Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 16

Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 Enn verður bið á útkomu skýrslu starfshóps sem samgönguráðherra skipaði í sumar til að endurmeta áætlanir um Sundabraut. Vegagerðin leiðir starfið og stóð til að skýrsla starfshópsins yrði tilbúin í ágúst sl. Vinnan fór síðar af stað en ætlað var vegna Covid og því var skilum frestað fram í lok októ- ber, upplýsir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Síðan var ákveðið að leggja í frek- ari vinnu með umferðarspár og arð- semisgreiningar og því er búið að fresta útkomu skýrslunnar fram í lok nóvember. Það á svo eftir að koma í ljós hvort sú áætlun stenst, en vinnan gengur ágætlega hjá starfshópnum að sögn G. Péturs. Verkefni starfshóps ráðherra er að endurmeta þá tvo kosti sem starfshópur um Sundabraut á veg- um ríkisins og Samtaka sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) taldi fýsilegasta í skýrslu sinni sem kynnt var í júlí í fyrra. Það eru jarð- göng yfir í Gufunes og lágbrú sem þverar hafnarsvæðið við Kleppsvík. Hópurinn á að gera tillögu að fram- tíðarlausn sem fest yrði í skipulagi. Í hópnum eru: Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri höfuðborgarsvæðis Vegagerðarinn- ar, Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar, Jón Kjartan Ágústsson, svæðis- skipulagsstjóri höfuðborgarsvæðis- ins, og Gísli Gíslason, fyrrverandi hafnarstjóri Faxaflóahafna. sisi@mbl.is Sundabrautar- skýrslan frestast Morgunblaðið/Hallur Már Landtaka Sundabrautin þverar Kleppsvík milli Gufuness og Sundahafnar. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nokkurrar óánægju gætir meðal íbúa á norðanverðum Vestfjörðum yfir strjálum flugferðum Air Iceland Connect til og frá Ísafirði. Þegar best lét fyrir nokkrum árum var fé- lagið garnan með tvær ferðir á dag á Ísafjarðarleiðinni, það er að morgni og síðdegis. Vegna minni eftir- spurnar hefur fé- lagið fækkað ferðum og í líð- andi viku eru þær aðeins fjórar; það er sunnudag, mánudag, mið- vikudag og föstu- dag. „Auðvitað vildum við ekkert frekar en vera með stöðugar ferðir hér á milli, en veruleikinn býður ekki upp á slíkt,“ segir Þorlákur Ragnarsson, stöðvarstjóri flugfélagsins á Ísafirði. Góð reynsla af Loftbrú „Ferðaþjónustan er alveg í lá- deyðu, atvinnulífið í hægagangi og fólk er hvatt til þess að ferðast helst ekki milli landshluta. Auðvitað sér þessa stað í farþegatölum. Hingað vestur er flogið á Bombardier Q200- vélum sem taka 37 farþega og síð- ustu vikurnar hefur sætanýtingin verið mjög lítil. Af sjálfu sér leiðir þá að við fækkum ferðum, þó líka sé horft til samfélagslegrar ábyrgðar með því að halda uppi lágmarksþjón- ustu. Kjarni málsins er sá að flugið á þessari leið nýtur ekki ríkisstyrkja og reksturinn verður að bera sig,“ segir Þorlákur. Snemma í haust kynntu stjórn- völd Loftbrúna svonefndu, en skv. henni býðst fólki á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi 40% af- sláttur af heildarfargjaldi fyrir allt að 6 flugleggi á ári. Reynslan þarna er góð, að sögn Þorláks. Fólk var að- eins að taka við sér við að nota Loft- brúna þegar þriðja bylgja kórónu- veirusmitanna fór af stað. Vonandi komist það aftur af stað þegar veir- an gefur eftir. Þurfa fyrirsjáanleika í flugi Um miðjan apríl sl. þegar fyrsta bylgja veirusmitanna gekk yfir sömdu stjórnvöld við Air Iceland Connect um reglulegar ferðir til Ísa- fjarðar og Egilsstaða. Slíkt bakslag var í farþegafjölda þá að flugið hefði lagst af, hefði ríkisstuðningur ekki komið til. Samningurinn var til skamms tíma og hefur ekki verið endurnýjaður eins og þörf er á að mati Höllu Signýjar Kristjáns- dóttur, þingmanns Framsóknar- flokksins í Norðvesturkjördæmi. „Við Vestfirðingar