Morgunblaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
„NÆSTA LAG ER NÝTT AF NÁLINNI – EN
HLJÓMAR EINS OG FLEST HIN LÖGIN
MÍN.”
„GETURÐU SNIÐIÐ STJÖRNULAGA GLER
FYRIR MIG SEM PASSAR Í GATIÐ?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... svöl.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
AF HVERJU HEFURÐU
ÁHYGGJUR, GRETTIR?
Ó, ÞÚ
VEIST …
DAUÐLEIKA MÍNUM …
PLÁGUM …
ÉG HEF ÁHYGGJUR AF
UPPREISN VÉLMENNANNA
JÆJA, ÞÁ SEF
ÉG EKKI Í NÓTT
HELGA SEGIR AÐ ALLIR TÖFRARNIR SÉU
FARNIR ÚR HJÓNABANDINU!
SEGÐU MÉR AÐ ÞETTA SÉ
EKKI KANÍNUKÁSSA!
listamaður þegar ég er að vaska upp.
Svo það er ekki mikið pláss fyrir
áhugamál, en ég spila badminton með
mömmu, það finnst mér gaman, og ég
hef gaman af því að vera með fjöl-
skyldunni minni og að smíða. Pabbi
minn er smiður og er minn helsti
samstarfsmaður þegar kemur að því
að framleiða verk. Ég hef aldrei lært
að smíða en verið með honum í gegn-
um lífið.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Hildigunnar er
Jón Þór Finnbogason, f. 20.9. 1977,
verkfræðingur og einn eigenda Verk-
fræðistofu Reykjavíkur. Þau eru bú-
sett í Vesturbænum í Reykjavík. For-
eldrar Jóns Þórs eru hjónin Þóra
Þuríður Jónsdóttir, f. 6.7. 1953, hjúkr-
unarfræðingur og Finnbogi Ottó
Guðmundsson, f. 23.8. 1954, smiður.
Þau eru búsett í Reykjavík.
Dóttir Hildigunnar og Baldurs
Björnssonar er Eik, f. 10.12. 2003.
Sonur Hildigunnar og Jóns Þórs er
Finnbogi Þór, f. 20.7. 2015.
Hálfsystkini Hildigunnar samfeðra
eru Rúnar Sigurður Birgisson, f. 18.5.
1960, búsettur í Reykjavík; Inga Lára
Birgisdóttir, f. 29.6. 1961, bókasafns-
fræðingur, búsett í Reykjavík; Hulda
Jóna Birgisdóttir, f. 20.1. 1965,
sjúkraliði, búsett í Svíþjóð; Birgir Þór
Birgisson, f. 21.9. 1971, búsettur í
Reykjavík, og Sveinberg Þór Birg-
isson, f. 23.6. 1976, smiður, búsettur í
Reykjavík. Hálfsystir Hildigunnar
sammæðra er Aðalheiður Pálsdóttir,
f. 18.12. 1974, iðjuþjálfi, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Hildigunnar eru hjónin
Birgir Þór Sveinbergsson, f. 14.2.
1941, smiður, og Erla Kristín Jónas-
dóttir, f. 3.6. 1951, bókasafnsfræð-
ingur. Þau eru búsett í Reykjavík.
Hildigunnur
Birgisdóttir
Sigurlaug Hansdóttir
ráðskona í Sólheimum við Svínavatn, A-Hún.
Guðmundur Jónsson
skipstjóri í Reykjavík
Lára Guðmundsdóttir
húsfreyja á Blönduósi
Sveinberg Jónsson
bifreiðarstjóri og fulltrúi á Blönduósi
Birgir Þór Sveinbergsson
smiður í Reykjavík
Margrét Sigríður
Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Gíslason
sjómaður í Rvík, síðar á Eyrarbakka
Helena Jónsdóttir
sálfræðingur á Flateyri
Sjöfn Ingólfsdóttir fv.
formaður Starfsm.félags
Reykjavíkurborgar
Svava Juliusson
myndlistarmaður
í Kanada
Jón Jónasson
tannlæknir í Rvík
Margrét Sveinbergsdóttir
fv. verslunarstj. í Kanada
og Rvík, bús. á Siglufirði
Sigurbjörg Erlendsdóttir
húsfreyja á Reyðarfirði og víðar
Pétur Magnússon
póstur á Reyðarfirði, síðar
bóndi víða,m.a. í Fljótsdal
Aðalheiður Pétursdóttir
húsfreyja í Reykjavík
JónasJónsson
leigubílstjóri í Rvík
Anna Jóhannsdóttir
húsfreyja á Bessastöðum
Jón Jónasson
bóndi á Bessastöðum í Fljótsdal
Úr frændgarði Hildigunnar Birgisdóttur
Erla Kristín Jónasdóttir
bókasafnsfræðingur í Reykjavík
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta barnaglingur
en verður seinna í höndum hans
hvöss sem byssustingur.
Þannig orti Andrés Björnsson á
sínum tíma. Og víst er það rétt, að
vísur eru meðal þess fyrsta sem börn
læra og raula. Það skýrir með sínum
hætti vinsældir ferskeytlunnar og
hversu margir spreyta sig á því síð-
ar á lífsleiðinni að kveða að og yrkja.
Hörður Þorleifsson læknir er meðal
þeirra. Hann sendi mér um daginn
póst, sagði að upp í huga sinn hefðu
komið vísur frá 1946 og eldri:
Bókin vekur mannsins móð,
menntalöngun alla.
Manninn bætir bókin góð.
byggir menning snjalla.
Eflir hugann, eflir dáð,
aftur mér koma í huga ráð,
undir fót að leggja láð,
látið vera allt spott og háð.
Þessar kallar hann „Vorið“, ortar
í apríl 1945:
Vorið hjá oss vekur líf,
vesöld burtu hrekur.
Börnin, karlar bæði og víf,
bætta gleði tekur.
Líf allt jarðar lifnar við
ljós frá sólarspjóti.
Veröldu hún veitir lið
vetrarhörku móti.
Fyrst á vori lóan leitar
lands vors yfir Atlantshaf.
Hérna verða fyrst þær feitar
frjóu landi beitar af.
Síðan koma fuglar fleiri,
finna stað í mýri og bug.
Krían býr með unga á eyri,
elur hann af krafti og dug.
Hér eru tvær vísur, sem skýra sig
sjálfar og mega vel vera um Hörð
sjálfan:
Mörg þín orðin ævispor,
ekkert grandað hefur fár.
Hafðir bæði þrek og þor
að þrauka í níutíu ár.
Aldurinn í sjálfum sér
sýnist ekki skipta máli.
Það sem stendur upp úr er,
afstaðan sem betur fer.
Sigmundur Benediktsson gerir
kvennaboltann að yrkisefni: „Ein-
stefna 4-0“:
Valskonur með værð og hik
vantar keppnisfasið.
Fór á kostum Breiðablik
bylti þeim í grasið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísan lifir með
ungum og gömlum