Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
10-60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAN
ERHAFIN
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Auðvitað hefur Covid haft áhrif á
Forlagið eins og flest önnur fyrir-
tæki en við erum ekki upp við vegg
að ganga til þessara viðskipta,“ segir
Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins.
Tilkynnt var í gær að Storytel AB,
móðurfélag Storytel á Íslandi, hefði
keypt 70% hlut í stærstu bókaútgáfu
landsins, Forlaginu. Bókmennta-
félagið Mál og menning mun áfram
fara með 30% hlut í félaginu, sem
mun starfa áfram sem sjálfstætt
bókaforlag, aðskilið frá streymis-
veitu Storytel á Íslandi, að því er
fram kom í tilkynningu. Mál og
menning fór með 87% hlut í Forlag-
inu en Egill Örn átti 13%. Hann hef-
ur selt allan sinn hlut en mun áfram
starfa sem framkvæmdastjóri. Aðrir
stjórnendur og starfsfólk gera slíkt
við sama.
„Við erum sátt við kaupverðið og
að einhver skuli vera til sem vill fjár-
festa í íslenskri bókaútgáfu,“ segir
Egill Örn í samtali við Morgunblaðið.
Kaupin eru að frumkvæði hins
sænska Storytel og hafa samninga-
viðræður staðið yfir síðustu mánuði.
Kaupverð er ekki gefið upp en það
verður staðgreitt. Velta Forlagsins
var um 1.100 milljónir króna í fyrra.
Kaupin eru háð samþykki Sam-
keppniseftirlitsins en verði af þeim
bætist Forlagið í hóp þriggja ann-
arra norrænna útgáfufélaga í eigu
Storytel AB, Norstedts Förlags-
grupp í Svíþjóð, People’s Press í
Danmörku og Gummerus Publishers
í Finnlandi.
„Við erum gríðarlega ánægð með
þessa nýjustu viðbót við Storytel-
fjölskylduna og öflugt net útgáfu-
félaga okkar á Norðurlöndunum.
Forlagið sómir sér þar vel meðal
virtra félaga á borð við Norstedts
Förlagsgrupp, Gummerus Publish-
ers og People’s Press. Við erum
spennt að hefja samstarf með
reynslumiklum útgefendum For-
lagsins sem deila ástríðu okkar fyrir
góðum sögum,“ segir Jonas Tellan-
der, forstjóri og stofnandi Storytel.
„Íslendingar eru mikil bókaþjóð og
við erum sannfærð um að þetta muni
reynast mikið gæfuspor fyrir ís-
lenskan bókamarkað. Þekking
Storytel á stafrænni þróun ásamt
öflugri reynslu Forlagsins í bókaút-
gáfu mun stórauka aðgengi lands-
manna að vönduðum bókmenntum
og kaupin munu treysta sérstöðu
beggja félaga enn frekar,“ segir Tell-
ander í tilkynningu.
„Nú munum við stíga inn í framtíð-
ina og getum sótt fram með stafræn-
um hætti af enn meiri krafti en verið
hefur. Þetta er það sem neytendur
hafa sótt í. Hjá Nordstedts eru staf-
rænar tekjur orðnar næstum 50% af
umfangi útgáfunnar. Við erum tölu-
vert á eftir hér á Íslandi,“ segir Egill
Örn.
Hann segir að þessi tíðindi séu
ekki bara jákvæð fyrir lesendur og
hlustendur. Þau geti ekki síður orðið
jákvæð fyrir rithöfunda. „Þetta get-
ur opnað dyr fyrir höfunda Forlags-
ins á þá markaði sem Storytel er á
fyrir. Þetta eignarhald gerir okkur
kleift að samnýta þá krafta frekar.“
Aðspurður kveðst hann ekki hafa
orðið var við óánægju höfunda með
þennan ráðahag. „Þeir sem við höf-
um talað við hafa verið mjög jákvæð-
ir. Þetta opnar dyr en það verður
engum þröngvað inn um þær dyr
sem vill það ekki.“
„Við ákváðum að taka í þessa út-
réttu hönd. Þarna bauðst okkur
tækifæri til að sigla þessu fyrirtæki í
það sem við teljum örugga höfn,“
segir Halldór Guðmundsson,
stjórnarformaður Máls og menning-
ar.
Hann segir að nýr eigandi taki yfir
alla samninga Forlagsins, þar á með-
al alla samninga við starfsfólk, og
engar breytingar séu fyrirhugaðar á
rekstri félagsins. „Við hjá Máli og
menningu lítum á þetta sem sam-
starf þótt við förum bara með tæp-
lega þriðjungs hlut,“ segir stjórnar-
formaðurinn, sem segir að tvennt
hafi vakað fyrir seljendum; að fá inn
öflugan aðaleigenda á óvissutímum
og að stórauka stafræna útgáfu.
Storytel eignast 70% í Forlaginu
Sænskt móðurfélag hljóðbókaveitunnar Storytel á Íslandi hefur keypt 70% hlut í stærstu bókaútgáfu
landsins Kaupverðið staðgreitt Samningaviðræður frá áramótum en kaupin að frumkvæði Storytel
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bóksalar Stefán Hjörleifsson, Halldór Guðmundsson, Egill Örn Jóhannsson, Otto Sjöberg, Úa Matthíasdóttir og
Rustan Panday kynntu samkomulag um kaup Storytel AB í Svíþjóð á 70% hlut í Forlaginu. Skrifað var undir í gær.
„Það sem gerist er að Storytel fær
miklu betri aðgang að efni. Storytel á
Íslandi hefur vantað fleiri hljóðbækur
og það er samkeppni um efni,“ segir
Snæbjörn Arngrímsson, fyrrverandi
bókaútgefandi.
