Morgunblaðið - 06.11.2020, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Mynd í
ferilskrá
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Förum eftir öllum
sóttvarnartilmælum
EIN STÓR
FJÖLSKYLDA
Hver einasti meðlimur Colgate-fjölskyldunnar
finnur tannbursta, tannkrem og aðrar tannhirðu-
vörur við sitt hæfi.Velkomin í fjölskylduna!
6. nóvember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 139.78
Sterlingspund 182.14
Kanadadalur 106.35
Dönsk króna 22.01
Norsk króna 14.965
Sænsk króna 15.856
Svissn. franki 153.54
Japanskt jen 1.3403
SDR 197.77
Evra 163.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 196.2743
Hrávöruverð
Gull 1888.55 ($/únsa)
Ál 1891.0 ($/tonn) LME
Hráolía 40.13 ($/fatið) Brent
● Hagnaður fast-
eignafélagsins
Regins nam 67
milljónum króna á
þriðja ársfjórð-
ungi. Dróst hann
saman um 95%
miðað við sama
tímabil í fyrra
þegar hann nam
1.398 milljónum króna. Leigutekjur
drógust lítillega saman eða um 9
milljónir. Hins vegar jókst rekstr-
arkostnaður um rúmar 100 milljónir
og þá voru matsbreytingar fjárfest-
ingaeignar aðeins jákvæðar um 109
milljónir en voru jákvæðar sem nam
1.080 milljónum króna á þriðja árs-
fjórðungi í fyrra.
Eigið fé Regins nam 45,2 millj-
örðum í lok þriðja ársfjórðungs og
hafði dregist saman um 873 milljónir
króna frá áramótum. Skuldir félags-
ins hafa hins vegar aukist á tíma-
bilinu. Standa þær nú í um 104 millj-
örðum en voru tæpir 99 milljarðar
um áramót. Á fyrstu níu mánuðum
ársins nemur hagnaður Regins 162
milljónum króna en nam 3.545 millj-
ónum á fyrstu níu mánuðum ársins
2019. Munar þar langmestu um virð-
isbreytingar fjárfestingareigna sem
lækka um 3.220 milljónir milli ára.
Hagnaður Regins dregst
mikið saman milli ára
STUTT
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Courtyard-hótelið gegnt Keflavíkur-
flugvelli var opnað í byrjun október.
Fyrstu vikurnar hafa hermenn í
bandaríska flughernum verið áber-
andi meðal gesta.
Hótelið er hluti
af Marriott-hótel-
keðjunni og heitir
á ensku Court-
yard by Marriott
Reykjavik Kefla-
vik Airport.
Þegar Morgun-
blaðið leit við á
hótelinu síðasta
sunnudaginn í
október voru viðhafðar strangar
sóttvarnir á hótelinu og var öðrum
en gestum ekki hleypt inn í húsið.
„Þetta sýnir að starfsfólkið er vel
þjálfað. Með góðum sóttvörnum er
verið að vernda bæði starfsfólk og
gesti,“ segir Hans Prins hótelstjóri
um þessar ráðstafanir.
Alls eru 150 herbergi á hótelinu
sem er samsett einingahús.
Spurður um herbergjanýtinguna
segir Prins hana vera trúnaðarmál
en upplýsir þó að vel hafi gengið að
bóka herbergi fyrsta mánuðinn í
rekstrinum. Meðal viðskiptavina hafi
verið hermenn bandaríska flughers-
ins en staðsetningin henti þeim afar
vel. Hótelið sé nú opið fyrir öllum
viðskiptavinum.
Prins segir aðspurður að fjöldi
starfsmanna taki mið af herbergja-
nýtingunni. Á hótelinu starfi bæði
fastráðnir og fólk í hlutastarfi.
Fjögurra stjarna hótel
„Reksturinn hefur gengið vel við
erfiðar aðstæður í efnahagslífinu.
Verðið fyrir gistinguna er mjög
sanngjarnt miðað við gæðin. Court-
yard-hótelin eru fjögurra stjarna og
eitt 30 vörumerkja sem heyra undir
Marriott-keðjuna,“ segir Prins.
