Morgunblaðið - 30.10.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 30.10.2020, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 ✝ RannveigGísladóttir fæddist 17. febrúar 1932 á Ísafirði. Hún andaðist á Land- spítalanum 16. október 2020. Foreldrar Rann- veigar eru Gísli Hoffmann Guðmundsson, f. 1907 á Ísafirði, d. 1964, og Þorbjörg Líkafrónsdóttir, f. 1908 í Kvíum, Grunnavíkurhr., d. 1995. Systk- ini Rannveigar eru Jón Kristinn, f. 1933, d. 2013, Guðmundur Hil- aríus, f. 1935, d. 1974, Guðrún, f. 1940, d. 2011, og Matthildur Messíana, f. 1945. Rannveig giftist 4. des. 1954 Inga Sigurði Erlendssyni land- mælingamanni, f. 24. feb. 1931 á Eskifirði, d. 30. nóv. 2011. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur líf- fræðingur, f. 1954, kvæntur Gyðu Jónsdóttur, f. 1956. Börn þeirra eru: a) Ingi Hrafn, f. 1982, kvæntur Matthildi Ívars- dóttur, f. 1985, þau eiga Guð- mund Árna, f. 2009, og Jón Ívar, f. 2010, b) Rannveig Hildur, f. 1990, í sambúð með Hallgrími A. Ingvarssyni, þau eiga Kristínu Maríu, f. 2018, c) Halldór Arnar, f. 1992, í sambúð með Guðrúnu Kristjánsdóttur, f. 1993. 2) Örn Hlynur, f. 1980, hann á Jón Bjarka, f. 2013, barnsmóðir hans er Berglind Heiður Andr- ésdóttir, f. 1980, c) Þórarinn, f. 1984, í sambúð með Valgerði Jónsdóttur, f. 1988, þau eiga Andreu Rán, f. 2017, og Hinrik Kára, f. 2020, d) Sigrún Dís, f. 1995, í sambúð með Aroni Elís Þrándarsyni, f. 1994. 4) Sólborg Erla margmiðlunarfræðingur, f. 1964, í sambúð með Kristni Vestmann Harðarsyni, f. 1963. Börn Kristins eru Karl Valdi- mar, f. 1987, Jóhanna Friðsemd, f. 1998, Viktor Andri, f. 2000, og Marín Birta, f. 2001. 5) Þórdís lögfræðingur, f. 1969, gift Snorra Ingvarssyni, f. 1967. Börn þeirra eru: a) Védís Eir, f. 1995, b) Ingvar Freyr, f. 2001, c) Ágústa Hlín, f. 2009. Rannveig lauk landsprófi frá Gagnfræðaskólanum á Ísafirði 1949 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1953. Hún lauk BA-prófi í bóka- safnsfræði 1981 og starfaði hún síðan samfleytt sem bókasafns- fræðingur, lengst af hjá Lands- bókasafni Íslands, síðar Lands- bókasafni Íslands-Háskólabókasafni. Útför Rannveigar fer fram frá Lindakirkju í dag, 30. októ- ber 2020, kl. 11. Vegna að- stæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir en streymt er frá athöfninni á slóð- inni https://youtu.be/utcRskU41UQ Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat Erlendur læknir, f. 1956, kvæntur Guð- björgu Rós Sigurð- ardóttur, f. 1974, þau eiga Veigar Inga, f. 2010. Börn Guðbjargar eru Haraldur Jóhann, f. 1996, Sigurður Arnar, f. 1999, og Linda Rós, f. 2003. Fyrrverandi kona Arnar er Hervör Þorvaldsdóttir, f. 1957. Börn þeirra eru: a) Ásdís Halla, f. 1979, gift Eiríki Atla Briem, f. 1979, börn þeirra eru Kolfinna Margrét, f. 2006, Styrmir Darri, f. 2014, og Sölvi Hrafn, f. 2016. Dóttir Ásdísar Höllu og Loga Bjarnasonar, f. 1978, er Embla Sól, f. 2000, b) Örlygur, f. 1980, kvæntur Moniku Otero-Vibal, f. 1982, þau eiga Öldu, f. 2013, Óscar, f. 2015, og Ásgeir, f. 2020, c) Hjalti, f. 1990, í sambúð með Erlu Sigríði Sævardóttur, f. 1991. Örn á einnig soninn Egil Ísar, f. 2002, móðir hans er An- nie Brynhildur Sigfúsdóttir, f. 1969. 