Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 ✝ Sveinn Bene-diktsson fædd- ist í Firði í Mjóa- firði 8. júlí 1935. Hann lést á Land- spítalanum 16. október 2020. Foreldrar hans voru Benedikt Sveinsson frá Hlíð í Mjóafirði og Sess- elja Sveinsdóttir frá Firði. Sveinn átti eina systur, Önnu. Hinn 21. apríl 1973 giftist Sveinn eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðríði Guðbjartsdóttur frá Sunnuhvoli á Bíldudal, f. 21. júlí 1946. Foreldrar hennar voru Guðbjartur Ó. Ólason og María Guðmundsdóttir. Sveinn átti tvö börn úr fyrra sambandi. Þau eru: 1) Benedikt, f. 31. mars 1962, í sambúð með Steinunni Þorsteinsdóttur. Benedikt á fimm börn úr fyrri samböndum: a) Elía, b) Albert Þór, c) Andra Þór, d) Arnar Ísak og e) Brynju Katrínu. 2) Guðrún Matthildur, f. 18. ágúst 1963, gift Peter Bil- leskov Hansen. Peter á tvær dætur og einn stjúpson úr fyrra sambandi. Guðrún Matthildur á einn son úr fyrra sambandi, a) Arnar Frey. Guðrún og Pétur eiga saman tvö börn, b) Karen og c) Jens. Guðríður á tvö börn 1954. Sjómennskuna byrjaði Sveinn í áhöfn Gullfaxa NK árið 1952, en reri síðan um árabil á Björgu NK. Árin 1958-1964 gerði Sveinn út bátinn Hrefnu NK. Hann fór einnig túra á togaranum Goðanesi NK og Guðbjörgu úr Hafnarfirði. Milli vertíða sinnti hann ýmsum störf- um, s.s. viðgerðum á Björgu NK veturinn 1955-1956 og kola- mokstri og smíðum fyrir Kaupf. Fram árið 1958. Einnig starfaði Sveinn eitt ár í lögreglunni í Neskaupstað. Árið 1959 lauk hann námskeiði fyrir 120 tonna réttindi. Sveinn kláraði nám í Stýrimannaskólanum í Reykja- vík vorið 1966. Hann reri sem stýrimaður á Björgu NK 1966- 1969, á nótaskipinu Bjarti NK 1969, á togaranum Barða NK til 1976, skipstjóri á togaranum Bjarti NK 1976-1993 og svo skipstjóri á Barða NK frá 1993 til starfsloka 2004. Sveinn bjó lengstum í Nes- kaupstað. Eftir starfslok fluttu Sveinn og Guðríður til Breið- dalsvíkur, þar sem hann starfaði um stuttan tíma fyrir Lions- klúbbinn Svan, en einkum dvöldu þau í heimahögum Sveins í Firði í Mjóafirði. Útförin verður gerð frá Mos- fellskirkju í dag, 30. október 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á: https://tinyurl.com/yy58743c Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat úr fyrra sambandi, sem Sveinn gekk í föðurstað. Þau eru: 3) María Hrefna, f. 2. sept. 1964, í sam- búð með Nils Ring- dal. María Hrefna á tvö börn úr fyrri samböndum: a) Kol- brúnu Marí, í sam- búð með Thomasi Meldahl Olsen. Kol- brún Marí á tvö börn, Marinu Ósk og Sander. b) Svein. 4) Guðbjartur, f. 19. júní 1967, giftur Önnu Körlu Björns- dóttur. Börn þeirra eru: a) Berg- rós, gift Daníel Smárasyni. Bergrós og Daníel eiga tvö börn, Magdalenu og Jón Skugga. b) Guðjón Björn, í sambúð með Þórunni Egilsdóttur. c) Andrea Björk, í sambúð með Arnari Smára Skúlasyni. Saman eiga Sveinn og Guðríður tvö börn. Þau eru: 5) Sesselja María, f. 1. maí 1975, gift Guðmundi Erni Ingvarssyni. Börn þeirra eru: a) Steinar Máni, b) Bryndís Eva, c) Unnar Sveinn og d) Ingvar Daði. 6) Ólafur