Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Blaðsíða 22
Til að geta með réttu mótað okkur upp-lýsta afstöðu til málefnis dánarað-stoðar er nauðsynlegt að huga að því sérstaklega hverja dánaraðstoð snertir og hvaða þýðingu lögleiðing hennar kann að hafa fyrir þá. Þar ber helst að nefna sjúklinginn sjálfan sem aðstoðarinnar leitar og heilbrigð- isstarfsmenn þá sem hana þurfa að veita. Sá sem aðstoðarinnar leitar Ef við horfum til sjúklings sem óskar dán- araðstoðar, þá er þar almennt um að ræða þann sem þjáist af ólæknandi sjúkdómi og oft banvænum. Aðstöðu sjúk- linga sem eru hrjáðir af slíkum sjúkdómum hefur verið lýst sem svo að þeir upplifi sig sérstaklega við- kvæma, varnarlausa og að þeir finni oft fyrir stans- lausri ógn gegn sjálfsvirð- ingu sinni. Þannig mun sjúklingur sem er upp á nákomna og umönnunar- aðila kominn, vegna alvarlegra veikinda, oft upplifa niðurlægingu og hjálparleysi. Hafa gagnrýnendur dánaraðstoðar því bent á að með lögleiðingu skapist sú hætta að sjúkling- ar í slíkum aðstæðum kunni að óska dánar- aðstoðar, jafnvel þegar þeir vilja hana í raun síður, til að vera ekki byrði sínum nákomnu. Kjarninn í röksemdum þeirra sem tala fyr- ir lögleiðingu dánaraðstoðar byggist á virð- ingu fyrir persónufrelsi og sjálfsákvörð- unarrétti sjúklings. Á Íslandi er nú þegar mikil áhersla lögð á virðingu gagnvart sjúk- lingum sem eru dauðvona og með ólæknandi sjúkdóma. Birtist það til að mynda skýrt í því að skyldan til að sýna sjúklingum virðingu er sérstaklega lögfest í lögum um réttindi sjúk- linga. Því miður er raunin sú að skilningsrík viðleitni aðstandenda og umönnunaraðila dugar ekki alltaf til að koma í veg fyrir að al- varlega veikur sjúklingur upplifi hjálparleysi og niðurlægingu. Auk þessa er lögfestur í sömu lögum réttur sjúklings til að deyja með reisn. Er sjúklingi þannig frjálst að hafna eða hætta meðferð, jafnvel þegar hún er honum lífsnauðsynleg, svo fremi sem hann hafi óskerta dómgreind eins og nánar er vikið að hér á eftir, og þá geta dauðvona sjúklingar einnig óskað líknandi meðferðar. Þau úrræði geta í vissum tilfellum talist ófullnægjandi til að ná því markmiði að tryggja að sjúklingur fái að deyja með reisn, eins og talsmenn lög- leiðingar dánaraðstoðar benda gjarnan á. Vaxandi stuðningur Lögleiðing dánaraðstoðar sjúklinga virðist njóta síaukins stuðnings meðal almennings ef marka má niðurstöður skoðanakannana. Árið 2001 birti PWC skoðanakönnun þar sem 46,4% þátttakenda kváðust fylgjandi lögleið- ingu dánaraðstoðar og þriðjungur andvígur. Í skoðanakönnun Maskínu frá árinu 2019 sögð- ust aftur á móti 77,7% þátttakenda hlynnt því að einstaklingur gæti fengið dánaraðstoð ef hann væri haldinn sjúkdómi eða ástandi sem hann upplifði óbærilegt og metið hefði verið ólæknandi. Andvígir voru hins vegar 6,8%. Þess verður þó að geta að dánaraðstoð, eins og hún er skilgreind í spurningunni frá 2019, býður upp á afar rúman rétt til að óska dánaraðstoðar, en víðfeðmi lögleiðingar er eitt helsta álitaefnið sem horfa verður til í umræðunni um lögleiðingu hennar, þ.e. hvort hún skuli einungis veitt þeim sem haldnir eru ólæknandi sjúkdómum, sem munu leiða til dauða viðkomandi innan fyrirsjáanlegrar framtíðar. Þannig væri rétturinn takmark- aður við tiltölulega þröngan hóp sjúklinga