Morgunblaðið - 06.11.2020, Síða 29

Morgunblaðið - 06.11.2020, Síða 29
var hve hann var hagyrtur og átti auðvelt með að setja saman vís- ur. Oft gerðist það á fundum að úr penna Guðjóns rann vísukorn og stundum teikning sem fangaði augnablikið á kómískan hátt. Á sinn hátt var Guðjón eins konar hirðskáld bæjarstjórnar, samdi vísur og söngtexta sem nýttust vel í skemmtiatriði. Víst er að margir samferðamenn Guðjóns eiga eftir hann vísur, sem rifja upp skemmtileg atvik og augna- blik fortíðar. Samstarfsfólk Guðjóns hjá Sandgerðisbæ og Suðurnesjabæ þakkar honum ánægjulega sam- fylgd og einstakt samstarf um árabil. Við minnumst hans með þakk- læti og hlýju, blessuð sé minning heiðursmannsins Guðjóns Þor- gils Kristjánssonar. Fjölskyldu Guðjóns eru færð- ar innilegar samúðarkveðjur. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Viðbrögð barnanna okkar báru vott um mannkosti Guðjóns heitins þar sem þau horfðu á okk- ur spurnaraugum hvort góði maðurinn með skeggið væri dá- inn. Guðjón fékk kannski ekki notið ævidaga langra en auðnað- ist að fá notið hvers dags til að gefa af sér, gleðjast, njóta, miðla, vaxa og dafna – okkar börnum nægðu einstaka samverustundir með Guðjóni til þess að hann yrði góði maðurinn í þeirra huga. Guðjón var barn náttúrunnar sem skilur eftir sig djúpt skarð, skarð sem okkar er að fylla með minningum um mætan mann, fal- legu teikningunum, ljóðunum, ræðunum, lífsspekinni, grallara- skapnum, brosunum út í annað, bestu sósunum og safaríkustu steikunum, hlátrinum, göngulag- inu, faðmlögunum, ímyndunar- aflinu en síðast en ekki síst verð- ur skarð hans fyllt með komandi gleðistundum með fólkinu sem honum þótti vænst um. Björgvin og Harpa. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Guðjón skólastjóri eins og hann var gjarnan kallaður starf- aði sem skólastjóri við Grunn- skólann í Sandgerði frá árinu 1985 til ársins 2005 við afar góð- an orðstír en áður hafði hann starfað við kennslu í þónokkur ár. Guðjón var traustur, einstak- lega vel liðinn, hjartahlýr og sanngjarn enda áttu nemendur skólans hug hans og hjarta og hans einlægi ásetningur að koma sem flestum til vits og ára á já- kvæðan og uppbyggjandi hátt. Í hans huga skiptu nemendur mestu máli, velferð þeirra og að þeim liði vel í skólanum. Hann þekkti nemendur með nafni og lét sig varða líðan þeirra og fjöl- skyldna. Guðjón hafði einnig að leiðar- ljósi að allir gætu eitthvað og enginn gæti allt, en að allir ættu að gera sitt besta, hver á sínum eigin forsendum. Hann var lista- maður og skáld, hannaði m.a. merki skólans, málaði myndir og samdi vísur við hvert tækifæri sem gafst. Við starfsfólk skólans minn- umst Guðjóns með hlýju í hjarta og einlægu þakklæti fyrir hans þátt í að gera skólann okkar að því sem hann er í dag. Blessuð sé minning Guðjóns skólastjóra. Við sendum Ólöfu, Björgvini, Sæunni, Kristjáni og fjölskyldunni allri innilegar sam- úðarkveðjur. Minning um einstakan mann lifir áfram. Fyrir hönd starfsmanna skól- ans, Hólmfríður Árnadóttir og Bylgja Baldursdóttir. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 ✝ GuðmundínaDía Ingadóttir fæddist í Reykjavík 15. janúar 1943. Hún lést 27. október 2020 á líknardeild Landspítalans. For- eldrar hennar voru Ingi Guðmundsson frá Þingeyri, verka- maður í Freyju, f. 1.10. 1916, d. 30.3. 1971, og Gyða Guð- mundsdóttir, húsmóðir og gang- avörður, f. 21.9. 1918, d. 22.1. 