Arnar, f. 13. maí 1981, giftur Tiffany Nicole White. Sveinn ólst upp í Firði. Hann sinnti vitavörslu um 14 ára ald- ur, en gekk í Eiðaskóla 1951- 1953. Hann lauk prófi frá Vél- skólanum í Vestmannaeyjum Traustur, ástríkur eiginmað- ur, heimsins besti pabbi, afi og langafi hefur kvatt okkur. Hann elskaði fjölskyldu sína og þótti vænt um tengdafólk og ættingja. Bar hlýjan hug til sveitunga sinna í Mjóafirði, Norðfirði og Breiðdal. Skólasystkini hans og kennarar voru í miklu uppáhaldi. Hann átti góða samleið með sam- starfsfólki sínu, átti raunar far- sælt ævistarf sem tengdist mest- megnis sjónum. Vini átti hann marga um allt land og víða er- lendis. Hann hafði sérstakar mætur á heilbrigðisstarfsfólki og var því mjög þakklátur. Margar sögur sagði hann mér um allt þetta samferðafólk. Sérstaklega í seinni tíð. Sumar þeirra aftur og aftur. Svo stoppaði hann oft í miðri frásögn og spurði: „Ertu að hlusta?“ Svo hélt hann áfram. Mjóifjörðurinn og Breiðdalurinn voru honum sérstaklega hjart- fólgnir. Lýsing á langafa hans, séra Þorsteini heitnum Þórarins- syni, sem var m.a. prestur í Ey- dölum í Breiðdal, á einnig vel við um hann. Ljúfmenni og sæmdar- maður, góður búmaður og reglu- maður. Ég kveð þig, elsku Sveinn minn, með þessum ljóðlínum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hjartans þakkir fyrir allt, ást- in mín. Við hittumst síðar. Þín Guðríður. Sólin úr brattri brekku brennir niður í fjörð og stendur í stað þess að setjast í stóla og fjallaskörð. (Hallgrímur Helgason) Það var líklega í kringum páskana 1986 sem ég fór í fyrsta skipti á sjó með pabba. Þetta var brælutúr og ég á minningabrot um leikfangabílana mína aka sjálfa um brúargólfið í Bjarti NK. Þetta var mikil upplifun fyrir 4-5 ára gamalt barn. Eftir þetta fór ég árlega á sjóinn með pabba til þrettán ára aldurs, þar sem ég kynntist starfsumhverfi hans. Það kann að hafa verið mikill at- gangur um borð eða veður vond, en ávallt fann ég fyrir öryggi og hlýju hjá pabba. Honum tókst alla jafna að halda yfirvegun og allt fannst mér vera í traustum höndum með hann á staðnum. Pabbi var einhver heiðarlegasti, heilsteyptasti og samviskusam- asti einstaklingur sem hægt var að kynnast. Hann var réttsýnn, skilvís, fylginn sér og ákveðinn. Hann lagði sig einnig fram um að kenna og leiðbeina. Þá var enginn betri stuðnings- og hvatamaður þegar kom að lífsins áskorunum. Ávallt stóð hann mér að baki og aldrei skyldi gefast upp; alltaf var hægt að finna lausnir. Pabbi var mikill vinnuþjarkur. Hann bjó einnig yfir sveigjanleika sem hann nýtti til að vinna úr ýmsum aðstæðum sem oftar en ekki hefðu reynst flóknar. Pabbi var örvhentur. Hann sagði mér frá því að þegar hann sem barn var að læra að skrifa hjá Önnu Ólafsdóttur, afasystur sinni, þá hefði hann tekið blýant- inn í vinstri hönd. Hún sagði hon- um að þetta skyldi hann ekki láta nokkurn mann sjá. Upp frá því beitti pabbi hægri hendinni og skrifaði loks með henni. Hugsan- lega hefur þessi reynsla haft þau áhrif að í verklegri vinnu var hann í raun