Morgunblaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 26
FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Stjarnan og Valur sýndu í gærkvöld að þau ætla sér alla leið í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn á meðan Breiðablik missteig sig einu sinni enn og tapaði óvænt fyrir nágrönn- um sínum í HK. Birnir Snær Ingason tryggði HK sigur á Breiðabliki 1:0 með marki um miðjan fyrri hálfleik eftir mikil mistök Antons Ara Einarssonar í marki Blikanna. Birnir gerði þó mjög vel sjálfur að leika skemmti- lega á varnarmann áður en hann sendi boltann í netið. HK-ingar hafa tak á Breiðabliki og hafa ekki tapað í fjórum síðustu viðureignum liðanna í efstu deild. HK fékk fjögur stig úr leikjum lið- anna í fyrra, þegar liðin gerðu 2:2 jafntefli í Kórnum og HK vann 2:1 á Kópavogsvelli. Þar á undan mætt- ust þau síðast í deildinni árið 2008 og þá hafði HK betur í seinni leik liðanna. HK hafði ekki unnið í fimm leikj- um í röð fyrir leikinn í Kórnum í gærkvöld en er nú búið að leggja að velli tvö þeirra liða sem þóttu líkleg- ust í baráttunni um Íslands- meistaratitilinn í byrjun móts. Blikum gekk illa að skapa sér marktækifæri þrátt fyrir að ráða ferðinni úti á vellinum mest allan tímann. HK hafði fyrir þessa um- ferð fengið á sig flest mörk allra í deildinni það sem af er tímabilinu en nú var varnarleikur liðsins líkari því sem það sýndi svo oft í fyrra. HK fékk þarna sín fyrstu stig á heimavelli á tímabilinu en liðið hafði tapað fyrstu þremur leikjum sínum í Kórnum. Sannfærandi Valsmenn efstir Valsmenn eru komnir í efsta sæt- ið eftir sannfærandi sigur á Fylki á Hlíðarenda, 3:0. Þeir eru með betri markatölu en KR-ingar, sem eiga hins vegar leik til góða. „Heimir Guðjónsson virðist vera kominn nær því að átta sig á sínu besta byrjunarliði og er hann hætt- ur ákveðinni tilraunastarfsemi sem var ekki að ganga upp framan af móti. Stillti Heimir t.d. Sebastian Hed- lund upp á miðjunni og Sigurði Agli Lárussyni fyrir aftan eina framherj- ann í fyrstu leikjunum. Hedlund er miklu betri miðvörður en miðjumað- ur og Sigurður Egill er miklu betri á vinstri kantinum en fyrir aftan framherjanna. Heimir er búinn að átta sig á því og frammistaða Vals- liðsins er mun betri fyrir vikið,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. um leikinn á mbl.is.  Sebastian Hedlund, sænski miðvörðurinn, skoraði fyrsta mark sitt í deildinni þegar hann kom Val í 2:0 gegn Fylki og það var langþráð. Þetta var 37. leikur hans með Hlíðarendaliðinu í deildinni. Sterk staða Stjörnunnar Stjarnan læðist upp töfluna og er með fæst töpuð stig allra liða, ásamt því að vera það eina sem ekki hefur tapað leik. Garðbæingar lögðu Skagamenn á Akranesi, 2:1, og eru komnir með 13 stig af 15 mögu- legum. Þeir eiga tvo og þrjá leiki til góða á efstu liðin og þannig verður staðan hjá þeim áfram í bili því frestuðu leikirnir þeirra eru ekki strax á dagskránni. Stjarnan er komin í þriðja sætið og liðið virðist til alls líklegt.  Eyjólfur Héðinsson og Alex Þór Hauksson bættust í hóp marka- skorara Stjörnunnar í deildinni þeg- ar þeir komu liðinu í 2:0 með fal- legum mörkum í fyrri hálfleiknum. Hvorki fleiri né færri en tíu leik- menn hafa skorað fyrstu tólf mörk Garðabæjarliðsins í deildinni. Eyjólfur skorar ekki oft en mörk- in hans eru yfirleitt ansi falleg og sú var raunin á Akranesi í gærkvöld. Hann tók boltann glæsilega á lofti og skoraði með óverjandi skoti í vinstra hornið. Víkingar í vanda á Nesinu Víkingar fylgdu ekki eftir frábær- um leik gegn Skagamönnum og urðu að sætta sig við jafntefli, 1:1, gegn Gróttu á Seltjarnarnesi eftir að hafa lent undir á upphafs- mínútum leiksins í gærkvöld. „Víkingum gekk einfaldlega illa að opna vörn Gróttumanna og þeir sköpuðu sér engin afgerandi mark- tækifæri í leiknum. Þá voru þeir ragir við að láta vaða á markið þeg- ar þeir komu sér í álitlegar stöður við vítateig Seltirninga. Þegar ekk- ert annað gengur er stundum bara einfaldast að þruma boltanum í átt að marki og vona það besta en Vík- ingar voru of fastir í því að þröngva sér í gegn,“ skrifaði Bjarni Helga- son um leikinn á mbl.is.  Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði þriðja mark sitt fyrir Gróttu og er fyrstur leikmanna liðsins til að ná þeirri tölu í efstu deild. Karl, sem er í láni frá Breiðabliki, hefur skorað í þeim þremur leikjum þar sem Grótta hefur náð í stig í fyrstu átta umferðunum.  Davíð Örn Atlason hægri bak- vörður Víkings lék 100. leik sinn í efstu deild gegn Gróttu. Leikirnir eru allir fyrir Víking og Davíð er tólfti leikmaður félagsins frá upp- hafi sem nær þessum áfanga í deild- inni.  Fimm markahæstu leikmenn deildarinnar náðu ekki að skora mark í áttundu umferð deildarinnar. Óttar Magnús Karlsson úr Víkingi og Thomas Mikkelsen úr Breiða- bliki eru með 7 mörk hvor, Patrick Pedersen og Steven Lennon úr FH eru með 6 mörk og Valdimar Þór Ingimundarson úr Fylki 5 mörk. Sá fimmti án sigurs Morgunblaðið/Árni Sæberg Einbeittir Sigurður Hrannar Björnsson, markvörður HK, fagnar Ívari Erni Jónssyni eftir að hann hafði stöðvað eina af mörgum sóknum Blika.  Óvæntur sigur HK á Breiðabliki sem sígur niður töfluna  Valsmenn eru komnir á toppinn en staða Stjörnunnar er sterk eftir sigur á Akranesi Morgunblaðið/Árni Sæberg Skoraði Kristinn Freyr Sigurðsson gerði fyrsta mark Vals gegn Fylki og fer hér framhjá Daða Ólafssyni Fylkismanni í leiknum á Hlíðarenda. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020 Pepsi Max-deild karla ÍA – Stjarnan ............................................ 1:2 Valur – Fylkir ........................................... 3:0 Grótta – Víkingur R ................................. 1:1 HK – Breiðablik........................................ 1:0 Staðan: Valur 8 5 1 2 18:7 16 KR 7 5 1 1 13:7 16 Stjarnan 5 4 1 0 12:4 13 Víkingur R. 8 3 3 2 15:12 12 Fylkir 8 4 0 4 11:12 12 Breiðablik 8 3 2 3 14:12 11 FH 7 3 2 2 13:12 11 ÍA 8 3 1 4 18:16 10 HK 8 2 2 4 13:19 8 KA 7 1 4 2 6:10 7 Grótta 8 1 2 5 8:18 5 Fjölnir 8 0 3 5 7:19 3 3. deild karla Höttur/Huginn – Vængir Júpíters ......... 0:2 Reynir S. – KFG....................................... 2:1 Einherji – Álftanes................................... 3:2 KV – Ægir................................................. 3:1 Staðan: Reynir S. 7 5 2 0 16:10 17 KV 7 5 0 2 18:9 15 Tindastóll 7 4 2 1 15:12 14 Sindri 7 3 2 2 15:14 11 Einherji 7 3 1 3 14:17 10 Augnablik 7 2 3 2 13:12 9 KFG 7 3 0 4 15:16 9 Elliði 7 2 2 3 13:11 8 Vængir Júpiters 7 2 2 3 7:11 8 Ægir 7 2 1 4 12:16 7 Álftanes 7 1 2 4 8:12 5 Höttur/Huginn 7 1 1 5 9:15 4 2. deild kvenna Hamar – Fram.......................................... 2:2 Staðan: HK 6 6 0 0 25:1 18 Fjarð/Hött/Leikn. 5 4 0 1 13:11 12 Hamrarnir 4 2 1 1 7:6 7 Grindavík 4 2 0 2 12:6 6 Álftanes 4 2 0 2 6:15 6 ÍR 5 1 2 2 7:11 5 Hamar 5 1 1 3 8:13 4 Sindri 5 1 0 4 8:11 3 Fram 6 0 2 4 9:21 2 Danmörk AaB – FC Köbenhavn.............................. 0:1  Ragnar Sigurðsson lék ekki með FCK vegna meiðsla. Staðan: Midtjylland 35 26 4 5 60:27 82 Köbenhavn 35 20 5 10 56:41 65 AGF 35 19 7 9 58:40 64 Bröndby 35 15 8 12 55:42 53 AaB 35 15 6 14 52:43 51 Nordsjælland 35 13 8 14 58:52 47 Evrópuumspil, undanúrslit, 1. leikur: OB – Horsens............................................ 3:1  Aron Elís Þrándarson kom inn á hjá OB á 37. mínútu. Svíþjóð Malmö – Hammarby................................ 3:0  Arnór Ingvi Traustason lék ekki með Malmö vegna meiðsla.  