Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2020
Það gránaði í Esjuhlíðum og í Laug-
ardal varð ljóst að íslenska fótbolta-
sumarið var að hausti komið, þegar
karlalandslið Dana sigraði Íslend-
inga með þremur mörkum gegn
engu. Alveg sama þótt sænsku dóm-
ararnir hafi átt fyrsta markið.
Þriðja bylgja kórónuveirunnar hélt
áfram að rísa í vikunni, meðal ann-
ars með þeirri afleiðingu að eldra
farsóttarhúsið fylltist og þurfti að
bæta við einni hæð á Hótel Rauðará
fyrir sjúklinga í einangrun.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
Hafnfirðingur og formaður Við-
reisnar, fór í golf í Hveragerði á
laugardag, þrátt fyrir tilmæli Golf-
sambandsins um að fólk af höfuð-
borgarsvæðinu færi ekki í golf utan
þess. Hún situr sjálf í stjórn sam-
bandsins. Hún sagði það óafsakan-
legt og baðst afsökunar.
Lögregla á Siglufirði batt enda á
glæpaöldu í bænum, þegar hún
hafði hendur í hári unglings, sem tal-
inn er hafa húsbrot, þjófnaði, inn-
brot, nytjatöku og skemmdir á bílum
á samviskunni. Ýmis sönnunargögn
fundust í fórum hans og gekkst hann
við öllum brotunum.
Á daginn kom að ábendingar til
Neyðarlínunnar um eld í húsbíl í
Grafningi á föstudagskvöld skiluðu
sér ekki til lögreglu. Önnur tilkynn-
ing daginn eftir gerði það hins vegar
og við athugun fundust líkamsleifar
manns á fertugsaldri í illa brunnu
bílflaki.
Stjórnarskrárfélagið eða stuðn-
ingsmenn þess máluðu slagorð á
vegg við Skúlagötu um helgina, við
hlið ráðuneytis. Tveimur dögum síð-
ar var hafist handa við að hreinsa
það burt, sem margir af andstæð-
ingum stjórnarskrárinnar töldu til
marks um ofsafengin viðbrögð hins
opinbera. Sem hlýtur að bera vott
um nokkra fordóma í garð opinberra
starfsmanna.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra sagði að nýtt
neyðarlínukerfi yrði reynt í vikunni
til þess að koma í veg fyrir mistök
eins og þau sem hefðu átt sér stað
við bílbrunann í Grafningi. Ráðherra
kvaðst hafa óskað eftir umbótum og
samræmingu á kerfinu fyrir all-
nokkru, en þetta atvik sýndi að það
þyldi ekki frekari bið. Neyðarlínan
telur mögulegt að „tæknilegt svart-
hol“ í símkerfinu sé skýringin.
Tilmæli um grímunotkun í sótt-
varnaskyni settu sinn svip á sam-
félagið, en sums staðar eru grímur
orðnar skylda. Herra Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands, brýndi
góða umgengni fyrir löndum sínum
af því tilefni, grímur sæjust orðið
alltof víða úti í náttúrunni. Þeim ætti
að fleygja í rusl eftir notkun.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
sagði að næsta vika skæri úr um ár-
angur hertra sótttvarnaraðgerða
innanlands, en fyrsta kastið virtust
þær lítið hrína á veirunni. Hann taldi
að grafalvarlegar afleiðingar blasa
við ella, ekki þyrfti mikið til að tug-
þúsundir veiktust. Viðbúnaður var
aukinn og fjölgað í bakvarðasveit-
inni. Nýgengi innanlandssmita var
þá komið í rúm 240 á hverja 100.000
íbúa síðustu tvær vikur.
Í ljós kom að á Íslandi hafa færri
verið tímabundið frá vinnu vegna
heimsfaraldursins en raunin er á
meginlandi Evrópu. Vinnutími hefur
styst og vinnustundum fækkað, en
marktækt minna en í löndum Evr-
ópu. Atvinnuleysi hefur einnig látið
á sér kræla hér á landi sem annars
staðar, en þó er staðan hér mun
skárri en að jafnaði gerist í Evrópu
eða í löndum OECD.
Gamalkunnugt hitamál skaut upp
kollinum í vikunni, en þá mælti Ás-
laug Arna Sigurbjörnsdóttir dóms-
málaráðherra fyrir frumvarpi sínu
um víðtækar breytingar á manna-
nafnalögum. Verði það að lögum
getur fólk tekið sér þau nöfn, sem
því sýnist, eins mörg og vill, en einn-
ig yrði heimilt að taka upp ný ættar-
nöfn.
