Morgunblaðið - 02.07.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 02.07.2020, Qupperneq 20
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Birgir Þórarinsson, alþingismaður Miðflokksins, hefur talað lengst allra á 150. löggjafarþinginu, sem frestað var aðfaranótt þriðjudags. Birgir hefur talað í tæpar 30 klukkustundir. Birgir var ræðu- kóngur 149. löggjafarþingsins og talaði þá í 41 klukkustund. Alþingi kom saman 10. september sl. og kemur saman að nýju í lok ágúst og mun þá m.a. ræða fjár- málastefnu til næstu ára. Næsta reglulegt Alþingi, 151. löggjafar- þingið, verður svo sett 1. október í haust. Er það nokkru seinna en venjulega, en þingskaparlögin gera ráð fyrir að nýtt þing komi saman annan þriðjudag í september. Þessi breyting er gerð vegna heimsfarald- urs COVID-19 og óvissu í efnahags- málum. Að venju fylgir hér með listi yfir þá 10 alþingismenn sem lengst hafa talað á 150. þinginu. Röðin kann að breytast eitthvað þegar þing- stubbnum lýkur næsta haust. Hins vegar má teljast ólíklegt að Birgi Þórarinssyni verði haggað úr 1. sæt- inu. Birgir steig 408 sinnum í ræðu- stólinn í vetur og flutti 157 ræður og gerði 251 athugasemd (andsvör). Guðmundur Ingi var í efsta sætinu lengi fram eftir vetri Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, var lengi vel í efsta sætinu en Birgir seig fram úr á lokasprettinum. Var það ekki síst vegna þess að þing- menn Miðflokksins efndu til málþófs í nýliðnum júní um uppbyggingu samgönguinnviða (borgarlínu) og var þáttur Birgis drjúgur í þeim umræðum. Hann var sömuleiðis öt- ull í málþófi Miðflokksmanna um 3. orkupakkann í fyrra, sem skilaði honum í efsta sætið. Fyrrverandi ræðukóngur, Björn Leví Gunnarsson Pírati, er í 3. sæt- inu. Hann fór 507 sinnum í ræðu- stólinn, jafnoft og Guðmundur Ingi. Aðeins ein kona er á lista yfir 10 efstu, Helga Vala Helgadóttir Sam- fylkingu. Á 149. þinginu var engin kona á „topp 10“ en Inga Sæland, Flokki fólksins, var nálægt því líkt og í vetur. Bjarni Benediktsson er eini ráðherrann sem kemst á listann. Þá vekur athygli að Þorsteinn Víglundsson Viðreisn er í 10. sæt- inu, en hann afsalaði sér þing- mennsku snemma í apríl og tók við forstjórastarfi hjá fyrirtækinu Hornsteini. Af kjörnum alþingismönnum tal- aði Þórunn Egilsdóttir Framsókn- arflokki minnst, 17 mínútur, enda var hún lengi fjarverandi vegna veikinda. Jón Gunnarsson Sjálf- stæðisflokki hafði hægt um sig, fór 15 sinnum í pontu og talaði samtals í 73 mínútur. Páll Magnússon Sjálf- stæðisflokki talaði í 131 mínútu og Lilja Alfreðsdóttir mennta- málaráðherra í 170 mínútur. Fram kemur í yfirlitinu á vef Al- þingis að þingmenn hafi farið 11.567 sinnum í pontu í vetur. Fluttar hafa verið 5.795 þingræður og gerðar 5.770 athugasemdir (andsvör). Þing- menn hafa talað í 567 klukkustundir samtals. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, gerði upp hinn óvenjulega þingvetur í ávarpi við þingfrestun. „Hin efnahagslegu og samfélags- legu áhrif kórónuveirufaraldursins voru jafnframt snögg og mikil og á vormánuðum snerust störf Alþingis nær eingöngu um viðbrögð og ráð- stafanir vegna heimsfaraldursins. Starfsumhverfi og -aðstæður þing- manna og starfsmanna Alþingis voru einnig mjög krefjandi viðfangs- efni,“ sagði Steingrímur m.a. COVID-málin afgreidd Tekist hafi að halda Alþingi starf- hæfu gegnum faraldurinn sem ekki var sjálfgefið. „Og það reyndist gríðarlega mikilvægt, samanber þá tugi þingmála sem við í daglegu tali hér höfum nefnt Covid-mál, og náð- um að afgreiða, þar á meðal þrenn