Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 35
Bestu leikmenn liðanna 2020
(22) – fjöldi leikja Samkvæmt -einkunnagjöf Morgunblaðsins
Hilmar Árni Halldórsson (17) 11
Haraldur Björnsson (17) 9
Alex Þór Hauksson (16) 8
Heiðar Ægisson (17) 8
Daníel Laxdal (16) 7
Stjarnan 85
Patrick Pedersen (17) 14
Aron Bjarnason (18) 13
Sigurður Egill Lárusson (18) 11
Kristinn Freyr Sigurðsson (17) 10
Lasse Petry (17) 8
Valur 108
Brynjólfur Willumsson (17) 12
Viktor Karl Einarsson (14) 10
Thomas Mikkelsen (16) 9
Höskuldur Gunnlaugsson (18) 9
Kristinn Steindórsson (11) 8
Breiðablik 91
Steven Lennon (18) 15
Þórir Jóhann Helgason (18) 12
Gunnar Nielsen (17) 9
Jónatan Ingi Jónsson (16) 8
Guðmundur Kristjánsson (17) 8
FH 98
Ágúst Eðvald Hlynsson (18) 14
Óttar Magnús Karlsson (14) 7
Davíð Örn Atlason (15) 7
Ingvar Jónsson (15) 6
Erlingur Agnarsson (17) 6
Víkingur 86
Stefán Teitur Þórðarson (17) 14
Tryggvi Hrafn Haraldsson (17) 12
Ísak Snær Þorvaldsson (7) 6
Viktor Jónsson (9) 6
Brynjar Snær Pálsson (17) 6
ÍA 86
Valdimar Þór Ingimundarson (14) 13
Aron Snær Friðriksson (17) 8
Ásgeir Eyþórsson (18) 8
Daði Ólafsson (16) 7
Orri Sveinn Stefánsson (16) 6
Fylkir 83
Birnir Snær Ingason (18) 10
Valgeir Valgeirsson (15) 9
Ásgeir Marteinsson (14) 8
Ívar Örn Jónsson (11) 7
Leifur Andri Leifsson (15) 7
HK 86
Atli Sigurjónsson (17) 15
Kennie Chopart (16) 13
Pablo Punyed (16) 10
Kristinn Jónsson (16) 8
Óskar Örn Hauksson (17) 8
KR 85
Brynjar Ingi Bjarnason (18) 10
Rodrigo Gómez (15) 7
Mikkel Qvist (15) 7
Bjarni Aðalsteinsson (18) 7
Hrannar Björn Steingrímsson (17) 6
KA 71
Grétar Snær Gunnarsson (17) 7
Hans Viktor Guðmundsson (18) 7
Sigurpáll Melberg Pálsson (16) 6
Jóhann Árni Gunnarsson (18) 6
Ingibergur Kort Sigurðsson (12) 5
Fjölnir 63
Karl Friðleifur Gunnarsson (15) 11
Kristófer Orri Pétursson (18) 7
Kristófer Melsted (16) 6
Axel Sigurðarson (14) 5
Ástbjörn Þórðarson (14) 5
Grótta 62
Morgunblaðið birtir hér til hliðar
samantekt um þá fimm leikmenn
sem flest M fengu hjá liðunum tólf í
einkunnagjöf blaðsins í Pepsí Max-
deild karla í knattspyrnu í sumar.
Árið var óvenjulegt vegna þeirra
áhrifa sem kórónuveiran hafði.
Deildin hófst seint og gera þurfti hlé
á henni auk þess sem dæmi voru um
að leikmenn færu í sóttkví. Efstu
menn í M-gjöfinni voru mjög jafnir,
hver svo sem skýringin kann að vera
á því. Atli Sigurjónsson úr KR og
Steven Lennon úr FH fengu báðir
15 M og hafnaði Atli í efsta sæti þar
sem hann lék 17 leiki en Lennon 18
leiki. Þar á eftir komu þrír leikmenn
með 14 M. Ágúst Eðvald Hlynsson
úr Víkingi, Stefán Teitur Þórðarson
úr ÍA og Patrick Pedersen sem enn
eitt sumarið var atkvæðamikill hjá
Val.
