglegum andstæðingum í átta liða úrslitunum 22. ágúst, en Lyon og Bayern München drógust saman. Síðustu ár hefur Bayern verið helsti keppinautur Söru og liðsfélaga hennar hjá Wolfsburg. Meistara- deildin verður með öðruvísi sniði í ár þar sem allir leikir fara fram á Spáni og verður aðeins leikinn einn leikur í stað tveggja í átta liða og undanúrslitum. Allar líkur eru á því að Sara fái að leika með Lyon í keppninni, þrátt fyrir að hún hafi hjálpað Wolfsburg að komast í átta liða úrslit, en Wolfsburg mætir Glasgow City frá Skotlandi 21. ágúst. „Fyrst var gefið út að leik- menn sem væru að semja núna fengju ekki að vera með í Meist- aradeildinni. Ég á hins vegar von á því að hvert lið megi nota þrjá nýja leikmenn í ágúst, þótt það sé ekki staðfest. Það væri ótrúlega svekkj- andi ef ég fæ ekki að vera með í Meistaradeildinni. Það verður að fá að koma í ljós, en ég á von á að fá að vera með.“ Lyon langbesti kosturinn Sara gaf það út í ársbyrjun að hún myndi yfirgefa Wolfsburg. Vissi hún af áhuga Lyon og var því ekki lengi að ákveða sig. „Ég er búin að vera í samræðum við Lyon og ég vissi af áhuga félagsins og að samningurinn væri að renna út hjá Wolfsburg. Ég var ákveðin í því að ég myndi ekki endursemja og ég sagði klúbbnum það snemma. Ég vil halda mér á sama stalli og Lyon var langbesti kosturinn,“ sagði hún. Sara hefur lítið getað æft frönskuna til þessa. „Ég er búin að ná í forrit í símann en ég get ekki sagt að ég sé byrjuð að læra, en ég fer væntanlega í kennslu þegar ég kemst af stað.“ Skilur sátt við Wolfsburg Sara skilur sátt við Wolfsburg, enda í lykilhlutverki hjá liði sem vann tvöfalt í Þýskalandi þrjú ár í röð og þýska meistaratitilinn fjögur ár í röð. Wolfsburg mætir Essen í úrslitum þýska bikarsins á laugar- dag, en Sara hjálpaði liðinu að kom- ast í úrslitaleikinn og gæti hún því enn fagnað áttunda titlinum með lið- inu. „Ég er ótrúlega sátt við tíma minn í Wolfsburg. Þetta eru sjö titl- ar á fjórum árum og vonandi kemur sá áttundi á laugardaginn. Ég vil fá smá heiður af þeim líka ef við vinnum. Ég geng stolt frá Wolfs- burg og ég er ánægð með framlag mitt þar. Það er ótrúlega góð tilfinn- ing að geta gengið frá borði vitandi að ég gaf allt sem ég átti,“ sagði Sara Björk. Hægt að fullyrða að þetta sé besta félagslið í heimi  Sara Björk orðin leikmaður Lyon  Evrópumeistari síðustu fjögurra ára Ljósmynd/Wolfsburg Meistari Sara Björk Gunnarsdóttir kvaddi Wolfsburg með meistaratitli, en hún er nú orðin leikmaður Lyon. „Þetta hefur verið mikil, góð og jafnframt skemmtileg vinna í kringum þennan nýja landsliðsbún- ing og auðvitað merkin í kringum bæði KSÍ og landsliðið,“ sagði Guðni Bergsson, formaður KSÍ, í samtali við Morgunblaðið í gær. KSÍ kynnti nýja landsliðsbúninga frá Puma í gær, ásamt nýju lands- liðsmerki þar sem landvættir Ís- lands eru í lykilhlutverki. Kynn- ingu merkisins var ýtt úr vör með magnþrungnu myndbandi sem KSÍ birti á sínum miðlum síðdegis í gær. „Það gæti tekið tíma fyrir ein- hverja að venjast þessum breyt- ingum en það er mikil saga á bak við merkið og ég vil bara hvetja fólk til þess að kynna sér hana. Þá erum við gríðarlega ánægð með út- komuna á nýju landsliðstreyjunni og það má alveg segja að það séu spennandi tímar fram undan hjá KSÍ,“ sagði Guðni en íslenskt stuðlaberg setur svip sinn á bæði landsliðsmerkið og nýju búningana. Ítarlegra viðtal við Guðna og kynn- ing á merkinu eru á mbl.is/sport. Mikil saga á bak við nýja landsliðsmerkið Ljósmynd/KSÍ KSÍ Íslenskt stuðlaberg og landvættir koma við sögu í búningum og merki. KNATTSPYRNA 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Nettóvöllur: Keflavík – Augnablik...... 19.15 Vivaldi-völlur: Grótta – Afturelding ... 19.15 Ásvellir: Haukar – ÍA........................... 19.15 2. deild kvenna: Hertz-völlur: ÍR – Grindavík............... 19.15 Bessastaðavöllur: Álftanes – Fram .... 19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Þór ............ 18 2. deild karla: Ólafsfjarðarvöllur: KF – Kári ............. 19.15 Framvöllur: Kórdrengir – Njarðvík... 19.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.