Morgunblaðið - 30.10.2020, Page 2

Morgunblaðið - 30.10.2020, Page 2
Svipað og tappi væri tekinn úr bað- kari og vatnið látið renna úr var gert við Árbæjarlón í Reykjavík í gær. Opnað var fyrir lokur í Árbæj- arstíflu við Höfðabakkabrú og framvegis verður náttúrulegt rennsli þar í gegn. Þetta er sam- kvæmt ráðum Hafrannsóknastofn- unar og nú færast árnar og lónið til frambúðar í sína náttúrulegu mynd. Niðurstöður sýndu að árleg tæming á lóninu væri ekki æskileg fyrir lífríkið og í nýju fyrirkomu- lagi eru hagsmunir lífríkisins leið- arljós. Á næstu dögum stendur til að fylla upp í norðurhluta Árbæjar- lóns, svonefndan Andapoll, auk þess sem moldarbakki við lónið verður jafnaður út og svæðið grætt upp í fyllingu tímans. Fuglum á lón- inu mun fækka en þeir mögulega færa sig upp með ánni. Að öðru leyti ætti fuglalíf ofan lónsins og fyrir neðan Árbæjarstíflu ekki að verða fyrir miklum áhrifum af þessu, segir Ólöf Snæhólm Bald- ursdóttir, talsmaður Orkuveitu Reykjavíkur. sbs@mbl.is Rennsli í Árbæjarlón nú náttúrulegt og hagsmunir lífríkisins hafðir að leiðarljósi Tappinn var tekinn úr stíflunni Morgunblaðið/Eggert 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika Sími 555 3100 www.donna.is Heildsöludreifing Type II 3ja laga medical andlitsgríma FFP3 Respirator Comfort andlitsgríma með ventli FFP3 High-Risk andlitsgríma Andlitshlíf móðufrí Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Umfang gæludýrahalds í Reykjavík er óljóst og skráningar eru ófullnægj- andi. Leiða má líkum að því að einn eða fleiri hundar séu nú á a.m.k. 9.000 heimilum í borginni en einungis ríflega 2.000 hundar eru hins vegar á skrá í Reykjavík. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stýrihóps um þjónustu við gæludýr sem lögð var fram í umhverf- is- og heilbrigðisráði sl. miðvikudag. 40% borgarbúa eiga gæludýr Þar kemur fram að leiða megi rök að því að kettir séu á um 30% heimila í borginni og því gæti köttur verið á ríf- lega 16.000 heimilum. Áætlað er að um 40% borgarbúa eigi gæludýr. Stýrihópurinn bendir á að sífellt séu að verða ljósari jákvæð áhrif gæludýra á fólk, gæludýrahald geti leitt til auk- innar útiveru og dregið úr félagslegri einangrun og einmanaleika. Leggur hópurinn fram fjölda tillagna um úr- bætur og bætta þjónustu við gælu- dýraeigendur með kostnaðaráætl- unum. Er m.a. lagt til að öll málefni dýra í borginni verði sameinuð undir einum hatti undir nafninu Dýraþjón- usta Reykjavíkur (DÝR), sem staðsett verði í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum. Áhersla verði lögð á að fjölga skráðum dýrum í borginni, komið verði á fót rafrænu skráningarferli fyr- ir skráningarskyld dýr, leyfisgjöld verði lækkuð og skráningar einfald- aðar og útbúinn verði sérstakur sjóð- ur, helgaður dýravelferð. Átak verði gert til að bæta hundasvæði m.a. með uppsetningu leiktækja í samráði við hundaeigendur. Bent er á í skýrslunni að aldrei hafi verið meiri eftirspurn eftir hvolpum og kettlingum en eftir að veirufaraldurinn skall á. ,,Hlutfall skráðra hunda hefur líklega aldrei verið lægra í borginni