1999. Systkini Díu eru: Birna, f. 4.12. 1937, Guðmundur Ingi, f. 1.5. 1939, d. 7.12. 1999, Gunnar, f. 24.6. 1940, d. 1.2. 1973, Skúli, f. 24.11. 1941, d. 5.4. 1961, Júlíus, f. 15.8. 1944, d. 23.11. 2012, Bettý, f. 9.12. 1945, Ástríður, f. 30.11. 1948, Hulda Fríða, f. 29.6. 1950 og Sigurður, f. 3.12. 1957. Día ólst upp í stórum systkinahópi í Reykjavík, í Höfðaborg og síðar í Bústaðahverfinu. Hún var Reykjavíkurmær í beinan kven- legg í fjóra ættliði. Día giftist Sævari Reyni Ingimarssyni frá Akureyri 2. mars 1963. For- eldrar hans voru Sigurlaug Ing- Elísabetar er Sigurjón Agnar Daníelsson, f. 6.11. 1982. 2) Sig- urlaug Kristín Sævarsdóttir, f. 11.11. 1963. Eiginkona hennar er Valgerður Þ.E. Guðjónsdóttir, f. 18.4. 1958. Día var í sambúð í nokkur ár með Ólafi Ásgeiri Ásgeirssyni, f. 3.10. 1938, d. 9.8. 2010. Sonur þeirra er Ólafur Reynir Ólafsson, f. 28.12. 1976. Eiginkona hans er Jóhanna Laufdal Friðriksdóttir, f. 8.11. 1978. Börn þeirra eru Friðrik Ýmir, f. 21.9. 2001 og Embla Ósk, f. 5.9. 2005. Síðar bjó Día um árabil með Friðriki Alexanderssyni, f. 24.1. 1933, d. 17.11. 1995. Halldór Guðjónsson, f. 14.12. 1937, var samferðamaður Díu mörg síðustu ár og voru þau vin- ir til hinstu stundar. Día starfaði að mestu við verslunarstörf. Fyrstu búskapar- árin starfaði hún í Bústaðabúð- inni og síðar í Árbæjarkjöri. Hún var lengi verslunarstjóri í Snyrti- vöruversluninni í Glæsibæ og starfaði auk þess m.a. í nokkrum tísku- og snyrtivöruverslunum. Día greip einnig í módelstörf og auglýsingaleik. Útförin fer fram frá Árbæj- arkirkju í dag, 6. nóvember 2020, klukkan 13. Athöfninni verður streymt á: https://tinyurl.com/y2xal3t7 Virkan hlekk má nálgast á www.mbl.is/andlat unn Sveinsdóttir, húsmóðir, sauma- kona og verkakona, fædd á Blönduósi en bjó lengst af á Ak- ureyri, f. 18.1. 1919, d. 21.12. 2008 og Kristján Ingimar Benediktsson, hús- vörður frá Barnafelli í Ljósavatnssókn, f. 8.5. 1915, d. 20.3. 1979. Þau skildu og Sigurlaug giftist síðar uppeldis- föður Sævars, Sigurði Kristjáns- syni frá Svarfaðardal. Sævar var sjómaður og þau Día hófu búskap í Stigahlíð en bjuggu lengst af í Árbæjarhverfinu í Reykjavík sem þá var í uppbyggingu. Sævar drukknaði 1.2. 1973 með mót- orbátnum Maríu. Börn þeirra Díu og Sævars eru: 1) Ingimar Skúli Sævarsson, f. 13.9. 1962, sambýlis- kona hans var Elísabet Sigurjóns- dóttir, f. 6.9. 1962, d. 23.9. 2020. Dóttir þeirra er Aníta Sædís Ingi- marsdóttir, f. 5.1. 1990, sambýlis- maður hennar er Daði Elísson, f. 26.6. 1989 og sonur þeirra er Skúli Daðason, f. 8.8. 2019, fóst- ursonur Ingimars Skúla og sonur Nú er mamma farin! Það er undarlegt að líf sem er búið að vera mér nátengt alla ævi sé allt í einu ekki lengur þar. Mamma var Reykjavíkurdóttir í fjóra ættliði í kvenlegg og margt í fari hennar og persónu bar þess glöggt vitni. Hún var alin upp á líflegu og barn- mörgu heimili af alþýðufólki. Afi vann í Freyju og amma skúraði út á heimilinu tvisvar á dag og hafði styrka stjórn á fjörlegum barna- hópnum. Mamma var fimmta í röðinni af tíu systkinum og fór ung að vinna fyrir sér. Sem ung- lingur eldaði hún m.a. hádegismat fyrir konur í hverfinu og fann svo fjölina sína á bak við búðarborðið í Ólabúð í Hólmgarði. Ástina fann hún hins vegar á balli. Myndar- piltur í of stuttum buxum. Þar var kominn hann pabbi, sveitadreng- urinn frá Akureyri, sem kominn var til náms í Stýrimannaskólan- um