sem flestir hverjir falla nú þegar undir lífs- lokameðferð á líknardeild LSH, eða þá hvort rétturinn skuli vera rýmri, t.a.m. að sérhver sjúklingur með ólæknandi sjúkdóm, sem veldur honum ólinandi þjáningum, geti hlotið dánaraðstoð, en þannig væri fallið frá skilyrð- inu um að andlát sjúklings þurfi að vera innan fyrirsjáanlegrar framtíðar. Með slíkri lög- festingu gætu aðilar með sjúkdóma á borð við alzheimer, sem þó hafa enn getu til að taka upplýsta ákvörðun e.t.v. hlotið dánaraðstoð, en að sama skapi gætu sjúklingar með alvar- legt þunglyndi sótt um dánaraðstoð, enda þar oft um ólæknandi sjúkdóm að ræða, sem veld- ur miklum þjáningum. Báðar nálganir þekkj- ast og má sem dæmi nefna að þeirri fyrri svipar til lagaumhverfisins í Kanada sem fjallað hefur verið um nýlega, en þar er jafn- framt nú til umræðu að rýmka dánar- aðstoðarréttinn. Þá skal það nefnt að bæði fyrrnefnd dæmi um alzheimer og þunglyndi eru raundæmi frá löndum sem heimila dánar- aðstoð. Má í dæmaskyni nefna, líkt og Eti- enne Montero lagaprófessor fjallar um í grein síðan 2017, eru á bilinu 60-70 beiðnir um dán- araðstoð samþykktar í Belgíu á ári hverju vegna geðraskana (e. Neuropsyciatric dis- orders), þeirra á meðal alvarlegs þunglyndis og að alvarlegur skortur á eftirliti með dán- araðstoð valdi því að erfitt sé að vita með ná- kvæmni hvort allir þeir sem hana hljóti upp- fylli kröfur laga. Það er ljóst að aðstæður þeirra sem dánar- aðstoðar leita geta verið margbreytilegar og þarf að hafa það í huga, ef til lögleiðingar kemur. Rétt er að víkja einnig stuttlega að stöðu nákominna sem lítið hefur verið fjallað um í tengslum við dánaraðstoð. Það má einna helst rekja til þess að ósk dómgreindarbærs sjúk- lings er ríkjandi, óháð vilja nákominna. Vafa- mál kunna þó að rísa, einkum í þeim að- stæðum þegar sjúkling skortir dómgreind eða getu til ákvörðunartöku. Skýrt dæmi þess eru sjúklingar sem liggja í djúpu dái og læknar meta frekari meðferð gagnslausa. Reynir þá almennt fyrst á hvort nokkrum að- ila hafi verið falið umboð til að taka ákvörðun fyrir sjúklinginn. Annars hefur gjarnan verið horft til þess að þeir nákomnu aðilar, sem ekki hafa gefið upp alla batavon, geti átt hagsmuna að gæta, enda megi telja að óskir þeirra samrýmist hagsmunum sjúklingsins sjálfs. Sá sem aðstoðina þarf að veita Auk þess sem þiggur aðstoðina er nauðsyn- legt að huga að þeim lækni eða heilbrigðis- starfsmanni öðrum sem hana þarf að veita. Dánaraðstoð veltur þannig ekki einungis á ákvörðun sjúklings heldur þarf jafnframt að vera fyrir hendi læknir sem er reiðubúinn að veita þá aðstoð. Ber læknir sá sem tekur slíkt að sér ábyrgð á því að sjúklingur deyi skjótt og þjáningarlaust. Spyrja verður sig hvort hægt sé að leggja þá lagaskyldu á heilbrigð- isstarfsmenn að veita sjúklingi dánaraðstoð. Helstu gagnrýnisraddir dánaraðstoðar í gegnum árin hafa komið úr röðum lækna og skal engan undra. Sem dæmi má nefna grein Björns Einarssonar, öldrunarlæknis og heim- spekings, síðan 2016 þar sem hann taldi ekki hægt að krefja lækni eða annan heilbrigðis- starfsmann þess að framkvæma líknardráp, stríði það gegn samvisku hans, enda andstætt eðli læknisstarfsins og læknaeiðsins, að virða mannslíf, mannúð og mannhelgi. Það hefur lengi verið grundvallarregla að lækni er