Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.11. 2020
Í vikunni lést á Íslandi þriðji mað-urinn í þessari bylgju kórónu-veirusmita. Þá hafa þrettán lát-
ist af hennar völdum síðan veiran
barst til landsins.
Vikan byrjaði ekki vel. Neyðarstigi
var lýst yfir á Landspítalanum í
fyrsta sinn, eftir að hópsmit kór-
ónuveirunnar uppgötvaðist í Landa-
koti, en þar hafði starfsmaður haldið
áfram að koma smitaður til vinnu.
Um 40 gamalmenni smituðust þar,
en sumir þeirra sjúklinga höfðu ver-
ið fluttir á aðrar stofnanir áður en
upp komst, svo þar komu einnig upp
hópsmit. Á Sólvöllum á Eyrarbakka
smituðust 13 vistmenn og fjórir
starfsmenn, en á Reykjalundi smit-
uðust fimm sjúklingar. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir og Páll
Matthíasson, forstjóri Landspít-
alans, töldu á sunnudag báðir að
gera yrði ráð fyrir að fleiri hefðu
smitast en þeir 77, sem höfðu þá
greinst. Það reyndist rétt.
Aftur á móti baðst Einar Valur Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri útgerðar
Júlíusar Geirmundssonar ÍS-270 og
útsendari heimskapítalismans í
Hnífsdal, afsökunar á mistökum þeg-
ar smit kom upp í áhöfninni.
Í öðrum fréttum að vestan voru
Dýrafjarðargöng opnuð, en það
gerðu Sigurður Ingi Jóhannsson
samgönguráðherra og Bergþóra
Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerð-
arinnar. Að vísu ekki fyrir vestan,
heldur að sunnan um fjarfundar-
búnað. Vestfjarðavegur styttist um
rúma 27 km fyrir vikið og sam-
gönguöryggi Vestfjarða eykst til
muna. Dynjandisheiði er næst.
Þess var minnst á Flateyri og víðar
að aldarfjórðungur var liðinn frá
snjóflóðinu mikla, þar sem 20 manns
fórust.
Eineltismál í Sjálandsskóla í Garða-
bæ varð til þess að Lilja Alfreðs-
dóttir lýsti yfir vilja til þess að
virkja fagráð eineltismála betur.
Ragnar Aðalsteinsson, mannrétt-
indalögfræðingurinn mikli, kom í við-
tal til Kristjáns Kristjánssonar í
þættinum Sprengisandi á Bylgjunni
og hafði það helst að segja um stjórn-
arskrármál að best hefði verið að gerð
hefði verið bylting í kjölfar banka-
hrunsins til þess að koma á nýrri
stjórnarskrá. Hún hefði ekkert frekar
þurft að vera blóðug eða ofbeldisfull,
þó sjálfsagt hefði það ekki sakað.
Lögreglan á Vesturlandi tók til
rannsóknar farandsölu á bjór hjá
brugghúsinu Steðja í Flókadal, þó
raunar kæmi fram að þar átti sér
ekki stað farandasala. Ölið var selt á
netinu og síðan komið heim til við-
skiptavina. Dagbjartur Árelíusson í
Steðja virtist ekki taka rannsókninni
illa, hugsar sér sennilega gott til
glóðarinnar að vera kominn með
prófmál í hendur til þess að fara með
fyrir EFTA-dómstólinn. Erlendum
brugghúsum og vínkaupmönnum er
heimilt að selja hingað áfenga
drykki í pósti.
Dómsmálaráðherra hefur lagt loka-
hönd á frumvarp til breytingar á
áfengislögum, sem mun leyfa bæði
netverslun með vín og sölu áfengis í
brugghúsum. Þá er bara að sjá hvort
þingið er komið á 21. öldina líka.
Samdráttur í samgöngum af völdum
kórónuveirunnar birtist á margan
hátt, en 100 leigubílaleyfi hafa verið
lögð inn tímabundið og allnokkrir
hætt fyrir fullt og allt. Samdrátt-
urinn í harkinu enda rúm 80%.
Lögregla á Vestfjörðum hóf rann-
sókn á hópsmitinu í frystitogaranum
Júlíusi Geirmundssyni, en enginn
virtist hafa áhuga á sams konar
rannsókn í Landakoti.
Tryggvi Gunnarsson, umboðs-
maður Aþingis, fann að því í bréfi til
stjórnarráðsins að sóttvarnalög
væru óskýr og lagaheimildir óljósar,
sér í lagi varðandi aðgerðir sem
reyna á stjórnarskrárvarin réttindi
og fjárhagstjón vegna sótt-
varnaaðgerða.
Mótmæli voru haldin við pólska
sendiráðið vegna nær fortakslauss
banns við fóstureyðingum, sem ný-
lega tók gildi þar í landi.
Góðar fréttir komu fullkomlega
óvænt í vikunni, þegar sagt var frá
bestu síldarvertíð í áratugi, góðri
síld og góðri veiði.
Tesla opnaði ofurhlað við Staðar-
skála í Hrútafirði, en þar er nú öfl-
ugasti rafhleðslubúnaður bíla hér-
lendis og gerir leiðina norður mun
greiðari og tryggari. Tesla stefnir á
samskonar hlöð á Akureyri, Egils-
stöðum, Höfn, Klaustri og Selfossi.
Íslendingur, eftirlýstur fyrir barna-
níð, var handtekinn á Spáni, liðlega
hálfu ári eftir að hann hlaut 12 ára
dóm í Danmörku fyrir brot gegn
barnungri dóttur sinni, bæði í Dan-
mörku og á Íslandi.
