Morgunblaðið - 02.07.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.07.2020, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. af honum verið mjög áhugavert,“ segir Einar Á.E. Sæmundsen þjóð- garðsvörður á Þingvöllum við Morg- unblaðið. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Svipur Þingvalla breytist talsvert, verði af framkvæmdum skv. drögum að breyttu deiliskipulagi staðarins. Talin er þörf á nýrri þjónustumiðstöð á Þingvöllum en með henni verða til tvö aðkomusvæði inn í þjóðgarðinn svo seinna megi með góðu móti sinna miklum og vaxandi fjölda ferða- manna í framtíðinni. Frá miðstöðinni kæmu svo stígar, brýr og pallar um nágrennið sem skapa myndu áhuga- verðar tengingar. Þessar hugmyndir voru kynntar í gær á Þingvöllum, jafnhliða því sem nýr útsýnispallur við Hrafnagjá, austanvert í þjóðgarð- inum, var tekinn formlega í notkun. Uppbygging við Langastíg Gert er ráð fyrir að ný þjónustu- miðstöð, með bílastæði sem taki 300 bíla og 10 rútur, verði austan Þing- vallavegar við enda Langastígs, skammt áður en ekið er niður brekk- una niður á svonefndar Leirur. Það- an verður, tillögunum samkvæmt, settur upp „svífandi stígur“ eða göngubrú niður gjá og að Langa- stígnum. „Þegar komið er niður að Langa- stíg er gert ráð fyrir því að setja upp annan svífandi stíg í gegnum furu- lundinn sem þarna er. Stígurinn yrði í hæð trjátoppanna og getur útsýnið Vegna nýrrar þjónustumiðstöðvar er gert ráð fyrir að núverandi upp- lýsingastöð og veitingastofa á Leir- unum verði lögð af og hús þar nýtt sem starfsmannaaðstaða. Allt er þetta hluti af stærri áætlun, það er breytingum á deiliskipulagi Þing- valla sem hófust á síðasta ári. Í því ferli hafa margir verið kallaðir að borðinu, en formleg deiliskipulag- stillaga verður tilbúin til kynningar nú á haustdögum. Kynningin í gær hafði því öðrum þræði það inntak að sýna hvað er í deiglunni og skapa umræður um málið. Létta álagi af svæðinu Í stóra samhenginu sagt miða breytingarnar á deiliskipulaginu að því að tryggja vernd einstakrar nátt- úru og menningarminja og bæta að- gengi að og um vesturhluta þjóð- garðsins og auka þjónustu við gesti þar. „Meginstef uppbyggingar í þjóð- garðinum samkvæmt stefnumótun er sú að landið og sérkenni þess, vist- kerfi og menningarminjar séu vernd- uð,“ segir Einar. Skv. talningum mæta 70-75% þeirra erlendu ferðamanna, sem koma til Íslands, á Þingvelli eða um 1,5 milljónir manns. Þótt slegið hafi í bakseglin með kórónveirufaraldr- inum er búist við fjölgun gesta til lengri tíma litið og á Þingvelli komi allt að þrjár milljónir eftir aðeins tíu ár. Til að létta álagi af svæðinu er því margt í skoðun. Eitt er til dæmis að þegar ný þjónustumiðstöð hefur ver- ið reist verði rafskutlur í ferðum það- an á 15 til 30 mínútna fresti. Leggi upp frá Hakinu, verði ekið þaðan að þjónustustöðinni góðu, á tjaldsvæðið á Leirum, að furulundinum góða og að Valhallarplani. Þannig fái fólk brot af því besta í skemmtilegri ferð. Veglega byggt Útsýnisstaðurinn við Hrafnagjá sem opnaður var í gær er veglega byggður og af honum blasir við nýtt sjónarhorn yfir sigdældina norður af Þingvallavatni, þar sem eru skil jarð- fleka Evrópu og Ameríku. Arkitekt- ar hjá Landslagi ehf. hönnuðu útsýn- ispallinn en smíði og uppsetning hans var í höndum Andra Þórs Gestssonar húsasmiðs og Kolbeins Sveinbjörns- sonar verktaka á Heiðarási í Þing- vallasveit. Alls um 19 millj. kr. kostn- aður hlaust af þessari framkvæmd sem er hluti af verkefnaáætlun um landsáætlun um uppbyggingu inn- viða. Ný þjónustumiðstöð og svífandi brú  Framkvæmdir fram undan á Þingvöllum  Breytingar á deiliskipulaginu tryggi vernd einstakrar náttúru og menningarminja  Útsýnispallur við Hrafnagjá tekinn í notkun  Sést yfir sigdældina Framtíðarsýn Göngustígar á pöllum um gjár og yfir þétt gróinn furulund eru meðal nýstárlegra hugmynda að breyttu deiliskipulagi á Þingvöllum sem nú hafa verið kynntar til umræðu. Íslandslag Smiðir hins nýja útsýnispalls við Hrafnagjá tóku lagið við form- lega opnun mannvirkisins í einstakri veðurblíðu í gærdag. Hér um bil 200.000 Íslendingum með bílpróf býðst nú að vera með stafrænt ökuskírteini í símanum. Það ógildir ekki gamla kortið en losar mann við þörfina á að hafa það meðferðis öllum stundum. Þrír ráðherrar og ríkislögreglu- stjóri kynntu nýju lausnina í fjár- málaráðuneytinu í gær. Einn þeirra er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, en ráðuneyti hennar útfærði skírteinin. „Það er mjög gaman að þetta sé orðið að veruleika. Vonandi einfaldar þetta líf fólks og gerir það að verkum að það geti skilið veskið eftir heima,“ sagði hún í samtali við mbl.is eftir blaðamannafundinn. Íslendingar eru númer tvö á eftir Norðmönnum að koma svona kerfi á fót. Sótt er um stafræn öku- skírteini á vefnum Ísland.is þar sem notendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. „Stafræn ökuskírteini verða jafngild hefð- bundnum ökuskírteinum á Íslandi en megintilgangurinn er að not- endur geti sannað ökuréttindi sín gagnvart lögreglu,“ segir í frétta- tilkynningu. Þessi mál eru enn ekki komin eins langt innan Evrópusambands- ins, sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra, og því er enn ekki hægt að bera stafræna skír- teinið fyrir sig í útlöndum. Morgunblaðið/Eggert Skilríki í símanum Áslaug Arna kynnir nýju stafrænu ökuskírteinin. Ökuskírteinin eru komin í símann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.