Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 1

Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 1
SMARTLAND ur karlmaður segir frá klámfíkn sinni og hvernig hann náði bata. ða klám hafði hugbreytandi áhrif á mig svipað eins og vímuefni.“ KLÁMFÍKNlensk ð sko F Ö S T U D A G U R 2. O K T Ó B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  232. tölublað  108. árgangur  NÆR ÚTDAUTT EN DAFNAR NÚ ÁGÆTLEGA EINA MAMMAN Í LEIKLISTAR- SKÓLANUM SMARTLAND 48 SÍÐURÍSLENSKT FELDFÉ 12 Ljósmynd/Gunnar Jónatansson Söngur Frá tónleikum Kvennakórs Reykja- víkur í Seljakirkju í desember á síðasta ári.  „Við viljum öll að lífið haldi áfram og bíðum eftir að geta sungið saman á ný,“ segir Kolbrún Hall- dórsdóttir, sem syngur með Kvennakór Reykjavíkur og er for- maður Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra. Á tímum kórónuveirunnar hefur þurft að gera ýmsar breytingar á kórastarfi til að draga úr smit- hættu. Í stað þess að kórfélagar hittist á æfingum er algengt að fólk sitji heima og syngi fyrir kórstjór- ann í gegnum fjarfundabúnað. »4 Bíðum eftir að geta sungið saman á ný Baldur Arnarson Ómar Friðriksson Samkvæmt nýrri fjármálaáætlun verður afkoma ríkissjóðs neikvæð um 264 milljarða á næsta ári og um 800 milljarða árin 2021 til 2025. Sá uppsafnaði halli er á við 15 meðferðarkjarna við Landspítalann. Ragnar Árnason, prófessor í hag- fræði við Háskóla Íslands, segir það áhyggjuefni að taka muni fimm ár að ná jafnvægi í ríkisfjármálum. Afleið- ingin verði að líkindum þyngri skuldabyrði til langrar framtíðar. „Ég tel að fyllsta ástæða sé til að hafa áhyggjur af skuldasöfnun rík- isins vegna þess að hún er í megin- dráttum ávísun á skatta í framtíð- inni. Þá er ekki ástæða til að sjá ofsjónum yfir lágum vöxtum um þessar mundir, enda munu vextir í framtíðinni sennilega færast að sögulegum venjum og verða kannski þrisvar eða fjórum sinnum hærri en þeir eru nú,“ segir Ragnar sem horf- ir til næstu 3-5 ára í þessu efni. Óvissa um áhrif skattalækkana Fyrirhugað er að lækka tekju- skatt á lægstu laun. Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, segir þessa aðgerð auka ráðstöfunartekjur tekjulágra. Vegna breyttra aðstæðna síðan að- gerðin var boðuð sé erfitt að meta áhrifin á sparnað og einkaneyslu. Hitt sé ljóst að þetta styrki stöðu tekjulágra enn frekar. Kjaratöl- fræðinefnd hafi komist að þeirri nið- urstöðu að þeir tekjulægstu hafi fengið hlutfallslega mestar launa- hækkanir í síðustu samningum. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, benti á það í gær þegar hann kynnti fjárlagafrum- varpið og ríkisfjármálaáætlun til fimm ára að leiðarljósið í opinberum fjármálum væri að skuldir hættu að hækka sem hlutfall af landsfram- leiðslu í síðasta lagi á árinu 2025. Ef ekki yrði gripið til ráðstafana yrði skuldahlutfall ríkis og sveitarfélaga komið í 65% af landsframleiðslu og færi enn vaxandi á því ári. Lykilat- riði væri að örva hagvöxt. Nú er útlit fyrir að skuldir ríkis- sjóðs hækki í 1.250 milljarða kr. í lok þessa árs og verði um 430 milljörð- um kr. hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Á næsta ári er gert ráð fyrir að þær aukist enn um 268 millj- arða og verði komnar í 1.519 millj- arða í lok ársins, sem jafngildir 41,1% af landsframleiðslu. Til sam- anburðar voru heildarskuldir ríkis- sjóðs í framhaldi af fjármálakrepp- unni 1.501 milljarður þegar þær voru mestar árið 2012 og 62% í hlutfalli af landsframleiðslu á þeim tíma. Skuldasöfnun áhyggjuefni  Prófessor segir vaxtahækkanir munu þyngja vaxtabyrði ríkissjóðs í kjölfar margra ára hallareksturs  Hallinn á næsta ári 264 milljarðar og heildarskuldir ríkissjóðs gætu farið yfir 1.500 milljarða á árinu Heildarjöfnuður ríkissjóðs Áætlun í milljörðum króna 2021 2022 2023 2024 2025 Heimild: Fjármálaáætlun-264 -211 -154 -105 -68 802 ma.kr. alls MFjárlagafrumvarpið kynnt »6, 10 Ríkissjóði verður beitt af fullum krafti til þess að styðja við bakið á almenningi og fyrirtækjum í landinu, í ljósi þeirrar efnahagslægðar sem nú gengur yfir. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra í stefnuræðu sinni við setningu Al- þingis í gærkvöldi, eftir setningu 151. löggjafar- þings. Undir þetta tóku aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, en þessi orð mættu mikilli andspyrnu þingmanna minnihlutans, sem varð um leið tíðrætt um kerfisbreytingar, loftslags- mál, nýja stjórnarskrá og kjarkleysi ríkisstjórn- arinnar í viðbrögðum sínum við faraldrinum. »2 Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ósammála um viðbrögð við veirufaraldrinum  Heimildir Morgunblaðsins herma að nafn Steins Loga Björnssonar, fyrrverandi for- stjóra fraktflutn- ingafélagsins Blá- fugls og fyrrverandi fram- kvæmdastjóra markaðs- og sölu- sviðs Icelandair, sé nefnt í samhengi við hugsanlegar breytingar á stjórn Icelandair Group í kjölfar hlutafjár- útboðs félagsins í síðasta mánuði. Morgunblaðið spurði Stein Loga út í málið og sagði hann að ekkert form- legt hefði verið rætt, þó vissulega hefðu einhverjir hluthafar sett sig í samband og viðrað þennan kost. »14 Steinn Logi orðaður við stjórn Icelandair Steinn Logi Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.