Morgunblaðið - 06.11.2020, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
Rekstur hjúkrunarheimila - þjónusta við aldraða
á markaðnum, Öldungur hf. sem
rekur Sóltún og nýja Sólvang í
Hafnarfirði.
Ríkið bætir við sig
Heilbrigðisstofnanir á landsbyggð-
inni hafa lengi haft hlutverk í rekstri
hjúkrunarheimila, einkum þar sem
sjúkrahús eru eða voru. Þessar
stofnanir hafa sums staðar tekið við
rekstri nýrra heimila sem sveitar-
félögin hafa beitt sér fyrir, svo sem á
Ísafirði, Sauðárkróki, Egilsstöðum
og Húsavík. Á síðastnefnda staðnum
bera sveitarfélögin ábyrgð á rekstri
Hvamms en sömdu við Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands um stjórnun og
rekstur.
Það er seinnitímamál að fyrirtæki
ríkisins taki við rekstri hjúkrunar-
heimila á höfuðborgarsvæðinu. Það
gerðist þegar Sunnuhlíð í Kópavogi
lenti í erfiðleikum. Þá var fyrirtæki
ríkisins, Vigdísarholti, falinn rekst-
urinn. Þegar ekki náðust samningar
um útboð á rekstri nýs hjúkrunar-
heimilis á Seltjarnarnesi vegna þess
að bærinn treysti sér ekki til að taka
ábyrgð á rekstrinum var sama félagi
falið að reka heimilið.
Er nú svo komið að ríkið sjálft er
komið með 481 hjúkrunar- og dval-
arrými í rekstur og ef öll heimilin
eru lögð saman er ríkið orðið næst-
stærsti leikandinn á þessum mark-
aði.
Og hlutur ríkisins getur vaxið
hröðum skrefum á næstunni ef
áform sveitarfélaga um að skila
rekstri hjúkrunarheimila til ríkisins
ganga eftir. Þegar liggur fyrir að
Akureyrarbær mun skila öldrunar-
stofnunum bæjarins til ríkisins um
áramót. Ekki hefur verið ákveðið
hver tekur við þeim pakka, eftir því
sem næst verður komist, en Heil-
brigðisstofnun Norðurlands er í
bakhöndinni ef enginn annar kostur
finnst.
Framlögin lækkuð
Erfiðleikar í rekstri hjúkrunar-
heimila eru ekki nýir af nálinni. Fé-
lög sem að þeim standa og sveitar-
félög hafa verið í stöðugri baráttu til
að geta haldið sjó.
Gísli Páll Pálsson, forstjóri
Grundarheimilanna og formaður
Samtaka fyrirtækja í velferðar-
þjónustu, segir að þeir sem flytjast
inn á hjúkrunarheimili nú séu veik-
ari og dvelji þar í skemmri tíma en
áður var. Það útheimti sífellt meiri
og flóknari læknis- og hjúkrunar-
þjónustu. Þá segir hann að starf-
semin hafi á síðustu árum verið að
breytast úr því að vera eingöngu
dvalar- og hjúkrunarheimili í að
vera líknarstofnanir að hluta. Áður
voru veikir heimilismenn gjarnan
sendir á sjúkrahús, þar sem þeir
dóu, en nú deyja þeir nánast allir á
sínu hjúkrunarheimili. Gísli Páll
segir að það sé stefna heimilanna að
leyfa þeim að deyja í því umhverfi
enda sé það manneskjulegra og
betra fyrir alla. Fram kom í viðtali
við Kristin Jónasson, bæjarstjóra í
Snæfellsbæ, í blaðinu í gær að líkn-
andi meðferð heimilisfólks kallaði á
aukna mönnun og aukakostnað.
Daggjöld ríkisins sem Sjúkra-
tryggingar greiða eiga að standa
undir rekstri hjúkrunarheimilanna
en gera það ekki. Forstjórar hjúkr-
unarheimila segja að ekki hafi feng-
ist fullar bætur vegna aukins kostn-
aðar, til dæmis launahækkana. Þá
er í fjárlögum næsta árs boðuð hálfs
prósents hagræðingarkrafa, fjórða
árið í röð. Það þýðir á mannamáli að
framlög til umönnunar heimilisfólks
eru lækkuð.
