Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
Fyrirhugað er að breyta fæðing-arorlofslögum þannig að orlofið
lengist, sem er gert með hagsmuni
barnsins fyrir augum, en um leið að
takmarka millifærslu tímans á milli
foreldra, sem er ekki gert barnsins
vegna heldur af öðrum ástæðum. Fé-
lags- og barna-
málaráðherra segir
að þetta verði að
gera til að „þvinga“
feður í fæðingarorlof
því að þeir hafi ekki
verið nógu duglegir
að nýta sér það.
Kjartan Valgarðs-son, fram-
kvæmdastjóri Geð-
verndarfélags
Íslands, er ánægður
með lengingu orlofs-
ins og telur raunar að
hún hefði mátt vera
meiri, en við hitt er
hann ósáttur og færði fyrir því
áhugaverð rök í samtali við mbl.is í
gær.
Hann sagði að markmið fæðing-arorlofsins væri tvíþætt, vel-
ferð barnsins og kynjajafnrétti. „Við
lítum þannig á að vegirðu þessi sjón-
armið, þá skiptir velferð barnsins
meira máli, að velferð, tilfinningalegt
heilbrigði og tengslamyndun barns-
ins eigi að koma númer eitt, og jafn-
réttisbaráttan svo. Með þessu erum
við ekki að segja að við höfum eitt-
hvað á móti jafnréttisbaráttunni, en
hún á ekki að koma niður á barninu.“
Hann bendir á ýmsar ástæðurþess að feður taki minna fæð-
ingarorlof en mæður, geti jafnvel
ekki tekið neitt fæðingarorlof eða séu
hreinlega ekki til staðar, enda bendir
Kjartan á að börn einstæðra mæðra
fái minna en önnur börn.
Sagt er að velferð barna eigi aðvera í fyrsta sæti. Hvers vegna
þarf hún að vera í öðru sæti í þessu
máli?
Ásmundur Einar
Daðason
Börnin í 2. sæti?
STAKSTEINAR
Kjartan
Valgarðsson
Persónuvernd hefur úrskurðað í
tveimur málum þar sem kvartað var
yfir að notendur samfélagsmiðilsins
Facebook birtu persónuupplýsingar
um aðra einstaklinga. Var notend-
unum í báðum tilfellum gert að fjar-
lægja upplýsingarnar þar sem þær
stönguðust á við lög um persónu-
vernd.
Í öðru málinu birti notandi á
Facebook skjöl þar sem m.a. komu
fram upplýsingar um heimilisfang
annars einstaklings. Sá hafði áður
fjarlægt nafn sitt úr símaskrá af ör-
yggisástæðum.
Í hinu málinu birti Facebook-not-
andi upplýsingar um kennitölu og
bankareikningsnúmer annars ein-
staklings og yfirlit greiðslna inn á
þann reikning.
Í úrskurðunum er tekið fram að
skoðanir einstaklings og gildisdóm-
ar um annan einstakling teljist ekki
til persónuupplýsinga um þann síð-
arnefnda og falli þar af leiðandi
ekki undir gildissvið laga um per-
sónuvernd og vinnslu persónuupp-
lýsinga. Upplýsingarnar um heim-
ilisfangið og bankareikninginn
teljist hins vegar til persónuupplýs-
inga og því sé Persónuvernd bær til
að úrskurða um lögmæti vinnslu
þeirra.
vidar@mbl.is
Bannað að birta heimilisfang
Persónuupplýsingar á Facebook
komu til kasta Persónuverndar
Morgunblaðið/Ernir
Facebook Ekki var heimilt að birta
heimilisfang kvartanda á Facebook.
Héraðssaksóknari hefur með til-
kynningu í Lögbirtingablaðinu lýst
eftir nafngreindum erlendum manni
fæddum 1976, sem ákærður er fyrir
ósiðlegt athæfi í Hressó.
Maðurinn er ákærður fyrir kyn-
ferðislega áreitni, „með því að hafa
aðfaranótt sunnudagsins 11. nóv-
ember 2018 á skemmtistaðnum
Hressingarskálanum, Austurstræti
20, Reykjavík, komið aftan að […]
þar sem hún stóð við barborð stað-
arins, fært sig þétt upp að henni
þannig að mjaðmsvæðið hans nam
við rass […] og strokið mjaðmir
hennar og maga með báðum hönd-
um.“ Telst þetta varða við 1. mgr.
199. gr. almennra hegningarlaga nr.
19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði
dæmdur til refsingar og greiðslu alls
sakarkostnaðar. Að auki er þess
krafist að hinn ákærði greiði allan
málskostnað. Af hálfu konunnar er
gerð krafa um að ákærða verði gert
að greiða henni skaða- og miskabæt-
ur samtals að fjárhæð 800.000 kr., að
viðbættum vöxtum.
Málið verður tekið fyrir í sal 203 í
Héraðsdómi Reykjavíkur 29. októ-
ber klukkan 10.
„Ákærði er kvaddur til að koma
fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi
vörnum og sæta dómi. Sæki ákærði
ekki þing má hann búast við því að
fjarvist hans verði metin til jafns við
það að hann viðurkenni að hafa
framið brot það hann er ákærður
fyrir og dómur verði lagður á málið
að honum fjarstöddum,“ segir í fyr-
irkalli héraðsdóms. Þar sem minni
líkur en meiri eru á því að umrædd-
ur maður lesi Lögbirtingablaðið má
leiða líkum að því að þetta gangi eft-
ir. sisi@mbl.is
Ákærður fyrir ósið-
legt athæfi á Hressó
Fyrirkall héraðs-
saksóknara birtist í
Lögbirtingablaðinu
Morgunblaðið/sisi
Hressó Staðurinn er lokaður nú um
stundir vegna heimsfaraldursins.
Öryggiskerfi
01:04 100%
SAMSTARFSAÐILI
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á firmavorn.is
HVARSEMÞÚERT
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/