Morgunblaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Ekki hefur komið til skoðunar að af- létta trúnaði á raforkusamningi Al- coa Fjarðaáls við Landsvirkjun. Þetta staðfesti Smári Kristinsson, staðgengill forstjóra Alcoa Fjarða- áls, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. „Það hefur ekki verið rætt, hvorki af okkar hálfu né þeirra fram að þessu,“ sagði Smári, en raddir þess efnis að opinbera eigi samning Rio Tinto og Landsvirkjunar hafa verið háværar undanfarnar vikur. Nú síðast sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir iðnaðarráðherra að henni fyndist eðlilegt að atriði samnings síðastnefndu fyrirtækjanna yrðu gerð opinber. Þannig væri nauðsyn- legt að opna samninginn, en Rio Tinto tilkynnti jafnframt í fyrradag að það hefði kært Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins. Spurður um málið sagði Bjarni Már Gylfason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto, að fyrirtækið teldi „viðeigandi að trúnaði verði aflétt af öðrum samningum Landsvirkjunar við álver þannig að gagnsæi ríki og hægt sé að bera saman verð“. Aðspurður sagði Hörður Arnar- son, forstjóri Landsvirkjunar, að honum þætti málflutningur Rio Tinto mjög undarlegur. Ekki síst fyrir þær sakir að fyrirtækið hefði opinberlega fjallað um samninginn án þess þó að leggja hann fram á borðið, en álfram- leiðandinn hefur neitað að aflétta trúnaði. Ekki í höndum Alcoa Að sögn Smára er óvíst hvort fyrirtækið myndi aflétta leynd raf- orkusamnings við Landsvirkjun. „Það er kannski eingöngu í okkar höndum,“ segir Smári og bætir við samningur Alcoa Fjarðaáls sé til mjög langs tíma. „Það var gerður 40 ára samningur fyrir þetta verkefni hérna hjá Alcoa Fjarðaáli og ég hugsa að hvorugur aðili hefði farið af stað í svona umfangsmiklar fjárfest- ingar öðruvísi en með langtíma orku- samninga. Fjárfestingarnar eru bara svo miklar beggja vegna að ég held að báðir aðilar vilji alltaf tryggja sig með langtímasamningum,“ segir Smári. Talverðir rekstrarörðugleikar hafa verið hjá fyrirtækjum í stóriðju að undanförnu, þar á meðal Rio Tinto og kísilverksmiðjunni PCC á Bakka. Að sögn Smára gæti rekstur Alcoa Fjarðaáls sömuleiðis verið á betri stað. „Við viljum náttúrulega vera á miklu betri stað. Markaðsaðstæður hafa neikvæð áhrif á okkur og ég held að það sé sama hvert þú lítur í heiminum, alls staðar eru erfiðleikar á okkar markaði. Verðþróun á mörk- uðum undanfarið hefur ekki verið ál- fyrirtækjum hagfelld, það nær alveg út fyrir veiruna.“ Tímabundnir erfiðleikar Að sögn forstjóra Landsvirkjunar er ótímabært að ræða stöðu fyrir- tækisins fari svo að stórnotendur neyðist til að segja upp raforkusamn- ingum. „Við erum bara með lang- tímasamninga við þessi fyrirtæki svo þetta er ekki komið á það stig. Það eru núna tímabundin vandræði vegna kórónuveirunnar sem öll fram- leiðslufyrirtæki í heiminum eru að kljást við. Við gerum ráð fyrir að þegar við sjáum fyrir endann á far- aldrinum komist á meira jafnvægi á markaðnum.“ Nauðsynlegt að opna samninginn  Samningar álframleiðenda í brennidepli  Ekki komið til skoðunar að aflétta trúnaði á raforkusamn- ingi Alcoa Fjarðaáls við Landsvirkjun  Forstjóri Landsvirkjunar segir erfiðleikana tímabundna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Álver Talsverðir rekstrarörðugleikar hafa verið hjá fyrirtækjum í stóriðju. Líf og fjör var á öðrum degi knatt- spyrnumótsins Capelli Rey Cup í gær. Mótið fer fram á æfingasvæði Þróttar Reykjavíkur í Laugardal, en gríðarlegur fjöldi ungra knatt- spyrnuiðkenda tekur þátt á Rey Cup í ár. Alls eru 123 lið skráð til leiks og eru leikirnir um 370 tals- ins. Hefur mótið aldrei verið um- fangsmeira, en sökum heimsfarald- urs kórónuveiru var reynt að koma til móts við eins mörg