Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Lögreglan í Hong Kong tilkynnti í
gær að hún hefði handtekið 370
manns vegna mótmæla gegn nýjum
þjóðaröryggislögum borgarinnar,
sem tóku gildi á þriðjudaginn. Kom
fram í tilkynningu lögreglunnar að
tíu manns hefðu verið handteknir á
grunni hinna nýju laga, en sá fyrsti
mun hafa veifað flaggi, þar sem hvatt
var til sjálfstæðis Hong Kong frá
meginlandi Kína.
Bresk stjórnvöld ákváðu í gær að
þau myndu bjóða íbúum borgarinnar
greiðari leiðir til þess að öðlast
breskan ríkisborgararétt vegna lag-
anna. Sagði Boris Johnson, forsætis-
ráðherra Breta, á breska þinginu að
þjóðaröryggislögin væru „skýrt og
alvarlegt brot“ á samkomulagi Breta
og Kínverja um borgina, en þar var
kveðið á um að íbúar hennar myndu
njóta áfram sömu réttinda og þeir
gerðu undir Bretum í fimmtíu ár frá
yfirtöku Kínverja, eða til ársins
2047.
Um 300.000 Hong Kong-búar hafa
nú breskt vegabréf með takmörkuð-
um réttindum, og um 2,6 milljónir til
viðbótar mega sækja um slík vega-
bréf. Munu þeir og allir sem eru á
forræði þeirra nú geta unnið og
starfað í Bretlandi í fimm ár, og síð-
an sótt um varanlegri búsetu og síð-
ar breskt ríkisfang.
Dominic Raab, utanríkisráðherra
Breta, sagði löggjöfina ganga lengra
en nokkurn hefði grunað, og að Kín-
verjar væru að rjúfa loforð sín gagn-
vart íbúum Hong Kong. „Við munum
standa við orð okkar,“ sagði Raab.
Gildissvið laganna rúmt
Marc Lanteigne, lektor í stjórn-
málafræði við Háskólann í Tromsö
og sérfræðingur í asískum stjórn-
málum, segir í samtali við Morgun-
blaðið að löggjöfin sé merkileg af
ýmsum ástæðum, ekki síst hversu
breitt gildissvið hennar sé. „Lögin
ná yfir marga þætti sem munu hafa
afgerandi áhrif á stjórnmálalíf
borgarinnar,“ segir Lanteigne, sem
bendir einnig á
hversu hratt
stjórnvöld í Kína,
ekki Hong Kong,
hafi samið lögin
og komið þeim á.
Hann bendir á
að gagnrýnendur
laganna hafi hald-
ið því fram að lög-
in muni í raun
binda enda á
sjálfstæði Hong Kong frá Kína, en
þau gefa kínverskum stjórnvöld mik-
ið eftirlitsvald sem mun skerða mál-
frelsi og rétt Hong Kong-búa til þess
að mótmæla.
Lögin eigi m.a. að taka á undir-
róðri, hryðjuverkastarfsemi og sam-
særi með erlendum ríkjum. „En
hvert af þessum brotum getur verið
túlkað rúmt, sérstaklega þar sem
Kína er ekki með sjálfstæða dóm-
stóla,“ segir Lanteigne. Lögin munu
því í raun letja fólk frá hverju því
sem gæti verið túlkað sem stuðning-
ur við aukið sjálfræði eða sjálfstæði
Hong Kong.
Lanteigne bendir á að kínversk
stjórnvöld segi löggjöfina vera innan
þeirra marka sem stjórnlög Hong
Kong frá 1997 hafi veitt, en í 23.
grein þeirra hafi verið kveðið á um
að borgin skyldi setja sér þjóðarör-
yggislög. Það hafi hins vegar dregist
á langinn, með þeim afleiðingum að
Kínverjar hafi ákveðið að loka fyrir
það sem þeir sáu sem „hættulega
glufu“ í lögum Hong Kong, sér í lagi
eftir framsalsmótmælin í fyrra.