jafnhentur. Hann sagði mér nokkrum sinnum frá því að þegar mikið var að gera í aðgerðinni á togaranum hefði hann gert að með hægri hendinni þar til hún þreyttist, en þá hefði hann hvílt hana með því að víxla og tekið hnífinn í vinstri hönd. Þessi frásögn ber þó einnig vott um aðlögunarhæfni hans. Um miðjan október ár hvert hættir sólin að skína á Fjörð í Mjóafirði sökum þess hve tind- arnir yfir suðurhlíðinni eru háir. Sólin birtist ekki á ný í Firði fyrr en í byrjun mars. Þrátt fyrir að tekið sé að dimma og langur vet- ur sé fram undan bregða minn- ingar um pabba birtu á hvern ein- asta dag. Minningar um jákvæðni hans og væntumþykju lýsa upp tilveruna og verða mér vonandi leiðarljós inn í framtíðina. Ég er þakklátur fyrir alla túrana á tog- urunum, allar veiðiferðirnar, ferðalögin, samverustundirnar, ástina, umhyggjuna, hvatn- inguna og vináttuna. Ólafur Arnar. Það er komið að leiðarlokum og nú kveð ég pabba minn í hinsta sinn. Heimurinn er ekki sá sami þegar pabbi er ekki hér og það mun taka langan tíma að venjast því. En ég hugsa það þannig að við munum hittast aft- ur seinna á öðrum stað. Þangað til munu minningar um pabba fylgja mér og ylja. Ég minnist pabba með þakklæti, hlýju og stolti. Alltaf var hægt að leita til pabba til að fá góð ráð og alltaf hægt að treysta á hann, hann hafði réttu svörin. Hann stóð með mér og stappaði í mig stálinu þegar á þurfti að halda. Ég bar mikla virðingu fyrir pabba eins og allir gerðu sem þekktu hann. Hann var þannig maður, rólyndi og staðfesta einkenndu hann. Þegar pabbi var á sjónum hringdi ég oft í hann til að heyra í honum hljóðið, það var svo gaman að tala við hann og gott að heyra í hon- um. Það veitti mér styrk og það var hægt að tala við hann um hvað sem var. Hann var hlýr og góður eins og pabbar eiga að vera. Þau voru ófá ævintýrin sem ég lenti í með pabba. Snemma fór ég með honum á sjó, alltaf á sumrin fékk ég að fara a.m.k. einn túr og jafnvel fleiri. Ég fékk að fara með pabba í siglingar erlendis og eitt sinn til Vestmannaeyja þegar skipið fór í slipp. Þetta voru mikil ævintýri fyrir litla stelpu. Við átt- um líka margar góðar stundir í fallegasta firðinum, Mjóafirði. Takk, elsku pabbi minn, fyrir að vera mér góð fyrirmynd. Takk fyrir að standa með mér og veita mér stuðning. Takk fyrir að kenna mér svo margt. Takk fyrir öll ævintýrin sem við lentum í saman. Takk fyrir ómælda þol- inmæði og skilyrðislausa ást. Þú ert besti pabbinn og ég mun alltaf sakna þín. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Sesselja María Sveinsdóttir. Fráfall tengdaföður míns var nokkuð óvænt. Þrátt fyrir að vera orðinn 85 ára gamall var hann fullur af lífi og sál. Ástríða hans við að segja sögur gerði hvert samtal gefandi. Hann sagði mér oft frá því þegar hann sigldi frá Íslandi til Namibíu, þaðan sem hann flaug til Suður-Afríku og hversu spennandi það hafi verið að skoða fangaklefann þar sem Nelson Mandela hafði verið í haldi. Þrátt fyrir að hafa heyrt sumar sögurnar þúsund sinnum áður, þá sagði hann mér þær