í Reykjavík. Eftir að þau pabbi byrjuðu að búa vann hún fyrir leigunni með því að þrífa og þvo þvotta hjá fjöl- skyldu á Laugarásvegi, þar sem þau bjuggu. Seinna kölluðu versl- unarstörfin á hana aftur og þá var hún í essinu sínu, fyrst í Árbæj- arkjöri og svo komst hún í snyrti- vörubransann. Þar var nú glimm- er og slör og mikið fjör. Mamma naut sín á þessum vettvangi og eignaðist þar marga vini og kunn- ingja. Vinnudagarnir voru langir og ég man að stundum lá við að hún sofnaði ofan í súpuna á að- fangadagskvöld eftir vinnutörn á aðventunni. Á sunnudögum var farið í fjörið í Hólmgarðinn til ömmu Gyðu og þá drógum við um það, systkinin, hvort okkar fengi að fara með mömmu í strætó en hitt gekk hitaveitustokkinn með pabba. Mamma var skvísa frá toppi til táar og lagði mikið upp úr fallegum fötum, förðun og tísku. Hún stóð á búðargólfum í áratugi á háhæluðum skóm, sveipuð Cha- nel nr. 5 og alltaf obbolítið lilluð og bleik. Hún var ljósmyndafyrir- sæta frá fermingaraldri, tók þátt í tískusýningum og lék í auglýsing- um. Það fannst henni gaman. Hún átti líka spretti í félagsmálum, var einn af stofnendum Fylkis og dug- leg í kvenfélaginu í Árbæ á meðan við fjölskyldan bjuggum þar. Hennar mesta sorg var að missa pabba í sjóinn þegar þau stóðu á þrítugu og sá skuggi fylgdi henni alla tíð. Hún bjó um nokkurra ára skeið með barnsföður sínum, Ólafi. Þá fengum við systkinin ekki bara lítinn hálfbróður heldur líka tvö stjúpsystkin í fjölskyld- una. Það var fjör á heimilinu og mamma hafði hjartarúm fyrir stækkandi barnahóp. Þegar hún var í stuði var mikið hlegið og sungið og stutt í húmorinn, snarp- an og beittan. Hún var keppnis- manneskja og hafði afar gaman af því að horfa á íslensku landsliðin í handbolta. Eftir að knattspyrnu- landslið karla komst á EM varð hún, á nokkrum dögum, sérfræð- ingur í knattspyrnu og lét strák- ana heyra það, fyrir framan skjá- inn, bæði þegar vel gekk og þegar þegar á móti blés. Það var henni erfitt þegar heilsan gaf eftir og hún átti sína dökku daga en aldrei missti hún skvísugenin og hafði sérstaka unun af því að halda sér til og vera flott. Nokkrum mínút- um fyrir síðustu andartökin var hún spurð af nærgætnum sjúkra- liða á líknardeildinni hvort hana vantaði eitthvað eða hvort henni liði illa. Hún svaraði, veikum rómi, „allt í gúddí“ og með þeim orðum, sem voru alveg í hennar anda, kvaddi hún okkur, Reykjavíkur- mærin hún mamma. Takk fyrir líf- ið, mamma mín! Heim er hún komin hún mamma í örugga höfn og finnur ástina sveipa sig böndum sveipa sig silkiböndum. (Ingibjörg Haraldsdóttir) Kristín Sævarsdóttir. Elsku amma bleika, ég trúi því varla að hún sé farin. Lífið er ansi tómlegt án hennar. Hún var ekki bara amma mín heldur einnig ein besta vinkona mín og trúnaðarvin- kona. Ég gat talað við hana um allt og vissi hún nánast öll mín leynd- ustu mál og ég hennar. Hún var alltaf til staðar fyrir mig, sama hvort það var að nóttu eða degi, alltaf svaraði hún i símann og var tilbúin að hlusta og gefa ráð. Amma flutti i götuna þar sem ég bjó með foreldrum mínum þegar ég var um 6 ára. Mikið var ég heppin að hafa hana bara í næsta húsi, ég eyddi miklum tíma hjá henni, við spiluðum mikið og lék ég mér mikið með skartið hennar og fannst ég algjör pæja. Amma átti sko nóg til af alls konar skarti og glingri, enda var hún glæsilegasta kona sem ég hef þekkt. Það var alltaf mjög gott