Morgunblaðið - 06.11.2020, Page 22

Morgunblaðið - 06.11.2020, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 ✝ Dr. GuðrúnSigmunds- dóttir, sérfræð- ingur í smit- sjúkdómalækning um og sýklafræði, yfirlæknir við sótt- varnasvið embættis landlæknis, var fædd í Reykjavík 30. ágúst 1961. Guðrún lést á heimili sínu þann 27. október 2020 eftir erfiða baráttu við krabbamein. Foreldrar hennar eru Sig- mundur Magnússon, f. 1927, d. 2017, yfirlæknir í blóðmeina- fræði á Landspítalanum, og Guðlaug Sigurgeirsdóttir, f. 1927, d. 2020, húsmæðrakenn- ari og næringarfræðingur. Systkini Guðrúnar eru; 1) Sig- urgeir, tónlistarmaður og við- skiptafræðingur, f. 1958, kvæntur Hildi Ástu Viggósdótt- ur deildarstjóra, f. 1966. Börn Sigurgeirs eru Sandra og Dav- íð. Synir Hildar eru: Arnar Daria Lind Einarsdóttir, nemi við HÍ, f. 2000. Guðrún ólst upp í Vogahverfi í Reykjavík og síðar á Seltjarn- arnesi. Hún tók stúdentspróf frá MR 1981. Hún lauk embætt- isprófi í læknisfræði frá HÍ 1987, stundaði síðan framhalds- nám í smitsjúkdómum og sýkla- fræði í Lundi í Svíþjóð og lauk sérfræðiprófum 1997. Guðrún varði doktorsritgerð sína í smitsjúkdómum við Háskólann í Lundi árið 2010. Eftir sérnám flutti fjölskyld- an til Íslands árið 2000, og starfaði Guðrún sem sérfræð- ingur á sóttvarnasviði embættis landlæknis og rannsóknarstofu Landspítalans í sýklafræði. Hún var í fullu starfi yfirlæknis á sóttvarnasviði embættis land- læknis frá 2005. Í starfi sínu tók hún virkan þátt í vísinda- vinnu og er höfundur fjöl- margra vísindagreina á sviði smitsjúkdóma og faraldsfræði þeirra sem birst hafa í erlend- um læknatímaritum. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni 6. nóvember kl. 11. Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/vE8jGqR_9wA Virkan hlekk á streymið má einnig nálgast á https://www.mbl.is/andlat Geir og Daníel Freyr 2) Sigríður, sjúkraliði, f. 1960, gift Hermanni Ár- sælssyni fram- kvæmdastjóra, f. 1965. Börn þeirra eru: Sigmundur Grétar og Guðlaug Harpa. Eiginmaður Guðrúnar er Gylfi Óskarsson, f. 1961, barnahjartalæknir á Barnaspít- ala Hringsins. Foreldrar hans eru Óskar Gissurarson, f. 1923, d. 1990, og Hólmfríður Gunn- laugsdóttir, f. 1925, d. 2019. Börn Guðrúnar og Gylfa eru: a) Guðlaug heilbrigðisfulltrúi, f. 1988, gift Hlyni Daða Sævars- syni arkitekt, f. 1988. Börn þeirra eru Egill Arnar, f. 2009, og Guðrún Freyja, f. 2014. b) Hólmfríður lyfjafræðingur, f. 1992. Unnusti hennar er Einar Sigurvinsson nemi við HÍ, f. 1992. c) Magnús Atli, nemi við HR, f. 2000. Unnusta hans er Undanfarinn mánuð hef ég gengið í gegnum mikinn missi. Með aðeins þriggja vikna millibili missti ég háaldraða móðurömmu mína og í kjölfarið 59 ára móður mína eftir baráttu við erfitt krabbamein. Það er þungbært að horfast í augu við þá staðreynd, mamma átti ekkert að fara svona snemma, hvað þá aðeins þremur vikum eftir að mamma hennar deyr. Að mamma sé farin er svo ólýs- anlega sárt, hún var mín stoð og stytta í einu og öllu og hefur alltaf verið mér svo dýrmæt. Ekki datt mér annað í hug en að hún næði háum aldri því hún hugsaði alltaf svo vel um sig, bæði hvað varðar mataræði og hreyfingu. Allt frá því hún lenti