Morgunblaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Tæknilæsi Android kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30– 13.
Tæknilæsi Apple kl. 13-16. Allir velkomnir í Félagsstarfið
sími: 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8.50.
Frjálst í Listasmiðju kl. 9.-16. Hreyfiþjálfun með sjúkraþjálfara kl.
10.30-11.30. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við
vinnum áfram eftir samfélagssáttmálanum, þvo og spritta hendur,
virða 2 metra regluna, við þá sem það vilja. Allir velkomnir óháð aldri
og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 8.30-16. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 13.45 -15.15. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10.
Gerðuberg 3-5 Föstudagur kl. 8.30-16. Opin handavinnustofa kl.
10-12.Prjónakaffi
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Tæknilæsi
námskeið kl. 9. Hreyfiþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 9.30. Kennsla í
notkun snjalltækja frá 10.30 -11.30. Bíó kl. 13.15.
Korpúlfar Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9. í dag og
gönguhópar leggja af stað frá Borgum kl. 10. í dag, mismunandi
styrkleikar. Opið í Borgum frá 8. til 16. frjálst opið félagsstarf. Dans-
leikfimi kl. 14. í Borgum í dag. Hádegisverður hefst kl. 11.30 og kaf-
fihúsið opnar kl. 14.30 en heitt á könnunni alla daga. Hjartanlega vel-
komin í Borgir, þar sem gleðin býr.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn snemma á hres-
sandi hláturjóga sem hefst klukkan 9.30. Það er skemmtilegt
námskeið sem byggir á stuttri fræðslu, hlátri, leik og slökun og er frítt
öllum. Eftir hádegi verður ferð í Friðheima. Bingóið verður á sínum
stað í matsalnum klukkan 13:30 og vöfflukaffi í framhaldi af því.
Einnig verður hreyfiteymið okkar með Jafnvægisþjálfun í
setustofunni kl. 13.
Seltjarnarnes Dagskráin í dag föstudaginn 24.júlí. Kl. 10.30 er
kaffispjall í króknum á Skólabraut. Kl. 11. er leikfimi í salnum á
Skólabraut. Kl. 13.30 er samsöngur á Skólabraut. Kl. 14. er bíómynd
og popp í salnum á Skólabraut. Hlökkum til að sjá ykkur.
Sléttuvegur 11-13 Föstudagur Selið á Sléttuvegi er opið frá kl.
10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10 –11 og hægt er að líta í blöðin.
Hádegismatur er frá kl. 11.30 –12.15 og panta þarf matinn daginn
áður. Bíó kl. 13. (verður í boði með auglýsingu í Selinu).
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
NETVERSLUN gina.is
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Verð kr. 8.500
Verð kr. 11.900
Verð kr. 13.500
Verð kr. 12.500
Verð kr. 6.990
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Veiði
Silunganet • Sjóbleikjunet
Fyrirdráttarnet • Bleikjugildrur
Nýtt á afmælisári
Kraftaverkanet • margar tegundir
25% afmælisafsláttur
af Stálplötukrókum fyrir
handfæraveiðar
Að auki fylgja silunganetum
vettlingar í aðgerðinni
Bólfæri
Netpokar fyrir þyngingu
Og eitthvað meira skemmtileg
Heimavík 25 ára
01.05.1995 - 01.05.2020
Tveir góðir úr nýju netunum
Reynsla • Þekking • Gæði
heimavik.is, s. 892 8655
Bílar
Nýir 2020 Mitsubishi Outlander
Hybrid.
Flottasta typa með öllum búnaði.
Listaverð 6.690.000,-
Okkar verð er 800.000 lægra eða
5.890.000,-
Til sýnis á staðnum í nokkrum
litum.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryðbletti á þökum
og tek að mér
ýmis smærri verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
FINNA.is
✝ Ronald BjörnGuðnason
fæddist 2. nóv-
ember 1964 í Lü-
beck í Þýskalandi.
Hann lést 8. júlí
2020.
Foreldrar hans
voru Guðni Þor-
steinsson fiski-
fræðingur, f. 1936,
d. 1997, og Ilse
Ruth Thiede, f.
1937, d. 2002. Bræður Ronalds
eru Þorsteinn Gunnar, f. 1959,
Gerhard Ólafur, f. 1961, og
Axel Einar, f. 1970.
Eiginkona Ronalds er Bett-
ina Fingerle frá Þýskalandi, f.
1964. Þau áttu fimm börn: Jós-
ef, f. 1991, Jakob, f. 1994, Kar-
ólínu, f. 1996, Elínu, f. 1998, og
Berglindi, f. 2000.
Bettinu Fingerle, og gengu
þau í hjónaband árið 1989.