margar hverjar aftur og aftur. Hann sagði mér sögur af upp- vaxtarárum sínum í Mjóafirði og einnig hvernig hann ásamt fleir- um tók gröf Önnu Ólafsdóttur ár- ið 1962, síðustu gröfina í Firði. Áður en nokkur vegur var lagður til fjarðarins gekk hann ýmist yf- ir fjallið til Seyðisfjarðar eða fór á skíðum til Héraðs. Hann sagði mér m.a. hvernig hann hefði nokkrum sinnum verið sendur til Seyðisfjarðar til að ná í brenni- vín. Gegnum ævina drakk hann óteljandi kaffibolla. Þegar við vorum að kynnast tengdumst við yfir kaffidrykkju og tengsl okkar héldust alla tíð. Hann drakk kaffi má segja frá morgni til kvölds og ég hló oft að því þegar hann bauð mér kaffisopa kl. 11 á kvöldin. Það var alveg sama þótt ég kæmi með nýtt og spennandi kaffi handa honum, og hann hafi kurt- eislega bragðað á því, þá valdi hann alltaf sama svarta kaffið, Merrild, svart og sykurlaust. Hann var vanafastur með margt. Hann fylgdist daglega með frétt- um, oft á dag, og gat sagt hverj- um sem var, á hvaða tíma sem var, hvernig veðrið var eða hvernig það yrði, í hvaða lands- hluta sem var. Aldrei á ævinni hef ég hitt nokkurn sem hefur haft eins mikið dálæti á kartöflum. Einhvern tíma hóf hann að rækta kartöflur á sumrin. Uppskeran jókst og jókst og eitt sumarið samanstóð hún af 450 kílóum. Það var allt yfirfullt af kartöflum. Þegar ég var á ketó-fæði sá hann alltaf til þess að bjóða mér kart- öflur í öll mál. Hann langaði alltaf að deila með öðrum því sem hann hafði dálæti á. Það var skylda að hafa margar tegundir af kart- öflum yfir hátíðarnar og við mun- um halda áfram að búa til brúnuðu kartöflurnar hans á jól- um til minningar um hann. Hann kenndi mér margt um fugla á Ís- landi, en ég efast um að ég nái sömu kunnáttu og hann hafði. Hann gat borið kennsl á hvaða fugl sem hann sá, samstundis. Morguninn eftir andlátið flugu fuglarnir hér fyrir utan gluggann og sungu hærra en nokkru sinni fyrr. Eftir að hann hætti akstri var hann tvær annir hjá okkur Ólafi Arnari í Kaliforníu. Við fór- um í margar skoðunarferðir, en uppáhaldsferðin var án efa í Yosemite-þjóðgarðinn þar sem hann sá risafururnar í Redwood- skóginum. Ég hef aldrei séð hann brosa og hlæja eins mikið og þann dag. Það sem ég met mest – og mun ávallt geyma í minning- unni – er hversu jákvæður hann var og alltaf í góðu skapi. Hann skeytti ekkert um aðstæður eða alvarleika þeirra, alltaf var hann pollrólegur og vissi upp á hár hvað ætti að gera og segja. Hann var, án efa, besta persóna sem ég hef nokkurn tímann kynnst og ég mun sakna hans ævinlega. Tiffany Nicole. Hetja rær á herrans fund hafs var ærinn fengur. Styrka átti og ljúfa lund laginn gæðadrengur. (Guðmundur Beck) Athugull, hæglátur, traustur. Þannig minnumst við mágs okkar og svila, Sveins Benediktssonar, sem nú hefur kvatt. Sveinn var fæddur 1935 í Firði í Mjóafirði og þar uppalinn á grónu menningarheimili. Hann hleypti heimdraganum og fór í al- þýðuskólann að Eiðum og ekki löngu síðar fór hann til sjóróðra í Vestmannaeyjum þar sem hann einnig lauk vélstjórnarnám- skeiði. Þessu