Morgunblaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020
446194
Opel Crossland X ‘19, ekinn 38 þús. km.
Verð: 3.190.000 kr.
550107
SsangYongRextondlx ‘19, ekinn45 þús. km.
Verð: 5.190.000 kr.
Ísland vill sjá þig í sumar
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 12-17
Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
* Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
sangYongTivoli hlx ‘19, ekinn 5 þús. km.
erð: 3.790.000 kr.
SsangYong Korando hlx ‘17, ekinn 59 þ. km.
Verð: 2.990.000 kr.
BMW 7730d xdrive ‘14, ekinn 135 þús. km.
Verð: 6.500.000 kr.
Suzuki Vitara gl+ ‘19, ekinn 62 þús. km.
Verð: 2.990.000 kr.
590704
446311
446249
446202
S
V
Kaupauki
Eldsneytiskort
að verðmæti 50.000kr.
frá Orkunni.
Sjönætur
með morgunverði.
Verðmæti 210.000 kr.
Ævintýrapottur
Skráðu þig til leiks á notadir.benni.is
Vinnangar dregnir út á Bylgjunni
með notuðum bílum!
Jeep Cherokee limited ‘18. ekinn 32 þús. km.
Verð: 6.490.000 kr.
550092
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Aðjúnkt í félagsfræði segir að mál
leikhópsins Lottu sýni greinilega að
fólk, sem hann kallar „netstríðs-
menn“, leyfi sér að segja meira á
bak við skjáinn en í eigin persónu.
Málið, sem snýr að leikkonu í hópn-
um sem setti
fram óvinsælt
grín um Raufar-
höfn og Kópa-
sker á samfélags-
miðli, sýni einnig
að í óbeinum
samskiptum í
gegnum sam-
félagsmiðla sé
auðvelt að mis-
skilja innihald
þess sem sett er
fram. Leikkonunni bárust í kjölfar
ummæla hennar hótanir á sam-
félagsmiðlum um líflát og gróft of-
beldi.
„Þú missir svo mikið niður af
merkingu og blæbrigðum og slíku í
gegnum samfélagsmiðla. Hún setur
fram þetta grín og það er svo margt
sem getur misskilist. Síðan er það
gripið á lofti og fólk fær útrás fyrir
alls konar með því að svívirða hana í
kjölfarið,“ segir Arnar Eggert
Thoroddsen, aðjúnkt við Háskóla
Íslands.
„Netstríðsmennirnir, fólkið sem
situr á bak við tölvuskjáinn og lætur
allt flakka, myndu aldrei segja það
sama við fólk í raunheimi,“ segir
hann.
Arnar bendir á að jákvæðar og
neikvæðar hliðar séu á samfélags-
miðlum en þær fari eftir því hvernig
fólk notar þá.
„Það jákvæða er að samfélags-
miðlar hafa á einhvern hátt sam-
tengt fólk en þetta er auðvitað nei-
kvæða hliðin; þegar fólk verður stíft
og ljótt og ógeðsleg orðræða þrífst
þarna.“
Spurður hvers vegna fólk leyfi
sér að setja fram meiðandi ummæli
á samfélagsmiðlum frekar en í raun-
heimi segir Arnar:
„Þetta er eins og þegar maður er
að baktala fólk, þá segir maður það
við einhvern sem maður treystir
vegna þess að þar er maður í skjóli.
Þar fær maður útrás fyrir eitthvað
sem maður hefur ekki dug í sér til
að segja við fólk. Þetta er að ein-
hverju leyti ákveðin framlenging á
svona pukri. Þú getur sagt þitt und-
ir dulnefni eða sent einhver skilaboð
í skjóli þess að þú mætir engum af-
leiðingum.“
Allir þræðir endi á Hitler
Arnar segist stundum ekki trúa
því að fólk sé innst inni að hugsa
það sem það setur fram á netinu og
mjög gjarnan stigmagnist athuga-
semdir við fréttir um fólk með tím-
anum.
„Það verður svo mikil múgsefjun
oft á þessum þráðum og þeir fara út
í algjöra vitleysu eftir nokkrar at-
hugasemdir. Samfélagsmiðlafræð-
ingur reiknaði það út að allir þræðir
muni á einum eða öðrum tímapunkti
enda á því að Hitler sé dreginn inn í
umræðuna. Það skiptir engu máli
um hvað málið snýst, allt í einu er
einhver kallaður nasisti.“
Mál leikhópsins Lottu er síður en
svo fyrsta málið þar sem fólki ber-
ast hótanir í gegnum samfélags-
miðla og það er smánað á netinu.