Fyrstu árin bjuggu þau í
Þýskalandi og þar fæddust
þeim öll börnin fimm. Sam-
hliða starfi sínu sem verkfræð-
ingur þjónaði Ronald í Kirkju
Jesú Krists, m.a. sem grein-
arforseti (forstöðumaður safn-
aðar). Árið 2001 flutti fjöl-
skyldan til Danmerkur, þar
sem Ronald fékk það verkefni
að starfa sem skólastjóri trúar-
skóla kirkjunnar í Danmörku
og Íslandi. Í því embætti ferð-
aðist hann margoft til Íslands
til að vera með æskufólki
kirkjunnar. Árið 2007 flutti
fjölskyldan síðan heim til Ís-
lands og settist að í Hvera-
gerði. Ronald tók þar að sér
ýmis verkfræðistörf og keyrði
leigubíl, uns hann var ráðinn
sem raungreinakennari við
Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi, en starfaði einnig sem
leiðsögumaður.
Útför Ronalds fer fram í
þjóðkirkjunni í Hveragerði í
dag, 24. júlí 2020, klukkan 14.
Ronald fæddist í
Þýskalandi en ólst
upp í foreldra-
húsum í Hafnar-
firði þegar faðir
hans flutti til Ís-
lands með fjöl-
skyldunni og hóf
störf hjá Hafrann-
sóknastofnun. 14
ára gamall gekk
Ronald í Kirkju
Jesú Krists hinna
Síðari daga heilögu. Hann
þjónaði til að mynda sem ung-
ur trúboði í tvö ár og var sem
slíkur staðsettur í suðurhluta
Þýskalands. Eftir þriggja ára
nám í verkfræði í Háskóla Ís-
lands hélt Ronald aftur utan til
Þýskalands og lauk þar námi í
verkfræði. Þar kynntist hann
tilvonandi eiginkonu sinni,
Það var mikið áfall að heyra af
andláti Ronalds B. Guðnasonar í
miðju sumarleyfi. Hann lauk
kennslu á liðinni vorönn með
bravúr enda góður og áhugasam-
ur kennari sem hóf störf við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands haustið
2012. Þótt Ronald væri fyrst og
fremst raungreinakennari bjó
hann yfir reynslu og þekkingu
sem gerði hann að afar fjölhæfum
kennara sem vék sér ekki undan
því að kenna dönsku og lífsleikni
ef á þurfti að halda. Ronald var
ákveðinn maður og lá ekki á
skoðunum sínum þegar umræður
voru á kennarafundum eða í
kaffitímum. Hann var nákvæmur
greinandi og sá oft það sem öðr-
um yfirsást. Hann bar ríka um-
hyggju fyrir nemendum sínum og
sinnti þeim vel, hafði skilning á
ólíkri stöðu þeirra enda sjálfur
með mikla reynslu sem fimm
barna faðir og á stundum held ég
að hann hafi litið á þau öll sem sín
eigin. Slík var umhyggja hans
gagnvart nemendum.
Ronald var framsækinn kenn-
ari og leitaði stöðugt nýrra leiða í
kennsluaðferðum. Hann skildi
nýjungar og tileinkaði sér þær. Á
liðinni vorönn lagði hann mikið á
sig til að ná tökum á fjarnáms-
kennslu eins og kennarar um allt
land þurftu að gera vegna veiru-
faraldursins. Hann mætti reglu-
lega á upplýsingafundi á Teams
og hætti ekki að velta leiðum fyr-
ir sér fyrr en hann var kominn á
þær slóðir sem virkuðu og leiddu
hann í rétta átt.
Ronald var virkur og sýndi
frumkvæði í Erasmus+-verkefn-
um sem FSu hefur tekið þátt í.
Þar var hann í essinu sínu enda
góður málamaður með rýmis-
greind og skipulagsgáfu. Hann
sótti alltaf fram og tók að sér
verkefni sem í senn voru tíma-
frek og krefjandi. Slíkum manni á
skólinn mikið að þakka. Ronald
var sístarfandi og naut sín sem
leiðsögumaður á sumrin og nýtt-
ist sú þekking og reynsla honum í
móttöku erlendra nemenda. Mér
er sérlega minnisstætt hversu
ríka áherslu hann lagði á að allir
fengju hollt og gott að borða í
þessum ferðum.
Það verður tómlegt að mæta
til starfa í haust án Ronalds og
sæti hans verður autt við bridds-
borðið á Bollastöðum þar sem
hann naut þess að spila í góðra fé-
laga hópi ef tími leyfði.
Fyrir hönd starfsfólks Fjöl-
brautaskóla Suðurlands votta ég
eiginkonu hans Bettínu, börnum
hans, tengdabörnum og barna-
barni okkar innilegustu samúð.
Blessuð sé minning Ronalds
Guðnasonar.