Gísli Páll hefur vakið athygli á
þessu í aðsendum greinum í Morg-
unblaðinu og segir að þessi niður-
skurður á sama tíma og nær öll önn-
ur heilbrigðisþjónusta fái hækkanir
umfram launa- og verðlagshækk-
anir sé til þess gerður að svelta
öldrunarheimilin svo mikið að þau
gefist upp og skili rekstrinum til
ríkisins. Hann segist standa við
þessi ummæli í samtali við Morgun-
blaðið og kallar eftir rökum fyrir
þessari mismunun. María Fjóla
Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu,
kallar eftir gagnsæi í því hvað ríkið
greiðir eigin stofnunum, til dæmis
Vífilsstöðum, sem er biðstofnun og
veitir eðli sínu samkvæmt minni
þjónustu en hjúkrunarheimili þar
Daggjöldin duga ekki
Erfiðleikar eru í rekstri hjúkrunarheimila þar sem daggjöld ríkisins duga ekki fyrir kostnaði
Dregið er úr þjónustu við heimilisfólk og viðhaldi frestað Unnið að greiningu á vandanum
Hjúkrunarheimili landsins og rekstrarform
Hrafnistuheimilin Rými
Reykjavík – Laugarás 193
Reykjavík – Skógarbær 82
Reykjavík – Sléttuvegur 99
Hafnarfjörður 195
Garðabær – Ísafold 60
Kópavogur – Boðaþing 44
Reykjanesbær – Nesvellir 60
Reykjanesbær – Hlévangur 30
763
Grund Rými
Grund, Reykjavík 222
Mörk, Reykjavík 113
Ás/Ásbyrgi, Hveragerði 128
463
Eir/Skjól Rými
Eir, Reykjavík 185
Skjól, Reykjavík 107
Hamrar Mosfellsbæ 33
325
Ríkisstofnanir Rými
Vigdísarholt: Sunnuhlíð, Kóp. 70
Vigdísarholt: Seltjörn, Seltj.n. 40
HSS, Grindavík 20
HSS, Reykjanesbær 5
HVE, Akranes 15
HVE, Stykkishólmur 7
HVE, Hólmavík 10
HVE, Hvammstangi 18
HVEST, Patreksfjörður 11
HVEST, Þingeyri 6
HVEST, Ísafjörður 30
HVEST, Bolungarvík 10
HSN, Blönduós 22
HSN, Sauðárkrókur 45
HSN, Siglufjörður 20
HSN, Húsavík 23
HSA, Egilsstaðir 30
HSA, Seyðisfjörður 18
HSA, Neskaupstaður 21
HSU, Selfoss 51
HSU, Vestmannaeyjar 9
481
Rými
alls
Hjúkrunarrými Dvalar-
rýmiStaður Öldrunarheimili Alm. Önnur
Reykjavík
Droplaugarstaðir 81 78 3
Eir 185 161 24*
Grund 192 181 11
Hrafnista 193 193
Seljahlíð 20 20
Skjól 107 107
Skógarbær 82 70 11* 1
Sóltún 92 92
Mörk 113 83 30
Hrafnista, Sléttuvegur 99 99
Hafnarfjörður
Hrafnista 195 187 8
Sólvangur (Sóltún) 98 98
Garðabær Hrafnista – Ísafold 60 60
Kópavogur
Sunnuhlíð 70 66 4**
Hrafnista Boðaþing 44 44
Roðasalir 11 11
Seltjarnarnes Seltjörn 40 40
Mosfellsbær Hamrar (Eir) 33 33
Grindavík Heilbrst. Suðurnesja,
Víðihlíð
20 20
Reykjanesbær
Heilbrst. Suðurnesja 5 5*
Nesvellir 60 60
Hlévangur 30 30
Akranes
Höfði 74 65 9
Heilbrst. Vesturlands 15 15
Borgarnes Brákarhlíð 54 37 17
Ólafsvík Jaðar 17 12 5
Grundarfjörður Fellaskjól 12 10 2
Stykkishólmur
Dvalarheimili aldraðra 16 15 1
Heilbrst. Vesturlands 7 7
Búðardalur Silfurtún 12 10 2
Dalabyggð Fellsendi 27 27***
Reykhólar Barmahlíð 16 14 2
Hólmavík Heilbrst. Vesturlands 10 10
Rými
alls
Hjúkrunarrými Dvalar-
rýmiStaður Öldrunarheimili Alm. Önnur
Hvammstangi Heilbrst. Vesturlands 18 18
Patreksfjörður Heilbrst. Vestfjarða 11 11
Þingeyri Heilbrst. Vestfjarða 6 6
Ísafjörður Heilbrst. Vestfjarða, Eyri 30 30
Bolungarvík Heilbrst. Vestfjarða 10 10
Blönduós Heilbrst. Norðurlands 31 22 9