Þrátt fyrir að ferðamenn séu nær
hættir að sjást í landinu á hið sama
ekki við um framandi fugla, en tölu-
vert af flækingsfuglum hefur borist
til landsins sunnaustanverðs.
Dr. Pétur Mikkel Jónasson, vatna-
vistfræðingur og prófessor við
Kaupmannahafnarháskóla, lést 100
ára að aldri.
Vinnumálastofnun birti skýrslu um
atvinnuleysi, en í vinnugögnum
hennar kom m.a. fram spá um 25%
atvinnuleysi í Reykjanesbæ í des-
ember. Atvinnuleysi í landinu er tal-
ið komið í 10% um þessar mundir og
að það fari enn hækkandi næstu
mánuði, hvergi þó í líkingu við það
sem gerist á Suðurnesjum, sem nú
þegar nálgast 20%.
Morgunblaðið sló upp þeirri forsíðu-
frétt að Björgvin Halldórsson,
söngvarinn goðsagnakenndi, syngi
fyrir tómum sal. Ekki var það þó
vegna áhugaleysis, heldur er fyrir-
hugað breytt fyrirkomulag á árviss-
um jólatónleikum Björgvins og jóla-
gesta hans í ljósi heimsfaraldursins
og sóttvarna.
Kórónuveiran hefur mikil áhrif á
mannlífið, þar á meðal umferð.
Vegagerðin dró fram umferðarmæl-
ingar á höfuðborgarsvæðinu, sem
sýna vel hvernig umferðin sveiflast
eftir sóttvarnaaðgerðum. Hún
minnkaði um 45% þegar faraldurinn
náði hámarki í vor, en að þessu sinni
hefur hún minnkað um 20% frá með-
alumferð.
Þrátt fyrir hrun í kæmu ferðamanna
til landsins er enn töluvert um að
þeir farþegar, sem þó koma, leiti
hælis á Íslandi. Það sem af er mán-
aðarins voru þeir orðnir 44, sem
bendir til þess að jafnaðarfjöldi
þeirra sé svipaður og fyrir heimsfar-
aldurinn. Um 70% þeirra hafa þó áð-
ur fengið hæli í öðru Evrópuríki.
Gjaldeyrisvaraforði Seðlabanka Ís-
lands hefur minnkað um 60 milljarða
króna frá því í júní, en bankinn á þó
nóg eftir. Erna Björg Sverrisdóttir,
aðalhagfræðingur Arion banka,
skrifaði hins vegar grein, þar sem
hún taldi hann ekki þá vörn Seðla-
bankanum, sem ætlast mætti til.
Jólageit IKEA er kominn á sinn
stall í Garðabæ. Mikil spenna ríkir
um hvernig henni reiðir af þessi jól,
en hún hefur aðeins einu sinni staðið
óhögguð eftir jólahátíðina, óbrennd
eða ófokin út í buskann.
Dr. Júlíus Friðriksson talmeina-
fræðingur í Suður-Karólínu fékk
metstyrk frá Heilbrigðisstofnun
Bandaríkjanna (NIH) til að rann-
saka málstol í kjölfar heilablóðfalls.
Karlalandsliðið í fótbolta stóð í
sterku liði Belga á Laugardalsvelli á
miðvikudagskvöld, en tapaði nú
samt, 1:2. Við það urðu vonir um
frama í þjóðadeild UEFA daufari.
Samtökin Geðhjálp hófu átak í vik-
unni fyrir því að geðheilbrigði yrði
sett í forgang í samfélaginu. Það var
gert undir tölunni 39, en það er
fjöldi þeirra Íslendinga sem féllu
fyrir eigin hendi á liðnu ári.
Útborganir Ábyrgðasjóðs launa
hafa snaraukist undanfarið. Gert er
ráð fyrir að þau muni nema rúmum
tveimur milljörðum kr. á þessu ári.
Álkarlar Steinunnar Þórarins-
dóttur myndlistarmanns voru fjar-
lægðir af þakbrún Arnarhváls og
nokkur eftirsjá í þeim. Á Kjafta-
klöpp við Skólavörðustíg var reifuð
sú hugmynd að þar yrði í staðinn
komið fyrir höggmyndum af
fjármálaráðherrum þjóðarinnar,
nöktum að hætti grískra goða eða
öreiga.
