Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Side 29
ekki tilfinningarnar beinlínis utan á
sér en hugsar sitt. Henni er svo sem
ekkert illa tekið. Umsjónarkonan er
ljúf á manninn og Beth eignast strax
vinkonu í hinni klúryrtu Joleen sem
kveðst bæði vera „of gömul“ og „of
svört“ til að geta gert sér vonir um
að verða ættleidd og eignast alvöru-
heimili.
Stúlkunum á munaðarleysingja-
heimilinu eru gefnar pillur sem
snemma kemur í ljós að eiga að hafa
sljóvgandi áhrif. Beth kann strax að
meta áhrifin, sérstaklega þegar hún
safnar nokkrum pillum saman og
hvolfir þeim í sig fyrir svefninn, eftir
ráðum Joleen. Lyfjafíkill stígur sín
fyrstu spor á hálli braut.
Skák er ekki fyrir stelpur
Í kjallaranum situr húsvörðurinn og
teflir við sjálfan sig. Dag einn er
Beth send þangað niður og forvitni
hennar er vakin. Hvaða leik er mað-
urinn að fást við? Húsvörðurinn
harðneitar í fyrstu að hleypa henni
að taflborðinu; skák sé ekki fyrir
stelpur, en með eljunni tekst Beth
að telja honum hughvarf. Upp frá
því á skákin hug hennar allan, hún
teflir öllum stundum, mest þó í hug-
anum með taflmönnum sem hún sér
fyrir sér í lofti svefnherbergisins.
Ekki líður á löngu þangað til Beth er
farin að máta húsvörðinn eins og að
drekka vatn. Hann kallar til skák-
kennara úr nálægum skóla og allt
fer á sama veg – Beth valtar yfir
hann. Hún er látin tefla fjöltefli við
hóp drengja úr skólanum, sem allir
eru mörgum árum eldri en hún, og
mátar þá alla á rúmri klukkustund.
Barnið býr augljóslega að snilligáfu
sem sýna þarf heiminum.
Lengra er ég ekki kominn í Gam-
bít eða Drottningarbragði (e. The
Queen’s Gambit), smáseríu í sjö
þáttum sem kom inn á efnisveituna
Netflix á dögunum. Kannski eins
gott, ég væri alveg líklegur til að
kjafta miklu meiru í ykkur og eyði-
leggja þannig fyrir ykkur upplif-
unina. Og mögulega líf ykkar í víð-
ara samhengi.
Við erum ekki að tala um sanna
sögu, Beth Harmon var aldrei til af
holdi og blóði, heldur er hún hugar-
fóstur rithöfundarins Walters Tevis,
sem sendi skáldsöguna Drottningar-
bragð frá sér árið 1983. Féll hún
strax í frjóa jörð en Tevis naut þess
ekki lengi því hann lést ári síðar, að-
eins 56 ára að aldri. Banamein hans
var lungnakrabbi. Tevis er einnig
þekktur fyrir skáldsögurnar The
Hustler, The Color of Money og The
Man Who Fell to Earth sem allar
voru kvikmyndaðar.
Byggt á eigin reynslu
Í samtali við The New York Times
árið 1983 kvaðst Tevis byggja sög-
una að einhverju leyti á eigin
reynslu en hann kolféll ungur fyrir
skáklistinni. Fannst þó alltaf erfitt
að mæta andstæðingum sínum undir
fjögur augu og stökk því hæð sína í
loft upp í fullum herklæðum þegar
skáktölvur komu fram á sjónar-
sviðið. Eftir það tefldi hann mest við
þær. „Þá get ég alltaf kippt úr sam-
bandi,“ sagði hann við The New
York Times.
Sjálfur ánetjaðist hann lyfjum
sem barn eftir að hafa greinst með
hjartakvilla. Í viðtalinu viðurkennir
hann að sá þáttur sögunnar hafi tek-
ið verulega á en um leið verið hreins-
andi fyrir sig.
Tevis leit á Drottningarbragð sem
virðingarvott við klárar konur. „Ég
kann að meta Beth vegna hugrekkis
hennar og gáfna. Sú var tíðin að
margar konur þurftu að fela gáfur
sínar en ekki lengur.“
Frá því skömmu eftir að bókin
kom út hefur staðið til að kvikmynda
Drottningarbragð en aldrei orðið af
því af ýmsum ástæðum – fyrr en nú.
Sagan átti til að mynda að verða
frumraun Heaths Ledgers á leik-
stjórastóli en ekki varð af því vegna
sviplegs fráfalls hans árið 2008.
Ledger ætlaði sjálfur að leika í
myndinni ásamt Ellen Page, sem
átti að fara með hlutverk Beth
Harmon. Ledger er sagður hafa
tengt vel við söguhetjuna enda mik-
ill áhugamaður um skáklistina – og
forfallinn fíkill.
Maðurinn á bak við smáseríuna nú
heitir Scott Frank en hann lætur sér
ekki nægja að leikstýra heldur fram-
leiðir líka og skrifar handritið. Hann
hafði sama hátt á með aðra netflix-
seríu, Godless, fyrir þremur árum.
Ekki má reikna með framhaldi á
Drottningarbragði enda er bókinni
fylgt allt til enda í þessari seríu.