3) Haukur lyfjafræðingur, f. 1957, kvæntur Katrínu Þór- arinsdóttur, f. 1958. Börn þeirra eru: a) Björk, f. 1980, í sambúð með Erlingi Guðleifssyni, f. 1977, þau eiga Hauk Tuma, f. 2014, og Írisi Lóu, f. 2017, b) Í dag jarðset ég móður mína. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera samferða henni til hás ald- urs, þakklát fyrir að vera mótuð af hennar lífssýn og að börnin mín hafi litið til hennar sem fyrir- myndar. Minningar hlaðast upp, ástrík og fjörleg æskuár sem hún og fað- ir minn bjuggu okkur í Hraun- tungunni, á stóru heimili í barn- mörgu umhverfi nýs bæjarfélags. Heimilisbragur var mótaður af þeirra kynslóðar heiðarleika, hreinskilni og vinnusemi. Vissu- lega á stundum þannig að manni fannst nóg um. Manni var snemma búið sjálfstæði, og þann- ig fór maður ungur að árum út í lífið. Alltaf var hún á hliðarlínunni ef á þurfti að halda, með sína hvatningu og óbilandi stuðning. Þegar börnin komu til sögunnar nutu þau sömu umhyggju. Nú taka við stór kaflaskil. Eins og svo oft áður var hún vel und- irbúin en ég ekki. Ég kveð ást- kæra móður mína og um leið eldri kynslóð og snertingu við liðinn tíma í sögu þjóðar. Líkt og móðir mín kenndi mér, mun ég ylja mér við minningar, njóta frásagna af persónum og leikendum og þegar best lætur skreyttar að vestfirsk- um sið. Og í anda móður minnar, sem á tímamótum taldi ávallt best að vísa til atburða Íslendingasagna eða lýsinga skálda, í stað þess að flíka eigin tilfinningum, leita ég vars í Móðurminningu Þorsteins Matthíassonar skálds frá Strönd- um: Nú grætur minning gengnu æskusporin um grýtta strönd við ysta norðurhaf þar mildur blærinn leikur létt á vorin og ljúfa gleði móðurástin gaf. Sú ást, er enga eigingirni þekkti. Sú ást, sem vildi létta hverja raun. Sú ást, er aldrei, aldrei nokkurn blekkti. Sú ást, sem gaf, en þáði sjaldan laun. Nú brosir vor í byggðum okkar heima. Þar blíðlát gola strýkur unga grein. Létt af brúnum lindir bjartar streyma, ljóðar alda hljótt við fjörustein. Þar ljómar sólin, laufguð hafsins bárum um ljósa nótt, er syrgir horfinn dag. Þar grætur jörðin djúpum daggartárum, frá duldum strengjum ómar kveðjulag. Haf hjartans þökk, þótt sígi sól í hafið og sorgartári væti föla kinn. Þitt móðurstarf er morgunljóma vafið og minning besta, kærleikshugur þinn. Blessuð sé minning móður minnar. Þórdís. Mamma var elst 5 systkina. Jón kom næstur svo Guðmundur og síðan Guðrún og eftirlifandi er yngsta systirin Matthildur Mes- síana. Þau bjuggu í Sundstræti 21, á Bökkunum í húsi sem er kallað Amsterdam. Afkomendur þess fólks sem þar bjó eru gjarnan kall- aðir dammarar. Húsið stóð áfast við aðra stórborg, Rómarborg. Í þessu litla húsi bjó fjöldi manns. Amma hennar, Guðrún Friðriks- dóttir, og afi, Guðmundur Hall- dórsson, og börn þeirra. Gísli, Jó- hann og Kristín. Má segja að þrjár kynslóðir hafi búið í húsinu, þegar mest var. Rebekka kona Halldórs hafði eignast húsið 1901. Þarna bjó fátækt alþýðufólk. Mamma fékk styrk fyrir góðan námsárangur eftir Gagnfræða- skólann á Ísafirði til að hefja nám við Menntaskólann á Akureyri. 17 ára fór hún í skólavist þangað. Hún varð stúdent af máladeild 1953 og kunni frönsku. Hún kynntist pabba þegar komið var í Háskólann í Reykjavík. Í blaði frá þessum tíma má sjá þessa tilkynn- ingu: „Sumardaginn fyrsta opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Rannveig Gísladóttir frá Ísafirði og Ingi S. Erlendsson stud. po- lyt.