Morgunblaðið - 06.11.2020, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
Sóðaskapur Notendur rafhlaupahjóla skilja þau oft eftir á verstu stöðum, eins og hér á miðri gangstétt við Suðurgötu, gangandi vegfarendum til ama og sér í lagi blindum og sjónskertum.
Árni Sæberg
Þegar ferðast er um Ísland reyna heima-
menn að sýna gestum betri hliðina. Betri hliðin
er oftar en ekki eitthvað gamalt, og jafnvel nýtt
og nýstárlegt og nýsmíðaðar fornminjar.
Stundum er þetta gamla frá umliðnum öldum,
jafnvel af fyrri öldum jarðsögunnar.
Þannig er Gerpir á sínum stað, þeim til sýnis
sem þangað leggja leið sína. Gerpir er á elsta
hluta landsins. Nærri Gerpi er Helgustað-
anáman með sitt silfurberg. Silfurberg er kísil-
útfelling úr heitu vatni. Nú er jarðhitinn horf-
inn í silfurbergsnámunni. Gerpir og
Helgustaðanáman eru sköpun náttúrunnar.
Um allt land eru söfn með amboðum, lóðum,
krókum og heimasmíðuðum heflum. Allt voru
þetta atvinnutæki síns tíma. Svo þykir til siðs
að koma upp samgönguminjasöfnum með
gömlum ökutækjum.
Í Neskaupstað er Listasafn Tryggva Ólafs-
sonar, en þar fæddist hann.
Sum þessara safna eru staðbundin frægð en
önnur kunna að ná alþjóðlegum mælikvarða.
Ljósmyndin í myndlist
Lengi hefur verið litið á ljósmyndun sem
tómstundagaman. Þegar ljósmyndin eldist
verður myndin skyndilega heimild. Einstaka
ljósmynd verður að listaverki. Fangað augna-
blik. Ljósmyndin er í eðli sínu listaverk.
Ljósmyndir Hjálmars R. Bárðarsonar frá
sumrinu 1937, þegar hann tók stúdentspróf,
eru einstök heimild um byggð sem var að fjara
út, deyja, byggðin á Hornströndum hvarf tíu
árum síðar. Í þessum heimildum um deyjandi
byggð eru myndir sem eru hreint listaverk.
Kirkjan á Stað í Aðalvík í auga myndavélar
Hjálmars er listaverk.
Ljósmyndun er vanmetin listgrein. Kon-
septið í augnablikinu fer á ljóshraða. Það þyk-
ir hentugra en að fanga augnablikið í olíu á
striga eða með vatnslitum á pappír. Íslensk
sjónmennt byggðist á því að ná hinu upphafna
í landslaginu og fanga hið þjóðlega á þeim
augnablikum þegar tímamót voru í aðsigi í ís-
lenskri stjórnskipan eða þjóðarsögu. Þannig
verða Þingvellir og fjallkonan að þjóð-
artáknum.
Ljósmyndin er frjálst listform en byggist á
aga og þekkingu. Fjölmargir íslenskir mynd-
listarmenn hafa náð aganum og náð konsept-
inu í augnablikinu.
Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður
er afar fjölhæfur. Verk hans í steini, hinum
harða listmiðli, hafa mikið aðdráttarafl á
bryggjunni á Djúpavogi. Þó kann að vera að
Sigurður sé þekktastur fyrir verk sín í ljós-
myndinni.
Hrafnkell Sigurðsson myndlistarmaður er
listamaður konseptsins í ljósmyndinni. Verk
hans fjalla um andstæður og árekstra. Milli
hárfínnar menningar og hrjúfrar náttúru.
Mörg verkanna eru þekkt um allan heim.
Samtímalistasafn (NÓMAH)
Djúpivogur er merkilegt byggðarlag. Ýms-
um kann að koma á óvart að þar er rík ljós-
myndahefð. Nikólína Weywadt á Teigarhorni
er einn fyrsti ljósmyndarinn á Austurlandi.
Fósturdóttir hennar, Hansína Regína Björns-
dóttir, hélt áfram starfi hennar í ljósmyndun
á Teigarhorni. Sumar af þeirra myndum eru
merkar heimildir um Djúpavog, en þær eru
jafnframt listaverk. Sumt er tækt á NÓMAH
fyrir konseptið, augnablik liðinna alda.
Það eiga alls ekki öll listasöfn að vera í
Reykjavík. Hugmynd að listasafni þarf að
byggjast á truflaðri hugmynd og áræði. Þekk-
ing á efninu er einnig nauðsynleg.
NÓMAH á Djúpavogi getur orðið perla ís-
lenskra listasafna með alþjóðlega tengingu í
tengslaneti Sigurðar Guðmundssonar.
Vandamál nýrra listasafna er að ná í verk
sem hæfa. Sigurður Guðmundsson og vinir
hans sjá um öflun verka í NÓMAH á Djúpa-
vogi. Hver vill ekki eiga verk í safni í litlum
bæ?
Ef Samtímalistasafnið NÓMAH á Djúpa-
vogi tekst kemst Ísland á heimskort samtíma-
myndlistar.
Hvað segir skáldið?
Sá tími er löngu liðinn, að við getum séð fyrir
okkur cosmotheros,
áhorfanda heimsins.
Hann er liðinn undir lok því heimurinn lætur ekki
lengur myndgera sig.
Myndgerving heimsins, heimssýnin, felur í sér að
heiminum sé gefin regla og markmið.
Þannig mætti jafnvel segja að tiltekin sýn á
heiminn feli í sér endalok þess sama heims,
sem þannig væri innlimaður og leystur upp
í þessari sömu heimssýn.
(Jean-Luc Nancy)
Eftir Vilhjálm Bjarnason
»Ef Samtíma-
listasafnið
NÓMAH á
Djúpavogi tekst
kemst Ísland
á heimskort
samtímamynd-
listar.
Vilhjálmur Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Að hugsa nýtt! Að horfa á list! NÓMAH
Staður í Aðalvík 1937, ljósmynd Hjálmars R. Bárðarsonar.
Study for Horizon eftir Sigurð Guðmundsson. Freeze Frame I eftir Hrafnkel Sigurðsson.