næst réð Sveinn sig á togara frá Neskaupstað og í beinu framhaldi lá leið hans í Stýrimannaskólann í Reykjavík þaðan sem hann lauk skipstjórn- arprófi árið 1966 og þar með var meginstarfsvettvangur hans ráð- inn. Sveinn starfaði síðan fyrst sem stýrimaður en síðan skipstjóri á togurum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í rúmlega þrjá ára- tugi, lengst sem skipstjóri á togaranum Bjarti. Allur sá ferill reyndist Sveini giftudrjúgur og farsæll. Gífurlegar breytingar og framfarir urðu í sjávarútvegi á starfsævi Sveins. Með þeim fylgdist hann af gaumgæfni og tileinkaði sér eftir því sem þær snertu starfssvið hans. Og um það er lauk mátti hann heita næsta sérfróður um ýmislegt í þeim efnum ekki síst togslóðina á Austfjarðamiðum. Eftir að þau Guðríður giftust bjuggu þau lengst að Valsmýri 2 í Neskaupstað en síðan er starfs- ferli Sveins lauk fluttu þau til Breiðdalsvíkur en voru jafnan á sumrin í Firði. Mörg okkar hafa þar oftsinnis notið vináttu þeirra og gestrisni ekki síst í Firði þar sem náttúran er ægifögur og einstök. Fyrir það allt þökkum við nú af alhug við þessi tímamót. Við sendum Guðríði, börnum þeirra, afkomendum öllum og öðrum aðstandendum hugheilar samúðarkveðjur um leið og við biðjum minningu Sveins Bene- diktssonar blessunar Guðs. Systkinin frá Sunnuhvoli, Óli, Sigrún, Hjörtur, Fjóla, Ruth Guðbjarts- börn og fjölskyldur. Ég kynntist Sveini Ben tvisv- ar. Fyrst sumarið 1948. Þá kom ég 5-6 ára pjakkur í Mjóafjörð til foreldra hans. Ég þekkti engan á bænum þegar ég kom þangað fyrst. En allir tóku mér vel. Sess- elja og Bensi og börnin þeirra Anna og Sveinn. Þau voru mörg- um árum eldri en ég og urðu varla leikfélagar. Ég man aldrei eftir að mér leiddist, en ég var lít- ill og aumur, en langaði ósköp mikið að verða stór og sterkur eins og Sveinn. En það varð ég aldrei þótt Bensi gerði sitt ýtr- asta. Hann hafði sínar aðferðir. Ein þeirra var að láta mig drekka rjóma, mikið af rjóma. Ég hugsa aldrei um Svein öðruvísi en að hugurinn leiti til Mjóafjarðar og inn í Fjörð þar sem Sveinn og fjölskylda bjuggu. Sveinn var mikil veiðikló, hvort sem var með byssu eða stöng. Og hann fékk að gera ýmislegt sem ég fékk aldrei að gera. T.d. fékk hann að raka og slá með vélbúnaði sem hestarnir drógu en ég fékk stundum að fara með honum í kríuvarpið og súpa úr eggjum. Seinna, já löngu seinna, varð ég skipstjóri á fyrsta togara SVN, þá vantaði mig stýrimann til að fara til Frakklands að ná í skipið, mér varð hugsað til Sveins þótt við hefðum aldrei verið sam- an til sjós. Við höfðum þó sopið saman úr kríueggjum í sveitinni. Þá kynntumst við í annað sinn. Sveinn var annar af tveimur stýrimönnum sem ráðnir voru. Báðir reyndust þeir feikivel. Þeim tókst að láta hlutina ganga liðugt og snurðulaust. Áhöfnin hafði að miklu leyti aldrei komið á togara og sumir aldrei til sjós. Sveinn var skipulagður og þol- inmóður, hörkuduglegir og ósér- hlífinn. Já hann hafði alla þá eig- inleika sem dugðu við þessar aðstæður. Svo var hann líka skemmtilegur