Beth Harmon í sínu besta pússi
við skákborðið, þar sem hæfi-
leikar hennar njóta sín best.
Netflix
1.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
BULL Wolfgang Van Halen, sonur
Eddies heitins, hefur skotið niður
vangaveltur þess efnis að til standi að
endurvekja bandið hans, Van Halen,
með Wolfgang sjálfum á gítar í stað
föður síns. „Allir sem eru að velta þess-
ari vitleysu fyrir sér eru ekki aðeins að
skaða aðdáendurna heldur ekki síður
mig og fjölskyldu mína,“ sagði Wolf-
gang á Facebook en hann lék á bassa í
Van Halen undir það síðasta. Sam-
kvæmt kenningunni áttu David Lee
Roth, Alex Van Halen og Michael Ant-
hony einnig að vera í bandinu.
Ekkert Van Halen án Eddies
Eddie Van Halen lést á dögunum.
AFP
BÓKSALA 21.-27. SEPTEMBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 SilfurvængirCamilla Läckberg
2 DauðabókinStefán Máni
3 Gata mæðrannaKristín Marja Baldursdóttir
4 Vampírur, vesen og annaðRut Guðnadóttir
5 PapaJesper Stein
6 ÍsskrímsliðDavid Walliams
7 VetrarmeinRagnar Jónasson
8 SykurKatrín Júlíusdóttir
9 Bakað með Elenoru RósElenora Rós Georgesdóttir
10
107 Reykjavík
Auður Jónsdóttir/
Birna Anna Björnsdóttir
1 ÍsskrímsliðDavid Walliams
2 GullráðgátanMartin Wildmark
3 BarnaræninginnGunnar Helgason
4 Randver – geggjað ævintýriJeff Kinney
5 HetjaBjörk Jakobsdóttir
6
Systkinabókin
JónaValborg Árnadóttir/
Elsa Nielsen
7
Vertu þú!
Ingileif Friðriksdóttir/
María Rut Kristinsdóttir
8 Tommi KlúðurStephan Pastis
9 Krakkalögin okkarJón Ólafsson/Úlfur Logason
10 Fíllinn fljúgandiÞorgrímur Þráinsson
Allar bækur
Barnabækur
Fyrir fjórum öldum settist séra
Robert Burton niður og yddaði
blýant. Hann þjáðist mjög af
þunglyndi og til að skrifa sig út
úr því ákvað hann
að setja saman bók
sem fékk titilinn
The Anatomy of
Melancholy. Á
litlum 1.500 blað-
síðum þylur Bur-
ton upp hvorki
meira né minna en allt sem
hrjáð getur mannskepnuna (og
læknað), með óteljandi út-
úrdúrum og tilvitnunum í allar
fræðigreinar og bókmenntir sem
hann þekkti. Og hann þekkti allt.
Þessi bók, ef bók skal kalla, hefur
setið í ýmsum hillum hjá mér
síðustu tvo áratugi, nær al-
gjörlega ósnortin. En nú eru for-
dæmalausir tímar og ég er byrj-
aður að stauta. Sjáum hvað
setur.
En það þurfa ekki allir að
skrifa þúsund blaðsíður til að
mark sé á þeim
tekið. Skáldið
Anthony Etherin
gaf í fyrra út Stray
Arts, safn ljóða
sem flestöll eru
skrifuð eftir svo
þröngum reglum
að sléttubönd og dróttkvæði
blikna í samanburði: ljóð þar
sem hver lína er stafarugl af ann-
arri, langar samhverfur sem þar
að auki byggjast á aukastöfum í
pí eða gullinsniði. Það er engin
leið að lýsa þessu. Flettið honum
upp á netinu og sjáið sjálf.
The Case Against Reality eftir
sálfræðinginn Donald Hoffman
greip athygli mína í bókabúð um
daginn. Ég er reyndar ekki nema
hálfnaður en Hoff-
man er nú þegar
búinn að reikna út
líkurnar á því að
við mannfólk get-
um skynjað heim-
inn eins og hann er
í raun og veru. Þær
eru víst núll. Hug-
myndin um að veruleikinn sé
ekki eins og hann er séður er
auðvitað ævaforn en framsetn-
ingin er skemmtileg og bókin
læsileg.
Og talandi um veruleikafirr-
ingu, þá langar mig einnig að
mæla með Surviving Autocracy.
Hér rekur Masha Gessen for-
setatíð Donalds Trump frá upp-
hafi og alveg að viðbrögðum
hans við Covid. Mér hefur fund-
ist mjög erfitt að halda áttum í
flóðinu af dægurhneykslum sem
hafa dunið yfir
undanfarin miss-
eri og svona yfirlit
er mjög hjálplegt í
óreiðunni. Gessen
rifjar upp söguna
og greinir ástand-
ið af yfirvegun og
skarpskyggni, sér-
staklega það sem snertir breyt-
ingar á tungumálinu.
Þótt jólabókaflóðið eigi vafa-
laust eftir að setja strik í reikn-
inginn, þá hef ég einna helst
augastað á skáldsögunni Piranesi
eftir Susanna Clarke næst.
EIRÍKUR GAUTI ER AÐ LESA
Útilokað að skynja
heiminn eins og hann er
Eiríkur Gauti
Kristjánsson er
fornfræðingur
og mennta-
skólakennari.