Morgunblaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Þetta er enn á hugmyndastigi og
ég sé fyrir mér að það þurfi fjög-
urra til fimm ára undirbúnings-
tíma til að koma þessu í fram-
kvæmd,“ segir Héðinn
Ásbjörnsson, sem hlaut í síðustu
viku styrk frá verkefninu „Áfram
Árneshreppur!“ til að koma upp
Baskasetri í Djúpavík í Árnes-
hreppi á Ströndum. Í setrinu er
ætlunin að fjalla um veru Baska
hér á landi, en þeir stunduðu sjáv-
arnytjar á Vestfjörðum um langt
skeið fyrr á öldum. Einnig er hug-
myndin að rekja á sýningu sögu
Spánverjavíganna snemma á 17.
öld, en sýslumaðurinn Ari í Ögri
lét elta uppi og drepa áhafnir
þriggja baskneskra skipa sem
höfðu farist í Reykjarfirði. Setrið
og sýningin verða sett upp í risa-
vöxnum lýsistanki í gömlu síldar-
verksmiðjunni í Djúpavík.
Héðinn segir að mikinn undir-
búning, þverfaglega vinnu og frek-
ari fjárhagsstuðning þurfi til að
Baskasetrið geti orðið að veru-
leika. Það sé ekki víst að svo verði,
en styrkurinn verði nýttur til að
skera úr um það. Hann segir að
Bjarni F. Einarsson fornleifafræð-
ingur sé ráðgjafi við verkefnið, en
hann hefur kannað minjar um veru
Baska á Íslandi.
Alls hlutu þrettán verkefni
styrki sem samtals nema um fimm-
tán milljónum króna og miða þau
öll að því að auðga mannlífið og
samfélagið í þessu fámennasta
sveitarfélagi landsins. Peningarnir
koma frá Byggðastofnun fyrir
milligöngu Vestfjarðastofu. Er
Héðinn forsvarsmaður fjögurra
annarra verkefna sem hlutu styrki.
Hann er einn eigenda ferðaþjón-
ustufyrirtækisins Hótel Djúpavík,
sem m.a. rekur samnefnt gistihús
á staðnum. Héðinn segir að nokkuð
sé um heimsóknir ferðamanna til
Djúpavíkur þessa dagana, aðallega
Íslendinga, og umfangið viðráð-
anlegt fyrir fámennt starfslið
fyrirtækisins. Mikil óvissa sé hins
vegar um hvernig ferðaþjónustan
muni þróast á næstunni.
Endurbætur við Krossneslaug
Stærsti styrkurinn fer til að
gera endurbætur á búningsaðstöðu
við Krossneslaug, sem er vinsæl
sundlaug. Hún var gerð árið 1954
og er rétt fyrir ofan fjöruna svo að
gestir horfa út yfir hafflötinn þeg-
ar þeir slaka á í lauginni. Það er
ungmennafélagið Leifur heppni
sem sér um rekstur laugarinnar.
Verkefnið Djúpavíkurhús snýst
um að hanna og framleiða smáhýsi
sem verða síðan seld um allt land.
Húsin eru sögð hugvitssamlega
innréttuð þannig að rýmið nýtist
sem best og mjög skemmtileg í út-
liti. Húsin verða framleidd i
Djúpavík.
Ómar Bjarki Smárason fékk
styrk til að kortleggja og gera að-
gengilegar upplýsingar um jarð-
fræði Árneshrepps, en í Árnes-
dalnum er miðja megineldstöðvar
sem er talsvert yngri en Vestfirðir
annars.
Kristjana Svarfdal fékk styrk til
að koma upp jógasetri í gamla
renniverkstæðinu í síldarverk-
smiðjubyggingunum í Djúpavík.
Rýmið er sagt bjart og fallegt og
gæti orðið einstakt þegar búið
verður að taka það í gegn. Mörg-
um muni örugglega þykja það góð
upplifun að stunda jóga í friðsæld-
inni á staðnum.
Veittur var styrkur til að kaupa
öryggisbúnað fyrir Sleðaferðir á
Ströndum, m.a. Tetra-talstöðvar.
Það var sett sem skilyrði að björg-
unarsveitin hefði aðgang að þeim ef
á þyrfti að halda. Sleðaferðirnar
njóta sívaxandi vinsælda enda
magnað svæði sem farið er um.
The Factory er myndlistarsýning
margra listamanna af ýmsu þjóð-
erni í sal verksmiðjubyggingarinnar
í Djúpavík. The Factory er stýrt af
Emilie Dalum, sem hefur séð um
þetta verkefni í mörg ár, en alls
hafa verið myndlistarsýningar í
þessu rými frá því um aldamót.
Þá var styrkur veittur til að bæta
aðstöðu á tjaldstæði við Urðartind í
Norðurfirði. Þar er nú verið að
leggja lokahönd á vatnssalerni og
snyrtingu fyrir tjaldferðalanga.
Enn eitt verkefnið er svokallað
flóttaherbergi (e. Escape Room) í
Djúpavík. Það er hugsað sem
spennandi þraut fyrir unga sem
aldna þar sem reynir á útsjónar-
semi og að leggja saman vísbend-
ingar til að fá út rétta niðurstöðu.
Annars komast þátttakendur ekki
út! Reiknað er með því að herbergið
verði tilbúið næsta sumar. Flótta-
herbergi af þessu tagi eru vinsæl í
mörgum nágrannalandanna.
Elsa Rut Jóhönnudóttir fékk
styrk til að þróa áfram ullarvinnslu,
en hún hefur verið að gera tilraunir
með ull og lopa. Vörur hennar eru
m.a. seldar í Verzlunarfjelagi Ár-
neshrepps og njóta mikilla vinsælda
og þykja skemmtilegar og óvana-
legar. Verzlunarfjelagið fékk einnig
lítinn styrk til að bæta kaffiaðstöðu
fyrir gesti, en þessi litla verslun
þjónar ekki síst sem samfélags-
miðstöð í Árneshreppi. Þar hittast
sveitungar og gestir.
Sögusýning í verksmiðjunni
Í verksmiðjubyggingunum í
Djúpavík er sögusýning um tilurð
og starfsemi verksmiðjunnar, sem
var reist á árunum 1934-35 þegar
mikla síld var að finna á miðunum í
nágrenninu. Sýnt er hvernig menn
leystu risavaxin verkefni við bygg-
inguna og framleiðsluna með hug-
vitsemi og samtakamætti. Sögusýn-
ingin fékk styrk, ekki síst til að
gera söguskilti um m.s. Suður-
landið, en stefni þess er í fjörunni í
Djúpavík og vekur ávallt mikla at-
hygli ferðamanna.
Loks fengu ferðamálasamtök
Árneshrepps styrk til hönnunar og
útgáfu á markaðsefni til að laða fólk
til Árneshrepps. Að samtökunum
standa allir ferðaþjónar í hreppn-
um.
Stórhugur í Árneshreppi
Fimmtán milljónir veittar til þrettán verkefna til að auðga mannlíf og samfélag í sveitarfélaginu
Baskasetur, flóttaherbergi, jógasetur, smáhýsaframleiðsla, endurbætur á Krossneslaug og fleira
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Djúpavík Þrátt fyrir fámennið er kraftur og stórhugur enn í íbúum staðarins, sem leita ýmissa leiða leiða til að efla enn frekar mannlífið og samfélagið.
Ljósmynd/Aðsend
Styrkþegar Hópurinn er með margar hugmyndir sem nú verður unnið úr.