Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Stjórnmála-barátta get-ur tekið á sig
ótrúlegustu mynd-
ir. Jafnvel grunn-
lögmálin, sem hafa
verið upphaf og
endir alls í kosningaslag, eru nú
skyndilega komin í auka-
hlutverk.
Stjórnmálaforingjar hafa
lengi verið sannfærðir um það,
að fái þeir að láta ljós sitt skína
sem oftast og sem skærast þá
muni atkvæðunum sem á þá
falla fjölga í réttu hlutfalli.
Bandaríkin hafa svo sannar-
lega verið heltekin af þessu
sjónarmiði svo lengi sem elstu
menn muna. (Og er þá átt við þá
sem eru jafngamlir núverandi
frambjóðendum og jafnvel
eldri).
Hvergi í veröldinni er eytt
öðrum eins fjármunum í ímynd-
arauglýsingar og þar.
Frambjóðendur endasendast
á milli borga og fylkja, veifa og
heilsa, kyssa og kjassa, og
missa aldrei viðtal við fjölmiðla
sem eru sæmilega vinsamlegir
þeim. Nú eru uppi önnur öld og
önnur sjónarmið.
Frambjóðandi demókrata,
Joe Biden, hefur verið í felum
mánuðum saman og er látið
heita að þar sé um margra mán-
aða sóttkví að ræða. Keppikefl-
ið er að halda Biden í byrgi sínu
eins lengi og flokkurinn kemst
upp með það.
Flokkurinn treystir sem sagt
ekki frambjóðandanum sínum
yfir þröskuld í orðsins fyllstu
merkingu. Úti, laus úr ólinni, er
talið líklegast að hann fari út af
í hverri þeirri beygju sem hann
kemur í og geti jafnvel líka far-
ið út af beinu brautinni.
Flokkurinn hefur vissulega
ástæður til að óttast það að „bi-
den-bjálfastrikin“ muni snúa
könnunum hratt við fái fram-
bjóðandinn að ganga laus og
segja eitthvað sem hefur ekki
verið skrifað fyrir hann á gagn-
sæju ræðuspjöldin hans. En
spyrja má flokkstemjarana: En
takist ykkur að koma honum í
Hvíta húsið, hvað þá? „Sá tími,
á það vandamál,“ er svarið.
Kannski verða menn þá bún-
ir að koma sér upp varaforseta
sem má láta taka við.
Repúblikanar vilja hins veg-
ar ólmir fá að eiga við Biden,
þótt enginn „utanaðkomandi“
hafi fengið að spyrja hann. Þeg-
ar Biden kom fram í fyrradag
drógu jafnvel helstu spuna-
meistarar demókrata ekki dul á
að hann hefði vissulega verið
fullkomlega óáhugaverður,
hefði haft lítið sem ekkert fram
að færa og verið beinlínis
leiðinlegur. „En,“ segja þeir,
„það var ekki endilega vont.
Fólkið í landinu er komið með
upp í kok“ bæta þeir við, „og
vill miklu fremur
langar leiðinda-
þulur en hitt.“
Hvaða hitt? er þá
spurt. „Forseta
sem rýkur upp í
morgunsárið eftir
að hafa horft á yfirlit frétta á
ótal stöðvum, flengjandi sér út
með vafasömum fullyrðingum á
netmiðla af ýmsu tagi, setjandi
allt þjóðfélagið á annan endann.
Þegar aðstoðarmenn hans og
sérfræðingarnir loks vakna er
reynt að vinda ofan af vitleys-
unni og róa þjóðfélagið svo það
nái að kyngja kornflexinu og
koma sér í vinnuna án þess að
fara á taugum yfir dularfullum
boðskap forsetans. Það eru
langdregin leiðindi sem fólkið
þráir á þessum tímapunkti
hinnar trompuðu tilveru.“
Repúblikanar segjast aldrei
áður hafa heyrt nokkurn fram-
bjóðanda fá þann vitnisburð
sinna eigin manna að aðals-
merki hans væru framúrskar-
andi leiðindi og það að hafa
þess utan minna en ekkert fram
að færa.
