Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 42

Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 42
Elínrós Líndal elinros@mbl.is Þuríður þykir frábær í mannlegum samskiptum og segir að þessa dag- ana sé hún að æfa sig í að hlusta á annað fólk. Hún er einkaþjálfari og er heilluð af fyrirtækjarekstri. „Þegar ég fór svo að velja mér há- skólanám þá heillaðist ég sér- staklega af námi sem tengdist fyrir- tækjarekstri. Ég skoðaði því bæði viðskiptafræði, hagfræði og rekstr- arverkfræði en valdi rekstrarverk- fræði þar sem ég taldi námið bjóða upp á möguleika bæði varðandi framhaldsnám og atvinnu. Í náminu lærði ég fyrst og fremst þverfaglega hugsun og að vera lausnamiðuð í þeim verkefnum sem maður mætir í leik og starfi. Ég fór svo í markþjálfunarnám hjá Háskólanum í Reykjavík en ég valdi það til að styrkja mig í virkri hlustun og spurningatækni sem hef- ur nýst mér mjög vel.“ Hvernig lýsir þú vinnu þinni fyrir Nova? „Ég er heppin að vera í vinnu sem ég hlakka til að mæta í á hverjum degi. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi en svakalega skemmtileg. Þetta snýst í raun allt um að búa til besta liðið; lið sem langar að ná ár- angri og við vinnum saman að því alla daga.“ Hvað heillar þig við vinnustaðinn? „Gleðin klárlega! Hjá Nova starfar kraftmikill hóp- ur sem leggur sig fram alla daga við að bæta þjónustu við viðskiptavini og stækka dansgólfið okkar. Það er ekki sjálfgefið að fyrirtækið mótist af gleði, samheldni og vilja til að ná árangri.“ Lærði vinnusemi af foreldrunum Nú hef ég heyrt að þú sért góð í samskiptum. Hvað getur þú sagt mér um það? „Ég tel að góð og vönduð samskipti séu lykilatriði til að líða vel og ná ár- angri. Þetta er ekki alltaf auðvelt en ég hef vandað mig við að tileinka mér að vera heiðarleg og opin. Það skiptir afar miklu máli að geta rætt saman, sagt sínar skoðanir og tala ekki undir rós. Þetta hef ég lært í starfi mínu hjá Nova og hjálpar mér klárlega á öðr- um vígstöðvum einnig. Mér finnst líka mikilvægt að eyða ekki tíma og orku í að tala um aðra, það sem ég hef að segja vil ég geta sagt beint við fólk. En annars er ég sjálf að æfa mig í að hlusta meira og tala minna, en ég á það til að tala of mikið.“ Hvaðan færðu vinnueðli þitt? „Ég er alin upp af duglegum for- eldrum sem hafa alltaf lagt mikla áherslu á að maður þurfi að leggja sig fram í því sem maður tekur sér fyrir hendur. Það er ekkert gefins og mað- ur þarf að vera tilbúinn að leggja hart að sér. Ég hef líka haft frábærar fyrir- myndir innan Nova og dáðst að krafti, seiglu og útsjónarsemi hjá þeim frá upphafi. Árangursmenning innan Nova er drifkrafturinn í að vilja gera betur í dag en í gær, það er líka mik- ilvægt að læra af mistökum og halda áfram.“ Hamingjan mikilvæg Hver eru áhugmál þín? „Ég er algjör dellukerling og fæ æði sem endast mislengi. Ég er mikil keppnismanneskja og fer fljótt í að breyta áhugamálum í keppni þannig að það má segja að það sé ákveðið áhugamál hjá mér. En yfir sumartímann þá erum við fjölskyldan mjög dugleg að ferðast um landið, við elskum útilegur á fal- lega landinu okkar. Nú þegar börnin eru að stækka þá er auðveldara að taka þau með í göngur og ævintýri. Þau eru líka öll komin á snjóbretti en ég er sjálf að prófa mig áfram í því sporti en þyki ekki sérstaklega fær. Annars er fjölskylda mín mikið hesta- fólk og sinnti ég því vel áður en ég eignaðist börnin, nú langar mig að taka það upp á nýjan leik og þá með börnin mín með í för.“ Hver eru framtíðarplön þín? „Númer eitt tvö og þrjú eru plönin mín að hugsa vel um mig, að mér líði vel og ég sé að gera það sem mér finnst skemmtilegt á hverjum tíma! Ég er rosalega ánægð með það sem ég er að gera núna, nýt mín í botn bæði hjá Nova og í stjórnarsetu Lyfju. Framtíðarplönin mín eru að halda áfram læra, þroskast og sækja tæki- færi. Ég tel að til að vera hamingju- samur í starfi verði maður að vera hamingjusamur í lífinu almennt.“ Besta ráðið að vera hún sjálf Hvað er besta ráð sem þú hefur fengið? „Besta ráð sem ég hef fengið er frá mömmu minni en hún hefur lagt áherslu á að vera ég sjálf og treysta mér, skoðunum mínum og standa með mér. Það er þó mikilvægt að hafa í huga að ef fíflunum er farið að fjölga í kringum þig þarftu líklega að skoða eitthvað hjá sjálfum þér. Mér finnst þetta gott jafnvægi.“ En það versta? „Þegar ég var unglingur þá var manni sagt að álit annarra skipti öllu máli og maður lagði sig fram við að láta fólki líka við sig, breytti jafnvel hegðun og skoðunum til að falla í hóp- inn. Í dag er ég þakklát að vera ekki í vinsældakeppni. Ég vil frekar eiga fáa góða vini en marga sem ég get ekki treyst.“ Ljósmynd/PORTRA ehf „Kraftmikið fólk heldur manni á tánum“ Þuríður Björg Guðnadóttir hóf fyrst störf hjá Nova 18 ára gömul en þar starfar hún enn, nú sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustu. Hún situr í stjórn Lyfju og segir að vinnueðlið komi frá foreldrunum, sem eru harðduglegt fólk og miklar fyrirmyndir. Kraftmikil Þuríður Björg hóf stöf hjá Nova einung- is átján ára að aldri. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Sumar og sól Vorum að taka upp nýja sendingu af RayBan sólgleraugum Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af umgjörðum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.