“ Á afmælisdegi ömmu, Sólborg- ar, 4. des. 1954, sem bjó á Hörpu- götu 37 (nú Einarsnesi 29) í Skerj- arfirði, giftu mamma og pabbi sig og ég var skírður. Þá bjuggum við á Bauganesi 7 í Skerjarfirði. Þar bjuggum við þegar Örn bróðir fæddist 1956. Síðan fluttum við ár- ið 1957 á Seltjarnarnes, Mela- braut 44 (nú 16). Þar fæddust Haukur og Sólborg. Síðan árið 1965 urðu þau landnemar í Kópa- vogi, Hrauntungu 30, og þar fæddist Þórdís. Síðast bjó mamma í Fannborg 8 í Kópavogi í bjartri og fallegri íbúð. Þrátt fyrir að mamma hafi farið frá Ísafirði aðeins 17 ára, var allt sem við kom Ísafirði henni efst í huga. Hún fylgdist vel með og var greind og glögg og hafði gott skopskyn. Hún hafði góða frá- sagnargáfu og gaman var að hlusta á hana. Hún elst upp í vöggu Alþýðu- flokksins og var mikill jafnaðar- maður allt sitt líf. Hún hafði gam- an af að tala við hinar erlendu konur sem voru að þrífa hjá henni og hafði mikla samkennd með þeim. Hún annaðist okkur börnin sín mjög vel og las með okkur og föndraði, þá voru ekki leikskólar. Mikið frjálsræði var ríkjandi í uppeldinu. Eitt var þó hennar hjartans mál, en það var að við systkinin tækjum stúdentspróf og fengjum hvíta húfu. Það gekk eft- ir og var hún mjög ánægð með það. Hún var nægjusöm og ef hún hafði bók í hendi var hún ánægð. Hún hafði farið um 40 ára í bóka- safnsfræði og varð bókasafns- fræðingur. Hún hafði gaman af að greina, raða og flokka og var mik- ill ættfræðingur í sínum ættum og víðlesin í sagnfræði og bókmennt- um. Hún lifði ríku hugsanalífi. Margar sögur sagði hún mér af lífi sínu, sérstaklega þegar hún var að alast upp. Nú verða sögurnar ekki fleiri og mun ég sakna þeirra. Þakka ég þér mamma fyrir hvatningu, hlýju og góða nærveru, góðan fé- lagsskap og gott uppeldi. Guðmundur Ingason. Ástkær tengdamóðir mín, Rannveig Gísladóttir, hefur kvatt okkur í hinsta sinn. Hún var orðin fótafúin hin síðustu ár, en í höfð- inu var hún spræk sem lækur. Hún lagði mikla rækt við hugar- leikfimi ýmiss konar til að halda sér við, krossgátur, ættfræði og vann jafnvel upp á nýtt gömul verkefni úr menntaskóla! Þar kom styrkur hennar við skipulag og flokkun sér vel, en það eru sjálfsagt fáir á hennar aldri sem eiga enn skólaverkefni frá náms- árum. Veigu var mikið í mun að börnin hennar menntuðu sig. Ég held að ég hafi sjaldan séð hana jafn stolta og þegar hún var við- stödd útskrift Þórdísar frá New York University. Við áttum góðar stundir í þeirri heimsókn hennar til okkar, bæði á Manhattan-eyju og heima í White Plains. Fjölskyldan var sennilega það sem Veigu þótti dýrmætast í líf- inu. Henni var mjög umhugað um barnabörnin og gaukaði að þeim fróðleik og hvatti þau óspart til dáða. Á meðan við bjuggum er- lendis sendi hún Védísi Eiri reglu- lega barnablaðið úr helgardag- blöðum og stundum fylgdu með teikningar eða annað sem Þórdís hafði gert þegar hún var lítil, við misgóðar undirtektir þeirrar síð- astnefndu, en okkur hinum fjöl- skyldumeðlimunum þótti vænt um það. Þegar við fluttum heim urðu heimsóknir auðveldari og tíðari. Börnin nutu góðs af því og við foreldrarnir sömuleiðis. Védís Eir og Ingvar Freyr kynntust ömmu og afa nánar og fyrir ellefu árum bættist Ágústa Hlín í hóp- inn, en hún naut alltaf sérstaks stuðnings ömmu