sam- band milli okkar og vorum við perluvinkonur. Síðustu ár var ég hjá henni nokkrum sinnum í viku og fórum við oft i bæjarferðir sam- an þar sem amma elskaði fátt meira en að kaupa sér falleg föt og skó, það var sameiginlegt áhuga- mál hjá okkur. Amma var líka mikill aðdáandi íslenska landsliðsins i handbolta og við horfðum saman á flest stór- mót. Ef svo vildi til að ég kæmi ekki alltaf þegar það var leikur, þá vissi ég að kæmi símtal og spurn- ingin hvar ég eiginlega væri. Svo það þýddi lítið að reyna að sleppa leik. Mikið verða næstu áramót skrítin þar sem það var orðin hefð hjá okkur að vera bara við tvær saman, að borða kjúkling og hafa það kósý, þar sem við vorum hvor- ug mikið fyrir sprengjurnar og lætin sem fylgja því kvöldi. Síð- ustu áramót voru aðeins öðruvísi en fyrri því þá fjölgaði um tvo, Daði og Skúli, litli gimsteinninn okkar og langömmubarn hennar, nutu kvöldsins með okkur. Mikið er ég glöð og ánægð að hún hafi fengið að fylgjast með Skúla fyrsta árið hans. Það var einstakt sam- band sem finnst varla en þannig fannst mér sambandið vera á milli þeirra tveggja. Skúli fær héðan í frá að kynnast langömmu sinni í gegnum okkur fjölskylduna, því margar eru sögurnar af þessari glæsilegu konu sem var einn mesti karakter sem ég hef kynnst. Ég er afar þakklát fyrir tímann sem ég átti með ömmu minni, mik- ið vildi ég að sá tími hefði samt verið lengri. Þú ert amman sem að allir þrá, alltaf mun ég elska þig og dá. Lífið þú gerir betra fyrir mig, heppin ég er að eiga þig. Aníta Sædís. Í dag kveð ég þig, elsku systir, margs er að minnast og margs að sakna. Aðalsmerki þitt var að vera alltaf glæsileg og „obbulítið lilluð“, þannig fórst þú í gegnum lífið. Við áttum saman þungbærar minning- ar frá sjóslysinu 1973 þegar Sævar þinn og Gunni bróðir okkar fórust, það var harmleikur fyrir alla fjöl- skylduna. Minningarnar eru líka bjartar eins og þegar þú heimsóttir okkur Magga til Svíþjóðar með Huldu systur og mömmu, ógleymanlegar stundir. Heima í Hólmgarði hjá mömmu var mikið glens og gaman þegar við systkinin komum sam- an, glatt á hjalla, spilað og spjallað. Ógleymanleg er ferð okkar systra með mömmu til Edinborgar um árið. Þegar við Maggi urðum fyrir áföllum í okkar lífi, þá stóðst þú, Día, með okkur og gafst okkur góð ráð og styrk sem við varðveitum vel. Þín er sárt saknað, elsku Día, af okkur og Dóra vini þínum. Við Maggi sendum börnum þínum, mökum þeirra og fjölskyldum okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Hvíl í friði, mín kæra systir. Ásta systir. Guðmundína Ingadóttir ✝ Guðný JónaHansdóttir Wí- um fæddist á Ask- nesi í Mjóafirði í S- Múl 3. nóvember 1930. Hún lést á sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 29. októ- ber 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Anna Ingigerður Jónsdóttir, fædd 1.12. 1908 á Melum, Valþjófs- staðarsókn, N-Múl., d. 6.9. 1977, og Hans Guðmundsson Wíum, f. 21.10.1894 í Minni-Dölum, Mjóa- fjarðarsókn, S-Múl., d. 24.7. 