í alvarlegu bílslysi ár- ið 2017 hefur minn versti ótti verið sá að einn daginn myndi ég missa hana. Ári seinna kom áfallið, erfið krabbameinsgreining, en leiðin lá engu að síður upp á við um tíma, þrátt fyrir ýmiss konar bakslög. Óttinn var samt sem áður stöðugt til staðar því það að greinast með þennan sjúkdóm er ansi stutt strá að draga. Eftir öll þessi áföll stóð þessi magnaða fyrirmynd mín allt- af upp og stappaði í mig stálinu þegar ég var hvað hræddust. En að lokum varð þessi versti ótti minn því miður að veruleika. Núna stöndum við fjölskyldan eftir í tómarúmi og stingandi sorg. Þrátt fyrir alla þessa erfiðleika er hugurinn þó furðu fljótur að gleyma því slæma og draga upp það góða. Góðu minningarnar eru svo ótalmargar, þökk sé mömmu og pabba. Mamma hefur mótað mig til frambúðar. Þeir eiginleikar sem hún hafði og gildin sem hún kenndi mér eru að hjálpa mér að takast á við þessa erfiðu sorg, hún er ljósið mitt í myrkrinu. Hún var glaðlynd, heiðarleg, drífandi, eld- klár og hvetjandi. Hún þekkti mig svo vel, oft jafnvel betur en ég þekkti sjálfa mig og vissi alltaf þegar eitthvað var að. Hún er sú sem bjargaði mér þegar ég var strandaglópur á flugvellinum í Vín, þegar ég féll í prófum í menntaskóla og lagði það alltaf á sig að klifra upp skíðabrekkuna í fullum skíðabúnaði til þess að sækja mig þegar ég neitaði að halda áfram því Gulla systir hafði tekið fram úr mér í brekkunni. Mamma setti fjölskylduna alltaf í forgang, en var á sama tíma mjög ábyrgðarfull í krefjandi starfi, en virtist oftast ekkert þurfa að hafa neitt mikið fyrir því. Ég yrði stolt af því að ná að áorka brot af því sem mamma áorkaði á sinni allt of stuttu ævi. Öll þessi erfiða reynsla er of dýrkeypt til þess að nýta hana ekki til einhvers góðs. Mamma veit og ég lofaði henni að ég mun standa stöðug með báða fætur á jörðinni eftir allt saman, því þann- ig ól hún mig upp. Ég mun alltaf vera stolt og þakklát fyrir það að vera dóttir hennar. Við sem feng- um að kynnast henni erum gríð- arlega heppin, hvað þá að fá að eiga hana sem mömmu. Eftir allt sem við höfum gengið í gegnum var ekkert ósagt okkar á milli, hún veit að ég veit og ég veit að hún veit. Nú eru veikindin ekki hluti af okkar lífi lengur, en mamma mun alltaf eiga risastóran stað í mínu hjarta. Takk fyrir alla gleðina elsku mamma. Hólmfríður Gylfadóttir. Ég er ótrúlega heppinn að hafa fengið Gunnu fyrir tengdamóður. Stuðningsríkari, klárari og betri fyrirmynd er erfitt að finna. Hún hafði ótrúlega þægilega nærveru og stendur það helst upp úr þegar ég hugsa til Gunnu. Kaffibollarnir sem við tókum sam- an fyrir vinnu voru alltaf ljúf stund og nokkuð sem ég var farinn að sakna um leið og við Fríða flutt- um úr Fjarðarásnum. Það er sárt að hugsa til þess að þessar stundir verði ekki fleiri. Gunna var og verður áfram ein af mínum helstu fyrirmyndum í lífinu. Hún var hörkutól en á sama tíma alltaf svo hlý, samviskusöm en á réttum augnablikum kæru- laus. Hún náði að áorka meira en flestir á sinni allt of stuttu ævi með hugarfari og eiginleikum sem ég mun stefna sjálfur á að lifa eftir. Takk Gunna, þú varst best. Einar. Ljúfar stundir á pallinum í Ár- nesi, samverustundir