Olga Lísa Garðarsdóttir,
skólameistari FSu.
Ronald Björn
Guðnason
✝ Hersir MarJónsson fæddist
í Vestmannaeyjum
28. desember 1986.
Hann lést í Reykja-
nesbæ 10. júlí 2020.
Foreldrar Hersis
eru Jón Val-
geirsson, f. 4. júlí
1959, og Þórdís Er-
lingsdóttir, f. 6.
október 1962. Hers-
ir Mar átti þrjá
bræður, Agnar Mar, f. 11. nóv-
ember 1982, d. 26. september
1985, Alexander Örn, f. 19. mars
1990, d. 16. apríl 1995, og Ívar
Örn, f. 7. mars 1997.
Hersir lætur eftir sig einn
ungan son, Alex-
ander Agnar, f. 1.
nóvember 2014,
móðir hans er Hlíf
Ásgeirsdóttir, f. 22.
ágúst 1992.
Hersir ólst upp í
Vestmannaeyjum
og gekk þar í Ham-
arsskóla. Hann
stundaði sjóinn
lengst af en var við
ýmis önnur störf
þess á milli. Árið 2012 flutti Hers-
ir ásamt fjölskyldu sinni í
Reykjanesbæ þar sem hann lést.
Útförin fer fram frá Vídalíns-
kirkju í Garðabæ í dag, 24. júlí
2020, klukkan 13.
Yndislegi drengurinn okkar.
Mikill harmur er að okkur kveð-
inn. Það er okkur afar sársauka-
fullt að hugsa til framtíðarinnar
án þín. Þú ert farinn fyrir fullt og
allt, líkt og bræður þínir tveir,
þeir Agnar Mar og Alexander
Örn. Eftir sitjum við með djúpa
sorg í hjarta, máttvana, tóm og
hljóð – Guði láðist að gæta sann-
girni þegar ákveðin voru örlög
okkar. Við sitjum eftir í spurn og
skiljum ekki tilganginn.
Við viljum minnast þín og
þeirra ánægjustunda sem við átt-
um með þér. Þú varst góður
drengur, fallega og vel innrættur.
Þér var ætíð umhugað um aðra,
alla nema sjálfan þig. Þú hafðir
þinn djöful að draga, djöful sem
hafði djúpstæð áhrif á lífshlaup
þitt. Í okkar huga endurspeglar
það þó ekki á neinn hátt þann
góða mann sem þú hafðir að
geyma. Óskir okkar og þrár
beindust að því að þú kæmist út
úr myrku hugarástandi og fetaðir
beina braut – fyrir þig, fyrir okk-
ur og fyrir litla Alexander Agnar.
Ljósið skein í myrkrinu, þú vildir
og reyndir en svo fór sem fór.
Það er okkur óendanlega dýr-
mætt að þú skyldir halda lífskeðj-
unni við og gera okkur að ömmu
og afa í fyrsta sinn. Minningu
þinni munum við halda á loft um
ókomna tíð við Alexander Agnar
og sjá lifandi eftirmynd þína í
honum og Ívari Erni, bróður þín-
um.
Lifðu í ljósinu elsku drengur-
inn okkar.
Pabbi og mamma.
Elsku Hersir, það er ótrúlegt
til þess að hugsa að þú sért farinn
frá okkur. Þú varst fallegur að
innan sem utan og vildir öllum vel
en þú áttir við þín vandamál að
stríða sem höfðu slæm áhrif á líf
þitt. Þú hefðir viljað gera svo
miklu meira og betra, sérstaklega
fyrir ungan son þinn, sem þú elsk-
aðir svo mikið. Ég man þegar við
sátum inni í bílskúr heima hjá þér
og grétum saman yfir fráfalli
Bjarna Jóns, litla frænda okkar,
sem var einungis 24 ára þegar
hann lést. Það var svo sárt. Ekki
hvarflaði sú hugmynd að mér þá
að tveimur árum seinna myndi ég
vera að skrifa minningargrein um
þig elsku frændi minn. Það var
svo gaman hversu oft þú komst í
heimsókn til okkar í „sveitina“ í
Grindavík. Það var alltaf svo mik-
ið líf og fjör í kringum þig og
börnin okkar Bigga. Það mynd-
uðust sterk tengsl á milli okkar
allra í kjölfarið sem lifðu til þíns
síðasta dags. Við munum aldrei
gleyma þér.
Ég veit að þú ferð í friði elsku
frændi því ég trúi að bræður þínir
tveir, þeir Agnar og Alexander,
muni taka vel á móti þér og það
mun Bjarni Jón gera líka.
Þar sem englarnir syngja sefur þú,
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra,
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín frænka og börn,
Anna María, Sævar Þór,
Mardís Ögn og Baldur Bragi.
Hersir Mar
Jónsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar