Morgunblaðið - 06.11.2020, Síða 40

Morgunblaðið - 06.11.2020, Síða 40
PRÓFAÐU ÞÆGINDIN OG SLÖKUNINA SEM ÞÚ FÆRÐ Í NÝJU MODULAX HVÍLDARSTÓLUNUM NÝTT Á ÍSLANDI SÆKTU APPIÐ MODULAX OG SKOÐAÐU HVERNIG STÓLLINN LÍTUR ÚT Á ÞÍNU HEIMILI. JAMES STÓLL MEÐ SKEMLI verð 149.900 PANDORA RAFSTILLANLEGUR verð 219.900 Alla Modulax stóla er hægt að sérpanta sem lyftustóla. IRIS RAFSTILLANLEGUR verð 209.900 MODULAX HVÍLDARSTÓLAR HÖNNUN OG ÞÆGINDI Á HVERT HEIMILI ZERO GRAVITY ZERO GRAVITY MODULAX • 3-mótora hvíldarstóll. • Handvirk og þægileg höfuðpúðastilling 42°. • Innbyggð hleðslu- rafhlaða. Endist 250 sinnum fyrir alla mótora. NÝTT! MODULAX MARGAR GERÐIR modulax.be BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM Á SVEFNOGHEILSA.IS FRÍR FLUTNINGUR UM ALLT LAND GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ Hinir árvissu jólatónleikar Björgvins Halldórssonar, Jólagestir Björgvins, munu fara fram í Borgarleikhús- inu í ár og verða sýndir í beinni útsendingu 19. desem- ber kl. 20. Tónleikarnir verða aðgengilegir í gegnum myndlykla Vodafone og Sjónvarps Símans fyrir þá sem vilja horfa á tónleikana í sjónvarpi og verður einnig hægt að kaupa streymi hjá Tix.is og horfa á tónleikana í tölvu eða snjalltækjum en nánari upplýsingar um miða- sölu og tæknileg atriði verða kynnt á næstu dögum. Jólagestir láta ekki sitt eftir liggja á krefjandi tímum Margir þekktir söngv- arar munu koma fram á tónleikunum og fjöldi hljóðfæraleikara, bæði í stór- sveit og strengjasveit, og þrír kórar; Reykjavík Gospel Company, Karlakórinn Fóstbræður og Barnakór Kársnesskóla og dansarar úr Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar munu einnig koma fram. Jólagestir Björgvins í beinni frá Borgarleikhúsinu 19. desember FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 311. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Í rauninni vorum við bara á æfingum hver fyrir sig. Ég var eiginlega bara í hlaupaskónum og hljóp og hljóp. Ég vissi að ég kunni alveg að sparka í bolta og átti ekki von á að ég myndi gleyma því. Ég keyrði því frekar á hlaupin og þolið en sparkaði varla í bolta. Ég æfði skallatækni í samkomubanninu en það var nánast í eina skiptið sem ég var með bolta á þeim tíma,“ segir Atli Sigurjónsson, leikmaður KR, meðal annars um undirbúninginn síð- asta vor í viðtali í blaðinu í dag. Atli varð hæstur í ein- kunnagjöf blaðsins í sumar. »35 Atli hljóp og hljóp í samkomu- banninu en sparkaði lítið í bolta ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Langisandur á Akranesi hefur kom- ið sér vel vegna ýmissa athafna og á svæðinu skammt frá Höfða hjúkr- unar- og dvalarheimili sýnir Frið- þjófur Helgason nú 20 nýlegar ljós- myndir af mannlífinu á Skaganum. „Svona er Akranes“ er fyrsta ljós- myndasýningin við Langasand og verður hún á svæðinu til áramóta. Hún er hluti Vökudaga, sem hafa staðið yfir síðan fyrir helgi og lýkur á sunnudag. Lista- og menningarhátíðin Vöku- dagar hefur verið haldin árlega á Akranesi á haustdögum síðan 2002. Ella María Gunnarsdóttir, for- stöðumaður menningar- og safna- mála Akraneskaupstaðar, er helsti skipuleggjandi hátíðarinnar og valdi sýningarsvæðið fyrir ljósmyndir Friðþjófs. Samkomutakmarkanir vegna kór- ónuveirufaraldursins hafa sett skipuleggjendum ákveðnar skorður, en þeir hafa aðlagað sig breyttum aðstæðum og hugsað út fyrir boxið. Myndlistarsýningar eru til dæmis í gluggum fyrirtækja og á facebook og ljósmyndasýningar í gluggum. „Vegna faraldursins er ekki gott að vera með sýningu í lokuðum sal, en hérna fyrir ofan Langasand er nóg pláss og fólk notfærir sér það að skoða myndirnar um leið og það fer í göngutúr um svæðið,“ segir Frið- þjófur. Fimmta bókin um Akranes Friðþjófur hefur verið afkasta- mikill ljósmyndari og kvikmynda- tökumaður. „Til stóð að gefa út bók með ljósmyndum eftir mig frá Akra- nesi í haust og kynna hana á Vöku- dögum en útgáfan frestast um ár og því má segja að sýningin sé kynning á bókinni,“ útskýrir hann. Þetta verður fimmta ljósmynda- bók Friðþjófs um Akranes. Bragi Þórðarson í Hörpuútgáfunni gaf út fyrstu tvær bækurnar. Vaxandi bær á Vesturlandi kom út 1985 og Saga og samtíð 1998. Kristján Kristjáns- son, sem átti Uppheima á sínum tíma, er útgefandi nýju bókarinnar, en hann gaf út Akranes við upphaf nýrrar aldar 2007 og Akranes milli fjalls og fjöru 2012. „Akrafjallið er alltaf á sínum stað en Sementsverk- smiðjan, sem var á forsíðu fyrstu bókarinnar, er farin og mannlífið breytist jafnt og þétt,“ segir Frið- þjófur, en 200 til 300 myndir eru í hverri bók. „Myndirnar hitta á einhverja taug, því þær sýna Akranes, þetta er Akranes,“ segir Haraldur Stur- laugsson, en hann og Friðþjófur hafa undanfarna mánuði unnið að því að setja upp í Akraneshöllinni varanlega ljósmyndasýningu með skýringartextum um íþróttalíf á Akranesi. Sýningin er að stofni til önnur sýning, „Íþróttir í 100 ár“, sem þeir útbjuggu í tilefni 100 ára afmælis Ungmennafélagsins á Akra- nesi fyrir áratug. Uppsetningin hef- ur frestast vegna kórónuveirufarald- ursins, en Friðþjófur segir að verkin séu nánast tilbúin og sýningin verði væntanlega fljótlega að veruleika. „Þetta er allt að smella.“ Ljósmynd/Hilmar Sigvaldason Vökudagar Ella María Gunnarsdóttir og Friðþjófur Helgason við ljósmyndasýninguna við Langasand. „Svona er Akranes“  Friðþjófur með fyrstu ljósmyndasýninguna við Langasand

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.