Aron Jóhannsson kom inn á hjá Hammarby á 76. mínútu. Staða efstu liða: Norrköping 10 7 2 1 24:11 23 Malmö 10 5 4 1 16:9 19 Elfsborg 10 5 4 1 14:11 19 Häcken 10 4 5 1 21:9 17 Sirius 10 4 4 2 15:12 16 Djurgården 10 4 2 4 13:10 14 Varberg 10 4 2 4 13:11 14 Örebro 10 3 4 3 9:10 13 Mjällby 10 4 1 5 10:16 13 Ítalía Udinese – Juventus.................................. 2:1 Lazio – Cagliari ........................................ 2:1 Staðan: Juventus 35 25 5 5 73:38 80 Atalanta 35 22 8 5 95:44 74 Inter Mílanó 35 21 10 4 74:36 73 Lazio 35 22 6 7 71:38 72 Roma 35 18 7 10 69:47 61 AC Milan 35 17 8 10 55:44 59 Napoli 35 16 8 11 56:47 56 Sassuolo 35 13 9 13 64:60 48 Hellas Verona 35 11 13 11 43:43 46 Parma 35 12 7 16 49:51 43 Fiorentina 35 10 13 12 43:45 43 Bologna 35 11 10 14 48:58 43 Cagliari 35 10 12 13 50:52 42 Sampdoria 35 12 5 18 46:58 41 Udinese 35 10 9 16 34:49 39 Torino 35 11 5 19 42:63 38 Genoa 35 9 9 17 44:65 36 Lecce 35 8 8 19 45:77 32 Brescia 35 6 6 23 33:74 24 SPAL 35 5 4 26 25:70 19  KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Þórsvöllur: Þór/KA – Fylkir..................... 18 Meistaravellir: KR – FH ..................... 19.15 Kópavogsv.: Breiðablik – Þróttur R ... 19.15 GOLF Íslandsmót golfklúbba heldur áfram í dag en keppt er í 1. deild karla og kvenna á Leirdalsvelli hjá GKG og á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Í KVÖLD! ÍA – STJARNAN 1:2 0:1 Eyjólfur Héðinsson 23. 0:2 Alex Þór Hauksson 40. 1:2 Viktor Jónsson 58. M Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA) Aron Kristófer Lárusson (ÍA) Hallur Flosason (ÍA) Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) Haraldur Björnsson (Stjörnunni) Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjörnunni) Daníel Laxdal (Stjörnunni) Heiðar Ægisson (Stjörnunni) Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni) Alex Þór Hauksson (Stjörnunni) Rautt spjald: Ingimar Elí Hlynsson (ÍA/ aðstoðarþjálfari) 62. Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 6. Áhorfendur: Um 800.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. VALUR – FYLKIR 3:0 1:0 Kristinn Freyr Sigurðsson 13. 2:0 Sebastian Hedlund 37. 3:0 Sigurður Egill Lárusson 90. M Hannes Þór Halldórsson (Val) Sebastian Hedlund (Val) Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) Sigurður Egill Lárusson (Val) Rasmus Christiansen (Val) Aron Bjarnason (Val) Valgeir Lunddal Friðriksson (Val) Daði Ólafsson (Fylki) Arnór Gauti Ragnarsson (Fylki) Arnór Borg Guðjohnsen (Fylki) Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7. Áhorfendur: 1028. GRÓTTA – VÍKINGUR R. 1:1 1:0 Karl Friðleifur Gunnarsson 2. 1:1 Atli Hrafn Andrason 54. M Hákon Rafn Valdimarsson (Gróttu) Arnar Þór Helgason (Gróttu) Patrik Orri Pétursson (Gróttu) Karl Friðleifur Gunnarsson (Gróttu) Viktor Örlygur Andrason (Víkingi) Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi) Davíð Örn Atlason (Víkingi) Atli Hrafn Andrason (Víkingi) Dómari: Elías Ingi Árnason – 6. Áhorfendur: Um 700. HK – BREIÐABLIK 1:0 1:0 Birnir Snær Ingason 21. MM Ívar Örn Jónsson (HK) M Sigurður Hrannar Björnsson (HK) Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK) Leifur Andri Leifsson (HK) Guðmundur Þór Júlíusson (HK) Birnir Snær Ingason (HK) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðab) Viktor Örn Margeirsson (Breiðab) Alexander H. Sigurðarson (Breiðab) Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7. Áhorfendur: Um 1.000. KR – FJÖLNIR 2:2 M Atli Sigurjónsson (KR) Óskar Örn Hauksson (KR) Kennie Chopart (KR) Pablo Punyed (KR) Atli Gunnar Guðmundsson (Fjölni) Hans Viktor Guðmundsson (Fjölni) Ingibergur Kort Sigurðsson (Fjölni) Örvar Eggertsson (Fjölni) Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 7. Áhorfendur: 778.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.