Útgjöld til almannatrygginga hafa
tvöfaldast frá árinu 2013, en nú fer
um fjórðungur allra skatttekna og
tryggingagjalda til almannatrygg-
inga. Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra segir útgjaldavöxtinn
ekki sjálfbæran og telur m.a. að
hækka þurfi lífeyristökualdur í
áföngum.
Kórónuveirusmitum fækkaði í vik-
unni, en ekki í þeim mæli sem vonast
var til.
Þrátt fyrir heimsfaraldurinn hélt
íbúum á Íslandi áfram að fjölga í
sumar og haust, þó ekki væri fjölg-
unin jafnör og liðin ár. Nokkuð dró
raunar úr fjölgun erlendra ríkis-
borgara, en hins vegar fluttu fleiri
Íslendingar heim en fluttu utan, þar
á meðal sá sem hér skrifar.
Margvísleg aldahvörf eru um þessar
mundir. Þannig heyrir gamla
pungaprófið brátt sögunni til og frí-
merkjaútgáfa Íslandspósts sömu-
leiðis.
Fréttir voru af því sagðar að Guðni
Ágústsson hefði afhent Lilju Al-
freðsdóttur USB-lykil.
Flugvélaframleiðandinn Boeing
veltir nú fyrir sér smíði nýrrar flug-
vélategundar, en farþegaflug í heim-
inum er sem kunnugt er í járnum.
Boeing hringdi því í Icelandair.
Samtök iðnaðarins birtu greiningu
um upplýsingatækniiðnaðinn, þar
sem fram kom að þrátt fyrir mikinn
vöxt væri verðmætasköpun og
einkaleyfi ekki í neinu samhengi við
það sem gerist í nágrannalöndum.
Borgarlínan er hreint ekki þjóð-
hagslega hagkvæm, eins og sumir
vildu lesa úr skýrslu verkfræði- og
ráðgjafarfyrirtækja. Ragnar Árna-
son hagfræðiprófessor benti á það í
grein að forsendur þeirra útreikn-
inga væru óraunsæjar, en verra
væri að mistök væru í skýrslunni,
sem gerðu að verkum að hún væri
beinlínis þjóðhagslega óhagkvæm.
Samtök fyrirtækja í veitingarekstri
(SFV) segja að fjölmargir veitinga-
staðir, sem lokað hefur verið í plág-
unni, verði ekki opnaðir aftur. Sama
dag var tikynnt að Hótel Sögu yrði
lokað að sinni þegar síðasti gest-
urinn tékkaði sig út um helgina.
Erna Sif Arnardóttir, lektor við Há-
skólann í Reykjavík, og samstarfs-
aðilar hafa fengið vilyrði um 2,5
milljarða króna erlendan styrk til
svefnrannsókna.
Hrafn Jökulsson, rithöfundur og
skákfrömuður, hefur að undanförnu
fengist við hreinsun strandlengj-
unnar norður á Ströndum í félagi við
Veraldarvini. Hann lýsir þau viljug
til þess að ráðast í hreinsun allrar
strandlengju landsins á næstu árum
og telur að það geti þau gert hraðar,
betur og ódýrar en stjórnvöld.
Róbert Trausti Árnason, fv. sendi-
herra, lést á líknardeild, 69 ára að
aldri.
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
skýrði frá því að Kaupfélag Skag-
firðinga og dótturfyrirtæki þess
myndu fram til jóla gefa kjöt, fisk og
mjólkurvöru, 40.000 máltíðir alls, til
fólks sem ætti í erfiðleikum vegna
þjóðfélagsástandsins í heimsfaraldr-
inum. Það er langmesta matargjöf
sem um getur hér á landi.
Mun harðari sóttvarnaaðgerðir voru
kynntar á blaðamannafundi ríkis-
stjórnarinnar á föstudag. Tveggja
metra reglan verður áfram í gildi,
með einhverjum undantekningum þó,
og aukin áhersla lögð á grímunotkun.
Allt íþróttastarf og sviðslistir leggjast
af og sundlaugar og krár verða lok-
aðar. Veitingastöðum þarf áfram að
loka klukkan 21.00. Þrátt fyrir hóp-
smit verður sjúkrahúsum þó ekki lok-
að og útgöngubann er enn ónotað.
Bylgjur og
bárur frelsis
Þríeyki og einum betur á upplýsingafundi um veiruna. Þaðan var fátt gott að frétta í vikunni og bylgjan koðnaði lítið.
Ljósmynd/Almannavarnir
25.10.-30.10.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
510 7900
Bæjarlind 4 / 201 Kópavogur
www.FASTLIND.is
Sólvangsvegur 3
220 Hafnarfjörður
STÆRÐ: 112,6 fm FJÖLBÝLI HERB: 2-3
OPIÐ HÚS 1. NÓV. KL. 13.30-14.00
Heyrumst
Lára Þyri
Löggiltur fasteignasali
899 3335
lara@fastlind.is
Fyrir 60 ára og eldri. Laus til afhendingar. Björt og vel skipulögð
tveggja til þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við
Sólvangsveg 3 í Hafnarfirði.
Rúmgott svefnherbergi, sjónvarpshol, opið rými sem hægt er að stúka
af og útbúa sem vinnuherbergi. Stór og björt stofa með útgengi út á
hellulagða stétt þar sem möguleiki er á að setja skjólvegg. Rúmgott
þvottahús er innan íbúðar. Nýlegt parket er á opnum rýmum og í
svefnherbergi. Gott hjólastólaaðgengi er í íbúðinni og við húsið.
Verð: 57.900.000 kr.