í Svíþjóð, skíðaferðir, jól, hátíðir og ótal helgar þar sem læri, lasagne og allar þær krukkur sem Gunna fann í ísskápnum voru á boðstól- um. Oft fylgdu þessum stundum helstu tíðindi úr heimi smitsjúk- dóma á Íslandi. Guðrún Sigmundsdóttir var smitsjúkdómalæknir að mennt og einn sá fremsti í okkar röðum hér á landi. Það eru fáir hjá Embætti Landlæknis sem hafa öðlast jafn mikla reynslu og þekkingu á sviði sóttvarna og Gunna hafði. Alveg fram til þess tíma þar sem veikindi Gunnu fóru að draga úr henni á ný stóð hún traustum fótum í upphafi Covid-19-faraldurs. Þótt hún hafi þurft að starfa sem settur sótt- varnalæknir endrum og sinnum þótti henni best að starfa á bak við tjöldin. Þannig gat hún átt góðar kvöldstundir með sinni nánustu fjölskyldu að loknum viðburða- miklum vinnudögum. Þannig voru hennar gildi og líf sem hún hafði kosið sér. Fjölskyldan framar öllu. Gunna leit aldrei á sig sem eitt- hvað merkilegri en aðrir. Hún setti fjölskyldu sína ávalt í fyrsta sæti en sig yfirleitt í það síðasta. Þeir sem þekktu hana lengst og best voru ekki sparir á fögru lýs- ingarorðin í hennar garð, enda var hún ekkert venjuleg kona. Það má segja að ég hafi komið inn í fjölskylduna með töluverðum krafti sem síðar átti eftir að móta mig og Gullu dóttur Gunnu til framtíðar, á mjög góðan hátt. Gunna tók mér með opnum örm- um frá fyrsta degi og var mér ávallt hliðholl til síðasta dags. Mér þótti alltaf mjög vænt um sam- band mitt við Gunnu og það var alltaf umvafið trausti og um- hyggju. „Hlynur, komdu hérna aðeins með mér, ég þarf aðeins að sýna þér svolítið,“ var setning sem lýsir okkar sambandi vel. Það varðaði þá helst eitthvað sem hún þurfti hjálp við að framkvæma eða vant- aði álit á. Þetta gat verið eitt af þeim ófáu verkefnum sem skaut upp í kollinum á Gunnu þá stund- ina. Það var nefnilega þannig með Gunnu að hún fann alltaf ný verk- efni til þess að leiða hugann að og hún gat jafnvel í leiðinni sáð fræj- um að öðrum framtíðarverkefn- um. Hún var dugleg við að halda okkur öllum uppteknum og ekki síst sjálfri sér með öllum sínum hugmyndum og uppátækjum. Gunna var framkvæmdasöm og virkilega drífandi manneskja sem kom verkum í framkvæmd. Okkar allra stærsta verkefni saman og það verkefni sem mér þykir hvað vænst um er sumar- húsið á Flötunum, Sjónarhæð. Ég þakka henni og tengdapabba traustið sem þau fólu mér, þ.e. að fá að teikna viðbyggingu við sum- arhús fjölskyldunnar. Þetta stóra verkefni mun halda utan um okk- ur fjölskylduna, gefa okkur hlýju og halda okkur uppteknum um ókomna tíð. En það var einmitt Gunna sem hrinti verkefninu af stað, þetta skapaði hún fyrir okk- ur. Verkefnið sem okkur öllum þykir svo vænt um. Verkefnið sem við ætlum að gera og klára upp á 10. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt hana sem tengdamóður og hversu fljótt og afdráttarlaust hún tók mig inn í fjölskylduna, hún taldi mig með sem eitt af börn- unum sínum. Ég tek undir hennar orð í minn garð; hún átti líka mitt hjarta frá fyrsta degi og mun gera það um aldur og ævi. Hlynur Daði Sævarsson. Það er ekki létt verk að þurfa að setjast niður og skrifa minning- argrein um Gunnu litlu systur mína sem hefur nú verið kölluð burt í blóma lífsins. Hún var margbrotinn persónuleiki sem alltaf hafði eitthvað fyrir stafni hvort sem það var nám, vinna, áhugamál, heimilið eða fjölskyld- an. Hún var heiðarleg, sterk, skynsöm og kærleiksrík systir. Við áttum frábæra æsku og frá- bæra foreldra sem studdu okkur og hlúðu að á alla vegu. Samband okkar jókst og styrktist mikið þegar við komumst á fullorðinsár. Við vorum kannski ekki alltaf samstíga og sammála en ég gat alltaf treyst því að hún væri hrein- skilin við mig og ég varð að vera maður til að taka því. Við áttum þannig aldrei óleyst mál í farangr- inum. Ég var afar stoltur af litlu systur minni sem vann að vísinda- störfum og áætlanagerð til þess að styrkja smitvarnir landsins, ólíkt föður okkar sem sinnti almennum læknastörfum og kennslu. Lífið blasti við Gunnu þegar hún lenti í alvarlegu bílslysi í byrj- un árs 2017 og þegar illa gekk að jafna sig eftir slysið kom bris- krabbameinið í ljós, ári síðar. Þrátt fyrir slæmar horfur og mikil veikindi reis elsku systir upp, aft- ur og aftur og endalaus bið á bráðamóttöku og innlagnir vegna fylgifiska sjúkdómsins náðu aldrei að berja hana niður. Gylfi og börn- in stóðu eins og klettar við hlið hennar á erfiðum stundum en þeim tókst líka að upplifa margar góðar og dýrmætar stundir sem hún var afar þakklát fyrir. Það er erfitt að vera þakklátur á stundu sem þessari, erfitt að koma auga á Guð sem á að vera al- vitur, algóður og almáttugur. Erf- itt að vera þakklátur fyrir heil- brigðiskerfi sem allir vita að er undirmannað, fjársvelt og í slæm- um húsakosti. Sú staðreynd að 700 Íslendingar láta lífið af völdum krabbameins árlega ætti að vera nóg til þess að ráðamenn bættu í. Elsku systir vann og starfaði af heilum hug í því kerfi sem faðir okkar tók þátt í að byggja upp á árunum eftir stríð og hefur verið vanrækt svo hressilega undan- farna áratugi. Það voru því von- brigði að fylgjast með þessu ferða- lagi síðustu misserin þó svo allt starfsfólk legði sig 100% fram um að gera sitt besta. Stundum er það bara ekki nóg eða ásættanlegt. Nú er komið að kveðjustund. Dauðinn er svo hræðilega endan- legur og meira verður ekki gert. Ég og Hildur syrgjum frábæra systur og mágkonu, sem okkur þótti innilega vænt um. Við biðjum þess að Gylfi og börnin eigi eftir að finna styrk og leið til þess að tak- ast á við þessa miklu sorg. Takk fyrir allt elsku Gunna. Sigurgeir og Hildur. Það var fimmtudagurinn 16. febrúar árið 1967. Tvær litlar stúlkur með fléttur og samlitar slaufur í hári gengu glaðar saman hönd í hönd niður í bókabúðina í Álfheimum. Þær voru klæddar í grænar strech-buxur, hvítar skyrtur, brúna skó og rauðar úlpur. Þær voru oftast eins klæddar. Erindið var jú að kaupa afmæl- isgjöf fyrir mömmu. Fallega mamma okkar var fertug og átti afmæli þennan dag. Tilhlökkunin hjá okkur leyndi sér ekki. Við ætluðum að kaupa eitthvað virkilega fallegt fyrir mömmu. Þegar við komum í bókabúðina spurðum við prúðar hvort af- greiðslumaðurinn ætti afmælis- gjöf fyrir fertuga konu. Að lokum, eftir langa íhugun, völdum við fallega, eldrauða nælu sem við vorum svo ánægðar með og gladdi mömmu mikið. Núna er nælan hjá mér og mun ég varð- veita