frjálst að hafna því að veita meðferð sem brýtur gegn samvisku hans. Er þannig réttur læknis, bæði í Hollandi og Belgíu, um að verða ekki við beiðni um dánaraðstoð virt- ur. Var sú regla sérstaklega lögfest í Belgíu og ber læknum þar ekki skylda til að vísa sjúklingi sem dánaraðstoðar óskar til annars læknis sem aðstoðina getur veitt. Þrátt fyrir það kom til skoðunar að lögfesta slíka skyldu árið 2013 en ekki varð úr því. Þá hefur verið lögð aukin áhersla á að allar heilbrigðisstofn- anir veiti dánaraðstoð, jafnvel þær sem eru opinberlega Kaþólskar, eins og gagnrýn- endur dánaraðstoðar hafa gjarnan bent á og að samviskufrelsi lækna lúti þannig sífellt í lægra hald fyrir rétti sjúklings til að fá að- stoðina. Það er alvarlegt mál að nokkrum heilbrigðisstarfsmanni sé, gegn samvisku sinni, gert að deyða sjúkling, enda er þar oft um að ræða afstöðu sem byggist á grundvall- ar lífsviðhorfum viðkomandi. Afstaða heilbrigðisstarfsmanna Það er því nauðsynlegt, komi til lögleiðingar, að afstaða heilbrigðisstarfsmanna liggi skýrt fyrir. Síðasta skoðanakönnun um afstöðu heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi til dánarað- stoðar var birt árið 1997. Þar sögðust ein- ungis 2-3% þeirra reiðubúin að verða við þeirri beiðni sjúklings. Þrátt fyrir að stuðn- ingur meðal almennings hafi aukist er með öllu óljóst hvort hið sama gildi um heilbrigð- isstéttirnar. Mikilvægt er að það sé kannað áður en lengra er haldið með umræðuna af hálfu stjórnvalda. Flestir sérfræðingar eru sammála um mik- ilvægi þess að umræðan um lögleiðingu dán- araðstoðar eigi sér stað í samráði við fulltrúa lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna vegna augljósra tengsla verksins við störf þeirra. Margir hafa lýst yfir efasemdum sín- um um að hægt sé að regluvæða dánaraðstoð, á fullnægjandi hátt, án aðkomu lækna. Ljóst er að fjöldi álitamála kann að rísa, sé dánar- aðstoð lögfest þvert gegn vilja heilbrigðis- stéttanna. Sem dæmi má nefna að leggist þær gegn dánaraðstoðinni, þrátt fyrir lögleiðingu, er erfitt að sjá hvernig unnt væri að knýja slíka skyldu fram. Ætti því lagasetning um dánaraðstoð ávallt að vera unnin í sátt við lækna og aðra heilbrigðisstarfsmenn að því marki sem mögulegt er. Fyrsta grein Arnars um dánaraðstoð birtist í Sunnudagsmogganum fyrir viku. Umfjölluninni verður haldið áfram í næsta tölublaði Sunnudagsmoggans. Höfundur er lögmaður. Hverja snertir dánaraðstoð? Dánaraðstoð er viðkvæmt mál. Þar eru þeir sem eftir henni leita í forgrunni, en ekki ber síður að horfa til þeirra sem veita þurfa slíka aðstoð. Arnar Vilhjálmur Arnarsson fjallar um ýmis álitamál og nauðsyn þess að lögleiðing verði í sátt við heilbrigðisstéttirnar. „Lögleiðing dánaraðstoðar sjúklinga virðist njóta síaukins stuðnings meðal almennings ef marka má niðurstöður skoðanakannana,“ skrifar Arnar Vilhjálmur Arnarsson. Morgunblaðið/Eggert ’ Ljóst er að fjöldi álitamálakann að rísa, sé dánaraðstoðlögfest þvert gegn vilja heilbrigð-isstéttanna. Sem dæmi má nefna að leggist þær gegn dánaraðstoð- inni, þrátt fyrir lögleiðingu, er erfitt að sjá hvernig unnt væri að knýja slíka skyldu fram. Arnar Vilhjálmur Arnarsson 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2020 LÍFSLOK

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.