Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Síða 24
Vissir þú að þú gleymir 75% afupplýsingunum sem þú með-tekur eftir einungis sex daga ef þú hagnýtir þær upplýsingar ekki markvisst áfram með þér? Rann- sóknir sýna að nemendur á fyrsta ári í háskóla gleyma 60% af því sem þau lærðu árið áður í framhaldsskóla. Það er ástæða fyrir því að það er erfitt fyrir okkur að viðhalda því sem við lærum. Þegar við vorum að þróast var mikilvægast fyrir okkur að einbeita okkur að því sem myndi hjálpa okkur að komast af og fjölga okkur eins og að fá nóg af mat, að hafa öruggt búsvæði og maka til þess að fjölga sér. Þannig að heilinn gleymir upplýsingum sem hann þarf ekki strax að nota og þær festast því ekki í langtímaminninu. Lausnin við að innbyrða og við- halda upplýsingum, öðlast frekari lærdóm sem hagnýtist í lífinu og verða holdgervingur hugsana sinna er að styrkja taugafræðileg net með markvissri þjálfun yfir tíma. Lykilatriði er að vera með mark- miðin bak við lærdóminn á hreinu. Bæði markmið til lengri og skemmri tíma. Það þarf líka að vita ástæðuna fyrir því að maður er að læra þar sem það er meginhvatinn í að auka við sig þekkingu. Að sama skapi er nauðsynlegt að endurtaka upplýs- ingar sem maður vill læra reglulega. Að innleiða lærdóminn í líf þitt er ein leiðin til að viðhalda upplýs- ingum. Önnur leið er að læra með ákveðnum bilum (e. spaced repeti- tion) sem þýðir að meðtaka upplýs- ingar í auknu magni með nokkurra daga millibili (meðtaka upplýsingar á einum degi, svo aftur eftir tvo daga, svo fjóra daga og svo átta daga og svo framvegis). Það eru sterk tengsl milli þess að innbyrða upplýs- ingar með reglulegu millibili og við- halda lærdómnum sem í þeim upp- lýsingum felst. Með því að læra með ákveðnum bilum getum við munað um 80% af upplýsingunum sem við lærum eftir 60 daga – það er mikil bæting. Með því að vinna markvisst meira með það sem maður vill kunna, með ákveðum bilum, aukast líkurnar stórlega á að við innleiðum þann lærdóm í lífið. Að læra á hagnýtari máta – byrjaðu á að læra kjarna þess sem þú þarft að læra Hér er gott að nota 80/20-regluna sem kallast Pareto-lögmálið. Það snýst í stuttu máli um að 20% af lær- dómi stuðli að 80% af áhrifum/ niðurstöðum/bætingum. Við lærdóm getur verið gott að byrja á að ein- blína á 20% af mikilvægustu upplýs- ingunum sem þú vilt tileinka þér. Til dæmis í tengslum við lestur liggja oft meginskilaboð (80%) bókarinnar/ greinarinnar í 20% af innihaldinu. Aðallærdómurinn felst því í þessum 20%. Ef þú vilt svo læra meira um það sem vekur áhuga hjá þér get- urðu látið forvitnina leiða þig áfram. Að hagnýta lærdóminn í heiminn strax Prófaðu þig áfram í að vinna með upplýsingarnar sem þú öðlast – þó svo þú vitir ekki allt um það sem þú lærðir strax. Sýndu lærdóminn strax í verki þó svo þú sért ekki með hann allan á hreinu. Lærdómur eykst mikið þegar maður notar upplýs- ingar strax því þannig lærir maður meira inn á þær. Það að nota þekk- inguna og vinna með hana markvisst styrkir tauganetið okkar (snagana) og þannig verður djúp þekking til. Endurgjöf frá öðrum Spurðu fólkið í kringum þig, kenn- arann þinn, vini, starfsfélaga, ment- orinn, og fáðu endurgjöf frá þessum einstaklingum. Endurgjöf frá öðrum er algjört lykilatriði. Í því samhengi er sérstaklega mikilvægt að hafa góðan mentor sem getur hjálpað þér að öðlast frekari lærdóm og skilning. Að skrifa eða tala Að skrifa eða tala um það sem þú lærir. Það sem getur komið að góð- um notum er að loka bókinni þegar maður les (eftir 2-10 blaðsíður) og skrifa allt sem maður man af aðal- atriðum, án þess að kíkja í bókina. Þar er reglan bara að skrifa niður án þess að spá í stafsetningu eða mál- far. Það er gaman og mikilvægt að tengja það sem þú lærir við þitt eigið líf og hagnýta það þannig. Að læra af öðrum Við öðlumst vitneskju með því að læra af öðrum og kenna öðrum. Það hjálpar bæði einstaklingnum sem kennir að styrkja þekkinguna sem hann er með og að kenna hinum á þekkinguna, styrkir hraðari lær- dóm. Þess vegna ættir þú að vera opinn fyrir því að kenna öðrum á lærdóminn þinn og að biðja aðra að kenna þér. Markviss þjálfun (e. deliberate practice) er lykilatriði til að skapa djúpa þekkingu. Það myndar tauga- fræðilegt netverk og það verða til varanlegar tengingar eftir ákveðinn tíma. Við getum styrkt þekkinguna með því að taka upplýsingar inn og vinna með þær áfram bæði munn- lega og skriflega. Lærdómur, aukin þekking og viska geta nýst okkur á fjölda vegu í lífinu. Ef þú getur hugsað, talað og lært á áhrifaríkari máta getur fátt stoppað þig. Það gæti hjálpað þér í ýmissi baráttu í lífinu og sú barátta gæti verið fyrir góðum hlutum. Með hraðari og auknum lærdómi margfaldast lík- urnar á að þér gangi vel í lífinu. Morgunblaðið/Hari ’ Ef þú getur hugsað,talað og lært á áhrifa-ríkari máta getur fáttstoppað þig. … Með hrað- ari og auknum lærdómi margfaldast líkurnar á að þér gangi vel í lífinu. Að hraða lærdómi – sköpum djúpa þekkingu Vísindi og samfélag Bergsveinn Ólafsson Hermundur Sigmundsson hermundur@ru.is Bergsveinn er fyrirlesari með MSc-gráðu í jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði og Hermundur er prófessor í sálfræði í Háskólanum í Reykjavík og Norska tækni- og vísindaháskólanum. 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2020 MENNTUN HÁDEGISMATUR alla daga ársins Bakkamatur fyrir fyrirtæki og mötuneyti Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt, einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum. Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is SKÚTAN Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.