Veigu. Þær skröfuðu saman og léku löngum stundum síðustu ár þegar Veiga kom í heimsókn. Veiga fylgdist alltaf einstaklega vel með því sem við fjölskyldan tókum okkur fyrir hendur, hvort sem það var vinna eða tómstundir, og tók þátt á sinn hátt. Minnis- stæð eru sumarfrí nú síðustu ár, sér í lagi þegar við fórum á Vest- firði, þegar hún hafði greinilega tínt til landakort, ættfræðibækur og ýmis gögn heima á stofuborði og við hringdumst á til að þiggja fróðleik um fólk og staði. Þú varst betur búin undir að mæta þínum örlögum en við hin og ert sjálfsagt hvíldinni fegin. Við munum sakna þín, elsku Veiga. Hvíldu í friði. Þinn tengdasonur, Snorri Þorgeir. Ástkæra amma. Ég verð ætíð þakklátur fyrir þessi 19 ár sem ég fékk með þér þar sem þú kenndir mér svo margt, til dæmis að gera lummur, leika með eld, spila og margt fleira. Ekki var mikið af reglum í pössunum hjá þér og ég man vel þegar ég fékk að sjá mína fyrstu hasarmynd (Rush Hour 2) aðeins 7 ára að aldri - og kassarnir af Coco Puffs sem maður tæmdi hjá þér. Þú kenndir manni líka að ef mjólkin lyktar ekki illa og ef ekk- ert sést á ostinum ætti maður bara að hætta þessu væli þar sem það er ekkert að marka þessar dagsetningar. Þótt fætur og líkami hafi verið farið þessi seinustu ár var hausinn alltaf upp á 100 og alltaf til enda- laust af sögum af lífinu á Ísafirði. Þú studdir mann nú alltaf sama hvað það var, í námi eða íþróttum, þá sýndirðu alltaf rosalegan áhuga á öllu og þar að auki öllum prakkaraskapnum og fíflaríinu. Ég held að þú hafir verið löngu tilbúin að fara en bara við öll hin sem vorum ekki til í að sleppa tak- inu alveg strax. Þú varst nú ekk- ert að draga þetta á langinn uppi á spítala sem betur fer, heldur bara að klára þetta af. Takk fyrir allar yndislegu og góðu minningarnar, elsku amma, þín verður sárt saknað. Þinn Ingvar Freyr. Elsku amma mín. Það er skrít- in tilhugsun að þú sért farin frá okkur. Þetta gerðist allt svo snöggt. Eftir sitja hins vegar ynd- islegar minningar af þeim stund- um sem við áttum saman. Þú sýndir því alltaf svo mikinn áhuga sem var að gerast í lífinu manns hverju sinni og komst með skemmtilegar sögur því tengdu. Hugur þinn var svo skýr og mikið af sögum sem þú sagðir frá. Marg- ar af minningum mínum frá æsku eru tengdar fjörugum fjölskyldu- boðum, íspinnum sem biðu manns alltaf í frystinum og föndri sem þú varst að kenna okkur. Þú fannst sífellt eitthvað nýtt og skemmti- legt fyrir okkur barnabörnin til að dunda við. Þú varst alltaf mjög hreinskilin og sast ekki á skoðun- um þínum. Í hvert skipti sem við hittumst tókst þér lystilega vel að hrósa, og láta vita hvað þú værir stolt af okkur barnabörnunum. Ég er spennt fyrir því að sýna börnunum mínum allt það sem ég lærði af þér. Föndra með þeim og segja þeim að ég lærði þetta af ömmu minni. Ég mun ávallt minn- ast þín með hlýjum hug og er stolt af því að fá að bera nafnið þitt. Hvíldu í friði, elsku amma Veiga. Rannveig Hildur Guðmundsdóttir. Rannveig Gísladóttir ✝ Einar Guð-mundsson frá Kvígindisfirði fæddist 27. júlí 1926. Hann and- aðist 26. september 2020. Foreldrar hans voru Guð- mundur Guðmunds- son, f. 2.7. 1889, d. 1.9. 1958, og Ólöf Sigurbjörg Jóhann- esdóttir, f. 22.5. 1912, d 30.4. 1999. Systkini Ein- ars eru Sæmundur, f. 1.8. 1930, Þórunn, f. 13.7. 