þurfum fyrir- sjáanleika í flugsamgöngum, sem við erum mjög háð meðal annars með tilliti til heilbrigðisþjónustunnar. Þá gengur ekki að aðeins sé flogið eftir efnum og aðstæðum. Fólk ekur þá frekar á milli þurfi að sækja eitthvað til Reykjavíkur,“ segir þingmað- urinn og ennfremur: „Einnig má benda á að sýni vegna kórónuveir- unnar sem tekin eru á Vestfjörðum eru send suður til greiningar og þeg- ar kemur nokkurra daga eyða í flug- ið verður bið fólks sem er í sóttkví alltaf talsvert lengri en ella væri. Til þessa og margs annars þarf að horfa hér vestra þar sem samöngur eru oftar en ekki mál málanna.“ Hægt hefur á öllu Bæjaryfirvöld í Ísafjarðarbæ fylgjast vel með stöðu mála í fluginu. „Að ferðum sé fækkað meðan farald- urinn gengur yfir er mjög skiljan- legt. Vel er greinanlegt hvernig hægir á öllu þegar fólk er bók- staflega hvatt til þess að vera sem minnst á ferð,“ segir Daníel Jak- obsson, formaður bæjarráðs og hót- elstjóri á Ísafirði. „Flugið er öllu hér í bæ afar mikilvægt og ég trúi að ferðum hingað verði fjölgað aftur um leið og aðstæður leyfa slíkt.“ Fáar flugferðir og fólk vestra er ósátt  Ísafjörður fjórum sinnum í viku  Ríkið veiti stuðning Morgunblaðið/Árni Sæberg Ísafjarðarflug Vélin afísuð. Samgöngur eru alltaf mál málanna vestra. Halla Signý Kristjánsdóttir Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir hluta Laugavegar, milli Klapp- arstígs og Frakkastígs, hefur verið auglýst og er athugasemdafrestur til 11. desember nk. Í tillögunni felst að hluti Laugavegar og Vatnsstígs verður gerður að varanlegum göngugötum og samhliða því er unn- ið að hönnun ýmissa lausna til að bæta götuna og umhverfið. Gert er ráð fyrir að endurnýja allt yfirborð, hellur, gróður, götugögn og lýsingu. Samþykkt var í borgarstjórn Reykjavíkur 4.september 2018 að fela umhverfis- og skipulagssviði að útfæra Laugaveg og Bankastræti sem göngugötur allt árið, ásamt þeim götum í Kvosinni sem koma til greina sem göngugötur. Í kynningargögnum með tillög- unni segir að Laugavegurinn sé helsta verslunargata Reykjavíkur frá fornu fari og hafi vegna sögu og starfsemi mikið aðdráttarafl fyrir gesti og gangandi bæði innlenda og erlenda. Með umbreytingu og end- urhönnun Laugavegar sé markmiðið að gæða götuna enn meira lífi með því að veita gangandi og hjólandi vegfarendum aukið rými í henni frá því sem nú er. Í dag sé lítið samræmi á heildaryfirbragði götunnar og um- hverfi hennar. Laugavegurinn beri þess merki að vera unninn af mörg- um hönnuðum á mismunandi tímum svo ákveðinn heildarblæ skorti. Með fyrirhuguðum endurbótum á Laugaveginum gefist nú tækifæri til að skapa nýtt heildaryfirbragð göt- unnar. Samhliða verði unnið að hönnun ýmissa lausna til að bæta götuna og umhverfið. Má þar nefna aðgangs- stýringar, kantalaust yfirborð, bætt aðgengi, leiðarlínur og aðgengi inn í verslanir, dvalarsvæði og götugögn, lýsingu og fjölgun bílastæða fyrir hreyfihamlaða í aðliggjandi hliðar- götum.Gert er ráð fyrir að endur- nýja allt yfirborð, hellur (götugólf), gróður, götugögn og götulýsingu. „Allt yfirborð og götugögn skulu valin af kostgæfni og þannig að göturýmið sómi sér vel sem göngu- svæði í miðborg. Lýsing skal vera þægileg, listræn, stuðla að öryggis- tilfinningu og vera án glýju eða til óþæginda á efri hæðum bygginga. Götugólf skal mynda heilsteypt og rólegt yfirborð fyrir bætt aðgengi allra,“ segir í kynningargögnunum. Tillöguna má nálgast á vefnum www.reykjavik.is, skipulag í kynn- ingu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 11. desember 2020. Morgunblaðið/Eggert Laugavegur Gatan verður lagfærð og verður síðan göngugata allt árið. Laugavegurinn endurnýjaður  Vilja gæða götuna enn meira lífi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.