Morgunblaðið - 30.10.2020, Page 16

Morgunblaðið - 30.10.2020, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Teldu niður til jóla Nýleg skýrsla verk- fræðifyrirtækjanna COWI og Mannvits um áhrif fyrirhug- aðrar Borgarlínu snýst nær einvörð- ungu um efnahagshlið- ina, en ekkert um fjöl- margar aðrar afleiðingar þessarar framkvæmdar sem geta verið mjög nei- kvæðar. Þeirra á meðal eru um- hverfisáhrifin sem rétt eins og hin efnahagslegu áhrif má meta til fjár og er oft gert í svonefndum fé- lagshagfræðilegum athugunum. Einnig verður að hafa í huga að fé- lagshagfræðilegar greiningar og skipulag samgangna verða aldrei skilin frá skipulagi landnotkunar á viðkomandi svæði, svo vel sé, enda koma alltaf fleiri kostir en einn til greina. Gert er ráð fyrir að fyrsta lota Borgarlínu, í samræmi við nýsam- þykktan Samgöngusáttmála, muni liggja um mörg mjög viðkvæm svæði á höfuðborgarsvæðinu þar sem hugsanlegt er að hún geti valdið miklum, neikvæðum og óaftur- kræfum umhverfisáhrifum. Hér er um að ræða tengingu yfir Elliðaárn- ar, eftir Laugardalnum og niður á Hlemm, eftir Hverfisgötu og niður á Lækjartorg, eftir Lækjargötu og Frí- kirkjuvegi, yfir Tjörn- ina á Skothúsvegi, upp að Landspítala og síðan yfir Fossvog, yfir á Kársnes og eftir því endilöngu að Hamra- borg. Gert er ráð fyrir að Borgarlínan yfirtaki sumar af þessum götum algerlega þannig að önnur ökutæki þurfa þá að leita eitt- hvað annað, með auknu álagi á þær götur. Kynning á Borgarlínunni hefur að undanförnu verið með þeim hætti að nær ógerlegt hefur verið fyrir venju- legt fólk að átta sig á því hvað þarna er á ferðinni, en þó er hlutlaus kynn- ing þeirra sérfræðinga sem þarna eiga hlut að máli og taka á því fag- lega ábyrgð samt forsenda fyrir því að fólk geti myndað sér skoðanir á skynsamlegum grundvelli og sett fram raunhæfar ábendingar/athuga- semdir. Hér á ekki að vera að reyna að selja eina ákveðna hugmynd og þetta gildir jafnt um almenning, stjórnmálamenn og aðra sérfræð- inga. Þótt sagt sé í tillögu að matsáætl- un að fyrirhugað sé að athuga á leið Borgarlínunnar „loftgæði, hljóðvist, loftslag, samgöngur og umferðarör- yggi, lífríki og vatnafar, jarðmynd- anir, landnotkun og þróun borg- arinnar, ásýnd, menningarminjar og félagshagfræðilega þætti“ þá breytir þetta ekki því að óhjákvæmilega verður hér um mikil og varanleg um- hverfisáhrif að ræða ef fram heldur sem horfir. Þau verða ekki öll já- kvæð og meðan þetta mál var á frumstigi hefðu forsvarsmenn þess auðvitað átt að útbúa og sýna hugs- anlegt fyrirkomulag, a.m.k. á við- kvæmustu stöðunum, í stað þess að bjóða fólki bara upp á illskiljanlega grafík. Þetta er líka nauðsynlegt til þess að hægt sé að meta þessi neikvæðu áhrif til fjár, eins og ávinninginn, og sýna á hverjum þau lenda. Allar framkvæmdir, ekki síst í grónum hverfum, hafa áhrif til hækkunar eða lækkunar á virði fasteigna og skipu- lagsaðilar þurfa að gera sér og öðr- um grein fyrir því hver þessi áhrif verða þannig að hægt sé að draga sem mest úr neikvæðu áhrifunum. Nýjar byggingar geta líka bæði úti- lokað útsýni frá núverandi byggð og valdið skugga sem getur gert núver- andi íbúðir óíbúðarhæfar og sama máli gildir um stórkarlalegar fram- kvæmdir í viðkvæmu umhverfi. Þessi áhrif, m.a. á heilsu manna, eru löngu þekkt. Miklu skiptir líka að hér sé vandað til verka og mikilvægt að þeir sem gefa sig í að skipuleggja fyrir samborgara sína hafi staðgóða menntun í skipulagsfræðum og ekki sakar að þeir hafi líka einhverja fagurfræðilega menntun. Hér er heldur ekki um neina smá- smíð að ræða. Kjörsnið Borgarlín- unnar, eða æskileg breidd, er talin vera 35,5 m og þótt einhvers staðar verði nauðsynlegt að reyna að kom- ast af með minna mannvirki er hér engu að síður um mjög mikla fram- kvæmd að ræða sem mun gerbreyta núverandi umhverfi. Reykjavík er ekki með einn þéttan miðbæ eins og margar gamlar borg- ir á meginlandi Evrópu heldur er svokölluð miðbæjarstarfsemi dreifð um mikinn hluta borgarlandsins og reyndar um höfuðborgarsvæðið allt. Í núgildandi aðalskipulagi Reykja- víkur, 2010-2030, þekur landnotk- unin Miðborg/Miðsvæði líka mikinn hluta Reykjavíkur auk þess sem eitt stærsta verslunarhverfi landsins hefur risið í Örfirisey þar sem land- notkun á að vera Hafnir. Líklegt verður því að telja að ferðaóskum núverandi og komandi kynslóða verði betur þjónað með samgöngu- neti, sem auðveldar ferðir í allar átt- ir, en línulegum lausnum. Í þessu ljósi og með hliðsjón af nú- verandi ástandi í efnahagsmálum þjóðarinnar virðist vera full ástæða til að kanna hvort aðrir og hógvær- ari og hugsanlega betri kostir komi ekki til greina til þess að að auðvelda samgöngur fyrir alla á höfuðborg- arsvæðinu á komandi árum og ára- tugum. Í leiðinni væri vert að athuga hvort gatnastokkar, gryfjur eða göng eigi nokkuð við á jafn fámennu og jarðfræðilega erfiðu svæði og höf- uðborgarsvæðið er, með öllum þeim vandamálum sem þeim fylgja og með hliðsjón af þeim umfangsmiklu tæknibreytingum sem nú eru að eiga sér stað á flestum sviðum. Að reikna sig ráðalaus Eftir Gest Ólafsson Gestur Ólafsson » Full ástæða virðist til að kanna hvort hógværari og betri kost- ir komi ekki til greina til þess að auðvelda sam- göngur fyrir alla á höf- uðborgarsvæðinu. Höfundur er arkitekt og skipulagsfræðingur og fyrrverandi forstöðumaður Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins. skipark@skipark.is Staðsetning stöðva: Ártúnshöfði – Hamraborg. Kjörsnið Dæmigerður skurður í gegnum fyrirhugaða Borgarlínu. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.