innlend lið og kostur var. „Liðin geta auðvitað ekki farið úr landi og tekið þátt í mótum þar. Þess vegna reyndum við að taka á móti öllum sem vildu koma og okkur tókst það. Við erum mjög ánægð með að geta komið til móts við alla,“ segir Guðmundur Breiðfjörð, framkvæmdastjóri mótsins, og bætir við að ýmislegt þurfi að ganga upp til að hægt sé að halda mót sem þetta. „Það eru gríðarlega margir sjálfboðaliðar sem koma að þessu. Þeir eru um 140 talsins og leikirnir fara síðan fram á tíu völlum hér í hjarta Reykjavíkur,“ segir Guðmundur. aronthordur@mbl.is Knattspyrnumótið Capelli Rey Cup hófst í gær og mun standa yfir til sunnudags Einbeittir keppendur í Laugardal Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Keppendur Gríðarlegur fjöldi knattspyrnuiðkenda tekur þátt í Capelli Rey Cup í ár. Mótið hefur aldrei verið fjölmennara, en alls eru 123 lið skráð til leiks. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almanna- varna í gær, þeim síðasta í bili, að Ísland hefði lýst yfir áhuga á því að verða hluti af alþjóðlega bólusetn- ingarverkefninu COVAX, sem er samstillt átak Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar og bólu- setningarbandalaganna Gavi og CEPI um sanngjarna útdeilingu á bóluefni fyrir COVID-19. Átakinu er, að því er segir í grein á vefsíðu þess, ætlað að koma í veg fyrir það ástand sem myndaðist í svínaflens- unni árið 2009, þegar nokkur ríki einokuðu bóluefnismarkaðinn. Þar með varð mikill fjöldi ríkja horn- reka og hafði engan aðgang að bóluefni þar til yfir lauk, segir í greininni. Jafnframt því sem Íslandi verði tryggt bóluefni fyrir 20% þjóðar- innar þegar það er tilbúið, er litið á verkefnið sem vissa góðgerðastarf- semi. Á vef verkefnisins eru nefnd 150 þátttökuríki. Um 80 þeirra eru efnaðri ríki og er Ísland þar á meðal. Sá hluti hópsins mun fjár- magna bóluefniskaupin með opin- beru fé og um leið gangast undir samkomulag við fátækari ríki þar sem þeim verður með sama hætti tryggt bóluefni. Litið er á framlag ríkari ríkja sem stuðning við hin efnaminni, en Ísland hefur þegar lagt til hálfan milljarð króna. Ríkin geta orðið allt að 165 í verkefninu. Fyrir lok 2021 á að vera búið að út- deila a.m.k. tveimur milljörðum skammta. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði í gær að miðað væri við að 20% af þjóðinni fengju bólu- setningu fyrst um sinni, þó að það kæmi ekki allt í einum hvelli heldur smátt og smátt. Reiknað er með að hver og einn þurfi tvær bólusetn- ingar, sem kosta 35 dali hvor. Sam- kvæmt því myndi það kosta ís- lenska ríkið 700 milljónir að bólusetja 20% af þjóðinni. Þórólfur sagði að það yrði gert í svipaðri röð og var gert hér á landi í tengslum við svínaflensuna, þar sem miðað yrði við að viðkvæmir hópar og heilbrigðisstarfsfólk fengi bóluefnið fyrst. Smit í samfélaginu er enn lítið sem ekkert að mati Þórólfs og inn- anlandssmit hefur ekki greinst frá því 2. júlí. Eitt virkt smit greindist hjá ferðamanni við landamærin í gær og var hann sendur í ein- angrun. snorrim@mbl.is Ísland á meðal ríkjanna sem borga  Bólusetningarverkefni fyrir 60% mannkyns  Ríku ríkin borga brúsann Kórónuveirusmit á Íslandi Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22.23. 24. 25.26. 27. 28.29.30. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 119.103 sýni hafa verið tekin Þar af í landamæraskimun 50.290 sýni78 einstaklingar eru í sóttkví 1.841 staðfest smit 8 eru með virkt smit Heimild: covid.is Innanlands Landamæraskimun: Virk smit Með mótefni 2 1 2 1 2 1 2 11 10 0 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 2 2 4 3 2 2 2 3 6 6 2 1 5 2 5 1 6 9 1 3 1 2 2 2 1 3 3 3 2 2 5 4 2 2,2 virk smit sl. 14 daga á 100.000 íbúaNýgengi smita:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.