Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Qupperneq 18
Erla Dögg segir að húsið standi á mjög lít-illi lóð og því þurfti að nýta plássið vel.Þar er til dæmis ekki pláss fyrir garð og
því var þaksvölum komið fyrir til þess að hægt
væri að njóta útiveru í húsinu.
„Lóðin er mjög lítil og því áríðandi að húsið sé
hannað með það í huga. Þar var ekki pláss fyrir
garð og þess vegna bjuggum við til „roof deck“
sem kemur vel út. Á sömu hæð er eldhúsið svo
það sé þægilegt að ná í það sem þarf. Við sóttum
innblástur í íslenska náttúru og fegurð. Við vild-
um hafa björt opin rými svo sólin í Kaliforníu
gæti fengið að flæða óhikað inn um rúðurnar og
þar er hægt að labba út á pallinn og þannig náð-
um við að láta úti- og innisvæði flæða vel sam-
an.“
Eldhúsið er á þriðju hæðinni eða nálægt úti-
svæðinu.
„Með því að hafa eldhúsið á þriðju hæðinni
var hægt að njóta útsýnisins úr því. Eldhúsið er
stílhreint og mjög skandinavískt en minnir líka
svolítið á íslenska náttúru. Steinninn á veggnum
og á eyjunni minnir svolítið á jökla Íslands,“
segir Erla Dögg.
Húsið hlaut hönnunarverðlaunin Los Angeles
Architecture Awards frá Viðskiptaráði Los
Angeles sem veitt hafa verið í 50 ár. Húsið hlaut
verðlaunin fyrir fegurð, nýsköpun og tækni.
Húsið er verðlaunað fyrir mnmMOD-
byggingartæknina og segja þau að það sé mjög
flott því það gefur tækninni meiri kynningu og
virðingu.
Þegar þau eru spurð að því hverju þau hafi
viljað ná fram með hönnun hússins, segjast þau
hafa viljað koma með náttúruna inn í húsið.
„Við settum stóra glugga og vildum hafa
rýmin björt en vildum líka hafa stórt útirými,“
segir Tryggvi.
Þið sækið mikið í íslenska náttúru í hönnun-
inni, er hún meira heillandi en sjórinn, sólin og
sandurinn í Kaliforníu?
„Ég myndi frekar segja að það væri meira
Listaverkin fara vel við
rauðappelsínugulu stólana.
Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson reka hönn-
unarfyrirtækið Minarc í Santa Monica í Kaliforníu. Þau eiga
heiðurinn af hönnun þessa húss sem er í Feneyjahverfinu í Los
Angeles. Húsið hlaut hönnunarverðlaunin Los Angeles Archi-
tecture Awards by Los Angeles Business Council og segja Erla
Dögg og Tryggvi að það sé mikil viðurkenning.
Marta María mm@mbl.is
Húsið er á mjög lítilli lóð og því þurfti
að nota hvern einasta fermetra vel.
Hér væri nú ald-
eilis hægt að hafa
það náðugt.
Sóttu innblástur í
íslenska náttúru
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.11. 2020
LÍFSSTÍLL
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara
um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru. Afsláttarverð
gilda til 22. nóvember eða á meðan birgðir endast
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
11 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
11 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
FLAIR HÆGINDASTÓLL, ÞRÍR LITIR
LJÓSBRÚNN, GRÁR OG SVARTUR
47.992 KR. 59.990 KR.
SAGA HÆGINDASTÓLL, TVEIR LITIR
GRÁR OG BRONS
71.992 KR. 89.990 KR.
DUAL HÆGINDASTÓLL. TVEIR LITIR Í
SLÉTTFLAUELI OG SVART BONDED LEÐUR.
47.992 KR. 59.990 KR.
ZED BORÐSTOFUSTÓLL.
SVART ÁKLÆÐI EÐA PU-LEÐUR.
25.492 KR. 29.990 KR.