Telja afleiðingarnar litlar
Lanteigne segir að löggjöfin muni
líklega draga úr áhuga erlendra
fyrirtækja til þess að hefja rekstur í
Hong Kong. Þá gætu önnur hugsað
sér til hreyfings frá borginni og til
annarra fjármálamiðstöðva, á borð
við Singapúr eða Taipei. Það sé með-
al annars vegna þess að margar
greinar laganna séu það óskýrar að
hægt verði að beita þeim gegn er-
lendum kaupsýslumönnum sem
ferðast til Hong Kong.
Þá hafa Bandaríkin nú þegar lýst
því yfir að þau muni afnema sérstök
fríðindi sem Hong Kong hefur notið í
krafti sérstöðu sinnar, en bandarísk
stjórnvöld telji að það muni senda
skýr skilaboð til Kínverja.
„Kínversk stjórnvöld hafa hins
vegar svarað því með því að benda á
að viðskipti Bandaríkjanna og Hong
Kong séu smá í sniðum, og að banda-
rísk fyrirtæki verði sjálf fyrir mest-
um skaða ef Bandaríkjastjórn haldi
áfram að beita Hong Kong þrýst-
ingi,“ segir Lanteigne.
Þá virðist sem Kínverjar séu
reiðubúnir að mæta þeim áföllum
sem brotthvarf erlendra viðskipta
geti haft í för með sér með því að
hvetja kínversk fyrirtæki til þess að
fjárfesta í borginni.
„Þá hafa kínversk stjórnvöld einn-
ig lagt á það áherslu að löggjöfin
muni binda enda á mótmælin og
færa þannig meiri ró yfir viðskipta-
umhverfi borgarinnar. Carrie Lam,
héraðsstjóri borgarinnar, hefur
einnig tekið undir þennan punkt, en
hún lagði áherslu á að nýju lögin
myndu skipta sköpum við að endur-
nýja traust á viðskiptalífi Hong
Kong.“
-En hvað um þau áhrif sem lög-
gjöfin getur haft á orðspor Kínverja?
„Kínversk stjórnvöld virðast ætla
að treysta á að í ljósi þess að alþjóða-
hagkerfið muni ganga í gegnum erf-
iða tíma á næstunni, á sama tíma og
Kína virðist vera komið yfir versta
hjallann í heimsfaraldrinum og þar
með í góða stöðu til þess að leiða end-
urreisnina eftir kórónuveiruna, verði
skammtímahöggið sem bæði við-
skiptalíf og orðspor Kínverja fái á sig
með því að setja svona hörð lög á
Hong Kong innan ásættanlegra
marka,“ segir Lanteigne.
Hugtakið orðið holt að innan
Lanteigne segir að stjórnvöld í
Kína og í Hong Kong hafi bæði lagt
áherslu á að hugtakið „Eitt ríki, tvö
kerfi“ hafi í raun styrkst með lög-
unum, þar sem nú sé komið í veg fyr-
ir frekari „skaðlegar“ aðgerðir og
þar með skaða við efnahagslíf
borgarinnar. „En sú staðreynd að
lögin gefa stjórnvöldum í Peking
margar nýjar löglega leiðir til að
grípa inn í stjórnmál og dómsmál í
Hong Kong bendir sterklega til þess
að hugtakið sé nú orðið að innan-
tómri skel,“ segir Lanteigne.
Hann segir of snemmt að segja til
um hvaða áhrif lögin muni hafa á
mótmælin í borginni en bendir á að
sumir flokkar í stjórnarandstöðu
hafi þegar ákveðið að leggja sig nið-
ur og að sú skoðun sé ríkjandi að
bráðum verði komið í veg fyrir frið-
samleg mótmæli í borginni.
370 handteknir í Hong Kong
Nýjum þjóðaröryggislögum borgarinnar mótmælt Bretar hyggjast bjóða íbúum Hong Kong
greiðari leiðir til búsetu Löggjöfin mun líklega draga úr áhuga erlendra fyrirtækja á borginni
AFP
Marc
Lanteigne
Mótmæli Mótmælendur gegn þjóðaröryggislögunum í Hong Kong lyfta hér höndum til þess að sýna samstöðu sína.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Rauðarárstígur 12-14 · 105 Reykjavík · sími 551 0400 · www.gallerifold.is