Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 Sóðaskapur Notendur rafhlaupahjóla skilja þau oft eftir á verstu stöðum, eins og hér á miðri gangstétt við Suðurgötu, gangandi vegfarendum til ama og sér í lagi blindum og sjónskertum. Árni Sæberg Þegar ferðast er um Ísland reyna heima- menn að sýna gestum betri hliðina. Betri hliðin er oftar en ekki eitthvað gamalt, og jafnvel nýtt og nýstárlegt og nýsmíðaðar fornminjar. Stundum er þetta gamla frá umliðnum öldum, jafnvel af fyrri öldum jarðsögunnar. Þannig er Gerpir á sínum stað, þeim til sýnis sem þangað leggja leið sína. Gerpir er á elsta hluta landsins. Nærri Gerpi er Helgustað- anáman með sitt silfurberg. Silfurberg er kísil- útfelling úr heitu vatni. Nú er jarðhitinn horf- inn í silfurbergsnámunni. Gerpir og Helgustaðanáman eru sköpun náttúrunnar. Um allt land eru söfn með amboðum, lóðum, krókum og heimasmíðuðum heflum. Allt voru þetta atvinnutæki síns tíma. Svo þykir til siðs að koma upp samgönguminjasöfnum með gömlum ökutækjum. Í Neskaupstað er Listasafn Tryggva Ólafs- sonar, en þar fæddist hann. Sum þessara safna eru staðbundin frægð en önnur kunna að ná alþjóðlegum mælikvarða. Ljósmyndin í myndlist Lengi hefur verið litið á ljósmyndun sem tómstundagaman. Þegar ljósmyndin eldist verður myndin skyndilega heimild. Einstaka ljósmynd verður að listaverki. Fangað augna- blik. Ljósmyndin er í eðli sínu listaverk. Ljósmyndir Hjálmars R. Bárðarsonar frá sumrinu 1937, þegar hann tók stúdentspróf, eru einstök heimild um byggð sem var að fjara út, deyja, byggðin á Hornströndum hvarf tíu árum síðar. Í þessum heimildum um deyjandi byggð eru myndir sem eru hreint listaverk. Kirkjan á Stað í Aðalvík í auga myndavélar Hjálmars er listaverk. Ljósmyndun er vanmetin listgrein. Kon- septið í augnablikinu fer á ljóshraða. Það þyk- ir hentugra en að fanga augnablikið í olíu á striga eða með vatnslitum á pappír. Íslensk sjónmennt byggðist á því að ná hinu upphafna í landslaginu og fanga hið þjóðlega á þeim augnablikum þegar tímamót voru í aðsigi í ís- lenskri stjórnskipan eða þjóðarsögu. Þannig verða Þingvellir og fjallkonan að þjóð- artáknum. Ljósmyndin er frjálst listform en byggist á aga og þekkingu. Fjölmargir íslenskir mynd- listarmenn hafa náð aganum og náð konsept- inu í augnablikinu. Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður er afar fjölhæfur. Verk hans í steini, hinum harða listmiðli, hafa mikið aðdráttarafl á bryggjunni á Djúpavogi. Þó kann að vera að Sigurður sé þekktastur fyrir verk sín í ljós- myndinni. Hrafnkell Sigurðsson myndlistarmaður er listamaður konseptsins í ljósmyndinni. Verk hans fjalla um andstæður og árekstra. Milli hárfínnar menningar og hrjúfrar náttúru. Mörg verkanna eru þekkt um allan heim. Samtímalistasafn (NÓMAH) Djúpivogur er merkilegt byggðarlag. Ýms- um kann að koma á óvart að þar er rík ljós- myndahefð. Nikólína Weywadt á Teigarhorni er einn fyrsti ljósmyndarinn á Austurlandi. Fósturdóttir hennar, Hansína Regína Björns- dóttir, hélt áfram starfi hennar í ljósmyndun á Teigarhorni. Sumar af þeirra myndum eru merkar heimildir um Djúpavog, en þær eru jafnframt listaverk. Sumt er tækt á NÓMAH fyrir konseptið, augnablik liðinna alda. Það eiga alls ekki öll listasöfn að vera í Reykjavík. Hugmynd að listasafni þarf að byggjast á truflaðri hugmynd og áræði. Þekk- ing á efninu er einnig nauðsynleg. NÓMAH á Djúpavogi getur orðið perla ís- lenskra listasafna með alþjóðlega tengingu í tengslaneti Sigurðar Guðmundssonar. Vandamál nýrra listasafna er að ná í verk sem hæfa. Sigurður Guðmundsson og vinir hans sjá um öflun verka í NÓMAH á Djúpa- vogi. Hver vill ekki eiga verk í safni í litlum bæ? Ef Samtímalistasafnið NÓMAH á Djúpa- vogi tekst kemst Ísland á heimskort samtíma- myndlistar. Hvað segir skáldið? Sá tími er löngu liðinn, að við getum séð fyrir okkur cosmotheros, áhorfanda heimsins. Hann er liðinn undir lok því heimurinn lætur ekki lengur myndgera sig. Myndgerving heimsins, heimssýnin, felur í sér að heiminum sé gefin regla og markmið. Þannig mætti jafnvel segja að tiltekin sýn á heiminn feli í sér endalok þess sama heims, sem þannig væri innlimaður og leystur upp í þessari sömu heimssýn. (Jean-Luc Nancy) Eftir Vilhjálm Bjarnason »Ef Samtíma- listasafnið NÓMAH á Djúpavogi tekst kemst Ísland á heimskort samtímamynd- listar. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Að hugsa nýtt! Að horfa á list! NÓMAH Staður í Aðalvík 1937, ljósmynd Hjálmars R. Bárðarsonar. Study for Horizon eftir Sigurð Guðmundsson. Freeze Frame I eftir Hrafnkel Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.