Í sinn hóp viðurkenna repú-
blikanar þó að best væri að
koma einhverjum böndum á
hömlulausar yfirlýsingar for-
setans sem tekur iðulega fyrri
hluta hvers dags að setja í
sæmilega skiljanlegt ljós.
Á móti komi þó að Trump nái
iðulega að koma allri umræðu
dagsins í sinn farveg og þegar
sjónvarpsstöðvar og dagblöð
demókrata eru loks búin að fara
í gegnum fullyrðingaflauminn
þá hafi enginn lengur áhuga á
skýringum þeirra því forsetinn
hafi þá mörgum klukkutímum
fyrr farið inn á ný og ólík mið.
Kannanir hanga yfir báðum
framboðum. „Eru þær of góðar
til að vera sannar?“ spyrja
demókratar sig. Hvað mun ger-
ast þegar óhjákvæmilegt verð-
ur að hleypa Biden fyrir alvöru
út af vaxmyndasafninu í graf-
hýsinu og ekki verður lengur
fært að skrifa hvert orð upp í
munninn á honum?
Og hinum megin óttast liðið í
kringum Trump að ekki muni
gefast nægjanlegur tími til að
vinda ofan af vondum könn-
unum. Þær hafi vissulega verið
mótdrægar í kosningunum 2016
og Trump unnið samt. En nú sé
bilið mun meira og á meðan
veiran veltur enn um þjóðfélag-
ið muni það ekki ná sér á strik.
Aðeins eru fáeinar vikur þar til
kjósendur taka að greiða at-
kvæði utan kjörfundar svo að
tíminn er ekki bara naumur,
hann er næstum búinn. Það er
því óhætt að fullyrða að báðir
stóru flokkarnir í Bandaríkj-
unum séu með öndina í háls-
inum. Hvað þýðir það? Það eina
sem er öruggt er að það er
ógaman fyrir öndina.
Kosningabaráttan
í Bandaríkjunum
núna er engri
annarri lík}
Leiðindin skárri
en tryllingurinn?
S
amkvæmt nýlegum rannsóknum er
endurkomutíðni í íslensk fangelsi
um 20% og er hún með því lægsta
sem þekkist á Norðurlöndum.
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað í fangelsiskerfinu. Eigi að síður er staðan
sú að fangelsin hafa ekki getað sinnt fullnustu
allra dæmdra fangelsisrefsinga og vararefs-
inga. Í apríl á þessu ári voru 638 einstaklingar
á boðunarlista Fangelsismálastofnunar og yf-
ir 30 dómar gætu fyrnst á árinu.
Tíminn sem líður frá því dómur fellur og
þar til afplánun hefst var að meðaltali nær 17
mánuðir á síðasta ári. Dómþolar hafa þurft að
bíða í allt að þrjú ár þar til þeir geta hafið af-
plánun. Þessi staða er óviðunandi.
Í ljósi framangreinds skipaði ég sérstakan
starfshóp til að fara yfir þessi mál og koma
með tillögur til úrbóta. Vinna hópsins skilaði
sér í vandaðri skýrslu þar sem grunnur er lagður að leið-
um til lausnar vandans. Á grundvelli vinnu starfhópsins
hef ég því ákveðið að hefja úrbætur sem leiða eiga til
þess að hægt sé að stytta boðunarlista.
Flestum er þungbært að vera dæmdir til refsingar.