hana um aldur og ævi. Svona minnist ég æsku okkar Gunnu og í raun samskipta okkar systra í gegnum lífið, samrýndar systur sem studdu hvor aðra. Auðvitað kom það fyrir að við urðum ósáttar og vorum ekki sam- mála en strengurinn á milli okkar var það sterkur að án hvor ann- arrar gátum við ekki verið, náðum alltaf sáttum. Gunna var sterk, skörp, ákveð- in, heiðarleg og dugleg, lét fátt buga sig. Ég minnist þess þegar pabbi kom heim frá útlöndum og kom með gjafir fyrir okkur. Hann kom ekki með dúkkur fyrir okkur Gunnu og bíl fyrir Sigurgeir. Nei, hann kom með bíla fyrir okkur öll. Þannig kenndi pabbi okkur að við vorum öll jöfn, gátum öll áorkað jafn miklu. Mamma kenndi okkur með orði og gjörðum að þó þú sért kona átt þú ekki að hika við að gera hlutina, ekki missa kjarkinn, heldur ganga í verkin og gera það sem þarf að gera. Persónuleiki Gunnu mótað- ist af þessu og lifði hún samkvæmt því, lét fátt stoppa sig. Þegar ég lærði að lesa lærði hún það samtímis. Fylgdist með því sem ég var að lesa, hinum megin við borðið á hvolfi. Hún var mikill bókaormur, las allt sem hún komst yfir. Sem lítil stelpa lærði hún öll versin í Fjallgöngu eftir Tómas Guðmundsson og fór létt með að þylja þau öll upp hátt og skýrt. Þetta ljóð lýsir Gunnu vel, hún gafst ekki upp við það sem hún tók sér fyrir hendur. Mestu sælustundir fjölskyld- unnar voru ferðir upp á fjöll og firnindi á Rússajeppanum okkar. Sérstaklega var árleg ferð okk- ar að Selvallavatni mikið tilhlökk- unarefni. Þar nutum við samveru, mikillar náttúrufegurðar, sváfum í hústjaldinu okkar, veiddum silung og bleikju sem var borðuð um kvöldið með soðnum kartöflum og smjöri. Sannkölluð sælustund. Ég kveð góða systur og er þakklát fyrir hana. Þakklát fyrir allar góðu stundirnar saman. Þær munu hjálpa mér í sorginni. Hugur minn og hjarta er hjá Gylfa og krökkunum sem voru Gunnu allt. Þeirra missir er mikill. Megi allar góðu minningarnar sem þau eiga um hana styrkja þau í sorginni. Góða ferð elsku fallega Gunna mín. Ég mun sakna þín að eilífu. Þú munt ávallt eiga vísan stað í hjarta mínu og munt fylgja mér um alla ævi, hvert sem ég fer. Ég er sannfærð um að við eig- um eftir að hittast aftur, leiðumst brosandi saman hönd í hönd að kaupa afmælisgjöf fyrir mömmu eða pabba. Farðu í friði. Þín Sigríður (Sirrý). Meira: mbl.is/andlat Í dag kveðjum við elskulega æskuvinkonu okkar hana Gunnu. Minningarnar hrannast upp í huganum og við erum þakklátar fyrir áratuga samfylgd. Sterk bönd hafa alltaf verið milli okkar vinkvennanna þrátt fyrir að við færum hver í sína áttina að loknu grunnskólanámi í Vogaskóla. Þótt langt liði stundum á milli þess að við hittumst virtist það aldrei skipta neinu máli. Slík vinátta er dýrmæt og varð okkur tíðrætt um hversu heppnar við værum að eiga hvor aðra að. Okkur fannst Gunna alltaf vera sú skynsamasta í hópn- um. Hún gaf sér ávallt tíma og það var gott að leita til hennar. Það þýðir þó ekki að hún hafi verið al- vörugefin því alltaf var stutt í grínið og glaðværðina. Það var gaman og notalegt að vera í kring- um hana. Æðruleysið og yfirveg- unin sem hún sýndi í veikindum sínum var hreint ótrúleg. Gunna og Gylfi voru sem eitt í baráttunni