Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Qupperneq 19
Heimilið mitt er hlýlegt, mér líður best þegar þaðer mikil hreyfing í húsinu. Krakkarnir með vinisína heima eða fjölskyldan í mat,“ segir Sólveig þegar hún er beðin um að lýsa sínu heimili. Hún segir þó alltaf gott að fá ró og næði inn á milli. Þá finnst henni best að hreiðra um sig í stofusófanum. Í sófanum finnst henni gott að fara yfir daginn með kaffibolla í hendinni. Sólveig Andrea segir að heimili hennar endurspegli ekki endilega það sem hún hannar fyrir viðskiptavini sína. „Hönnunin endurspeglar kúnnann, það er hann sem ræður ferðinni. Ég aðstoða við að ná sem bestu út úr hverju verkefni fyrir sig með faglegri aðstoð og auðvitað hafa viðskiptavinirnir mikið um þetta að segja.“ Fólk er með hugann við heimilið Sólveig segir að kórónuveiran hafi ekki haft mikil áhrif á hennar stétt. Ástæðan er einföld – fólk er mun meira heima hjá sér þessi misserin og er ekki að ferðast. Þar af leiðandi er meiri áhersla á lögð á heimilin. „Fólk er að taka í gegn hjá sér sér eldhús og baðher- bergi, það sem löngu var kominn tími á en hefur ekki verið tími í. Fólk hefur kannski notað „Spánarpeningana“ í eld- húsið. Ég held að við höfum verið það mikið inni í „COVID“ og dagarnir snerust um hvað ætti að vera í mat- inn. Það hefur verið mikil bið eftir innréttingum á smíða- verkstæðum og í verslunum enda mikið að gera hjá öllum í þessum geira. Eins var ekki hægt að koma eins miklu til landsins af húsgögnum og öðrum vörum, svo komu sumarfrí inn í. Þegar löndin opnuðu loksins hafði myndast smá bið eftir húsgögnum og öðru. En það er allt að komast á rétta braut núna og búðir ná að sinna eftirspurn. Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími og fólk hefur verið tilbúið með öllum ráðstöfunum og tveggja metra reglunni að fá mig inn á heimili sín til að aðstoða sig. Mér finnst mjög gaman að koma í innlit hjá fólki og ráðleggja þeim – ég elska að koma inn á heimili og hitta skemmtilegt fólk.“ Hvaða straumar eru að koma sterkir inn í vetur? „Sterkir straumar í vetur eru klárlega heitir litir, hlýir jarðtónar og jarðlitir. Beis er klárlega liturinn sem verður í vetur og er þegar kominn inn á mjög mörg heimili. Brave liturinn frá Sérefni er litur ársins og er mjög fallegur. Við erum að fara úr köldum gráum litum sem eru búnir að vera svo lengi og erum að gera heimili okkar hlýlegri. Ís- lendingar eiga svo falleg heimili, hugsa vel um þau og eru klárlega með á nótunum með það nýjasta. Svartar innrétt- ingar og marmaraborðplötur hafa verið mjög vinsælar lengi. Þær eru enn inni enda svart alltaf í tísku og klass- ískur litur. Þá er ég að tala um svartbæsaða eik sem ég er hrifnari af en alveg svörtu, mér finnst fallegra þegar við- urinn sést. Það er líka mikið verið að taka súkku- laðibrúnar innréttingar. Íslendingar eru að setja sinn persónulega stíl á heimilin sín og blanda saman hlýjum tónum við þetta svarta. Bast er mikið í tísku núna og ég persónulega elska bast. Svo er haustið minn uppáhaldstími. Ég er mikil kertakona og elska þegar það er ekki bjart allan sólahringinn,“ segir Sólveig. Gerði upp fallegt hús í Hafnarfirði „Ég hef verið svo heppin að fá að gera fullt af skemmti- legum og fallegum verkefnum í gegnum tíðina. Í vor klár- aði ég að gera einbýlishús í Hafnarfirði þar sem ég fékk mjög frjálsar hendur í hönnun og húsgagnavali. Í húsinu var allt hreinsað út og nýtt sett inn í staðinn. Til þess að fullkomna verkið voru gerðar smá tilfærslur á veggjum og veggir teknir niður.“ Sólveig segir það mjög skemmtilegt að hanna allt frá Morgunblaðið/Eggert Hér er ekkert höldu- fyllerí heldur eru höldurnar fræstar í innréttinguna. „Ég elska að koma inn á heimili og hitta skemmtilegt fólk“ Sólveig Andrea Jónsdóttir útskrifaðist sem innanhússarkitekt frá Istituto Superiore di Architettura e Design í Mílanó árið 1998. Í dag starfar Sólveig sjálfstætt, hún elskar að ráða tíma sínum sjálf og hjálpa viðskiptavinum sínum við að gera heimili þeirra fallegri. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Sólveig Andrea Jónsdóttir innan- hússarkitekt. Morgunblaðið/Eggert  18.10. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 SÓFAR TAXFREE Allir sófar á taxfree tilboði* Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 Ísafirði Skeiði 1 SÓFAR TAX FREE PETRI 2,5 og 3ja sæta, meira á bls. 2 og 3 www.husgagnahollin.isS END U M F R ÍT T V E F V E R S L U N * Taxfree tilboðið gildir a f öllum sófum nema sér pöntunum og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissj óður virðisaukaskatt af s öluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsga gnahallarinnar. * Taxfree tilboðið gildir af öllum sófum nema sérpöntunum og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.