Morgunblaðið - 12.11.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.11.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 markaðir standa að baki síðunni, en fyrirtækið hefur sömuleiðis haldið fjölda hefðbundinna markaða síðustu ár. Engir slíkir viðburðir hafa þó ver- ið á dagskrá í ár sökum ástandsins. Eyrún Anna Tryggvadóttir, einn eig- enda POP-markaða, segir að tugþús- undir Íslendinga hafi nýtt vefinn á Degi einhleypra. „Við erum að vona að þetta verði á bilinu 60 til 100 þúsund manns sem fara inn á heimapopup.is. Þetta er miklu meiri umferð en í fyrra, við finnum að þetta er algjörlega tímabil- ið til að kaupa inn. Fólk vill gera kaupin á netinu í stað þess að vera að fara í verslanir þar sem eru miklar takmarkanir,“ segir Eyrún og bætir við að fyrirtækjum hafi haldið áfram að fjölga á síðunni í gær. Þá hafi mikil umferð verið á vefnum strax eftir miðnætti í gær. „Það eru einhvern veginn allir að taka þátt í þessu. Við vorum enn að taka við umsóknum frá fyrirtækjum á deginum sjálfum. Þetta er góð yfirlitssíða þar sem fólk getur séð afslættina og hverjir taka þátt í átakinu.“ Spurð hvort margir nýti tækifærið til að klára jólagjafakaup í gegnum vefinn kveður Eyrún já við. Þá hafi mikið selst af leikföngum og heim- ilistækjum. „Það er auðvitað enginn að fara utan til að klára jólagafirnar. Það eru því kostir og gallar við þetta ástand fyrir verslanir.“ leiðis einkar heppilegur til að para saman einhleypa einstaklinga í Kína. Netsala á Degi einhleypra nemur nú mörg hundruð milljörðum króna á heimsvísu. Dagurinn hefur fest sig betur í sessi hér á landi síðustu ár. Að- spurður segir Guðmundur að ljóst sé að fólk nýti góð kjör til að klára jóla- gjafakaup. „Við sjáum rosalega mikið fara af raftækjum og svo fara leik- föng líka mikið. Það kemur sömuleið- is á óvart hversu mikið fer af bókum. Þær seljast í bílförmum. Það eru margir að nýta tækifærið og kaupa jólagjafir.“ Salan fór af stað á miðnætti Á þriðja hundrað verslana tóku þátt í Degi einhleypra í gegnum vef- síðuna heimapopup.is í gær. Um er að ræða síðu þar sem hægt er að nálgast tilboð fjölda verslana, er síðan þar af leiðandi eins konar yfirlitssíða. POP- Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Dagur einhleypra eða „Singles day“ var haldinn hátíðlegur hér á landi í gær. Gríðarlegur fjöldi landsmanna tók þátt í fjörinu, en um er að ræða stærsta netsöludag heims. Guð- mundur Magnason, framkvæmda- stjóri Heimkaupa, segir að salan í ár sé umtalsvert meiri en í fyrra. Þá sé Dagur einhleypra nú orðinn lang- stærsti netsöludagur ársins. „Okkur grunaði að þeir sem hafa verið að kaupa dagvöruna hjá okkur í faraldr- inum myndu færa sig yfir í sérvöruna þegar nær drægi jólum. Það er að raungerast en auk þess erum við að fá inn gríðarlegt magn af nýjum kúnnum. Þetta er langstærsti dagur ársins,“ segir Guðmundur sem ráð- gerir að veltan í gær hafi hlaupið á um hundrað milljónum króna. „Ég held að ég geti fullyrt að við verðum fyrir norðan hundrað milljónir króna.“ Margir að kaupa jólagjafir Dagur einhleypra á rætur að rekja til tíunda áratugar síðustu aldar í Kína. Dagurinn var þá tileinkaður einhleypum einstaklingum, sem vildu gera vel við sig og gefa sjálfum sér gjafir. Frá þeim tíma hefur dagurinn þróast yfir í að verða stærsti netsölu- dagur heims. Þá þykir hann nú sömu- Morgunblaðið/Árni Sæberg Álag Gríðarlegt álag var á starfsfólki Heimkaupa í gær. Ráðgert er að veltan hafi verið um 100 milljónir króna. Tugþúsundir tóku þátt í Degi einhleypra  Mikil aukning milli ára  Heimkaup veltu 100 milljónum Guðmundur Magnason Eyrún Anna Tryggvadóttir Fjölskyldubingó