og fer lækkandi á meðan fjöldi hunda í borginni hefur að mati fulltrúa hags- munasamtaka aukist mikið á undan- förnum árum. Það liggur því fyrir að borgin þarf að huga að nýrri nálgun í dýramálum, þjónustu við gæludýra- eigendur, aukinni sátt um dýrahald og stuðning við velferð dýra,“ segir þar. Dræmar heimtur kattagjalds Hópurinn aflaði víða fanga. Í um- fjöllun um ketti kemur m.a. fram að borgin ber árlega nálægt 40 milljóna kr. kostnað af kattahaldi borgarbúa. Sandskipti í sandkössum leikskóla kosti borgina hátt í 30 milljónir kr. á ári. ,,Kattagjald er óvíða innheimt á Ís- landi en það er þó gert á Akureyri og í sveitarfélaginu Árborg. Á þessum stöðum virðast heimturnar á gjaldinu vera fremur dræmar,“ segir stýrihóp- urinn, sem telur að gjaldtaka af katta- haldi sé ekki tímabær. Vinna þurfi engu að síður að ábyrgu kattahaldi í borginni. Nú þegar sé til staðar skrán- ingarskylda og skráningarkerfi fyrir ketti án þess að það hafi verið virkt. Auk þess telur hópurinn ástæðu til að skoða hvort gera ætti sérstakar samþykktir um annað dýrahald, s.s. kanínu- og býflugnahald, í borginni. Tekjur vegna hundagjalda í Reykjavík hafa farið lækkandi að því er segir í skýrslunni, þar sem sífellt fleiri hundaeigendur hafa sótt nám- skeið með hund sinn og njóta af- sláttar. Hundagjöldin hafa ekki hækkað frá 2016 og hafa því lækkað að raunvirði um 13%. Innheimt gjöld í fyrra voru 29 milljónir en rekstrar- kostnaður hundaeftirlitsins var 43 milljónir. Hópurinn telur að með flutningi þessara mála til DÝR yrði hægt að lækka kostnaðinn við eftir- litið niður í um 30 milljónir. Tjónamál vegna hunda fátíð Flest sveitarfélög kaupa miðlæga ábyrgðartryggingu vegna hunda og kaupir borgin árlega slíka tryggingu fyrir tæpar sjö milljónir. Tjónamál tengd hundum eru þó fátíð en átta mis- alvarleg atvik hafi komið upp þar sem reyndi á trygginguna frá 2017. Öll málefni dýra fari undir einn hatt  Hundar taldir vera á um 9.000 heimilum í borginni en aðeins um 2.000 á skrá  Áætlað að kettir séu á 16.000 heimilum  Umfang gæludýrahalds í Reykjavík er óljóst og skráningar ófullnægjandi Morgunblaðið/RAX Dýr Mikil eftirspurn er eftir hund- um og kettlingum í faraldrinum. „Þetta var einstaklega gaman og ég hef fengið góð viðbrögð við útsend- ingunni. Það er gaman að geta glatt á þessum tímum,“ segir Sig- urður Þorri Gunnarsson, dagskrár- stjóri K100. Siggi stjórnaði bingó-fjölskyldu- gleði sem var í beinni útsendingu á mbl.is í gærkvöldi. Þátttaka í bingóinu var vonum framar að sögn Sigga; þúsundir spiluðu á tugþús- undir bingóspjalda og hundruð vinninga gengu út. „Þetta gekk það vel að við ætlum að keyra á þetta aftur eftir viku. Við verðum í beinni á mbl.is næsta fimmtudagskvöld og vonum að sem flestir verði með okkur og freisti þess að vinna fjölbreytta vinninga,“ segir Siggi, sem naut aðstoðar Evu Ruzu í útsendingunni. Bingó í beinni sló í gegn  Bingó-fjölskyldugleði verður aftur á mbl.is í næstu viku Morgunblaðið/Árni Sæberg Bingó! Siggi Gunnars var bingóstjóri í beinni á mbl.is í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.