Skagaströnd Sæborg 9 9
Sauðárkrókur Heilbrst. Norðurlands 54 45 9
Siglufjörður Heilbrst. Norðurlands 20 20
Ólafsfjörður Hornbrekka 26 21 5
Dalvík Dalbær 38 27 11
Akureyri Öldrunarheimili
Akureyrar
171 160 3*** 8
Grenivík Grenilundur 9 8 1
Húsavík
Heilbrst. Norðurlands 23 23
Hvammur 40 31 9
Þórshöfn Naust 14 11 3
Vopnafjörður Sundabúð 11 10 1****
Egilsstaðir Heilbrst. Austurlands
– Dyngja
30 30
Seyðisfjörður Heilbrst. Austurlands 18 18
Eskifjörður Hulduhlíð 20 20
Neskaupstaður Heilbrst. Austurlands 12 12
Fáskrúðsfjörður Uppsalir 20 20
Hveragerði Ás/Ásbyrgi 128 47 39*** 42
Eyrarbakki Sólvellir 19 8 11
Selfoss Heilbrst. Suðurlands 42 42
Hella Lundur 33 33
Hvolsvöllur Kirkjuhvoll 32 31 1
Vestmanna-
eyjar
Hraunbúðir 35 31 4
Heilbrst. Suðurlands 9 9
Vík Hjallatún 15 15
Kirkjubæjar-
klaustur Klausturhólar 19 17 2
Höfn Skjólgarður 30 24 6
Alls 3.073 2.747 147 179
Heimild: Heilbrigðisráðuneytið
Rekstrarform: Sveitarfélög Sjálfseignarstofnun Ríkið Einkafyrirtæki
*Endurhæfingarrými **Hvíldar- og endurhæfingarrými ***Geðhjúkrunarrými ****Sjúkrarými
Fjöldi hjúkrunar- og dvalarrýma Stærstu rekstraraðilar hjúkrunar- og dvalarheimila
Rekstraraðili Rými Hlutf.
Hrafnistu heimilin 763 25%
Ríkisstofnanir 481 16%
Grundarheimilin 463 15%
Eir/Skjól 325 11%
Sóltún öldrunar-
þjónusta
190 6%
Akureyrarbær 160 5%
Reykjavíkurborg 101 3%
Aðrir 590 19%
Samtals
3.073
hjúkrunar- og
dvalarrými
Gísli Páll Pálsson María Fjóla Harðardóttir Regína Ásvaldsdóttir
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kostnaður við umönnun heim-
ilisfólks á hjúkrunarheimilum hefur
aukist og daggjöldin sem Sjúkra-
tryggingar greiða standa ekki undir
kostnaði. Meira að segja sjálfseign-
arstofnanirnar sem eru með mörg
heimili og hundruð hjúkrunarplássa
ná ekki endum saman og kanna
leiðir til að komast út. Niðurstöður
hóps sem greinir raungögn um
rekstur og rekstrarkostnað hjúkr-
unarheimila eru ekki væntanlegar á
næstunni.
Nú eru starfrækt 65 hjúkrunar-
heimili á landinu. Þau eru með 2.747
almenn hjúkrunarrými, 147 sérhæfð
hjúkrunarrými svo sem geðhjúkr-
unar- og endurhæfingarrými og
nokkur eru með fáein dvalarrými en
þeim hefur farið mjög fækkandi.
Alls eru rýmin 3.073, miðað við tölur
frá síðasta ári þegar bætt hefur ver-
ið við nýjum heimilum.
Hjúkrunarheimilin eru ákaflega
misjöfn að stærð, allt frá því að vera
með fimm heimilismenn og upp í
193.
Rekstrareiningarnar eru mun
færri því stóru hjúkrunarheimilin á
suðvesturlandi, Hrafnista og Grund,
hafa mörg heimili undir sínum hatti.
Hrafnista hefur markvisst stefnt að
stækkun með því að taka við nýjum
heimilum og er nú langstærst, eins
og sést á meðfylgjandi grafi. Með
því telur sjálfseignarstofnunin sig
geta hagrætt í ýmislegri stoðþjón-
ustu.
Flest heimilin eru rekin af sjálfs-
eignarstofnunum, sveitarfélagi eða
sveitarfélögum saman og ríkisstofn-
unum. Aðeins eitt einkafyrirtæki er
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjálfseignarstofnun Sömu stjórnendur eru yfir hjúkrunarheimilunum Eir
í Grafarvogi, Skjóli við Kleppsveg og Hömrum í Mosfellsbæ.