Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 6
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ákvörðun Dana um að lóga öllum minkum í landinu vegna kórónuveik- innar kom Einari E. Einarssyni, for- manni Sambands íslenskra loðdýra- bænda, á óvart. Hann segir að strax og umræða hafi byrjað í Danmörku um smit í minkabúum hafi minka- bændur hérlendis fengið tilmæli um að gæta vel að smitvörnum og að utanaðkomandi fólk umgengist ekki dýrin. Ekki væru grunsemdir um smit í minkabúum hér. Einar segir að mörgum spurning- um sé ósvarað um aðgerðirnar í Danmörku. Vissulega séu sterkar líkur á að fólk geti smitast af mink- um og í Danmörku séu margir mink- ar á stórum búum. Þar óttist menn að margar stökkbreytingar geti orðið sem ógni virkni bóluefna, sem aftur geti valdið faraldri með nýrri veiru. Aðrir sérfræðingar mótmæli þessu hins vegar og segi að stökkbreyt- ingar í minkum séu ekki hættulegri en meðal manna. Sýking á 200 búum af 1.150 Hann segir kórónuveiruna í mink- um lýsa sér þannig að dýrin missi át- lystina í 3-5 daga, en séu yfirleitt fljót að ná sér og mynda mótefni. Afföll hafi aukist úr 0,1-0,2% í 0,3-0,4% og einkum hafi gömul dýr og dýr með undirliggjandi lungnasjúkdóma drep- ist. Á Íslandi eru nú starfandi níu minkabú á Norðurlandi vestra og Suðurlandi með alls 15 þúsund eldis- læðum, sem framleiða um 60 þúsund skinn á ári. Í Danmörku eru 1.150 framleiðslueiningar, margar mjög stórar, og framleiðslan um 12 millj- ónir skinna á ári. „Ég vil ekki gera lítið úr vand- anum en undrast mjög hversu rót- tækar og umfangsmiklar þessar að- gerðir eru,“ segir Einar. „Af 1.150 minkabúum í Danmörku eru um 200 bú sýkt, en eigi að síður er allt skorið og ekki tekið tillit til þess að á mörg- um búum hafa dýrin myndað mótefni og á stórum svæðum, eins og á Fjóni og Sjálandi, hefur veikin ekki borist í minka.“ Hann segir að nú þegar tapist um sex þúsund störf í Danmörku, ekki aðeins á búunum sjálfum heldur einnig í afleiddum störfum. Um sé að ræða stóra atvinnugrein og nefn- ir fóður, tæki og búnað, ráðgjöf og dýralæknaþjónustu í því sambandi. Útflutningur á minkaskinnum frá Danmörku hafi skapað margra milljarða tekjur í dönskum krónum á hverju ári. Aukin spurn eftir skinnum Dönsk yfirvöld leyfa ekki að skinn frá sýktum búum eða innan tiltekinna svæða í kringum sýkt bú fari í sölu þó svo að þau séu ósýkt. Það þýði að af skinnum af 14 millj- ónum dýra sem eigi að aflífa í Dan- mörku á næstunni fari um helm- ingur í sölu og helmingi verði eytt. Einar segir því blasa við að færri skinn verði boðin upp á næstu misserum og ætla megi að það hafi áhrif á verð til hækkunar. Undanfarið hafi komið vísbend- ingar frá uppboðshúsum um vax- andi spurn eftir skinnum í Asíu. „Síðast í morgun fékk ég upplýs- ingar um að Kínverjar vilji kaupa allt sem hægt er að kaupa. Ein sviðsmyndin er að verð hækki upp úr öllu valdi á næsta uppboði, sem áætlað var að halda í febrúar, en það kann að breytast “ segir Ein- ar. Undrast róttækar aðgerðir Dana  Danir ákveða að lóga öllum minkum vegna kórónusmits  Óttast að stökk- breytt veira berist í fólk og ógni virkni bóluefna  Ekki grunur um smit hér AFP Jótland Peter og Trine Brinkmann Nielsen flögguðu í hálfa stöng í gær, en þau þurfa að lóga 250 þúsund minkum. Morgunblaðið/Björn Jóhann Formaður Einar E. Einarsson segir mörgum spurningum ósvarað. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla 2012 2020 Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Hlíðarskjól ehf. um opn- un 10 rýma hjúkrunardeildar fyrir aldraða hjúkrunarsjúklinga sem smitast hafa af Covid-19. Heilbrigðisráðherra staðfesti samninginn í gær. Félagið Hlíðarskjól er í eigu sjálfseignarstofnunarinnar Eirar sem rekur samnefnt hjúkrunar- heimili við Hlíðarhús 7 og verður hjúkrunardeildin rekin innan veggja þess, segir í tilkynningu. Deildin er annars vegar ætluð íbúum hjúkrunarheimila sem veikst hafa af Covid-19 og þurfa tímabundið á sérhæfðri þjónustu að halda og hins vegar sjúklingum með gilt færni- og heilsumat sem lokið hafa meðferð á sjúkrahúsi vegna veirunnar en geta ekki út- skrifast heim. Markmið samningsins er að tryggja covid-smituðum ein- staklingum, sem búa á hjúkr- unarheimilum, einstaklingsmiðaða, heildræna og örugga heilbrigðis- þjónustu á sérstakri hjúkr- unardeild meðan á veikindum stendur. Rekstraraðilar og starfsfólk hjúkrunarheimilisins Eirar hafa reynslu af þjónustu við aldraða sem veikst hafa af Covid-19 og sinntu um tíma fimm sjúklingum sem voru saman á einingu meðan á veikindum stóð. Í samningnum er gert ráð fyrir að þjónusta á deildinni verði sambærileg þeirri þjónustu. Samningurinn er tímabundinn og gildir til 28. janúar 2021 með möguleika á framlengingu um 30 daga að hámarki. Sérstök deild á Eir fyrir Covid Morgunblaðið/Eggert Eir Þar verða opnuð 10 rými fyrir aldraða smitaða af Covid-19.  Sjúkratrygg- ingar semja um 10 rými fyrir smitaða Í ljósi smita af stökkbreyttu af- brigði kórónuveiru úr minkum í fólk í Danmörku ætlar Matvæla- stofnun að hefja skimun fyrir kórónuveiru á minkabúum landsins, segir í frétt frá MAST. Dýr á öllum minkabúum lands- ins verða skimuð, en eftir er að útfæra nánar hvernig staðið verður að þessu verkefni. Ekki er grunur um að kórónuveiru- smit hafi komið upp á minka- búum hérlendis og litlar líkur eru taldar á smiti yfir í villta minkastofninn þar sem um- gengni við menn er í lágmarki. Tilkynna skal grun um veik- indi í minkum til Matvælastofn- unar. Ef smit greinist á búunum verða frekari aðgerðir skoðaðar í samráði við heilbrigðisyfirvöld. Sú ákvörðun Dana að skera allan minkastofn í landinu vegna veikinnar setur málið í nýtt ljós, að mati Sigríðar Gísla- dóttur, sérgreinadýralæknis hjá MAST. Hún segir að vel hafi ver- ið fylgst með þróuninni í þeim löndum þar sem veiran hefur greinst í minkum allt þetta ár. Minkabændur hafi fengið til- mæli um að vera vakandi fyrir einkennum, viðhafa miklar smitvarnir og verið beðnir að umgangast minkana eins og um áhættuhóp væri að ræða. Sér- staklega hafi verið varað við því að fólk með grun um smit vinni með dýrin. Þá hafi MAST einnig verið í samskiptum við sótt- varnayfirvöld. Sigríður segir að í Danmörku hafi veiran farið úr manni yfir í mink og síðan á milli minka. Þaðan hafi hún farið aftur yfir í menn og segir hún ástæðu nið- urskurðarins vera að veiran sé orðin það stökkbreytt að bólu- efni sem nú eru í þróun dugi ekki gegn henni. aij@mbl.is Skimun á minkabúum MILLI MINKA OG MANNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.