Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
2. júlí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.58
Sterlingspund 170.21
Kanadadalur 101.29
Dönsk króna 20.852
Norsk króna 14.248
Sænsk króna 14.8
Svissn. franki 145.76
Japanskt jen 1.2863
SDR 190.68
Evra 155.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.4282
Hrávöruverð
Gull 1770.7 ($/únsa)
Ál 1589.0 ($/tonn) LME
Hráolía 41.33 ($/fatið) Brent
● Úrvalsvísitala
aðallista íslensku
kauphallarinnar
hækkaði um 3,4% í
júní og stendur nú í
2.089 stigum.
Þetta kemur fram í
viðskiptayfirliti
kauphallarinnar
fyrir júnímánuð.
Heildarviðskipti
með hlutabréf í
mánuðinum námu
43,7 milljörðum króna, eða 2,2 millj-
örðum á dag. Það er 26% hækkun frá
fyrri mánuði, en í maí námu viðskipti
með hlutabréf 1,7 milljörðum á dag.
Í yfirlitinu segir að þarna sé um að
ræða 49% aukningu á milli ára, en við-
skipti í júní 2019 námu 1,5 milljörðum
króna á dag.
Mest viðskipti voru í júní með bréf
Marels, 8,6 milljarðar, Arion banka, 7,2
milljarðar og Heimavalla, 4,1 milljarður.
Heildarfjöldi viðskipta með hlutabréf
í júní voru 3.507 talsins eða að jafnaði
175 á dag. Það er 25% lækkun frá fyrri
mánuði, en í maí voru viðskipti með
hlutabréf 4.675 talsins. Milli ára fjölgaði
viðskiptum um 93%.
Flest viðskipti í mánuðinum voru
með bréf Icelandair Group, 641 talsins,
og næst flest voru með bréf Marel, 521.
Úrvalsvísitala aðallista
hækkaði um 3,4% í júní
Vísitala Flest við-
skipti voru með
bréf Icelandair.
STUTT
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið
Mink Campers, sem framleiðir og
þróar samnefnd sporthýsi, hefur
hafið fjármögnun á fjármögnunar-
síðunni Funderbeam. Um er að ræða
500 þúsund til 1,25 milljóna evra inn-
spýtingu í fyrirtækið, eða um 13-27%
af hlutafé fyrirtækisins, sem nýta á
til þess að ljúka efniskaupum og ráða
starfsfólk vegna fyrirhugaðrar
fjöldaframleiðslu og samsetningar í
Lettlandi. Nú þegar hefur Mink
Campers safnað um 50% af lág-
marksfjárhæðinni sem þarf til þess
að hópfjármögnunin gangi í gegn.
Ljóst er að áhugi fjárfesta á fyrir-
tækinu er mikill en upphaflegar
áætlanir fyrirtækisins gerðu ráð fyr-
ir að fara í útboðið í marsmánuði.
Vegna kórónuveirunnar var því
frestað í ljósi þess mikla óvissu-
ástands sem skapaðist á mörkuðum
víða um heim þar sem áhættufælni
var í hámarki. Veiran hefur aftur á
móti gert það að verkum að eftir-
spurn eftir sporthýsunum hefur vax-
ið mikið samhliða minni ferðalögum
fólks með flugsamgöngum. Að sögn
Önnu Hrefnu Ingimundardóttur
fjárfestis, sem fer fyrir Eldhrímni
ehf., stærsta hluthafanum í Mink
Campers með 26% hlut, kom það
þægilega á óvart.
„Til að byrja með vorum við ekki
alveg viss hvaða eftirspurnaráhrif
þetta ástand myndi hafa á okkur. En
svo kemur í ljós að með öllum þess-
um ferðatakmörkunum þá höfum við
fundið fyrir gríðarmikilli aukningu á
eftirspurn eftir vörunni, bæði innan-
lands, í Bandaríkjunum og einnig á
þeim mörkuðum sem við horfum til í
Norður-Evrópu,“ segir Anna
Hrefna.