Mikil gagnrýni kom fram á vinnu-
brögð Tryggingastofnunar ríkisins í
nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendur-
skoðunar, en þar var m.a. tínt til að
um 90% lífeyrisþega hafi fengið
rangt greitt á tímabilinu 2016-2019.
Skemmdir voru unnar á hljóðmön
við Miklubraut norðan Rauðagerðis,
en á hana voru málaðar torkenni-
legar áletranir, sem fræðimenn
greinir á um hvort snúi að stjórnar-
skrármálum eða venjulegri
skemmdarfýsn.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi
Miðflokksins, lagði fram harðorða
bókun á fundi skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar, þar sem Þjóðleikhús-
inu hefði liðist að fara í gagngerar
breytingar í leyfisleysi og bygging-
arfulltrúi gefið út eftiráleyfi án um-
fjöllunar. Þjóðleikhúsið á að heita
verndað.
Hjalti Geir Kristjánsson, húsgagna-
arkitekt og forystumaður í atvinnu-
lífi, lést 94 ára að aldri.
Forystumenn í ferðaþjónustu segja
nú allt kapp lagt á að halda innviðum
ferðaþjónustu við og ferðaþjón-
ustufyrirtækjum starfhæfum í vetur
þó lítið sem ekkert sé að gera, með
það fyrir augum að þau geti tekið við
bókunum og risið úr dvala í vor, þeg-
ar vonir standa til þess að heimsfar-
aldurinn hafi mikið gengið niður.
Bólusetning við inflúensu er hafin í
landinu, þótt erfitt geti verið að
koma henni við í miðjum faraldri.
Það þykir þó mikilvægt, enda getur
verið mjög slæmt að fá flensuna ofan
í kórónuveirusmit.
Maður var sýknaður af ákæru um
skattalagabrot þegar mál hans kom
í annað sinn í héraðsdóm eftir að
Landsréttur hafði sent málið þangað
aftur. Málið hefur velkst um í kerf-
inu í meira en áratug og kostnaður-
inn margföld sú upphæð, sem skatt-
yfirvöld héldu að um væri að tefla.
Maðurinn íhugar að stefna ríkinu
fyrir þessa „glórulausu óvissuferð“.
Samkvæmt sundurliðuðum reikn-
ingum drakk yfirstjórn Reykjavík-
urborgar áfengi fyrir meira en hálfa
milljón króna á kostnað útsvars-
greiðenda á Vinnustofu Kjarvals við
Austurvöll, þar sem borgin hefur
nýtt sér fundaraðstöðu. Í fremur
máttleysislegri útskýringu úr ráð-
húsinu kom fram að „um þróunar-
verkefni [væri] að ræða“. Borgarbúa
hlýtur að óa við ástandinu þegar
silkihúfur borgarinnar taka til við að
drekka á fullum afköstum.
Þróunarverkefni
af ýmsum toga
Óvissa er um hvort þetta eru hefðbundin
skemmdarverk eða varðandi stjórnarskrána.
Morgunblaðið/Eggert
11.10.-16.10.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Listasafn Íslands
leitar að verkum eftir
Mugg,Guðmund
Thorsteinsson
Í Listasafni Íslands er hafinn undirbúningur á
yfirlitssýningu á verkumMuggs, Guðmundar
Thorsteinssonar (1891–1924).
Vegna rannsóknar á listferli Muggs og skráningar
á verkum hans í tengslum við sýninguna, sem haldin
verður haustið 2021, leitum við að verkum eftir lista-
manninn af öllum gerðum:málverkum, vatnslita-
myndum, teikningum, klippimyndum, útsaumi og
dúkkum. Einnig óskar safnið eftir að fá vitneskju um
bréf eða póstkort sem honum tengjast.
Þeir sem telja sig eiga verk eða efni sem hefur
heimildagildi um listamanninn, eru hvattir til
að hafa samband við Kristínu G. Guðnadóttur,
sýningarstjóra fyrir 31. október næstkomandi á
netfangið kristin@listasafn.is eða í síma 896-6559.
515 9600
listasafn.is
Listasafn Íslands
Fríkirkjuvegi 7
SafnÁsgríms Jónssonar
Bergstaðastræti 74
ListasafnSigurjónsÓlafssonar
Laugarnestanga 70