Morgunblaðið - 30.10.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020
Óvíst er hvort Jóhann Berg Guð-
mundsson getur spilað með Burnley
gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á
morgun. Sean Dyche knattspyrnu-
stjóri Burnley sagði á fréttamanna-
fundi í gær að Jóhann ætti við smá-
vægileg meiðsli í kálfa að stríða.
Jóhann hefur komið smám saman inn
í lið Burnley að undanförnu eftir lang-
varandi meiðsli og lék í 84 mínútur
gegn Tottenham á mánudaginn.
Ekkert verður af því að Keflavík og
Grindavík mætist í 1. deild karla í
knattspyrnu, Lengjudeildinni, á morg-
un eins og fyrirhugað var. Suðurnesja-
slagnum hefur verið frestað á ný
vegna hertra sóttvarnaaðgerða. Leik
Hamars og Grindavíkur í 2. deild
kvenna hefur einnig verið frestað af
sömu sökum.
Körfuknattleikssamband Íslands,
KKÍ, hefur frestað tveimur leikjum
sem áttu að fara fram í úrvalsdeild
kvenna, Dominos-deildinni, á næstu
dögum. Skallagrímur og Keflavík áttu
að mætast í Borgarnesi á morgun og
hefur þeim leik verið frestað, sem og
leik Keflavíkur og Snæfells hinn 5.
nóvember í Keflavík.
Öll þrjú liðin hafa getað æft und-
anfarnar vikur undir nánast engum
takmörkunum vegna kórónuveiru-
faraldursins þar sem lið utan höfuð-
borgarsvæðisins hafa bæði mátt æfa
og keppa.
Breiðablik hefur fengið öflugan lið-
styrk frá Njarðvík fyrir átökin í næst-
efstu deild karla í körfuknattleik. Leik-
stjórnandinn Jón Arnór Sverrisson
hefur verið lánaður til Breiðabliks
samkvæmt frétt Körfunnar.is. Jón
Arnór er 22 ára og hefur smám saman
fengið stærra hlutverk í Njarðvík.
Hann ætti að reynast öflugur leik-
maður í næstefstu deild.
Alexis Telles, bakvörður enska
knattspyrnufélagsins Manchester
United, er með kórónuveiruna. Þetta
staðfesti Ole Gunnar Solskjær, knatt-
spyrnustjóri liðsins, á blaðamanna-
fundi eftir 5:0-sigur liðsins gegn RB
Leipzig í Meistaradeildinni á Old Traf-
ford í Manchester. „Hann er ein-
kennalaus og hann
verður fljótur að
jafna sig,“ sagði
Solskjær.
Eitt
ogannað
Evrópudeildin
CSKA Moskva – Valencia................... 84:75
Martin Hermannsson skoraði 2 stig fyrir
Valencia, gaf 2 stoðsendingar og tók 1 frá-
kast á þeim 8 mínútum sem hann var inná.
Efstu lið: Zalgiris Kaunas 5/1, Bayern
München 4/1, Barcelona 4/1, Valencia 3/2,
Olimpia Mílanó 3/1, Olympiacos 3/2.
Spánn
Bilbao – Andorra.............................. frestað
Haukur Helgi Pálsson leikur með liði
Andorra.
EVRÓPUDEILDIN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Rúnar Alex Rúnarsson varð í gær
fjórði Íslendingurinn til að spila
mótsleik með aðalliði enska stórliðs-
ins Arsenal þegar hann varði mark
liðsins gegn Dundalk í Evrópudeild-
inni í London í gærkvöldi. Áður
höfðu þeir Albert Guðmundsson,
Sigurður Jónsson og Ólafur Ingi
Skúlason náð þeim áfanga að spila
mótsleik með aðalliði Arsenal.
Rúnar Alex hélt markinu hreinu
en Arsenal vann öruggan 3:0-sigur.