Snæbjörn hefur starfað við bókaút-
gáfu um áratugaskeið, bæði hér á
landi og í Danmörku. Hann segir að
þar sem Storytel hefur keypt bóka-
forlög, svo sem í Svíþjóð og Dan-
mörku, hafi ekki verið gerðar miklar
breytingar á forlögunum sjálfum.
Hins vegar hafi þau komist í kjör-
stöðu til að miðla bókum sínum hjá
Storytel.
„Fyrir aðra útgefendur getur verið
mjög pirrandi að sjá forsíðuna á
Storytel. Lesendur velja sér hvaða
bækur þeir lesa þar og það er stór
tekjulind þegar þessar bækur eru í
forgrunni þar,“ segir hann.
Snæbjörn segir að ekki sé nóg með
að aðrir útgefendur eigi erfiðara með
að koma sínum titlum á framfæri á
streymisveitunni. Dæmi séu um að
þeim bjóðist síðri kjör en öðrum.
Ekki sé annað í boði en þiggja þau
eigi bækurnar á annað borð að fá þar
inni. „Þegar ég var á danska mark-
aðinum fann maður að eftir að Story-
tel keypti People’s Press hafði það öll
vopn í hendi sér. Þetta er mikið
veldi.“
Hefur verið stöðnun á Íslandi
Hann kveðst þó telja að breytinga
hafi verið þörf. „Það hefur verið
stöðnun á íslenska markaðinum mið-
að við það sem maður sér erlendis. Sú
þróun að búa til stafrænt efni úr bók-
um hefur verið hægari hér. Hljóð-
bókavæðingin hefur verið ansi mikil
úti, sérstaklega í Svíþjóð, Þýskalandi
og Danmörku. Forlagið hefur hingað
til haldið aftur af henni. Þetta breytir
því svolitlu fyrir íslenska bókamark-
aðinn.“
„Þessi tíðindi komu mér mjög á
óvart eins og mörgum öðrum. Þetta
er þó í samræmi við það sem hefur
verið að gerast annars staðar á Norð-
urlöndum þar sem Storytel hefur
fjárfest í útgáfustarfsemi samhliða
uppbyggingu á hljóðbókaútgáfu.
Kannski er þessi fjárfesting ekki stór
í upphæðum miðað við aðrar sem
fyrirtækið hefur ráðist í en hún er
gríðarlega stór á þessum íslenska ör-
markaði,“ segir Heiðar Ingi Svans-
son, formaður Félags íslenskra bóka-
útgefenda.
Heiðar Ingi segir að kaupin séu
stórtíðindi í íslenskri bókaútgáfu.
Hann segir aðspurður að eðlilegt sé
að menn spyrji sig ýmissa spurninga í
tengslum við þau, til að mynda er lúta
að miklum útgáfuréttindum Forlags-
ins og því hvernig framtíð útgáfunnar
verði. „Það er algjörlega nýtt að ís-
lensk bókaútgáfa sé hluti af al-
þjóðlegu viðskiptaumhverfi og eðli-
legt að margir í bransanum velti því
fyrir sér hvaða áhrif þessi kaup hafi.
Það geri ég sjálfur sem útgefandi.“
Heiðar Ingi segir að hingað til hafi
mikill meirihluti tekna Forlagsins
komið af sölu prentaðra bóka. Story-
tel hafi sótt fram á hljóðbókamarkaði
og þar megi búast
við áframhaldandi
vexti. „Það var
tekið fram að ekki
væru boðaðar
neinar breytingar
á rekstri Forlags-
ins svo vænt-
anlega sjá kaup-
endur sér hag í
fyrirtækinu sem
sjálfstæðri rekstr-
areiningu, líkt og þeir hafa gert varð-
andi aðrar sambærilegar fjárfest-
ingar á Norðurlöndum. Hefbundin
bókaútgáfa er mikilvæg auðlind fyrir
hljóðbókaútgáfu en þarf líka að vera
arðbær ein og sér.“
Hann bendir jafnframt á að fjár-
festar hafi ekki slegist um íslensk
bókaforlög til þessa. „Þannig að ef
menn sjá framtíðarfjárfestingu í ís-
lenskri bókaútgáfu þá eru það stór
tíðindi fyrir bransann í sjálfu sér.“
Gæti veikt stöðu rithöfunda
Skiptar skoðanir virðast vera með-
al rithöfunda ef marka má umræður á
Facebook í gær. Kristín Helga Gunn-
arsdóttir, fyrrverandi formaður Rit-
höfundasambandsins, sagði í spjall-
hópi félaga í Rithöfundasambandinu:
„Þessar alvarlegu sviptingar hljóta að
vekja höfunda Forlagsins til umhugs-
unar um stöðu sína og framtíð. Sporin
hræða svo sannarlega í nágranna-
löndunum.“
Eiríkur Örn Norðdahl sagði að
með þessum gjörningi væri „einum
iðjuhöldi skipt út fyrir annan,“ en
Auður Jónsdóttir kvaðst telja að
áhrifin gætu verið meiri en virtist í
fyrstu. „Jafnvel veikt samningastöðu
íslenskra höfunda til lengri tíma litið.
Ef ég skil þetta rétt þá er stærsta for-
lagið á Íslandi ekki lengur íslenskt.“
Storytel veldi sem hef-
ur öll vopn í hendi sér
Skiptar skoðanir sérfróðra um kaup Storytel á Forlaginu
Snæbjörn
Arngrímsson
Heiðar Ingi
Svansson
Auður
Jónsdóttir