Fylkismaðurinn Valdimar Þór
Ingimundarson var í baráttunni um
sigurinn í M-gjöfinni, ef þannig má
að orði komast, þar til hann hleypti
heimdraganum og gerðist atvinnu-
maður í Noregi.
ÍA, HK og Víkingur með 86
Þegar M-fjöldi liðanna er skoð-
aður kemur í ljós að Íslandsmeist-
ararnir í Val fengu töluvert fleiri en
næsta lið. Þeir fengu 108 sinnum M í
leikjunum átján. FH-ingar komu
næstir með samtals 98 M og Breiða-
blik fékk 91 M. ÍA, HK og Víkingur
fengu 86 M og fengu því fleiri en
leikmenn liða sem höfnuðu ofar á Ís-
landsmótinu.
Liðin sem þurftu að sætta sig við
að falla úr deildinni, Grótta og Fjöln-
ir, fengu fæst M. Fjölnir fékk 63 M
og Grótta 62 M. Athyglisverð er nið-
urstaðan hjá Karli Friðleifi Gunn-
arssyni, leikmanni Gróttu. Af 62 M-
um hjá Gróttu fékk hann 11 M og
það í aðeins 15 leikjum. kris@mbl.is
Meistararn-
ir fengu
flest M
Morgunblaðið/Eggert
FH Steven Lennon fékk 15 M eins og Atli. Þórir
Jóhann Helgason (29) fékk 12 M.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valur Á Hlíðarenda virðast menn geta treyst á
stöðuga frammistöðu hjá Patrick Pedersen.
Morgunblaðið/Eggert
Fylkir Valdimar Þór Ingimundarson fékk 13 M í
aðeins 14 leikjum áður en hann hélt utan.
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
Knattspyrnumaðurinn Einar Karl
Ingvarsson hefur yfirgefið Íslands-
meistara Vals og gert þriggja ára
samning við Stjörnuna. Einar hefur
síðustu fimm ár leikið með Val og í
þrígang orðið Íslandsmeistari með
liðinu og tvívegis bikarmeistari.
Miðjumaðurinn átti ekki fast sæti í
byrjunarliði Vals á tímabilinu og
byrjaði einungis þrjá deildarleiki.
Einar á að baki 118 leiki í efstu
deild þar sem hann hefur skorað 11
mörk. Hann er uppalinn hjá FH en
hefur einnig leikið með Fjölni og
Grindavík á ferlinum.
Íslandsmeistari
í Garðabæinn
Ljósmynd/Stjarnan
Miðjumaður Einar Karl Ingvarsson
skrifaði undir þriggja ára samning.
Andrés Már Jóhannesson, leikja-
hæsti leikmaður Fylkis í efstu deild
karla í knattspyrnu, hefur ákveðið
að leggja skóna á hilluna. Andrés,
sem er 31 árs gamall, er uppalinn
hjá Fylki í Árbænum og hefur leikið
með félaginu allan sinn feril, að
undanskildum tveimur tímabilum
þar sem hann lék með Haugesund í
Noregi. Andrés á að baki 191 leik í
efstu deild þar sem hann hefur
skorað 15 mörk. Þá lék hann einn
A-landsleik fyrir Ísland gegn Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum
árið 2016.
Skórnir á hilluna
í Árbænum
Morgunblaðið/Ómar
Hættur Andrés Már á að baki 243
meistaraflokksleiki með Fylki.
Knattspyrnuþjálfarinn Kristján Guð-
mundsson hefur framlengt samning
sinn við Stjörnuna og mun þjálfa
kvennalið félagsins næstu tvö árin.