Nýja Courtyard-hótelið í Reykja-
nesbæ sé því vel samkeppnishæft.
Staðsetningin skipti þar miklu máli.
„Staðsetningin er okkur afar
mikilvæg. Hún á mikinn þátt í vel-
gengni okkar fyrsta mánuðinn og
mun eiga þátt í velgengni okkar í
framtíðinni. Það er svo sannarlega
þörf fyrir svona hótel á svæðinu,“
segir Prins. Hótelið henti meðal ann-
ars sem fyrsti og síðasti dvalar-
staður á ferðalagi um Ísland.
Spurður um framtíðarhorfur í
rekstrinum bendir Prins á fjölgun
farþega frá Keflavíkurflugvelli síð-
ustu ár, áður en faraldurinn skall á.
„Það er ekki nokkur spurning að
það er spurn eftir þessu vörumerki á
markaðnum. Ég er mjög bjartsýnn á
horfurnar. Erlendum ferðamönnum
mun fjölga á ný.“
Löng reynsla af hótelrekstri
Prins er Hollendingur og hefur
starfað við hótelrekstur í 35 ár.
Courtyard-hótelið í Keflavík er
fimmta hótelið sem hann opnar fyrir
Marriott-keðjuna í Evrópu.
Prins hóf störf hjá Marriott-keðj-
unni í mars 2015 en starfaði áður hjá
Corinthia Hotels í St. Pétursborg og
þar áður hjá Carlson Rezidor Hotel
Group í Rússlandi.
„Mér leið strax eins og heima hjá
mér við komuna til Íslands. Fólkið er
mjög vingjarnlegt og hér er mikil
náttúrufegurð. Ég sé mikil tækifæri
fyrir hótelið á Íslandi,“ segir Prins.
Mun styrkja samfélagið
Spurður hvernig það sé að koma
úr þéttbýlinu í Hollandi til dreifðari
byggðar í Reykjanesbæ segist Prins
una sér vel suður með sjó. Hann hafi
alist upp á bóndabæ í Hollandi og
hafi reynslu af því að búa úti á landi.
„Ein ástæða þess að ég tók þetta
verkefni að mér er að ég vil sjá
Reykjanesbæ og Keflavík dafna.
Þetta hótel mun hafa jákvæð áhrif á
samfélagið. Ég hef starfað í stór-
borgum þar sem eitt hótel til eða frá
breytir ekki miklu en það skiptir
máli fyrir Reykjanesbæ að hótelið sé
komið í rekstur,“ segir Prins.
Marriott-hótelið við Kefla-
víkurflugvöll tekið í notkun
Gegnt flugstöðinni Hótelið er við Aðaltorg en þaðan blasa farþegaþoturnar við.
Hótelstjóri segir vörumerkið styrkja ferðaþjónustuna Hermenn meðal gesta
Hönnun Seturými við móttökuna á Courtyard-hótelinu.
Hans Prins
Ljósmyndir/Courtyard-hótelið
● Samherji hefur gert öðrum hlut-
höfum Eimskipafélagsins yfirtökutilboð
í samræmi við lög en eftir að fyrirtækið
eignaðist meira en 30% í skipafélaginu
bar því að leggja slíkt tilboð fram. Sam-
kvæmt tilboðinu er Samherji reiðubú-
inn að greiða 175 krónur fyrir hvern
hlut í Eimskipafélaginu. Er það talsvert
lægra verð en markaðurinn hafði
ákvarðað við lokun Kauphallarinnar á
miðvikudag. Þá stóðu bréf félagsins í
188,5 krónum á hlut. Í tilkynningu frá
Samherja kemur fram að tilboðið byggi
á sama verði og Samherji greiddi fyrir
0,29% hlut í félaginu þann 21. október
síðastliðinn en í þeim viðskiptum mynd-
aðist skylda til framlagningar yfirtöku-
tilboðs. Lækkuðu bréf Eimskipafélags-
ins í viðskiptum gærdagsins um 1,3%
og standa því í 186 krónum á hlut.
Tilboðið talsvert undir markaðsgengi Samherja