mbl.is verður haldið í þriðja sinn í kvöld og hefst kl. 19 á mbl.is og rás 9 í Sjónvarpi Símans. Stjórnendur sem fyrr eru Siggi Gunnars og Eva Ruza. Tugþúsundir Íslendinga hafa tekið þátt í bingóinu og í síðustu viku flugu vinningarnir út, heildarverðmæti þeirra var um 600 þúsund krón- ur. Okkar ástkæri söngvari Páll Óskar sá um að halda uppi stuðinu sem aldr- ei fyrr. Í kvöld kl. 19 verður blásið til áframhaldandi veislu en það er enginn annar en Jón Jónsson sem ætlar að mæta í stúdíóið og syngja fyrir þátttakendur bingósins. „Ásóknin í bingóið í síðustu viku var gríðarlega mikil og fundum við allhressilega fyrir því. En við mætum til leiks í kvöld ennþá öflugri og með margfalt fleiri vinninga svo fleiri fái að njóta,“ segir bingóstjórinn Siggi Gunnars. Heildar- verðmæti vinninga kvöldsins er yfir 1,7 milljónir króna og þátttaka er sem áður takmörkuð. Því er mikilvægt að tryggja sér bingóspjald sem allra fyrst. Allar upplýsingar um þátttöku og útsend- ingu má finna með því að fara á bingó- síðuna www.mbl.is/ bingo. Fjölskyldubingó á mbl.is í kvöld  Verðmæti vinninga yfir 1,7 milljónir Bingó Siggi Gunn- ars og Jón Jónsson sjá um fjörið í kvöld. Andrés Magnússon andres@mbl.is Ríkisstjórnarflokkarnir ræða nú sín í millum nýjar leiðir til þess að styrkja rekstrarumhverfi fjölmiðla, en sem kunnugt er hefur reynst erfitt að þoka frumvarpi menningarmála- ráðherra um fjölmiðlastyrki í gegnum þingið. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er helst horft til þeirrar lausnar, að í stað beinna styrkja til einkarekinna fjölmiðla verði skatt- kerfið notað til þess að skjóta styrkari stoðum undir rekstrarumhverfi fjöl- miðlanna í svipuðum mæli og í fyrra frumvarpi. Þingmenn, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, vörðust flestir allra frétta, enda viðræður milli fulltrúa stjórnarflokkanna á viðkvæmu stigi. Þeir voru þó nokkuð bjartsýnir á að með þessu móti mætti ná þeirri sam- stöðu stjórnarflokkanna um málið, sem skort hefði til þessa, en hug- myndir um styrkjakerfi hafa staðið mjög í þingflokki sjálfstæðismanna, svo mjög að útilokað var að málið hlyti afgreiðslu. Með þessu móti væri hins vegar um skattkerfisaðgerð að ræða, sem ekki kallaði á sams konar íhlutun og eftirlit hins opinbera með fjölmiðlum og styrkjakerfið gerði ráð fyrir. Um leið myndu umsvif eða eðli fjölmiðla ekki skipta máli, þeir nytu breytingarinn- ar allir jafnt, stórir miðlar sem smáir. Margt er þó enn ófrágengið í þess- um efnum og áherslumunur með fulltrúum stjórnarflokkanna um ýmis smáatriði, áður en unnt er að leggja tilbúið mál fyrir þingflokka og ríkis- stjórn. Þar á meðal eru umsvif Ríkis- útvarpsins á fjölmiðlamarkaði, sem eru sjálfstæðismönnum þyrnir í aug- um, en þeirra sjónarmiða mun þó gæta víðar. Ekki er talinn munu vinn- ast tími til stórfelldra breytinga að því leyti, en rætt um táknræn fyrstu skref. Nýtt fjölmiðlafrumvarp í bígerð  Hugmyndir um styrkjakerfi einkarekinna fjölmiðla lagðar á hilluna  Rætt um að beita skattkerfinu til þess að bæta rekstrarumhverfi miðlanna  Umsvif Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði enn órædd Morgunblaðið/Eggert Fjölmiðlar Ríkisstjórnarflokkarnir reyna nýja nálgun til að styðja fjölmiðla. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra. Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna sem efla atvinnulíf og nýsköpun. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2020. Umsóknir berist rafrænt í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Allar nánari upplýsingar á anr.is Styrkir til verkefna og viðburða
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.