Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Blaðsíða 20
a til ö eins og hún gerði í húsinu í Hafnarfirði. Í slíkum
verkefnum skiptir máli að ná fram ákveðinni hönnun á öll-
um innréttingum þannig að eldhús og baðherbergi skapi
eina heild.
„Heildin verður að passa saman, sami viður er á innrétt-
ingum í eldhúsi og á baðherbergjum. Sömu flísar á öllum
baðherbergjum þó svo að þær séu teknar í öðrum stærð-
um en þetta passar allt saman. Í þessu húsi eru þrjú bað-
herbergi sem eru öll með sama efnisvali. Ef grunnurinn er
góður þá er svo auðvelt að poppa upp með húsgögnum.
Ég er mjög stolt af þessu verkefni og ánægð með út-
komuna. Mig langar helst að flytja inn þarna sjálf enda út-
sýnið þarna geggjað og húsið hentar öllum svo vel eftir
þessar breytingar. Það er alltaf gaman að sjá skemmtilega
útkomu og þegar heimilisfólkið er ánægt.“
Eldhúsin vinsæl
Sólveig segir vinsælt að gera upp eldhús og eru opin eld-
hús málið í dag.
„Gott nútímaeldhús þarf að henta fjölskyldunni. Stórar
eyjur þar sem öll fjölskyldan getur komið saman eru mjög
vinsælar. Mjög vinsælt er að setja tækjaskáp í eldhúsið til
að loka af tæki. Einnig þarf að vera þægilegt að vinna í eld-
húsinu.“
Marmari er áberandi í efnisvali í eldhúsum í dag og
reyndar á baðherbergjum líka.
„Marmaraútlitið og marmari er alltaf vinsælt. Enda
efni sem er alltaf fallegt og eldist mjög vel. Það er komið
svo miklu meira úrval af marmara hjá þeim í Granítsmiðj-
unni og svo er fallegt að toppa eldhúsið með fallegri borð-
plötu.“
Þegar stórar ákvarðanir eins og að gera upp eldhús eru
teknar er gott að fá fagaðila í verkið.
„Ég mæli alltaf með því að láta fagaðila sjá um verkið
og fá sér innanhúsarkitekt til að skoða bestu útfærsluna.
Það er ekki ódýrt að skipta um eldhúsinnréttingu hjá sér,
þetta er oft hjartað á heimilinu og það rými sem er mest
notað. Við erum ekki að fá okkur nýja innréttingu dag-
lega. Innréttingarnar þurfa að vera tímalausar og hægt að
vinna með þeim ef maður vill breyta hjá sér,“ segir Sólveig
og bendir á að það sé til dæmis hægt breyta góðum inn-
réttingum seinna meir með því að skipta um borðplötu,
skipta um hurðir, filma eða mála.“
Að lokum segir Sólveig að það sé auðveldlega hægt að
lífga upp á heimili án þess að fara út í stórar fram-
kvæmdir.
„Það er alltaf auðveldast að mála ef maður vill breyta
hjá sér og það er jafnframt ódýrasta leiðin. Nýir púðar og
gardínur geta gert krafaverk ef að maður er orðin þreytt-
ur á stofunni hjá sér,“ segir Sólveig sem er spennt fyrir
vetrinum og öllum þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún
er að vinna að.
Marmaraflísar og
dökk eik fara vel
saman eins og sést á
þessu baðherbergi.
Hér notar Sólveig
Andrea marmara-
flísar á baðherbergi.
Heima hjá Sól-
veigu er hlýlegt
um að litast.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2020
LÍFSSTÍLL
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra
húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr.
577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til:
• viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og
mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa
menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
• byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og
mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær.
• sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í
samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016
um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í
byggð.
Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna
byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs
ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna
á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2020. Umsóknir sem berast
eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af
hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit
um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og
varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir
Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf
um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á
heimasíðu safnsins www.borgarsogusafn.is).
Suðurgötu 39,101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2021