Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 41

Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 Höfn í HornafirðiVið WWWW.MILKFACTORY.IS Algjör Rjómi glacierworld.is VELKOMIN Í Í HOFFELLI Það var í ferðalagi suður til Krít- ar að Elínborgu Ólafsdóttur og Elvari Unnsteinssyni manni henn- ar hugkvæmdist að opna hótel á Höfn í Hornafirði í samvinnu við systur Elvars, Írísi Dóru Unn- steinsdóttur og mann hennar Hilmar Stefánsson. „Þetta var ár- ið 2015 og í ferðalaginu var okkur mjög hugleikið að vöntun væri á fleiri gistimöguleikum á Höfn. Kviknaði sú hugmynd að breyta gömlu mjólkurstöðinni í gisti- heimili enda áhugaverð bygging sem enginn var að nýta,“ segir El- ínborg. Lét hópurinn verkin tala og tók Milk Factory við fyrstu gestunum í maí 2016. Elínborg segir viðtök- urnar fljótlega hafa farið fram úr björtustu vonum og allt frá opnun var nóg að gera á hótelinu bæði á sumrin og á veturna. Mjólkurstöðin á Höfn var byggð á 8. áratugnum til að hýsa mjólk- ursamlag fyrir bændurna á svæð- inu. Mjólkurvinnslu var hætt árið 1996 og hýsti byggingin síðar verksmiðju sem framleiddi ensím úr humarskel. Eftir það var húsið stundum notað sem geymsla eða endrum og sinnum sem vinnurými listamanna. Byggingin blasir við á leiðinni inn til Hafnar og einkenn- ist hönnun hennar m.a. af stórum gluggum sem þekja aðra hliðina og hleypa birtu inn í rými sem áð- ur var vinnslusalur. Féll húsnæðið furðuvel að því að vera breytt í gistiheimili en samt sem áður þurfti að ráðast í töluverðar framkvæmdir og m.a. stækka glugga og bora göt á veggi til að koma nýjum gluggum fyrir. Sam- tals eru sautján herbergi í boði, þar af sex fjölskylduherbergi sem eru á tveimur hæðum og rúma fjóra gesti. Hvert herbergi er með sitt eigið baðherbergi og daglega borinn fram morgunverður í mötuneyti Mjólkurstöðvarinnar. Útlendingana langar að koma Eins og gefur að skilja hefur komum gesta á Milk Factory fækkað mjög á þessu ári vegna kórónuveirufaraldursins. El- ínborg segir hafa verið ágætis- straum af innlendum ferðamönn- um á suðausturhorni landsins í sumar en mikið vanti upp á til að fylla það skarð sem erlendu ferðalangarnir skildu eftir sig. „Margar bókanir útlendinga standa þó enn óbreyttar sem segir okkur að fólk langar að gera ferðalag til Íslands að veruleika.“ Til að laða til sín fleiri innlenda gesti hefur Milk Factory verið með alls kyns tilboð í sumar og hefur t.d. golfpakkinn slegið í gegn. „Það eru ekki nema um 300 metrarar frá gistiheimilinu á fjarskagóðan golfvöll. Bjóðum við upp á pakka með gistingu, morg- unverði og hringi á golfvellinum auk veglegs afsláttar hjá veit- ingastöðunum Íshúsinu og Pakk- húsinu þar sem gott er að fá sér kvöldverð eftir ánægjulegan dag á golfvellinum.“ Er upplagt að nota tækifærið í sumar og heimsækja Höfn og nærsveitir og næsta víst að að ári liðnu verði skari erlenda ferða- manna kominn aftur á svæðið. El- ínborg segir það koma mörgum á óvart sem þanga koma að sjá hvað Hornafjörður hefur breyst og þróast, og þannig býr t.d. Höfn núna að blómlegri flóru veitinga- staða og fjölda gististaða sem voru ekki til fyrir fimm eða tíu árum. „Ég heyri það líka á mörg- um gestum að þeir hafa látið allt of langan tíma líða frá síðustu heimsókn í þennan landshluta og jafnvel ekki komið svona langt austur í tuttugu ár eða lengur.“ ai@mbl.is Metnaður Elínborg og Elvar við gistiheimilið. Golf-tilboðið hefur fengið góðar viðtökur og örstutt í golfvöllinn. Vin Fegurð Hornafjarðar blasir við þegar horft er út um gluggana. Mjólkursamlag varð að smekklegu gistiheimili ● Fjölskylduherbergin eru á tveimur hæðum og hleypa risastórir gluggar birtunni og útsýninu inn MVið elskum Ísland »46

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.