Þar sem Arsenal hafði öll völd á vell-
inum gegn írska liðinu reyndi lítið á
Rúnar en þegar boltinn barst að
marki Arsenal stóð hann vaktina. Ef
eitthvað gæti skyggt á gleði Rúnars
að leika fyrir Arsenal í fyrsta skipti á
hinum glæsilega Emirates-leikvangi
þá væri það kannski sú staðreynd að
stuðningsmenn Arsenal vantaði. En
á tímum kórónuveirunnar telst það
vart til tíðinda að leikið sé fyrir lukt-
um dyrum. Þegar Rúnar Alex greip
boltann í hornspyrnum mátti heyra
bergmála um leikvanginn: „Alex“
þegar hann lét samherjana vita af
sér. Edward Nketiah, Joseph Wil-
lock og Nicolas Pepe skoruðu mörk
Arsenal.
Albert í stuði í Hollandi
Albert Guðmundsson skoraði tví-
vegis þegar AZ vann stórsigur á Rij-
eka frá Króatíu 4:1 í Hollandi. Al-
bert skoraði annað og fjórða mark
AZ á 20. og 60. mínútu. AZ hefur
unnið báða leikina til þessa í F-riðli
rétt eins og Arsenal hefur gert í B-
riðli. Þau hafa því komið sér í góða
stöðu þótt enn séu fjórir leikir eftir
af riðlakeppninni.
Varnarjaxlinn Sverrir Ingi Inga-
son var á fornum slóðum á Spáni.
PAOK mætti þá hans gamla liði
Granada en niðurstaðan varð
markalaust jafntefli. Paok hefur
gert jafntefli í báðum leikjum sínum
til þessa í E-riðli.
Fjórða Íslendingaliðið í keppn-
inni, CSKA Moskva, tók á móti Din-
amo Zagreb og í Moskvu varð einnig
markalaust jafntefli. Hörður Björg-
vin Magnússon lék allan tímann í
vörn CSKA. Rúnar, Sverrir og
Hörður héldu því allir hreinu í gær.
Arnór Sigurðsson kom inn á sem
varamaður hjá CSKA eftir sjötíu og
fimm mínútna leik.
Hélt hreinu í frumrauninni
Albert Guðmundsson reimaði
á sig skotskóna í Evrópudeildinni
AFP
Alkmaar Albert Guðmundsson og fyrirliðinn Teun Koopmeiners fagna
marki Alberts fyrir AZ Alkmaar í Evrópudeildinni í gærkvöldi.
Aron Pálmarsson var áberandi í liði
Barcelona þegar spænsku meist-
ararnir unnu dönsku meistarana í
Álaborg 42:33 í Meistaradeildinni í
handknattleik í gær. Aron skoraði
fimm mörk og gaf fimm stoðsend-
ingar gegn Álaborg en þar er Arn-
ór Atlason aðstoðarþjálfari. Barce-
lona er með 10 stig og Álaborg átta.
Hornamaðurinn Sigvaldi Björn
Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir
pólska stórliðið Kielce sem gerði
jafntefli, 32:32, gegn Porto í Portú-
gal. Kielce er með níu stig og í efsta
sæti í sínum riðli.
Aron áberandi
gegn Álaborg
Barcelona
Góður Danirnir réðu lítið við Aron
Pálmarsson í gær.
Martin Hermannsson var notaður
sparlega þegar spænska liðið Val-
encia fór til Moskvu og mætti stór-
liðinu CSKA Moskva í Euroleague,
sterkustu félagsliðakeppni í Evr-
ópu, í gær.
CSKA hafði betur 84:75 og lék
Martin aðeins í átta mínútur. Hann
kom aðeins við sögu í liðlega tvær
mínútur í síðari hálfleik. Hann gaf
tvær stoðsendingar, skoraði tvö
stig og tók eitt frákast fyrir Val-
encia sem hefur unnið þrjá leiki af
fyrstu tveimur í keppninni og er í 5.
sæti sem stendur. kris@mbl.is
Annað tapið í
Euroleague
Morgunblaðið/Hari
Tap Martin Hermannsson og sam-
herjar máttu sætta sig við tap.
