Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 12

Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 GRUNNUR AÐ GÓÐRI HEILSU Vissir þú að um 80% af ónæmiskerfinu eru í meltingarveginum? KEFIR er auðugur af lifandi góðgerlum sem fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að bæta meltinguna og viðhalda heilbrigðri þarmaflóru. Hann inniheldur einnig mikið af próteini, kalki og nauðsynlegum vítamínum eins og B12. KEFIR - KOMDU HEILSUNNI Í JAFNVÆGI Einn af kennurunum mínum ílæknadeild Háskóla Íslandssagði einhverju sinni við okkur nemendur sína að ef hreyfing væri tafla eða pilla myndu allir læknar skrifa upp á slíka lyfseðla fyrir skjólstæðinga sína. Ég tek heilshugar undir þessi orð. Tel að hreyfipillan yrði notuð bæði sem forvörn og meðferð og líklegast yrðu allir, veikir jafnt sem hraustir, settir á hana. Ætli þetta yrði ekki mest selda lyf í heimi? Myndi lengja lífslíkur Hreyfipillan yrði sennilega besta forvörn sem völ væri á fyrir til að mynda hjarta- og æðasjúkdóma, verkjasjúkdóma, krabbamein og svo mætti lengi áfram telja. Pillan myndi draga umtalsvert úr líkum á brjóstakrabbameini hjá konum sem og blöðruhálskirtilskrabbameini meðal karla. Þannig leikur enginn vafi á því að pillan myndi í raun lengja lífslíkur fólks töluvert. Hreyfipillan nýttist líka sem við- bótarmeðferð við fjölda krabba- meina, hjarta- og æðasjúkdóma, kvíða, þunglyndi og jafnvel sem að- almeðferð við langvinnum verkjum og hrumleika. Þessi ofurpilla fengist í öllum regnbogans litum allt eftir því hvaða eiginleika hún ætti að hafa, eins og til dæmis að styrkja vöðva, þol eða andlega vellíðan. Líklega væru þó flestar gerðir hreyfipill- urnar gæddar fleiri en einum eigin- leika. Eitt af því besta við hreyfi- pilluna væri þó að hún væri nær laus við allar aukaverkanir, ólíkt öðrum lyfjum. Það er augljóst að það væri öllum til hagsbóta að taka inn þetta undralyf, sem í raunveru- leikanum er ekki til. 30 mínútur á dag Að hreyfa sig er oft jafngóð lausn og sú að taka lyf, enda þótt hún krefjist aðeins meira framlags af okkar eigin hálfu. Lausnin er hreyfing. Við getum sjálf farið út að ganga eða hreyft okkur með öðru móti. Sjálfur hjóla ég oftast til vinnu en hreyfi mig einnig mér til ánægju og heilsubótar. Hreyfingin hefur alla sömu kosti og hreyfipill- an. Hún þarf þó hvorki að kosta mikla peninga né tíma, en ráðlegg- ingar landlæknis eru þær að fólk ætti að hreyfa sig í 30 mínútur á dag, fimm daga vikunnar. Samkvæmt viðmiðum landlæknis þarf hreyfingin að vera af meðal- mikilli ákefð en það þýðir að ganga rösklega eða skokka létt svo hjart- slátturinn rísi aðeins. Nánari útlist- un á viðmiðum landlæknis má finna á heilsuvera.is. Þetta eru þó ein- ungis lágmarksviðmið og rann- sóknir sýna að þú getur aukið ávinninginn með því að hreyfa þig meira. Það má hreyfa sig upp í margföld lágmarksviðmið án þess að það hafi ókosti í för með sér. Spjallgöngutúr með vini eða vin- konu er líklega of hægur til þess að ná þessum lágmarksviðmiðunum, þó hann hafi vissulega ýmis önnur jákvæð áhrif. Ganga, hlaupa eða hjóla Fyrir þá sem eiga erfitt með að byrja að hreyfa sig hefur heilsu- gæslan úrræði eða svokallaða hreyfiseðla. Hreyfiseðillinn er með- ferðarkostur við sjúkdómum eða einkennum þeirra sjúkdóma sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á, eins og syk- ursýki 2 eða offitu. Seðlar þessir eru gerðir í samráði við hvern og einn sjúkling og sett upp raunhæf áætlun til þess að auka við hreyf- ingu. Áætluninni er svo fylgt eftir af hreyfistjóra. Það er aldrei of seint að byrja því hreyfingin er bæði gagnleg sem forvörn og með- ferð og ávinningurinn því mikill. Ég legg því til að allir hefji meðferð með „hreyfipillunni“ og fari út að ganga, hlaupa, hjóla eða í aðra heyfingu sem gott gerir. Hreyfipillan er besta forvörnin Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útivera Hreyfingin þarf að vera af meðal-mikilli ákefð sem þýðir að ganga rösklega eða skokka svo hjartsláttur rísi aðeins, segir Ívar læknir hér á hjólinu. Heilsuráð Ívar Örn Clausen læknakandídat á Heilsugæslunni i Mosfellsumdæmi. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég fékk hugmyndina aðþessu fyrir meira en ára-tug, þegar ég var í heim-sókn hjá dóttur minni sem þá bjó úti í Danmörku. Við fórum oft saman á nytjamarkaði og þar sá ég gríðarlega mikið af gömlum útsaums- myndum. Einn góðviðrisdaginn sagði ég við dóttur mína þar sem við sátum saman úti í sólinni að ég væri að hugsa um að yfirdekkja sjálf sófann minn í borðstofunni heima með gömlum út- saumsmyndum,“ segir Sigrún Gunn- arsdóttir sem óð í verkið þegar heim var komið. „Meðfram þessari vinnu minni með sófann gerði ég líka eina tösku úr útsaumsmyndum. Þetta er taska til að hengja á sig og ég notaði klukkustreng í stað axlarbands. Þetta var fyrsta taskan sem ég gerði og ég fór svo seinna líka að gera kolla með útsaumsáklæði, fyrst fyrir dóttur mína og vinkonur hennar, en seinna til að selja,“ segir Sigrún sem alltaf finnur Gefur til baka til samfélagsins Sigrún Gunnarsdóttir greindist með brjóstakrabba- mein fyrir tæpum þremur árum. Hún vill gefa sam- félaginu til baka, þakka fyrir að hafa fengið lækningu og hjúkrun. Það gerir hún með því að selja kolla og töskur sem hún býr til úr gömlum útsaumi, en andvirðið rennur óskert til Ljóssins, endurhæfingar- miðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda. Morgunblaðið/Eggert Skapandi Sigrún með fyrstu útsaumstösku sína þar sem gamall klukkustrengur er í hlutverki axlarbands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.