1982. Anna og Hans hófu bú- skap á Asknesi en fluttu síðan að Reykjum í sömu sveit eftir að flóð eyddi byggð á Asknesi. Systkini Guðnýjar Jónu eru: Þórunn Stefanía, f. 1928, d. 1991; Inga, f. 1933, d. 1996, maki Bjarni Hólm Bjarnason; Þór- arna Sesselja, f. 1936, maki Nikulás Már Brynjólfsson, d. 1997; Jón Arnar, f. 1938, d. 1997; Guð- mundur Þór, f. 1938, d. 2020, maki Kristlaug Páls- dóttir; Gísli, f. 1941, d. 1997, maki Sig- urlína Sveinsdóttir; Ólafur Óskar, f. 1943; Nanna Guð- finna, f. 1945, maki Karl Jensen Sig- urðsson, d. 2011; Sigríður Lilja, f. 1948, maki Steinþór Hálfdánarson; Arn- fríður, f. 1951, d. 2017, maki Stefán Rúnar Jónsson. Guðný Jóna verður jarð- sungin frá Norðfjarðarkirkju í dag, 6. nóvember 2020 kl. 14. Athöfninni verður streymt á Fa- cebook-síðu Norðfjarðarkirkju. Slóð á streymið er: https://www.facebook.com/ nordfjardarkirkja Einnig má nálgast virkan hlekk á: https://www.mbl.is/andlat Í dag kveðjum við elsku syst- ur mína, við höfum fengið að hafa hana í mörg ár því hún var að verða níræð þegar hún kvaddi. Þú varst að verða 15 ára þegar ég fæddist, það kom mikið á þig að passa mig og hin systk- inin. Þegar þú fórst að heiman þá var svo mikil tilhlökkun alltaf þegar þú varst að koma heim á sumrin. Þú varst á hússtjórn- arskólanum á Laugum 1955-56, við söknuðum þín mikið þau jól, við fengum þá öll pakka frá þér sem þú hafðir saumað eða útbúið sjálf, þetta voru fallegar gjafir. Þetta voru fyrstu jólin sem við fengum pakka frá öðrum en þeim sem voru heima. Svo liðu árin og þú varst að vinna í mat- sölunni á Aðalstræti 12, en Jóna mín þú komst alltaf heim á sumrin. Þú saumaðir ferming- arkjóla á okkur yngri systurnar þrjár. Svo fór ég suður 17 ára á leið í hússtjórnarskóla, þú fórst úr vinnu til að sækja mig með leigubíl á flugvöllinn. Þá var hresst upp á sig og við fórum saman á ball um kvöldið, þú dreifst mig í kjól af Guðnýju móðursystur sem þú varst að vinna hjá. Jóna mín, ég vil þakka þér fyrir allar þær stundir sem við bjuggum saman, fyrst í Sigluvoginum og síðar í Aðal- stræti 12, þar áttum við góðar stundir saman. Við sátum fyrir innan gluggann í Aðalstræti þegar Gildaskálinn brann. Síðan áttir þú íbúð í Stórholti, þar sem þú ætlaðir að vera með menn í fastafæði um tíma en það gekk ekki vel því heilsan á þeim tíma var ekki góð. Svo keyptir þú litla íbúð í Skaftahlíðinni, þú varst að hugsa um mig þar 1972, ég var þá komin að því að eiga dóttur mína elstu, því ég var ein. Þú varst svo góð við öll börn og þeim þótti vænt um þig, Adda mín elskaði að fara til þín og vera hjá þér, eins þótti yngri börnum mínum tveim mjög vænt um þig. Ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman, þú hefur fengið hvíldina. Þín systir Nanna. Guðný Jóna Hansdóttir Wíum Okkar ástkæri KNUD RASMUSSEN, Lundarbrekku 2, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans 27. október. Útförin fór fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Guðrún Fríða Eiríksdóttir Eiríkur Knudsson Gunnar Hrafn Knudsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN THEOPHÍLUS ÓLAFSSON vélfræðingur, frá Látrum í Aðalvík, síðar búsettur við Sogsvirkjanir og á Selfossi, lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn mánudaginn 2. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 6. nóvember klukkan 11. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstand- endur viðstaddir en athöfninni verður streymt á facebook.com/ Streymi-á-útför-Kjartans-T-Ólafssonar-100773981848965/ Fjölskyldan þakkar starfsfólki Seltjarnar fyrir nærgætna og góða umönnun. Jökull Veigar Kjartansson Ólafur Helgi Kjartansson Þórdís Jónsdóttir Skúli Kjartansson Nancy Barish Hjálmar Kjartansson Guðný Anna Arnþórsdóttir Bergdís Linda Kjartansdóttir Þórður Kristjánsson barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.