Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Blaðsíða 13
18.10. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Morgunblaðið/Hallur Már hefur fjölgað um 140% milli ára, það er mjög mikið að gera og við höfum bætt laugardögum og sunnudögum við. Við fáum reglulega að heyra að þetta sé úrræði sem hafi vantað í ís- lenskt samfélag. Það er ekki lengur tabú að viðurkenna að maður þurfi á hjálp að halda, það skynjar unga fólkið ekki síst, sem er mjög jákvætt. Það er allt í lagi að tala við mömmu og pabba, kennarann eða góðan vin. Umræðan í samfélaginu er líka orðin miklu opnari og það skiptir máli að fólk stígi fram og segi sína sögu, ekki síst fólk sem notið hefur mikillar velgengni en líður samt af einhverjum ástæð- um illa.“ Fjöldi fólks kom að stofnun Píeta-samtak- anna og segir Benedikt þau hafa verið svo heppin að fá til starfa Sirrý Arnardóttur sem var fyrsti framkvæmdastjóri samtakanna „Sirrý var mikill ísbrjótur með stórt tengsl- anet í kringum sig og Kristín Ólafsdóttir nú- verandi framkvæmdastjóri hefur haldið því góða starfi áfram af miklum myndarskap.“ Píeta-samtökin hafa, að sögn Benedikts, átt gott samstarf við aðra aðila sem sinna geðheil- brigðismálum, svo sem Rauða krossinn og hjálparnúmerið 1717. Algengt sé að fólki sem hringi þar inn sé vísað yfir til Píeta-samtak- anna. „Þetta samstarf er mjög mikilvægt og hefur verið að aukast.“ Skilningurinn að aukast – Þegar þú horfir yfir sviðið, er þá skilningur á þessum málaflokki að aukast? „Já, ég er sannfærður um það, miðað við kraftinn og skilninginn hjá íslensku þjóðinni. Við finnum, eins og ég segi fyrir mikilli hvatn- ingu. Nú læt ég mig bara dreyma um að Píeta- samtökin og önnur samtök sem vinna að bættri geðheilsu fái meiri stuðning frá hinu opinbera. Það skiptir höfuðmáli að samfélagið í heild komi að þessu verkefni og grasrótin verður að vera til staðar. Við þurfum á fjöl- breytninni að halda, það hentar ekki öllum að leita til spítala og stofnana. Þess vegna þurfa grasrótarsamtök að fá að vaxa og dafna. Við hjá Píeta-samtökunum erum þakklát fyrir stuðninginn til þessa og munum halda ótrauð áfram á sömu braut.“ ’ Það er markvisst verið aðhafa samband við fólk semlíður illa og kanna hvernig þaðhefur það. Ekki veitir víst af eins og ástandið er núna. ara o.fl. Fólk hefur kallað eftir leiðbeiningum um hvernig tala má við einstaklinga þegar þess- ar hugsanir knýja dyra.“ – Er það að ræða sjálfsvíg og sjálfsvígshugs- anir alltaf jafn mikið tabú? „Það er ósköp eðlilegt að fólk sé hrætt við að tala um þessa hluti. Þess heldur þarf hjálpin að vera fyrir hendi. Að því sögðu gæti ég alveg trú- að því að umræðan um þessi mál sé opnari nú en fyrir tíu eða tuttugu árum. Samfélagið er orðið opnara en áður. Það skiptir líka máli í þessu sambandi að fjölmiðlar hafa á síðustu ár- um og misserum fengið leiðbeiningar um það hvernig fjalla skuli um þessi mál. Rannsóknir sýna nefnilega að óábyrg opinber umfjöllun getur haft áhrif á sjálfsvíg. Þá er ég til dæmis að tala um þegar einstaklingur sem hefur svipt sig lífi er upphafinn og jafnvel fjallað um aðferðina sem hann beitti. Nær er að fjalla um lausnir og bjargráð, og leggja áherslu á sögu og leiðir þeirra sem björguðust. Þetta er kallað Papa- genó-áhrifin og rannsóknir sýna að þessar áherslur geta hjálpað einstaklingum sem eru á vondum stað í lífinu.