Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 54

Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 54
Skjól hjúkrunarheimili óskar eftir hjúkrunarfræðingi í stöðu forstöðumanns hjúkrunar. Skjól hjúkrunarheimili er samrekið með Eir hjúkrunarheimili og Hömrum hjúkrunarheimili og lýtur sameiginlegri yfirstjórn. Starfsmenn Skjóls eru 150 og heyrir forstöðumaður hjúkrunar beint undir framkvæmdastjóra hjúkrunarsviðs Eirar, Hamra og Skjóls og er jafnframt staðgengill hans. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 14. september 2020. Starfs- og ábyrgðarsvið – Forstöðumaður hjúkrunar leiðir og ber ábyrgð á daglegum rekstri heimilisins. – Hann er forsvarsmaður hjúkrunar á Skjóli og ber faglega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu heimilisins. – Hann kemur að stefnumótun og skipulagsmálum og vinnur náið með forstjóra og framkvæmdastjórum Eirar, Hamra og Skjóls á sviði áætlunargerðar, eftirlits, rekstrar og starfsmannamála sem og öðrum málum sem varða fjármál og rekstur heimilanna. Hæfnikröfur – B.Sc. próf í hjúkrunarfræði og leyfisbréf frá Embætti landlæknis – Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi skilyrði – Æskilegt að hafa lokið framhaldsnámi í stjórnun eða annarri menntun sem nýtist í starfi – Reynsla af öldrunarhjúkrun er kostur Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí 2020 og hvetjum við alla áhugasama sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið. Umsókn þarf að fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknir skulu berast rafrænt gegnum heimasíðu heimilisins www. skjol.is. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar veitir Kristín Högnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunarsviðs á Eir, Hömrum og Skjóli í síma 522-5757 eða á kristinh@eir.is. Skjól hjúkrunarheimili – Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík – Sími 522 5600 Forstöðumaður hjúkrunar óskast Sviðsstjóri umhverfissviðs kopavogur.is P ip a r\TB W A \ SÍA Kópavogsbær auglýsir starf sviðsstjóra umhverfissviðs laust til umsóknar. Hlutverk umhverfissviðs er að tryggja gæði í faglegu starfi og fjárhagslega hagkvæman rekstur þeirra málaflokka og stofnana sem undir sviðið heyra. Jafnframt að annast jákvæða og skilvirka þjónustu við bæjarbúa og aðra sem til sviðsins leita. Á umhverfissviði starfa um 60 starfsmenn. Sviðið skiptist í eftirfarandi starfssvið; framkvæmdadeild, embætti skipulagsstjóra, embætti byggingarfulltrúa, eignadeild, gatnadeild og almenna skrifstofu. Helstu verkefni sviðsstjóra • Daglegur rekstur umhverfissviðs. • Umsjón með afgreiðslu erinda og stjórnsýslumála er varða skipulagsráð, umhverfis- og samgöngunefnd og önnur ráð/nefndir sem vísað er til sviðsins. • Umsjón með gerð fjárhagsáætlunar sviðsins og framkvæmd hennar. • Umsjón með vinnslu umhverfismats áætlana og gerð skýrslna um mat á umhverfisáhrifum. • Vinna að þróun skipulags í bæjarfélaginu í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar. • Undirbúningur og framkvæmd stærri verkefna er heyra undir sviðið í samráði við hagsmunaðila hverju sinni. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólanám sem nýtist starfseminni. • Framúrskarandi leiðtoga-, samstarfs- og samskiptahæfni. • Reynsla af stjórnun og rekstri. • Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu. • Reynsla og þekking í umhverfismálum. • Góð verkkunnátta og víðtæk reynsla við stjórnun stærri verkefna. • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. • Þekking á lögum, reglum og stöðlum sem starfinu tilheyra. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2020. Upplýsingar um starfið gefur Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri. Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.