Morgunblaðið - 06.11.2020, Síða 34
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Atli Sigurjónsson hafnaði í efsta
sæti í einkunnagjöf Morgunblaðsins
í Pepsí-deild karla í sumar eins og
fram kom í blaðinu á þriðjudag.
Morgunblaðið hafði samband við
Atla og spurði hvort 2020 hafi verið
hans besta tímabil í boltanum til
þessa?
„Já ég held að það sé sanngjarnt
að segja það. Ég hef reyndar ekki
hugsað mikið út í það en ég hef lík-
lega ekki fengið eins mikið hrós og í
sumar. Ég hef heldur ekki fengið
jafn góða umfjöllun áður. Líklega er
þetta því besta tímabilið mitt hingað
til,“ sagði Atli þegar Morgunblaðið
sló á þráðinn til hans í gær. Hann
segir ekki gott að átta sig á því
hvers vegna hann sprakk út í sumar
en telur líklegast að hann hafi smám
saman bætt sig og hlutverk hans hjá
KR hafi stækkað í takti við það.
„Til að byrja með náði ég að festa
mig í liðinu og það hjálpar auðvitað
að ná miklum leikjafjölda í byrj-
unarliði. Ég skoraði fleiri mörk í
sumar og skilaði stærra framlagi
fyrir liðið. Ég breytti ekki miklu en
byggði bara ofan á síðasta ár. Hef
líklega byggt jafnt og þétt ofan á
frammistöðuna síðustu árin. Árið
2018 varð smá breyting því þá
fannst mér ég ná að stimpla mig
ágætlega inn aftur hjá KR. Í fyrra
gekk allt upp hjá liðinu og ég byrjaði
oft inni á. Á þessu tímabili gekk
meira upp hjá mér en stigasöfnunin
var ekki eins mikil hjá liðinu.“
Lagði áherslu á þolið
Ef til vill mætti segja að merki-
legt sé hversu vel Atli náði sér á
strik í sumar í ljósi þess að und-
irbúningstímabilið var óvenjulegt
vegna kórónuveirunnar. Leikmenn
liðanna æfðu hver í sínu horni í
margar vikur í samkomubanni og
mótið hófst ekki fyrr en í júní.
„Í rauninni vorum við bara á æf-
ingum hver fyrir sig. Ég var eig-
inlega bara í hlaupaskónum og hljóp
og hljóp. Ég vissi að ég kunni alveg
að sparka í bolta og átti ekki von á
að ég myndi gleyma því. Ég keyrði
því frekar á hlaupin og þolið en
sparkaði varla í bolta.
Nú man ég reyndar eftir einu sem
ég gerði á árinu til að reyna að bæta
mig. Ég æfði skallatækni í
samkomubanninu en það var nánast
í eina skiptið sem ég var með bolta á
þeim tíma. Þá tók ég kærustuna
með út á völl og hún dældi boltanum
inn á teig og ég skallaði. Það er allt-
af hægt að finna einhverja staði til
að æfa svona atriði,“ útskýrði Atli og
segist hafa þurft að bæta sig sem
skallamaður í ljósi þess að hann er
með fremstu mönnum á vellinum
sem kantmaður í 4-3-3 leikkerfinu.
Hann segir ekki hafa verið vanþörf
á. „Ég kunni eiginlega bara að
skalla þegar einhver sendi fyrir frá
hægri. En ég kem sjálfur inn í víta-
teiginn frá hægri. Ég held að það
hafi þróast þannig þegar ég var
yngri og var að leika mér með Ottó
vini mínum á Akureyri. Hann sendi
fyrir á mig frá hægri og ég sendi
fyrir á hann frá vinstri,“ rifjar Atli
upp og hlær.
Tók tíma að læra nýtt hlutverk
Greinarhöfund rámar í að þegar
Atli lét að sér kveða í efstu deild
með Þór á sínum tíma hafi hann ver-
ið á miðjunni. Verið skapandi leik-
maður á miðsvæðinu. Með árunum
hefur hann verið færður út á kant-
inn sem nú skilaði góðum árangri.
Þegar þetta er fært í tal þá segir
Atli að tekið hafi tíma að ná tökum á
nýrri stöðu.
„Já klárlega. Ég hafði alltaf verið
á miðjunni. Ef eitthvað þá var ég
oftar aftarlega á miðjunni. Til dæm-
is þegar Þór fór upp um deild á sín-
um tíma en svo í efstu deild var ég
færður framar. Síðar var ég settur
út á kantinn og til að byrja með
kunni ég ekki alveg á það. Ég spila
stundum eins og miðjumaður á
kantinum en er nú farinn að gera
meira af því sem kantmaður á að
gera á vellinum. Á kantinum er mað-
ur eins og hálfgerður framherji og
það tók tíma að ná tökum á því.“
Aðhald í Melabúðinni
Atli á tvö ár eftir af samningi sín-
um við KR og á honum má skilja að
hann sé orðinn hálfgerður talsmaður
fyrir Vesturbæinn.