“ Þess má geta að Papagenó-áhrifin vísa í kar- akter í óperunni Töfraflautunni eftir Wolfgang Amadeus Mozart en í verkinu íhugar Papagenó að svipta sig lífi þangað til aðrar persónur benda honum á að hann geti leyst sín aðsteðj- andi vandamál með öðrum og giftusamlegri hætti. Áhyggjur af auknu atvinnuleysi Enginn veit hvenær þriðju bylgju kórónu- veirufaraldursins lýkur eða hversu margar fleiri bylgjur við komum til með að þurfa að tak- ast á við. Fyrir liggur að áhrif veirunnar á ís- lenskt samfélag verða gríðarleg, ekki síst at- vinnulífið og efnahaginn. Hildur Guðný segir augljós hættumerki í þessu fólgin þegar kemur að sjálfsvígsvörnum. „Alþjóðasamfélagið hefur miklar áhyggjur af auknu atvinnuleysi en vitað er að langvarandi atvinnuleysi er áhættuþáttur þegar kemur að sjálfsvígum. Embætti land- læknis fylgist grannt með óbeinum áhrifum far- aldursins, svo sem auknu heimilisofbeldi og öðru slíku og unnið er að því að setja á laggirnar lýðheilsuvakt í anda velferðarvaktarinnar sem stofnað var til eftir bankahrunið 2008. Sú vakt gafst vel en á meðan sjálfsvígum fjölgaði á heimsvísu í heimskreppunni 2008 þá gerðist það ekki hér.“ – Hverju er það þakkað? Embætti landlæknis réðst árið 2019 í eftir-fylgd á aðgerðaáætlun í sjálfsvígs-vörnum með styrk frá heilbrigðisráðu- neytinu. Um er að ræða á bilinu fimmtíu til sextíu aðgerðir sem sumar hverjar eru þegar komnar til framkvæmda. Upphaflega átti átak- inu að ljúka um næstu áramót en nú hefur feng- ist framhaldsfjárveiting fyrir árið 2021. Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri sjálfsvígs- varna hjá Embætti landlæknis, fagnar þessu enda sé um langhlaup að ræða; flest lönd í kringum okkur hafi gefið sér á bilinu fimm til tíu ár í þessa vinnu. „Við erum eitt af 38 löndum í heiminum með svona áætlun en tekið er mið af gagnreyndum aðgerðum sem þekkjast víða og hafa skilað góðum árangri. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin, WHO, leiðbeinir okkur í þessum efnum en einnig höfum við horft til nágranna- landanna, svo sem Noregs og Svíþjóðar, auk nýjustu rannsókna,“ segir Hildur Guðný. Hún hefur stýrt verkefninu frá upphafi en hverfur frá borði um áramótin, þegar hún fer í barneignarleyfi. Hafið samband! Hildur Guðný segir geðheilbrigði alltaf mik- ilvægan málaflokk, sérstaklega í því árferði sem við búum við núna í heimsfaraldri kórónuveir- unnar. Við aðstæður sem þessar sé mikilvæg- ara en endranær að fylgjast vel með við- kvæmum hópum í samfélaginu, faraldurinn komi til með að hitta einstaklinga misjafnlega fyrir. „Eitt af því sem við getum gert er að fylgjast með í rauntíma innlögnum á spítala vegna sjálfsvígstilrauna eða sjálfsskaða og sem betur fer sýna þær tölur ekki hækkun miðað við fyrri ár. Hjálparsími Rauða krossins, 1717, og Píeta-samtökin taka líka stöðuna en hægt er að hringja í þau allan sólarhringinn alla daga vik- unnar.“ Mikið álag er á heilbrigðiskerfinu vegna veir- unnar og sífellt hamrað á því í fjölmiðlum. Hild- ur Guðný segir þetta geta haft þær afleiðingar að fólk sem þarf á aðstoð að halda vegna geð- rænna kvilla veigri sér við að hafa samband til að auka ekki álagið á kerfið. Skilaboð hennar til þessa fólks eru skýr: „Hafið samband! Það er hjálp til staðar og það er alltaf von.“ Í september bjó Embætti landlæknis til plak- at og myndband til að vekja athygli á mikilvægi þess að fólk leiti sér aðstoðar vegna geðrænna vandamála og var það sent á framhaldsskólana, heilsugæsluna og fleiri aðila. Að sögn Hildar Guðnýjar eru sjálfsvígstil- raunir og sjálfsskaði algengari meðal kvenna og yngra fólks en sjálfsvíg á hinn bóginn algengari meðal karla og með hækkandi aldri. Brýnt að efla eftirfylgd Hún segir mjög brýnt að efla eftirfylgd í kjölfar sjálfsvígstilrauna í allt að tvö ár á eftir en dæm- in sanna að fyrri sjálfsvígstilraunir séu alvar- legur áhættuþáttur sjálfsvíga. „Ein af aðgerð- unum sem við erum að þróa ásamt Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu er inn- leiðing á eftirfylgd í kjölfar tilrauna. Eins skipt- ir miklu máli að efla fræðslu og viðbrögð við sjálfsvígshugsunum og samræma þetta á öllu landinu. Þá erum við að horfa til heilbrigð- isstarfsmanna, skólahjúkrunarfræðinga, kenn- „Ætli samtakamáttur þjóðarinnar hafi ekki ráðið mestu þar um. Við erum lítil þjóð og stöndum gjarnan þétt saman þegar eitthvað bjátar á.