Þegar við bætist langur biðtími eftir því að greiða skuld
sína við þjóðfélagið er ekki hægt að líta á það öðruvísi en
sem refsiauka. Biðin veldur auknu álagi, angist og kvíða,
ekki aðeins hjá dómþola sjálfum heldur einnig þeim sem
næst honum standa. Margir hafa jafnvel snúið af þeirri
braut sem leiddi til hinnar refsiverðu háttsemi, jafnvel
náð bata frá áfengis- og vímuefnaneyslu og stofnað fjöl-
skyldu þegar þeim er loks gert að hefja af-
plánun dóms.
Refsingar eru ekki einfalt mál og sífellt
umræðuefni hversu þungar þær eigi að vera.
Í fræðilegri umræðu um tilgang og eðli refs-
inga koma fyrir hugtök eins og réttlæti, betr-
un og varnaraðráhrif refsinga. Á síðari árum
hefur betrunarhugtakið fengið æ meira vægi
og áherslan í fangelsismálum lotið að því að
þeir sem víkja af vegi dyggðarinnar læri af
mistökum sínum og endurtaki ekki brot sín.
Í tillögum starfshópsins er öðru fremur
horft til vægari brota sem leiða af sér
skemmri fangelsisdóma. Þau úrræði sem
boðuð eru lúta að því að styðja þá sem dæmd-
ir hafa verið til þess að byggja sig upp á ný.
Aukin samfélagsþjónusta, reynslulausn og
sáttamiðlun eru meðal þeirra leiða sem hægt
er að nýta til að stytta boðunarlista. Sátta-
miðlunin er dæmi um áhugaverða leið til þess að þeir
sem hafa brotið af sér horfist í augu við brot sitt og af-
leiðingar þess og geti náð sátt við brotaþola án þess að til
hefðbundinnar refsingar komi. Slíkt verður þó ávallt háð
vilja þess sem brotið var á.
Með skynsamlegum lausnum er hægt að spara, bæði í
réttarkerfinu og fangelsismálum. Tryggja mannúðlega
nálgun gagnvart brotamönnum án þess að slakað sé á
kröfum okkar um að hver og einn taki afleiðingum
gjörða sinna.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Óviðunandi refsiauki
Höfundur er dómsmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Forsætisráðuneytið kynnti ígær í samráðsgátt stjórn-valda tillögu að frumvarpium breytingar á II. kafla
stjórnarskrár Íslands í 13 liðum.
Kaflinn fjallar um forsetaembættið
og framkvæmdavaldið. Samið var um
endurskoðun stjórnarskrárinnar í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar
og skyldi fengist við II. kaflann á
kjörtímabilinu.
Fram kemur að formenn þeirra
flokka sem nú sitja á Alþingi hafi átt
fundi frá upphafi árs 2018 um breyt-
ingar á stjórnarskránni. Þar hafi ým-
is ákvæði komið til skoðunar. Vinna
við það frumvarp sem nú hefur verið
birt sé komin það langt áleiðis að rétt
hafi þótt að leita álits og athuga-
semda frá almenningi um efni þess í
samráðsgáttinni. Tekið er fram að
birting í samráðsgátt á þessu stigi feli
ekki í sér skuldbindingu af hálfu for-
manna flokkanna til að standa að
framlagningu frumvarpanna í þessari
mynd á Alþingi.
Þá er upplýst að nú standi yfir end-
urskoðun laga um ráðherraábyrgð og
landsdóm en gert er ráð fyrir að
frumvörp sem verða afrakstur þeirr-
ar vinnu verði kynnt í samráðsgátt
stjórnvalda í haust.
Kjörtímabil forseta 6 ár
Helstu efnisbreytingar sem gerð
er tillaga um í frumvarpinu sem nú er
í samráðsgáttinni eru eftirfarandi:
Kjörtímabil forseta Íslands verði
lengt í sex ár og áskilið að sami mað-
ur geti ekki gegnt embætti forseta
samfellt lengur en tvö kjörtímabil,
eða alls 12 ár. Fortakslaust (lagalegt)
ábyrgðarleysi forseta Íslands á
stjórnarathöfnum verði afnumið og
lagt til að ábyrgðarleysi sé bundið við
embættisathafnir sem hann fram-
kvæmir að tillögu og á ábyrgð ráð-
herra.