Spurður hvort fólk sé ekkert farið
að læra á að hegða sér á veraldar-
vefnum segir Arnar:
„Við erum alltaf svo bjartsýn og
höldum að fólk sé að verða siðlegra
og það séu að myndast einhvers
konar mannasiðir á netinu, sem er
nota bene bara 25 ára gamalt fyrir-
bæri. Þetta gæti jafnvel verið að
versna, fólk er svo mikið á sam-
félagsmiðlum að þeir eru alveg við
fingurgóma þess. Fólk ryðst þar
áfram í reiði og í þessu tilfelli koma
menn í krafti þess að þetta sé svo
réttlát reiði, menn séu að berjast
fyrir sveitarfélagið sitt.“
Arnar mælir með því að net-
stríðsmenn tempri notkun sína á
samfélagsmiðlum, þannig væri til
dæmis hægt að laga vandann.
Fjölmiðlar sáu umrætt grín leik-
konunnar á samfélagsmiðlum og
sögðu frá því. Spurður hver ábyrgð
fjölmiðla sé í tilfellum sem þessum
segir Arnar:
„Það hefur aldrei verið erfiðara
að halda málum niðri en í dag. Fjöl-
miðlar eru að einhverju leyti að
þróast í átt til gulu pressunnar. Þeir
stökkva á svona lagað og sprengja
það upp, stundum með æsilegum
fyrirsögnum. Ég skil það alveg, ef
þú rekur vefmiðil þarftu að selja
auglýsingar, þú selur þær með því
að fá fólk til að smella á fréttirnar
þínar.“
Netstríðsmenn til
varnar sveitarfélögum
Auðvelt að misskilja skilaboð á samfélagsmiðlum
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Ummælin Leikhópurinn Lotta kom við á Kópaskeri og Raufarhöfn og grín-
aðist leikkonan með það að staðirnir tveir væru ekki upp á marga fiska.
Arnar Eggert
Thoroddsen
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á
fundi sínum á þriðjudaginn að veita
Garðheimum vilyrði fyrir lóð ásamt
byggingarrétti í Suður-Mjódd.
Garðheimar höfðu sótt um lóð á þró-
unarsvæðinu umdeilda Stekkjar-
bakka Þ73 en fallið hefur verið frá
þeim áformum.
Garðheimar höfðu átt í viðræðum
við Reykjavíkurborg um að flytja
starfsemi sína á þróunarsvæðið
Stekkjarbakka Þ73, en þar á að
byggja gróðurhvelfingu. Ekkert
svar hafði borist frá borginni í febr-
úar sl., þremur og hálfu ári eftir að
sótt var formlega um lóðina.
Borgarráðsfulltrúar Samfylking-
arinnar, Viðreisnar, Pírata og
Vinstri grænna lögðu fram bókun á
fundi borgarráðs þar sem því er
fagnað að framtíðarstaðsetning
Garðheima sé fundin og einnig að
hún verði áfram innan Breiðholts.
Hefði haft rask í för með sér
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
fagna því að vikið hafi verið frá fyrri
áformum, um að koma starfsemi
Garðheima fyrir í Elliðaárdalnum.
Telja þeir að uppbygging starfsem-
innar í dalnum hefði haft í för með
sér mikið umhverfisrask, aukna bíla-
umferð og tilheyrandi fjölda bíla-
stæða á mikilvægu grænu svæði í
borgarlandinu og ætla megi að
Suður-Mjódd verði mun heppilegri
staður fyrir starfsemi Garðheima.
Bókun áheyrnarfulltrúa Mið-
flokksins var á sömu leið, en þar er
bent á að nýbúið sé að rifta samn-
ingum við Heklu hf. sem hafi átt að
fá lóðina:
„Það er ánægjulegt að sjá að
Garðheimar hafa fallið frá því að
hefja uppbyggingu innan Elliðaár-
dalsins á svæði Þ73 við Stekkjar-
bakka. Það gefur vonir um að hægst
hafi á innrás og uppbyggingu í daln-
um. Svo virðist að þessi flutningur
Garðheima sé í fyrsta forgangi hjá
Reykjavíkurborg því nýbúið er að
rifta samningum við Heklu hf. sem
átti að fá þessa lóð. En það er
kannski ekki að undra því nú þegar
hefur verið ákveðið að á milli 750 og
1.200 íbúðir rísi á lóð Garðheima.
Samt er lýst yfir áhyggjum af að-
gengismálum að fyrirtækinu á nýj-
um stað,“ segir þar.
Morgunblaðið/Golli
Norður-Mjódd Svæði þar sem íbúðarbyggð á að rísa. Í bakgrunni eru Garð-
heimar og Vínbúðin, sem munu víkja fyrir nýrri byggð.
Garðheimar fái lóð
í Suður-Mjódd
Heppilegri en áður fyrirhuguð lóð
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhús Því er fagnað að framtíðar-
staðsetning Garðheima sé fundin.