“ – Mun það hjálpa okkur að takast á við afleið- ingar faraldursins? „Það myndi ég ætla. Hvert áfall og hver kreppa eru auðvitað mismunandi en við búum að reynslunni úr bankahruninu. Aðalatriðið er að við stöndum öll saman, stjórnvöld, heilbrigð- iskerfið, fyrirtæki, stofnanir, fjölmiðlar og ein- staklingar. Félagslegur stuðningur einkenndi okkur í síðustu kreppu og mildaði á endanum höggið. Leggist allir á eitt við að setja geðheilsu í forgang ætti það að geta endurtekið sig nú.“ Geðrækt kennd í leikskóla Hildur Guðný segir geðrækt alltaf snaran þátt í nálgun Embættis landlæknis og mikilvægt sé að skoða geðheilsu frá grunni og spyrja hverjir orskaþættirnir séu. „Þetta er mjög mikilvægur hluti af aðgerðaáætlun okkar, hvernig hægt er að efla geðheilsu og seiglu í samfélaginu og haga starfi og umhverfi sem best til að bæta andlega líðan fólks og draga úr líkum á sjálfs- skaðandi hegðun.“ Hún bendir á, að starfshópur hafi í byrjun árs skilað tillögum til heilbrigðisráðherra um geð- rækt barna. Þar er lagt til að hún hefjist strax í leikskóla og héldi áfram upp framhaldsskóla, og geri börnum þannig kleift að styðja við eigið geðheilbrigði. „Það er mjög mikilvægt að byrja þessa vinnu frá grunni og að geðrækt verði eins sjálfsögð og að læra að lesa, reikna og skrifa.“ – Hvenær gerirðu ráð fyrir að þessi áætlun komist í gagnið? „Ráðherra er búinn að samþykkja áætlunina þannig að vonandi verða aðgerðir innleiddar sem fyrst, jafnvel strax á næsta ári.“ Hildur Guðný lýkur lofsorði á geðhjálpar- átakið 39, nauðsynlegt sé að virkja sem flesta í baráttunni fyrir bættri geðheilsu. „Þessi tala, 39, er auðvitað alltof há en hún á ekki bara við um þá sem féllu fyrir eigin hendi á Íslandi á síð- asta ári, heldur er hún einnig meðaltal síðustu tíu ára. Öll viljum við lækka þessa tölu enda skilur hvert einasta líf sem tapast eftir sig mikla sorg. Fjöldi sjálfsvíga á hverja hundrað þúsund íbúa hefur farið heldur lækkandi á heimsvísu en það hefur því miður ekki gerst hér, þar sem tal- an er svipuð og í nágrannalöndunum. Heims- meðaltalið var aðeins hærra en er nú svipað og okkar tíðni.“ 30% lægri tíðni árið 2030 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur sett sér það markmið að lækka sjálfsvígstíðni um 30% fyrir árið 2030. Hildi Guðnýju þykir eðlilegt að við Íslendingar setjum okkur sama markmið. „Þess vegna er mikilvægt að þessar aðgerðir sem við vinnum að verði sem fyrst að veruleika, að við byrjum þessar forvarnir frá grunni, höf- um umræðuna á uppbyggilegum nótum og vinnum öll saman.“ Verðum að geta talað um þessar hugsanir Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri sjálfsvígsvarna hjá Embætti landlæknis, segir brýnt að innleiða fjölþættar aðgerðir í sjálfvígsvörnum sem fyrst. Hún hvetur þjóðina til að standa saman að því að opna umræðuna og fyrir- byggja ótímabær dauðsföll. Hildur Guðný Ásgeirs- dóttir, verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis. Morgunblaðið/Eggert ’Í stað þess að fjalla um þásem framið hafa sjálfsmorðer áhersla lögð á þá sem björg-uðust. Þetta er kallað Papagenó- áhrifin og rannsóknir sýna að þessar áherslur geta hjálpað einstaklingum sem eru á vondum stað í lífinu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.