Allt að 500 Minkar á næsta ári
„Þú getur ferðast algjörlega á eig-
in forsendum. Þú þarft ekki að
treysta á flugsamgöngur eða hótel
og kemst mjög víða á þessu þar sem
sporthýsið er hannað til þess að
komast upp um fjöll og firnindi. Allir
vagnar sem við áttum seldust upp í
apríl. Okkar vandamál er því að geta
ekki framleitt nógu mikið,“ segir
Anna Hrefna.
Kórónuveiran krafðist þess þó að
breyta þurfti áætlunum fyrirtækis-
ins. „Við þurftum að breyta fram-
leiðsluplönunum út af öllum þessum
ferðatakmörkunum. Við munum
hefja frumgerðarframleiðslu á Ís-
landi í stað þess að fara strax til
Lettlands en þangað ætluðum við að
fara í vor. Við stefnum á að fara með
framleiðsluna til Lettlands í haust.“
Alls hefur fyrirtækið selt 20 full-
gerð sporthýsi og nokkrar eldri
frumgerðir. Þá hefur fyrirtækið
einnig selt 20 sporthýsi til viðbótar í
forsölu til Noregs og Þýskalands,
sem stendur til að framleiða á Ís-
landi á næstunni. Fyrirtækið stefnir
á að framleiða um 400-500 sporthýsi
á næsta ári en til lengri tíma er
stefnan sett á 1.500 stykki á ári.
Sölutekjur af hverju sporthýsi eru
áætlaðar um 12.500 evrur, eða um
1.945 þúsund á gengi gærdagsins, og
því ráðgerir fyrirtækið til lengri tíma
að velta um þremur milljörðum
króna á ári.
Kórónuveiran jók eftir-
spurn eftir Minknum
Sporthýsi Áætlanir Mink Campers gera ráð fyrir að fjöldaframleiðsla á sporthýsinu geti hafist í Lettlandi í haust.
Fjármögnun á Funderbeam hafin Stefna á um þriggja milljarða veltu á ári
Nýjustu hagvaxtarspár gera ráð fyr-
ir 8% samdrætti á landsframleiðslu í
ár og hafa aðgerðir Seðlabankans og
stjórnvalda vegna COVID-19 aukið
svigrúm fjármálafyrirtækja til þess
að styðja við heimili og fyrirtæki á
tímum kórónuveirunnar, að því er
fram kemur í ritinu Fjármálastöð-
ugleiki 2020:1 sem gefið var út í gær.
Þar kemur m.a. fram að eiginfjár- og
lausafjárstaða stóru bankanna
þriggja sé sterk en þó að óvissa ríki
um raunvirði útlánasafns fjármála-
fyrirtækja við núverandi aðstæður
bendi sviðsmyndagreining Seðla-
bankans til þess að eiginfjárstaða
þeirra standist álagið vel.
Fram kemur að áhrifanna vegna
kórónuveirunnar gæti þegar í upp-
gjörum fyrsta ársfjórðungs með
aukinni virðisrýrnun útlána og tapi
af fjármálastarfsemi. Fram undan sé
frekari virðisrýrnun útlána. Í ljósi
þess að Seðlabankinn hafi aflétt
sveiflujöfnunaraukanum auk þess
sem allir bankarnir hafi hætt við
fyrirhugaðar arðgreiðslur hafi þeir
því bæði svigrúm til afskrifta og veit-
ingar nýrra útlána og hafi þannig
getu til þess að styðja atvinnulíf og
heimili í gegnum þá erfiðleika sem
nú blasa við. Í ritinu segir að vaxta-
lækkanir Seðlabankans hafi unnið á
móti minnkandi útlánagæðum en á
sama tíma sett þrýsting á hreinar
vaxtatekjur. Þá segir að lausafjár-
staða bankanna hafi styrkst það sem
af er ári en að bankarnir muni þó að
öllum líkindum þurfa að ganga á
lausafjárforða sinn á næstu mánuð-
um, m.a. vegna aukinna vanskila út-
lána og útlánavaxtar.
Morgunblaðið/Golli
Útlán Vaxtalækkanir SÍ hafa unnið
á móti minnkandi útlánagæðum.
Stóru bankarnir
vel í stakk búnir
Hafa svigrúm til
afskrifta og veit-
ingar nýrra útlána