Kristján tók við Stjörnunni árið 2018 og
hefur lokið tveimur tímabilum með lið-
inu. „Það er gífurleg ánægja sem ríkir
með störf Kristjáns og hlökkum við
mikið til þess að fylgjast með þróun
liðsins næstu ár. Liðið endaði í 6. sæti í
Pepsi-Max deildinni þetta árið og er
stefnan sett ofar næstu tímabil, segir í
tilkynningu Garðbæinga. Kristján hefur
á löngum þjálfaraferli þjálfað lið á borð
við karlalið ÍBV, Leikni í Reykjavík,
Keflavík, Val, ÍR og Þór á Akureyri.
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-
knattleik mætir Slóveníu og Búlgaríu í
undankeppni EM dagana 12. og 14. nóv-
ember næstkomandi en leikirnir fara
fram á Krít í Grikklandi. KKÍ sótti um
undanþágu frá æfinga- og keppn-
isbanni yfirvalda hér á landi svo leik-
menn íslenska liðsins gætu æft fyrir
leikina mikilvægu. KKÍ sendi frá sér til-
kynningu í gær þess efnis að íslensk
stjórnvöld hefðu veitt sambandinu und-
anþágu fyrir einstaklingsæfingum án
þjálfara, frá og með síðasta mið-
vikudegi. Liðið mun æfa í Smáranum í
Kópavogi áður en það heldur út til
Grikklands
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís-
landsmeistari í golfi, verður á meðal
þátttakenda á Saudi Ladies Int-
ernational-mótinu, 12.-15. nóvember
næstkomandi, en mótið fer fram í Sádi-
Arabíu. Mótið er hluti af Evrópumóta-
röðinni, þeirri sterkustu í álfunni, en
þetta er í fyrsta sinn í sögu mótarað-
arinnar þar sem keppt er í Sádi-Arabíu.
Gríðarlega sterkir kylfingar á borð við
Georgiu Hall, Önnu Nordqvist og Char-
ley Hull taka þátt á mótinu, en atvinnu-
kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir er
einnig með keppnisrétt en tekur ekki
þátt að þessu sinni vegna meiðsla.
Knattspyrnukonan Mary Vignola er
gengin til liðs við Val en þetta staðfesti
félagið á samfélagsmiðlum sínum í
gær. Vignola, sem er 22 ára gömul,
kemur til Vals frá Þrótti í Reykjavík þar
sem hún sló í gegn í úrvalsdeildinni,
Pepsi Max-deildinni, í sumar.
Hún skoraði sex mörk í tólf leikjum í
deildinni, þrátt fyrir að spila sem vinstri
bakvörður, en hún gekk til liðs við
Þróttara síðasta sumar frá Tennessee-
háskólanum í Bandaríkjunum.
Knattspyrnudeild Þórs á Akureyri og
Páll Viðar Gíslason hafa komist að
samkomulagi um að Páll láti af störfum
sem þjálfari meistaraflokks karla. Vill
félagið ráða þjálfara í fullt starf við
þjálfun liðsins. Þór endaði í fimmta
sæti í Lengjudeildinni í sumar, 1. deild.
Páll þjálfaði Þór fyrst frá 2006 til 2014
og kom liðinu upp í efstu deild sumarið
2012. Leiðir skildi hjá Páli og Þór árið
2014 og hann tók við Völsungi og síðan
Magna áður en hann tók aftur við Þór
fyrir síðasta tímabil.
„Palli Gísla eins og hann er alltaf kall-
aður hefur undanfarið ár og að sjálf-
sögðu mun lengur en það unnið mikið
og óeigingjarnt starf fyrir félagið. Það
er nánast ógjörningur að þakka
honum nægjanlega
fyrir allt sitt framlag
hingað til fyrir Þór
enda Palli einn
af mestu
Þórsurum
sem fyrir
finnast,“
segir í
tilkynn-
ingunni frá
Þór.
Eitt
ogannað