fjáraukalög,“ sagði hann. Í apríllok fór þinghaldið að færast í venjubundnara horf, þrátt fyrir óvenjulegar kringumstæður á stækkuðu þingfundasvæði, og fleiri mál að komast að en þau ein sem vörðuðu kórónuveirufaraldurinn beint. Frá lokum maímánaðar hafi þingmenn síðan getað komið saman í þingsal, með hefðbundinni sæta- skipan, og fastanefndir komið sam- an á fundarstað. Starfsfólk Alþingis eigi mikinn heiður og mikinn sóma skilið fyrir sitt framlag. Alþingi stóðst erfitt próf „Ágætu þingmenn. Margt er um Alþingi skrifað og skrafað eins og eðlilegt er og stundum erum við þingmenn býsna hörð í dómum um okkur sjálf. Það er sjaldnar sem Al- þingi er hrósað en það skal nú gert og eins þótt það sé forseti Alþingis sjálfur sem það gerir. Ég tel að Al- þingi hafi staðist með ágætum erfitt próf, reyndar mörg próf sem fyrir okkur hafa verið lögð á þessum sér- stæða strembna þingvetri sem nú er að baki og verður væntanlega eft- irminnilegur öllum þeim sem hlut áttu að máli,“ sagði þingforsetinn. Birgir hefur talað mest allra  Þingmenn hafa staðið í ræðustólnum í 567 klukkutíma  Birgir Þórarinsson, ræðukóngur Alþingis 2019, hefur talað lengst allra  150. löggjafarþinginu lýkur með „þingstubbi“ í ágústlok Morgunblaðið/sisi Ræðukóngur Birgir Þórarinsson í ræðustól Alþingis. Hér er hann að ræða 3. orkupakkann í fyrra en á þessu þingi héldu þingmenn Miðflokksins uppi málþófi þegar fjallað var um innviði í samgöngum, sem kennt er við borgarlínu. 1 Birgir Þórarinsson 1.769 mín. (29.4 klst.) 2 Guðmundur I. Kristinsson 1.383 mín. (23.1 klst.) 3 Björn Leví Gunnarsson 1.303 mín. (21.7 klst.) 4 Bjarni Benediktsson 1.128 mín. (18.8 klst.) 5 Helgi Hrafn Gunnarsson 1.098 mín. (18.3 klst.) 6 Karl Gauti Hjaltason 1.041 mín. (17.4 klst.) 7 Þorsteinn Sæmundsson 978 mín. (16.3 klst.) 8 Helga Vala Helgadóttir 834 mín. (13.9 klst.) 9 Ólafur Þór Gunnarsson 775 mín. (12.9 klst.) 10 Þorsteinn Víglundsson 766 mín. (12.7 klst.) Þingmenn sem töluðu lengst á Alþingi 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 Horfur eru góðar í vatnsbúskap Landsvirkjunar, þótt enn sé of snemmt að segja til um aðstæður í rekstri orkuvinnslunnar næsta vetur. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu fyrirtækisins. Innrennsli í miðlanir Landsvirkj- unar var mjög slakt síðastliðinn vetur. Eftir þurran vetur komu vorleys- ingar snemma sunnan og norðan heiða. Snjóalög voru vel yfir meðal- lagi í lok vetrar og leysingar hafa skil- að drjúgt í lónin í maí og júní. Lítið vantar upp á að Blöndulón fyllist og má búast við að það gerist um eða fyr- ir miðjan júlí. Sunnan heiða er líklegt að Þórisvatn fyllist fyrir lok júlí. Á Austurlandi lauk niðurdrætti í Hálslóni 21. maí og hefur söfnun þar einnig verið með ágætum. Að venju er undirstaða fyllingar Hálslóns jökul- bráð í júlí og ágúst og er líklegt að lón- ið fyllist um miðjan ágúst. Hægt er að fylgjast með vatnshæð lóna daglega á vöktunarsíðu vefs Landsvirkjunar: www.landsvirkj- un.is/rannsoknirogthroun/voktun sisi@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hálslón Líkur eru á að lónið fyllist um miðjan ágúst verði tíðin hagstæð. Betri horfur með vatnsbúskapinn  Leysingar hafa skilað drjúgt í lónin Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Fitueyðing Fitueyðing er byltingarkennd meðferð sembyggðer á nýjustu tækni á sviði náttúrulegrar fitueyðingar án skurðaðgerðar. Frábært tilboð fyrir þig! 30% afsláttur af 4 skiptumaf Fitueyðingu Eyðir fitu á erfiðum svæðum Fyrir / eftir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.