„Ég verð hjá KR næstu árin. Ég
er fluttur í Vesturbæinn og er að
reyna að fá fleiri í liðinu til að flytja í
hverfið. Ég reyni að selja þeim sem
eru í KR en búa ekki í hverfinu þá
hugmynd að flytja. Fyrir okkur leik-
mennina þá skiptir máli að anda að-
eins að sér loftinu hérna og hitta
fólkið í Melabúðinni. Ég hef rekið
mig á það. Á sumrin rölti ég þrí-
hyrninginn eins og ég kalla það. Þá
er það sundlaugin, Melabúðin og
KR-heimilið. Þá fer ég á röltið og
hitti fólk. Fæ þá annaðhvort hrós
eða skammir eftir því hvernig geng-
ur. Í fyrra fékk ég til dæmis mjög
mikið út úr þessu. Mér finnst mjög
jákvætt að fá allt þetta pepp og
þessi viðbrögð frá fólki sem þykir
vænt um KR,“ sagði Atli en margir
leikir voru í sumar þar sem stuðn-
ingsmennirnir voru víðs fjarri.
„Það sást á úrslitunum hjá okkur
á heimavelli í ár. Við enduðum í 5.
sæti og við skellum ekki skuldinni
alfarið á þessa staðreynd en þetta
sýnir samt hversu mikilvægir stuðn-
ingsmennirnir geta verið fyrir KR.“
Náði tökum á
hlutverkinu og
blómstraði
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
KR Atli Sigurjónsson unir hag sínum vel í Vesturbænum.
Skallaæfingar með kærustunni í
samkomubanni skiluðu mörkum
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
Alfreð Gíslason stýrði þýska lands-
liðinu til 25:21-sigurs gegn Bosníu í
undankeppni EM 2022 í handknatt-
leik í Düsseldorf í gær. Bosníumenn
leiddu með fjórum mörkum í hálf-
leik, 13:9, en það tók Þjóðverja að-
eins fimm mínútur að jafna metin í
síðari hálfleik og eftir það var leik-
urinn eign þýska liðsins. Þetta var
fyrsti leikur Þjóðverja undir stjórn
Alfreðs sem tók við landsliðinu í
febrúar á þessu ári. Þýskaland er
með 2 stig í 2. riðli keppninnar, líkt
og Austurríki, en Eistland og Bosn-
ía eru án stiga.
Öruggur sigur í
fyrsta leik Alfreðs
Ljósmynd/@DHB_Teams
Þjálfari Alfreð Gíslason fylgist með
leik gædagsins á hliðarlínunni.
Anton Sveinn Mckee synti til sigurs
í 200 m bringusundi í ISL-
mótaröðinni í Búdapest í gærmorg-
un. Anton kom í mark á tímanum
2:03.02 en Íslands- og Norður-
landamet hans í greininni er
2:01.65. Það met setti hann fyrir
fjórum dögum í Búdapest.
Sigur Antons tryggði liði hans,
Toronto Titans frá Kanada, 12 stig
í stigakeppni mótaraðarinnar.
Anton syndir 100 metra bringu-
sund síðar í dag en síðasta mótið,
fyrir undanúrslit stigakeppninnar,
fer fram 9. og 10. nóvember.
Morgunblaðið/Eggert
Fremstur Anton Sveinn McKee er
að gera það gott í Búdapest.
Fyrstur í mark
í UngverjalandiEvrópudeild UEFA
A-RIÐILL:
Roma – CFR Cluj..................................... 5:0
Young Boys – CSKA Sofía ...................... 3:0
Roma 7 stig, Young Boys 4, Cluj 4,CSKA
Sofia 1.
B-RIÐILL:
Arsenal – Molde ....................................... 4:1
Rúnar Alex Rúnarsson var á vara-
mannabekk Arsenal.
Rapid Vín – Dundalk................................ 4:3
Arsenal 9 stig, Molde 6, Rapid Vín 3,
Dundalk 0.
C-RIÐILL:
Hapoel Beer Sheva – Bayer Leverkusen
2:4
Slavia Prag – Nice .................................... 3:2
Slavia Prag 6 stig, Bayer Leverkusen 6,
Nice 3, Hapoel Beer Sheva 3.
D-RIÐILL:
Lech Poznan – Standard Liége............... 3:1
Benfica – Rangers .................................... 3:3
Rangers 7 stig, Benfica 7, Lech Poznan 3,
Standard Liége 0.
E-RIÐILL:
PAOK – PSV ............................................ 4:1
Sverrir Ingi Ingason var ónotaður vara-
maður hjá PAOK.
Omonia Níkósía – Granada...................... 0:2
Granada 7 stig, PAOK 5, PSV 3, Omonia
Níkósía 1.
