Morgunblaðið - 06.11.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.11.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell loft- hreinsitæki eru góð viðmyglu- gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr. 37.560 Verð kr. 16.890 Verð kr. 59.100 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Áhugi landsmanna var töluverður á bingókvöldi Morgunblaðsins, mbl.is og K100 sem haldið var í gær- kvöldi. „Langt umfram það sem nokkrum hefði dottið í hug,“ segir Siggi Gunnars, sem stýrði bingóinu í beinni á mbl.is, og bendir á að um 84 þúsund heimsóknir hafi verið á bingósíðuna. Fleiri vinningar næst Þessi mikla bingógleði þjóðarinn- ar var svo mikið umfram væntingar að á tímabili stóðu netþjónar ekki undir álaginu segir Siggi og heitir því að þegar bingóið fer aftur í loft- ið næsta fimmtudag verði búið að tryggja enn öflugri tengingu með fleiri netþjónum, í stærri útsend- ingu og með enn þá fleiri vinninga. „Það er greinilega mikil bingó- gleði hjá landanum og við sem stöndum að þessu erum ótrúlega þakklát fyrir viðtökurnar sem fóru fram úr okkar björtustu vonum.“ 84 þúsund heimsóknir  „Mikil bingógleði hjá landanum“ Fjör Páll Óskar var gestur bingókvöldsins, en áhugi var umfram væntingar. Að meðaltali 475 til 594 börn bíða eftir greiningu hjá Þroska- og hegðunarstöð á seinni hluta árs- ins, en almenn bið hleypur á 12 til 18 mánuðum, að því er fram kem- ur í svari Svandísar Svav- arsdóttur heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Önnu Kolbrúnar Árna- dóttur, þingmanns Miðflokksins. Spurði Anna um fjölda barna á biðlista hjá Þroska- og hegð- unarstöð ásamt lengd biðlista síð- ustu fjögur ár, sundurliðað. Kom fram í svari heilbrigðisráðherra að 390 til 470 börn hafi verið skráð á biðlista á fyrri hluta árs- ins 2020 en 475 til 594 á síðari hluta árs. Fjöldi barna á biðlista eftir greiningu hefur farið stigvaxandi frá árinu 2016 og bið forgangs- mála lengst úr 3 til 7 mánuðum í 5 til 14 mánuði. Almenn bið hefur haldist í jafnvægi og er hún 12 til 16 mánuðir. Rekstrarkostnaður starfsem- innar hefur aukist um hundrað milljónir síðan árið 2016 en ein- ingin er ekki tilgreind í fjárlögum, að því er kemur fram í svari ráð- herra við fyrirspurn um fjármagn sem veitt hefur verið til starfsem- innar síðastliðin fjögur ár. veronika@mbl.is Um 500 börn bíða greiningar  Bið forgangsmála úr 3 mánuðum í 7 Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Á sjöunda hundrað fjár verður fargað á Stóru-Ökrum 1 í Skaga- firði í gær en tvær vikur eru liðnar síðan riðuveiki greindist á bænum. „Það er bara öllu lógað í dag. Allt fullorðna féð fer í brennslu að ég best veit en restin væntanlega grafin, ég veit það bara ekki,“ seg- ir Gunnar Sigurðsson, bóndi á Stóru-Ökrum 1, í samtali við RÚV í gær. Til stendur að kynna þær leiðir sem stjórnvöld ætla að fara vegna riðuveikinnar, sem kom upp á fjór- um sauðfjárbúum í Skagafirði, í dag. Um er að ræða auk Stóru- Akra; Syðri-Hofdali, Grænumýri og Hof í Hjaltadal. Fundað um förgun Að sögn Björns Þorlákssonar, upplýsingafulltrúa Umhverfis- stofnunar, hafa fundahöld staðið yfir á milli Umhverfisstofnunar, Matvælastofnunar, atvinnu- og ný- sköpunarráðuneytisins og um- hverfis- og auðlindaráðuneytisins um næstu skref. Ákvörðun um förgun og úrganginn verður tekin af hálfu þessara aðila. Samráð hef- ur einnig verið haft við héraðs- dýralækni Norðurlands vestra. „Við vonum að það finnist góð lausn á þessu máli. Ég held að nið- urstaðan verði ásættanleg og besta mögulega lausnin finnist miðað við hvernig þetta mál er ömurlega vaxið,“ segir Björn, sem gat ekk- ert tjáð sig frekar um málið þegar mbl.is óskaði eftir frekari upplýs- ingum í gærkvöldi. „Menn fá bætur en það er mis- jafnt hvernig þær bætur hafa ver- ið. Ríkisstjórnin virðist vera tilbú- in til þess að styðja við bændur vegna þessa,“ sagði Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skaga- fjarðar, við Morgunblaðið í vik- unni. Þá þarf að fara í viðamikla hreinsun á bæjunum, sem getur einnig reynst kostnaðarsamt. Aðgerðir vegna riðu kynntar í dag  Á sjöunda hundrað fjár fargað  Von um farsæla lausn segir upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar Morgunblaðið/Eggert Fé Illa er komið fyrir fjórum býlum, en aðgerðir verða kynntar í dag. Brynjólfur Óli Árnason, veitingastjóri Jómfrúarinnar, afhendir Kristínu Jónu Einarsdóttur smurbrauð og jólabjór. Með bros á vör, verður maður að ímynda sér. Staðurinn er fyrir löngu orðinn að stofnun í íslensku samfélagi og því segir eigandi staðarins að Jómfrúnni renni blóðið til skyldunnar að gera gott við landann á erfiðum tímum. „Við höfum síðustu ár verið í sam- starfi við Ölgerðina um að kynna jólabjórinn á markað í aðdraganda hátíð- anna [og] erum í rauninni að hvetja fólk til að eiga sína Jómfrúar-stund heima,“ segir Jakob Einar Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sóttvarnaráðstafanir stöðva ekki jólabjórinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.