Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Qupperneq 24
Vissir þú að þú gleymir 75% afupplýsingunum sem þú með-tekur eftir einungis sex daga
ef þú hagnýtir þær upplýsingar ekki
markvisst áfram með þér? Rann-
sóknir sýna að nemendur á fyrsta ári
í háskóla gleyma 60% af því sem þau
lærðu árið áður í framhaldsskóla.
Það er ástæða fyrir því að það er
erfitt fyrir okkur að viðhalda því
sem við lærum. Þegar við vorum að
þróast var mikilvægast fyrir okkur
að einbeita okkur að því sem myndi
hjálpa okkur að komast af og fjölga
okkur eins og að fá nóg af mat, að
hafa öruggt búsvæði og maka til
þess að fjölga sér. Þannig að heilinn
gleymir upplýsingum sem hann þarf
ekki strax að nota og þær festast því
ekki í langtímaminninu.
Lausnin við að innbyrða og við-
halda upplýsingum, öðlast frekari
lærdóm sem hagnýtist í lífinu og
verða holdgervingur hugsana sinna
er að styrkja taugafræðileg net með
markvissri þjálfun yfir tíma.
Lykilatriði er að vera með mark-
miðin bak við lærdóminn á hreinu.
Bæði markmið til lengri og skemmri
tíma. Það þarf líka að vita ástæðuna
fyrir því að maður er að læra þar
sem það er meginhvatinn í að auka
við sig þekkingu. Að sama skapi er
nauðsynlegt að endurtaka upplýs-
ingar sem maður vill læra reglulega.
Að innleiða lærdóminn í líf þitt er
ein leiðin til að viðhalda upplýs-
ingum. Önnur leið er að læra með
ákveðnum bilum (e. spaced repeti-
tion) sem þýðir að meðtaka upplýs-
ingar í auknu magni með nokkurra
daga millibili (meðtaka upplýsingar
á einum degi, svo aftur eftir tvo
daga, svo fjóra daga og svo átta daga
og svo framvegis). Það eru sterk
tengsl milli þess að innbyrða upplýs-
ingar með reglulegu millibili og við-
halda lærdómnum sem í þeim upp-
lýsingum felst.
Með því að læra með ákveðnum
bilum getum við munað um 80% af
upplýsingunum sem við lærum eftir
60 daga – það er mikil bæting. Með
því að vinna markvisst meira með
það sem maður vill kunna, með
ákveðum bilum, aukast líkurnar
stórlega á að við innleiðum þann
lærdóm í lífið.
Að læra á hagnýtari máta –
byrjaðu á að læra kjarna
þess sem þú þarft að læra
Hér er gott að nota 80/20-regluna
sem kallast Pareto-lögmálið. Það
snýst í stuttu máli um að 20% af lær-
dómi stuðli að 80% af áhrifum/
niðurstöðum/bætingum. Við lærdóm
getur verið gott að byrja á að ein-
blína á 20% af mikilvægustu upplýs-
ingunum sem þú vilt tileinka þér. Til
dæmis í tengslum við lestur liggja
oft meginskilaboð (80%) bókarinnar/
greinarinnar í 20% af innihaldinu.
Aðallærdómurinn felst því í þessum
20%. Ef þú vilt svo læra meira um
það sem vekur áhuga hjá þér get-
urðu látið forvitnina leiða þig áfram.
Að hagnýta lærdóminn í
heiminn strax
Prófaðu þig áfram í að vinna með
upplýsingarnar sem þú öðlast – þó
svo þú vitir ekki allt um það sem þú
lærðir strax. Sýndu lærdóminn strax
í verki þó svo þú sért ekki með hann
allan á hreinu. Lærdómur eykst
mikið þegar maður notar upplýs-
ingar strax því þannig lærir maður
meira inn á þær. Það að nota þekk-
inguna og vinna með hana markvisst
styrkir tauganetið okkar (snagana)
og þannig verður djúp þekking til.
Endurgjöf frá öðrum
Spurðu fólkið í kringum þig, kenn-
arann þinn, vini, starfsfélaga, ment-
orinn, og fáðu endurgjöf frá þessum
einstaklingum. Endurgjöf frá öðrum
er algjört lykilatriði. Í því samhengi
er sérstaklega mikilvægt að hafa
góðan mentor sem getur hjálpað þér
að öðlast frekari lærdóm og skilning.
Að skrifa eða tala
Að skrifa eða tala um það sem þú
lærir. Það sem getur komið að góð-
um notum er að loka bókinni þegar
maður les (eftir 2-10 blaðsíður) og
skrifa allt sem maður man af aðal-
atriðum, án þess að kíkja í bókina.
Þar er reglan bara að skrifa niður án
þess að spá í stafsetningu eða mál-
far. Það er gaman og mikilvægt að
tengja það sem þú lærir við þitt eigið
líf og hagnýta það þannig.
Að læra af öðrum
Við öðlumst vitneskju með því að
læra af öðrum og kenna öðrum. Það
hjálpar bæði einstaklingnum sem
kennir að styrkja þekkinguna sem
hann er með og að kenna hinum á
þekkinguna, styrkir hraðari lær-
dóm. Þess vegna ættir þú að vera
opinn fyrir því að kenna öðrum á
lærdóminn þinn og að biðja aðra að
kenna þér.
Markviss þjálfun (e. deliberate
practice) er lykilatriði til að skapa
djúpa þekkingu. Það myndar tauga-
fræðilegt netverk og það verða til
varanlegar tengingar eftir ákveðinn
tíma. Við getum styrkt þekkinguna
með því að taka upplýsingar inn og
vinna með þær áfram bæði munn-
lega og skriflega. Lærdómur, aukin
þekking og viska geta nýst okkur á
fjölda vegu í lífinu. Ef þú getur
hugsað, talað og lært á áhrifaríkari
máta getur fátt stoppað þig. Það
gæti hjálpað þér í ýmissi baráttu í
lífinu og sú barátta gæti verið fyrir
góðum hlutum. Með hraðari og
auknum lærdómi margfaldast lík-
urnar á að þér gangi vel í lífinu.
Morgunblaðið/Hari
’ Ef þú getur hugsað,talað og lært á áhrifa-ríkari máta getur fáttstoppað þig. … Með hrað-
ari og auknum lærdómi
margfaldast líkurnar á að
þér gangi vel í lífinu.
Að hraða lærdómi
– sköpum djúpa
þekkingu
Vísindi og samfélag
Bergsveinn Ólafsson
Hermundur Sigmundsson
hermundur@ru.is
Bergsveinn er fyrirlesari með
MSc-gráðu í jákvæðri sálfræði og
þjálfunarsálfræði og Hermundur er
prófessor í sálfræði í Háskólanum í
Reykjavík og Norska tækni- og
vísindaháskólanum.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2020
MENNTUN
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is