F-RIÐILL:
Real Sociedad – AZ ................................. 1:0
Albert Guðmundsson lék fyrstu 63. mín-
úturnar með AZ.
Rijeka – Napolí ......................................... 1:2
AZ Alkmaar 6 stig, Napoli 6, Real Socie-
dad 6, Rijeka 0.
G-RIÐILL:
Leicester City – Braga ............................ 4:1
Zorya Luhansk – AEK Aþena ................ 1:4
Leicester 9 stig, Braga 6, AEK 3, Zorya
Luhansk 0.
H-RIÐILL:
Celtic – Sparta Prag................................. 1:4
AC Milan – Lille ....................................... 0:3
Lille 7 stig, AC Milan 6, Sparta Prag 3,
Celtic 1.
I-RIÐILL:
Sivasspor – Qarabag ................................ 2:0
Villareal – Maccabi Tel Aviv.................... 4:0
Villareal 9 stig, Maccabi Tel Aviv 6, Si-
vasspor 3, Qarabag 0.
J-RIÐILL:
Ludogorets – Tottenham......................... 1:3
Antwerpen – LASK Linz......................... 0:1
Tottenham 6 stig, Antwerpen 6, LASK 6,
Ludogorets 0.
K-RIÐILL:
Feyenoord – CSKA Moskva ................... 3:1
Arnór Sigurðsson lék allan leikinn með
CSKA og Hörður Björgvin Magnússon
fyrstu 78 mínúturnar.
Dinamo Zagreb – Wolfsberger ............... 1:0
Dinamo Zagreb 5 stig, Wolfsberger 4,
Feyenoord 4, CSKA 2.
L-RIÐILL:
Hoffenheim – Slovan Liberec ................. 5:0
Rauða stjarnan – Gent ............................. 2:1
Hoffenheim 9 stig, Rauða stjarnan 6,
Slovan Liberec 3, Gent 0.
Danmörk
Ledöje-Smörum – Bröndby.................... 0:1
Hjörtur Hermannsson var ekki í leik-
mannahópi Bröndby.
Tyrkland
B-deild:
Akhisarspor – Etimesgut............ 0:0 4:5 (v)
Elmar Bjarnason kom inn á sem vara-
maður hjá Akhisarspor á 78. mínútu.
Undankeppni EM karla
2. RIÐILL:
Þýskaland – Bosnía .............................. 25:21
Alfreð Gíslason er landsliðsþjálfari
Þýskalands.
3. RIÐILL:
Úkraína – Rússland.............................. 27:27
7. RIÐILL:
Danmörk – Sviss................................... 31:26
8. RIÐILL:
Svíþjóð – Rúmenía................................ 33:30
Knattspyrnumaðurinn Grétar Snær
Gunnarsson er á leið í KR sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Grétar, sem er 23 ára, kemur til fé-
lagsins frá Fjölni þar sem hann lék á
nýafstaðinni leiktíð. Miðjumaðurinn
skoraði eitt mark í sautján leikjum
með Fjölnismönnum í úrvalsdeild-
inni, Pepsi Max-deildinni, í sumar en
liðið féll úr deildinni í haust ásamt
Gróttu. Grétar Snær er uppalinn hjá
FH en hann hefur einnig leikið með
HK og Víkingi úr Ólafsvík hér á
landi. Þá varð hann færeyskur
meistari með HB undir stjórn Heim-
is Guðjónssonar árið 2018. Grétar á
að baki átján leiki fyrir yngri lands-
lið Íslands. bjarnih@mbl.is
Liðsstyrkur í
Vesturbæinn
Harry Kane var á skotskónum fyrir
Tottenham þegar liðið heimsótti Lu-
dogorets í Evrópudeildinni í knatt-
spyrnu í Razgrad í Búlgaríu í gær.
Framherjinn kom Tottenham yfir
strax á 13. mínútu en leiknum lauk
með þægilegum 3:1-sigri enska liðs-
ins. Kane, sem er 27 ára gamall, hefur
leikið með Tottenham allan sinn feril
en þetta var mark númer 200 hjá
framherjanum í einungis 300 leikjum.
Ótrúlegt en satt þá hefur hann nú
skorað 100 mörk á útivelli og 100
mörk á heimavelli fyrir Tottenham.
Kane skýtur þar með mönnum á borð
við Thierry Henry, Alan Shearer og
Wayne Rooney ref fyrir rass. Það tók
Henry 321 leik að skora 200 mörk
fyrir Arsenal og Shearer 380 leiki að
skora 200 mörk fyrir Newcastle. Þá
tók það Rooney 405 leiki að skora 200
mörk fyrir Manchester United en
Sergio Agüero skoraði 200 mörk í 293
leikjum fyrir Manchester City sem
verður að teljast frábært afrek.
bjarnih@mbl.is
AFP
Framherji Harry Kane heldur áfram að raða inn mörkunum hjá Tottenham.
Harry Kane náði
sögulegum áfanga