og átti gott með að mynda tengsl við þennan bland- aða hóp. Já Sveinn var réttur maður á réttum stað. Ég á margar góðar minningar um þessi fyrstu skut- togaraár og Sveini bregður víða við. Samstarf okkar var bæði ánægjulegt og árangursríkt. Svo áttum við okkar tómstundir. Við stunduðum hreindýraveiðar sam- an um nokkurra ára skeið. Alltaf var gaman að vera með Sveini. Við hjónin vottum aðstandend- um okkar dýpstu samúð. Magni Kristjánsson. Mig langar að minnast með nokkrum fátæklegum orðum vin- ar míns Sveins Benediktssonar sem hefur nú lagt upp í síðasta túr sinn í þessu jarðlífi. Í litlum sjávarþorpum úti á landi um og upp úr miðri síðustu öld voru það skipstjórarnir sem voru stjörnur þeirra tíma og við- mið okkar pollanna um hvað menn óskuðu sér að verða með tíð og tíma. Átrúnaðargoðin voru sem sé skipstjórar – ekki fót- boltamenn eða poppstjörnur. Ég átti því láni að fagna að kynnast Sveini persónulega þeg- ar hann sá aumur á skólastrák sem harkaði fyrir náminu í Reykjavík og kippti hann mér um borð í afleysingar. Í fyrstu stóð manni ógn af þessum stóra sam- anrekna manni, en það stóð ekki lengur en út fyrstu vaktina. Mér varð það snemma ljóst að Sveinn var ekki skrúfaður saman úr hefðbundnum íhlutum. Orginal maður, yfirvegaður í fasi og á bak við blikandi stríðn- isglampa í augunum var hafsjór af sögum og ómæld kímnigáfa ef rétt var mannað í kringum hann. Sveinn var það sem kallað var mannskapsmaður, fyrir tíma mannauðsstjóra. Það var eftir- sótt að vera í skipsrúmi hjá hon- um. Hann kunni þá list að blanda saman eldri reynsluboltum og yngri mönnum sem hann var óspar á að gefa tækifæri þar sem hann stýrði skipi. Um borð var unun að fylgjast með honum þegar verið var að af- greiða veiðarfærið. Röddin aldrei hækkuð þó eitthvað væri óklárt svo maður nefni nú ekki arg og garg í kallkerfið. Það var gaman að sitja uppi hjá honum á toginu, hann var mikið náttúrbarn og veiðimaður að eðlisfari. Alltaf tilbúinn að svara skrítnum spurn- ingum hásetans og fræða um eðli veiðanna. Það fór ekkert framhjá honum, hvort sem það voru veðrabrigði, fugl eða hvalur. Svartbakar sem tylltu sér á flaggstöngina á Bjarti þurftu ekki að fara í annað flug ef bauna- byssan var um borð. Sveinn var skipstjóri þeirrar gerðar sem vildi finna sinn fisk sjálfur. Hann gekk vel um auð- lindina og „tonnaði“ sig ekki á þekktum smáfiskaslóðum sem var ekki óalgengt fyrir tíma veiði- stjórnunar. Hann átti það einnig til að kippa úr þokkalegu fiskiríi á staði sem hann hafði góða tilfinningu fyrir. Oftar en ekki skilaði þetta góð- um árangri, en þá var Sveinn í essinu sínu og gleymdi stundum að láta flotann vita alveg strax. Að leiðarlokum vil ég þakka þessum látna höfðingja sam- veruna. Ég veit að hann verður strax kominn með nýtt skip á nýjum slóðum og búinn að finna sín fjörutíu og sextíu þúsund í Hval- bakshalli eilífðarinnar. Guðríði og börnum Sveins sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Óskar Axelsson. Sveinn Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.