Mælt verði fyrir um heimild Al-
þingis til að fela ríkissaksóknara að
fara með ákæruvald vegna ætlaðra
embættisbrota ráðherra í stað þess
að þingið gefi sjálft út ákæru. Þá er
lagt til að ákvæði um landsdóm verði
fellt úr stjórnarskrá og kveðið verði á
um rannsókn mála, útgáfu ákæru og
meðferð fyrir dómi með almennum
lögum.
Orðalag ákvæða um myndun og
hlutverk ríkisstjórnar verði skýrt og
fært til samræmis við áralanga fram-
kvæmd.
Ákvæði um ríkisstjórnarfundi
verði gerð ítarlegri og samhæfing-
arhlutverk forsætisráðherra styrkt.
Þingræðisreglan verði bundin í
stjórnarskrá og mælt fyrir um afsögn
ríkisstjórnar eða tiltekins ráðherra
við vantraust Alþingis.
Mælt verði fyrir um hlutverk
starfsstjórnar þegar ríkisstjórn, sem
beðist hefur lausnar, situr áfram þar
til ný ríkisstjórn hefur verið skipuð.
Ákvæði um skipun embættis-
manna verði færð til samræmis við
þróun sem orðið hefur á reglum um
opinbera starfsmenn og þá megin-
reglu að fagleg sjónarmið eigi að ráða
við skipanir í opinber embætti.
Ákvæðum um aðkomu handhafa
framkvæmdarvalds, þ.e. ráðherra og
forseta, að kvaðningu Alþingis og
frestun funda þingsins verði breytt í
grundvallaratriðum með það að
markmiði að þingið fari að fullu með
forræði á eigin störfum.
Mælt verði fyrir um skyldu forseta
Íslands til að leita eftir áliti forseta
Alþingis og formanna þingflokka áð-
ur en tekin verði ákvörðun um þing-
rof að tillögu forsætisráðherra.
Mælt verði fyrir um heimild Al-
þingis til að fella úr gildi lög sem for-
seti synji staðfestingar skv. 26. gr.
stjórnarskrár og þá með þeim afleið-
ingum að þjóðaratkvæðagreiðsla fari
ekki fram.
Formleg heimild forseta til að fella
niður saksókn verði afnumin.
Mælt verði fyrir um embætti ríkis-
saksóknara með það að markmiði að
tryggja embættinu sambærilegt
sjálfstæði og vernd og dómsvaldinu.
Breið samstaða takist
Í athugasemdum við frumvarpið
segir að leitast hafi verið við að setja
fram tillögur sem breið samstaða geti
ríkt um. Formenn þingflokkanna hafi
fengið Ragnhildi Helgadóttur pró-
fessor til að benda á leiðir til að upp-
færa II. kafla stjórnarskrárinnar til
samræmis við réttarþróun og fram-
kvæmd. Í kjölfarið var Skúli Magn-
ússon, héraðsdómari og dósent, feng-
inn til að semja frumvarp til
stjórnarskipunarlaga í samráði við
formenn flokkanna, sem fæli í sér til-
teknar afmarkaðar umbætur.
Í tengslum við stjórnarskrár-
endurskoðunina vann Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands könnun
á viðhorfi almennings til stjórnar-
skrárinnar sumarið 2019. Í framhald-
inu fór fram umræðufundur í nóv-
ember sama ár.
Hafa niðurstöðurnar einnig verið
hafðar til hliðsjónar við mótun þeirra
breytingartillagna sem finna má í
frumvarpinu.
Þingræðisreglan
bundin í stjórnarskrá
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Undirbúningur Um 300 manns tóku þátt í rökræðukönnun um endurskoðun
stjórnarskrárinnar í Laugardalshöll í nóvember í fyrra.