Íslenskir landsliðsmenn í hand-
knattleik, sem leika með félags-
liðum í Þýskalandi, hafa fengið
leyfi til þess að taka þátt í leik Ís-
lands og Litháens í undankeppni
EM 2022 sem fram fer í Laugar-
dalshöll hinn 4. nóvember næst-
komandi. Þetta staðfesti Róbert
Geir Gíslason, framkvæmdastjóri
HSÍ, í samtali við handbolta.is.
Í síðustu viku fékk skrifstofa
HSÍ sent bréf frá félögum í Þýska-
landi þar sem óskað var eftir upp-
lýsingum varðandi sóttvarnir og
annað varðandi leikinn.
Átta leikmenn koma frá Þýska-
landi auk þjálfarans Guðmundar Þ.
Guðmundssonar.
Hann hefur þurft að gera tvær
breytingar á hópnum. Ólafur Guð-
mundsson er ekki leikfær og Arnór
Þór Gunnarsson gefur ekki kost á
sér af persónulegum ástæðum. Í
þeirra stað valdi Guðmundur þá
Magnús Óla Magnússon úr Val og
Kristján Örn Kristjánsson sem farið
hefur vel af stað með Aix í Frakk-
landi í upphafi tímabilsins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið Kristján er kominn í hópinn en Ólafur verður ekki með.
Fengu grænt ljós
hjá þýsku félögunum
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hér á landi er vanalega algjört frí
hjá íþróttafólki um jólin, með stöku
undantekningum. Vegna frestana
undanfarnar vikur af völdum út-
breiðslu kórónuveirunnar hafa hins-
vegar bæði Handknattleikssamband
og Körfuknattleikssamband Íslands
raðað sínum mótum upp á nýtt og í
báðum greinum verður spilað af
fullum krafti í efstu deildum í kring-
um jól og áramót.
Ekkert hefur verið leikið á Ís-
landsmótinu í handknattleik frá 3.
október en samkvæmt nýrri niður-
röðun á keppni að fara af stað aftur
föstudaginn 13. nóvember.
Í körfuboltanum var síðast leikið
6. október. Tveir leikir áttu að fara
fram í Dominos-deild kvenna, á
morgun og 5. nóvember, en þeim
hefur verið frestað. Annars er gert
ráð fyrir að Íslandsmótið fari aftur
af stað 13. nóvember.
Viðbúið er þó að yfirvofandi
framlenging á aðgerðum yfirvalda
vegna kórónuveirunnar leiði til þess
að þá niðurröðun þurfi að endur-
skoða.
Jóladagskráin
Dagskráin í þessum greinum um
jólin lítur núna þannig út, sam-
kvæmt niðurröðun:
Þriðjudaginn 22. desember
mætast Valur og KR í körfubolta
kvenna og þá verða tveir leikir í
handbolta kvenna.
Á Þorláksmessu, miðvikudag
23. desember, verður heil umferð
í körfubolta karla og leikirnir
hefjast frá kl. 14.00 til 20.15.
Sunnudaginn 27. desember,
á þriðja degi jóla, verður heil
umferð í körfubolta karla og
leikið frá kl. 14.00 til 20.15.
Sunnudaginn 27. desember
verða fimm leikir í handbolta karla
og leikið frá kl. 14.00 til 19.00.
Mánudag 28. og þriðjudag 29.
desember verður leikin heil umferð
í handbolta kvenna.
Miðvikudaginn 30. desember
verður heil umferð í körfubolta
kvenna kl. 19.15 um kvöldið.
Miðvikudaginn 30. desember
verður heil umferð í handbolta
karla og leikið frá kl. 14.00 til 20.00.
Sunnudaginn 3. janúar verður
heil umferð í körfubolta karla og
líka í körfubolta kvenna.
Þá gætu bæst við leikir á Íslands-
mótinu í blaki en á heimasíðu Blak-
sambandsins kemur fram að til
greina komi að leika eina umferð á
milli jóla og nýárs.
Þétt íþróttadagskrá
um jól og áramót