1931, d. 17.8. 1932, Guðmundur, f.14.7. 1934, Jóhannes, f. 25.2. 1936, Ingimar, f. 15.1. 1940, Sæunn, f. 25.12. 1941, Guðbjörg, f. 17.8. 1945, Gunnar, f. 30.12. 1948. Einar kvæntist 17.12. 1966 Guðrúnu Jónu Har- aldsdóttur, f. 4.2. 1932, d. 27.12. 2008. Börn þeirra eru Að- alsteinn, f. 18.5. 1967, og María, f. 27.12. 1971, eig- inmaður Þorsteinn Einarsson, f. 3.6. 1967, synir þeirra eru Einar Rökkvi, f. 22.11. 2008, og Elf- ar Húmi, f. 4.1. 2011. Einar verður jarðsunginn frá Lindakirkju í dag, 30. október 2020, og verður streymt beint frá athöfn: https://tinyurl.com/yy76lcaf Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Blessuð sértu sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín, yndislega sveitin mín, heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu, sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. (Sigurður Jónsson) Við minnumst Einars elsta bróður okkar með þökk og virð- ingu. Sem ungur maður stundaði Einar sjó yfir vetrartímann, en 1953-1965 var hann bóndi í Kvíg- indisfirði ásamt móðir sinni Ólöfu Jóhannesdóttur. Þessi ár gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína Múlahrepp. Hann fluttist til Reykjavíkur og hóf störf hjá Byko í Kópavogi sem þá var nýlega tekið til starfa á Sæ- bóli við Kársnesbraut. Maður heyrði talað um það af viðskiptavinum Byko hvað Einar var handtakagóður þegar hann var að afgreiða timbrið. Þá voru ekki eins fullkomnir lyftarar og nú og reyndi því oft á handaflið. Þegar Einar hætti búskap í Kvígindisfirði og fluttist til Reykjavíkur fór jörðin í eyði. Þá þurfti að viðhalda húsum og ganga frá þeim fyrir veturinn. Stofnað var sameignarfélag um jörðina Kvígindisfjörð af okkur systkin- unum sem Einar veitti forystu meðan heilsa hans leyfði. Einar var kletturinn í hópi okk- ar systkina. Hann átti oft frum- kvæði að því sem gera þurfti, skipulagði vinnu og fann út tíma til framkvæmda sem flestir gátu mætt, einnig boðað menn til starfa. Við höfum átt margar ánægju- stundir saman við að byggja, breyta og bæta húsakost í Kvíg- indisfirði. Þær eru ómældar stundirnar sem Einar vann þar. Hann eyddi meirihluta sumarfría sinna í Kvíg- indisfirði og þar féll honum sjald- an verk úr hendi. Hann átti framkvæðið að því að keyptur var hinn ágætasti bátur, Bylgjan, sem nýttist okkur vel til gagns og gamans. Ekki má gleyma trjáræktinni sem hann tók virkan þátt í. Nú eru allnokkrir lundir af hin- um fallegasta nytjaskógi, greni, furu og lerki í Kvígindisfjarðar- landi. Einar var ávallt vakandi fyrir því að láta hlutina ekki fara í nið- urníðslu, heldur laga áður en til þess kom. Við systkinin og afkomendur okkar eigum honum mikið að þakka. Það er langur tími síðan við lékum okkur börn í Kvígindisfirði. Einar var ötull stuðningsmaður þess að við ættum jörðina saman og gætum komið þegar okkur hentaði án tillits til þess hvort ein- hver væri þar eða ekki. Það var alltaf nóg pláss í gamla húsinu þótt stundum væri þröngt. Með þessum orðum kveðjum við góðan bróður. Guð blessi minningu Einars. Við sendum börnum hans og barnabörnum innilegar samúðar- kveðjur. Sæmundur, Guðmundur, Jóhannes, Ingimar, Sæunn, Guðbjörg og Gunnar. Einar Guðmundsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minning- argreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.