við veikindin og bjuggu börn sín undir komandi tíma. Vissan um að börnin stæðu traustum fótum eftir hennar dag var Gunnu ákaflega mikilvæg. Á kveðjustundinni er okkur efst í huga þakklæti fyrir langa og trausta vináttu og ógleymanlegar samverustundir. Minningin um Gunnu vinkonu mun lifa með okk- ur. Við vottum Gylfa, börnunum og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Laufey, Ragnheiður, Steina og Unnur. Fyrstu kynni mín af Guðrúnu voru þegar hún var 10 ára. Hún og systir hennar voru í skólagörðun- um í Laugardal þar sem ég leið- beindi við grænmetis- og blóma- ræktun. Þær nýfluttar heim frá útlönd- um og ég nýskriðin úr mennta- skóla. Síðar áttum við Guðrún eft- ir að fást við annars konar ræktun á sýklafræðideild Landspítalans þar sem við vorum vinnufélagar um árabil. Guðrún var sérfræði- læknir bæði í sýklafræði og smit- sjúkdómum. Sérþekking hennar reyndist öflug viðbót í starfa- mannahóp deildarinnar. Hún var í upphafi einnig í stöðubroti hjá sóttvarnasviði embættis land- læknis. En með tímanum flutti hún sig alveg þangað. Okkur vinnufélögunum var mjög brugðið við fréttir af fram- gangi sjúkdómsins hjá Guðrúnu í sumar sem leið. En við eigum öll góðar minningar um samstarfið við hana. Ég var svo heppin að vinna að rannsóknarverkefni með henni þegar hún var að leggja lokahönd á doktorsvinnu sína við Háskólann í Lundi. Þá saknaði ég hennar mjög þegar hún hætti hér á deild- inni, enda deildum við sömu skrif- stofu í nokkur ár. Og þar ræddum við ekki bara um vinnuna heldur líka lífið sjálft, fjölskylduna og börnin okkar. Báðar þekktum við vel til í Svíþjóð og gátum deilt af reynslu okkar að búa þar. Nálægð Guðrúnar var mér sérlega mikil- væg og góð þegar ég gekk í gegn- um mínar þrengingar og dauða sonar. Í samtölum við Guðrúnu núna í haust kom vel í ljós sálarstyrkur hennar og jákvæðni. Og henni var tíðrætt um þann mikilvæga bak- hjarl sem hún átti í Gylfa og börn- unum þeirra. Það hjálpaði á erf- iðum tímum í haust hve sátt hún var við hvernig börnunum vegnar og á hve góðum stað þau eru í líf- inu. Elskulega fjölskylda. Ég votta ykkur samúð mína og veit að góð- ar minningar munu létta ykkur þungan róðurinn. Helga Erlendsdóttir. Kaktusinn sem stendur á borð- inu í ganginum hjá mér er um það bil að fara að blómstra enda kall- aður nóvemberkaktus. Guðrún færði mér hann fyrir réttu ári síð- an, ómeðvituð um að þessi litla planta hefur nær daglega gefið mér tilefni til að hugsa til hennar með hlýju og bæn um að hún fengi styrk til að takast á við hvern dag. Við kynntumst í starfi okkar hjá sóttvarnalækni. Ég nokkru eldri en hún en við náðum vel sam- an, áttum oft gott spjall er tengd- ist störfum okkar, en stundum duttum við í að tala um sumarbú- staðinn okkar eða börnin. Guðrún talaði aldrei um Gullu, Fríðu eða Magnús öðruvísi en Gulla mín, Fríða mín og Magnús minn af miklum kærleika og með miklu stolti. Fyrir nokkrum árum naut ég þess að hún ásamt Gylfa og Magn- úsi lögðu lykkju á leið sína til að hitta mig þegar við vorum öll stödd í sumarleyfi á grísku eyj- unni Korfu. Við eyddum saman ánægjulegum eftirmiðdegi á frek- Guðrún Sigmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.