Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Side 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.11. 2020 LÍFSSTÍLL Í kjallaraíbúð í Hlíðunum hafahjónakornin Guðjón Sveinssonog Ayça Eriskin hreiðrað um sig. Lítill hvolpur að nafni Flóki tek- ur æstur á móti gestinum og flaðrar upp um hann glaður. Guðjón á fullt í fangi með að ná þessum hnoðra af blaðamanni og býður til stofu. Ayça er þar fyrir, komin alla leið frá Ist- anbúl en er nú sest að á Íslandi. Þau kynntust fyrir rétt rúmu ári á Ís- landi og voru gift níu mánuðum síðar í Tyrklandi. Ástin bankaði nefnilega hressilega upp á og þau vissu bæði fljótt að þau vildu eyða ævinni sam- an. Ást á Menningarnótt „Ég er frá Istanbúl en í uppvext- inum fluttum við oft og bjuggum víða um land, en foreldrar mínir eru kennarar,“ segir hin 25 ára tyrk- neska Ayça. Hún kom hingað fyrst í ágúst í fyrra og það leið ekki á löngu uns hún fann ástina. „Ég hafði séð Ísland á samfélags- miðlum og fannst það heillandi land. Mig langaði að skoða og kynnast landinu þannig að ég kom hingað og var hér í þrjá mánuði. Ég kom sem sjálfboðaliði hjá World Wide Fri- ends í ágúst í fyrra til að læra um umhverfismál og landbúnað. Heima í Tyrklandi var ég í námi í fjölmiðla- fræði og var ferðin hluti af náminu. Við Guðjón hittumst svo á Menning- arnótt 2019,“ segir hún. „Við hittumst fyrst á netinu, eins og ungt fólk gerir í dag, en ákváðum sama dag að hittast. Ég fór að sækja hana til Hafnarfjarðar og við fórum svo í bíltúr í bæinn,“ segir Guðjón Sveinsson, 25 ára hljóðmaður hjá Exton og meðlimur í hljómsveitinni Rings of Gyges. „Eftir það fórum við á mörg stefnumót,“ segir Ayça og brosir. Var það ást við fyrstu sýn? „Já, það má segja það. Alla vega í lok kvöldsins pottþétt,“ segir Guð- jón. „Já, kannski. Ég vildi ekki viður- kenna það í byrjun fyrir sjálfri mér hversu fljótt hann náði að heilla mig,“ segir Ayça og segist ekki hafa hugsað út í að hún myndi falla fyrir Íslendingi. Næstu þrjá mánuði var unga par- ið óaðskiljanlegt. Farið var á ótal stefnumót og ástin blómstraði. „Svo kom nóvember og þá var komið að kveðjustund,“ segir Ayça. „Ég held að við höfum alveg vitað að við myndum hittast aftur,“ segir Guðjón og Ayça segist hafa vonast eftir að meira yrði úr sambandinu. „Við söknuðum hvort annars mik- ið, en mánuði seinna fór ég í fyrsta sinn til Istanbúl og var þar í viku,“ segir hann. Sagðir þú foreldrum þínum að þú værir ástfangin af íslenskum manni? „Já, svona eiginlega. Ég var frek- ar feimin að segja þeim frá því, en gerði það að sjálfsögðu og sýndi þeim myndir af honum,“ segir Ayça. Fastur í Tyrklandi Guðjón segist strax hafa kunnað vel við sig í Istanbúl. En eftir vikuna úti þurfti parið aftur að skiljast. „Ég var að reyna að telja hana á að koma aftur til Íslands sem fyrst, en hún var á leið í próf í janúar og átti bráðum að útskrifast. Ég náði samkomulagi við vinnuveitendur mína og fór aftur út til hennar í jan- úar. Og aftur í febrúar,“ segir Guð- jón og hlær. „Það getur nefnilega verið flókið fyrir hana að koma hingað, meira að segja á ferðamannaáritun. Það þarf að sækja um með löngum fyr- irvara og auk þess er það bara tímabundið, til þriggja mánaða,“ segir Guðjón. „Þegar þarna var komið var Covid komið til sögunnar. Við fórum til Grikklands á þessum tíma og sáum ummerki þess; fólk með grímur og takmarkanir,“ segir hann. „Maður vissi ekkert hvað myndi gerast, jafnvel ekki viku seinna. Þetta var svolítið ógnvekjandi tími,“ segir hún. „Svo í mars var farið að setja skorður á ferðalög og ég sá í hvað stefndi. Ég sá að allir viðburðir hjá Guðjón Sveinsson og Ayça Eriskin fundu ástina og kom- ust yfir margar hindranir til þess að geta verið saman. „Við vildum ekki sleppa hvort öðru“ Guðjón Sveinsson og Ayça Eriskin fundu ást- ina á Menningarnótt 2019. Þremur mánuðum síðar þurfti Ayça að fara heim til Tyrklands, en þau voru ekki tilbúin til að gleyma hvort öðru. Guðjón var því með annan fótinn í Tyrklandi og til að innsigla ástina giftu þau sig í Istanbúl í lok maí. Ungu hjónin hafa nú hafið líf sitt saman, með litla hvolpinum Flóka. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Guðjón og Ayça á brúðkaupsdaginn. Ljósmynd/Úr einkasafni 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.